Dagur - 05.10.1982, Page 1

Dagur - 05.10.1982, Page 1
MIK.lt) ÚRV SKARTGRU- SKRÍNUM GULLSMtÐIR , SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREVRI 65.úrgangur Akureyri, þriðjudagur 5. október 1982 109. tölublað Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra: Spáir kosn- ingum í vetur „Það má segja að ríkisstjórnin sé komin að þrotum, enda hefur hún misst þann stuðning í þinginu sem hún hafði í upphafi. Að mín- um dómi er hún ekki sú hin sama og hún var eftir að Eggert Hauk- dal Iýsti því yfir að hann styddi ekki ríkisstjórnina Iengur og hið sama mátti lesa út úr orðum Alberts Guðmundssonar,“ segir Ingv- ar Gíslason, menntamálaráðherra, í viðtali sem birtist innan skamms i Degi. Aðspurður sagði Ingvar að hann ætti allt eins von á því að það yrðu kosningar í vetur, en hann vildi ekki tímasetja slíkar hugleiðing- ar. „Það væri áfall fyrir þjóðina ef þessi stjórn getur ekki setið út kjörtímabilið, sem yrði stutt í reynd ef kosið verður í vetur. Það var kosið í desember 1979 og þessi ríkisstjórn var mynduð í febrúar 1980. Hún yrði aðeins um 3ja ára ef gengið verður til kosninga í vetur. Að mínu mati er það af- skaplega æskilegt ef ríkisstjórnin gæti setið út kjörtímabilið, m.a. með tilliti til hve stuttur starfstími hennar yrði.“ Aukaleg aldurshækkun Á föstudag komu starfsmenn Vatnsveitu, Hitaveitu, Rafveitu og Áhaldahúss á bæjarskrifstof- urnar til að ná í kaupið sitt. Þeir afhentu þar um leið áskorun á bæjaryfirvöld að ganga strax að kröfum STAK. Myndin var tekin þegar starfsmennirair voru mættir við bæjarstjórnarskrifstofumar. Þess má geta að hér er um að ræða sérkjarasamninga, sem eru nú ræddir á undan aðalkjarasamn- ingi og sagði Erlingur að það væri gert á þeim forsendum að bæjar- starfsmenn gengju síðan að aðal- kiarasamninoi RSRR í kvöld verður fundur í STAK þar sem rætt verður um tilboð Akureyrarbæjar tU handa lág- launafólki í félaginu, en að undanförnu hafa fulltrúar STAK og Akureyrarbæjar rætt um lausn á því máli. Erlingur Aðalsteinsson, einn fulltrúa STAK í viðræðunum, sagði að í tilboði bæjarins fælist aukaleg aldurshækkun fyrir þá sem eru neðst í launastiganum. „Hún bjargar ákaflega miklu og á við um 100 til 150 manns í félag- inu,“ saeði Erlineur. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir og Valgerður Bjamadóttir forseti bæjarstjórnar Akureyrar ganga í fundar- Wjt / ■' X ■SÉÍf" , : Jm . .. r ’ -,5' ■ <' •- WjM t |ii| 1 1 'i Fjölmennur stofnfundur salinn. Félag aldraðra á Akureyri: Stofnfundur Félags aldraðra á Akureyri var haldinn í Sjallan- um á sunnudag. Húsfyllir var og töldu menn að yfir 500 manns hafi setið fundinn. Fundarstjóri var Bragi Sigur- jónsson en ávörp fluttu forseti ís- lands Vigdís Finnbogadóttir, biskup íslands hr. Pétur Sigur- geirsson, Gestur Ólafsson, Jón G. Sólnes, sem kjörinn var formaður bráðabirgðastjórnar félagsins, og Valgerður Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, sem færði félaginu 20 þúsund krónur frá bæjarstjórn. Kveðjuorð og heillaóskaskeyti bárust á fundinn frá menntamála- ráðherra og heilbrigðis- og félags- málaráðherra. í ávarpi sínu sagði Vigdís Finn- bogadóttir m.a. að flestir væru aldir þannig upp að þeir bæru mikla virðingu fyrir ellinni. Aldrei væri of mikið gert fyrir aldrað fólk og allt ætti að gera til að ellin yrði sem gleðiríkust. Þó við gætum ekki lagt Elli kerlingu að velli gætum við a.m.k. dansað við hana og raulað með. Pétur Sigurgeirsson sagði m.a. að stofn- un þessa félags væri einn mark- verðasti árangur þeirrar hugsjón- ar sem ár aldraðra hefði vakið með okkur. Þetta væri stórt og merkilegt hugsjónamál sem snerti allan landslýð. Gestur Ólafsson úr undirbúningsnefnd kynnti fé- lagið og sagði að þeir sem að því stæðu vildu bæta aðstöðu aldr- aðra