Dagur - 05.10.1982, Blaðsíða 3
Breytingar á heilbrigðiseftir-
liti á Eyjafjarðarsvæðinu
„Hér er um að ræða lög sem
hafa í för með