og vera með í ráðum. Þetta yrði ekki þrýstihópur í venjuleg- um skilningi og félagið myndi ekki hóta afarkostum þó ekki yrði farið að vilja félagsmanna. Bragi Sigurjónsson las síðan lög félagsins og kosning fór fram. Jón G. Sólnes var kjörinn for- maður, eins og áðursagði, og með honum í stjórn Erlingur Davíðs- son, Júdit Jónbjörnsdóttir, Ragn- ar Ólafsson og Stefán Reykjalín. í varastjórn Gestur Ólafsson, Guð- rún Arnadóttir, Guðrún Jóns- dóttir, Einhildur Sveinsdóttir og Ingibjörg Halldórsdóttir. I ávarpi sínu sagði Jón G. Sól- nes að hann væri alinn upp í mik- illi einstaklingshyggju og hefði lít- ið komið nálægt félagsmálum. Það gæti því komið fleirum en honum á óvart að hann skyldi nú orðinn formaður þessa félags. Hann sagðist alls ófróður um þessi mál og hefði ekkert annað fram að leggja nema góðan vilja. Þakkaði hann sérstaklega Jóni Björnssyni, félagsmálastjóra, hans þátt í stofnun þessa félags, svo og samstarfsmönnum hans. Valgerður Bjarnadóttir sagði að verkefni félagsins yrðu vafalaust margvísleg. Erfið barátta væri framundan en félagsmenn væru vel undir hana búnir og hefðu reynsluna af lífsbaráttu, sem hennar kynslóð þekkti ekki. Flutti hún kveðjur bæjarstjórnar og færði félaginu peningaupphæð sem áður gat. í fundarhléi var veitt kaffi og léttar veitingar og síðan lék Karl Jónatansson á harmoniku og Kristján frá Djúpalæk flutti bund- ið og óbundið mál. Ingimar Eydal stjórnaði fjöldasöng. Gunnar Karlsson, formaður Ferðamálafélags Akureyrar: „Engin aukning oroin hér á gistirými í á annan áratug“ „Við gerum okkur alveg grein fyrír þeim stórauknu möguleik- um sem opnast með þessari lengingu flugbrautarínnar. Flugleiðir hafa þegar lýst því yfir að hingað verði flogið einu sinni í viku frá Kaupmanna- höfn auk þess sem gera má ráð fyrir leiguflugi og ýmis konar öðrum möguleikum,“ sagði Gunnar Karlsson, formaður Ferðamálafélags Akureyrar, í samtali við Dag. Eins og flestum mun kunnugt, eru möguleikar til þess að taka á móti auknum fjölda ferðamanna, ekki fyrir hendi á Akureyri, og segja má að vandræðaástand ríki í hótelmálum þótt ekki komi til aukning ferðamanna til bæjarins. „Við erum alls ekki undir það búnir að taka á móti auknum fjölda ferðamanna hingað meðan hótelrými er ekki meira. Ef ekk- ert fer að gerast í þeim málum verður sá þáttur mjög lítill fyrir okkur Akureyringa. Annars má segja að nú opnist möguleikar á að taka við hópum beint hingað til Norðurlands utanlands frá og hugsanlega myndi það fólk dvelja hér eina eða fleiri nætur. Síðan gæti þetta fólk farið um fjórðung- inn, austur í Mývatnssveit, svo dæmi sé nefnt og ferðin sem yrði skipulögð héðan gæti allt eins lok- ið í Reykjavík." - Hefur Ferðamálafélag Akur- eyrar ekkert ályktað um þetta grundvallarmál, að hafa gistirými til þess að geta tekið við þessu fólki til Akureyrar? „Við áttum fund með bæjarráði um þetta mál í vor og tókum fyrir þá þætti sem okkur þótti brýnast að leysa. Eitt af því var lenging flugbrautarinnar og í framhaldi af því hótelmálin og staða þeirra. Við gerum okkur fulla grein fyrir því ófremdarástandi sem ríkir í þessum málum. Þó ekki komi til sú viðbót ferðamanna sem jafnvel er fyrirsjáanleg þá er ástandið mjög slæmt í hótelmálunum enda hefur ekkert gerst í þeim málum svo lengi að það er ekki nema von. Það hefur engin aukning orðið hér á gistirými á annan ára- tug og það húsnæði sem hér er hefur þá frekar úrelst heldur en hitt,“ sagði Gunnar Karlsson. Eins og fram hefur komið í Degi stendur til að auka gistirými á Hótel KEA. Gunnar Karlsson, sem jafnframt er hótelstjóri þar, tjáði okkur að unnið væri að því að fullteikna hugmyndir um stækkun hótelsins og fullur vilji væri fyrir því að fara af stað með þá stækkun.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.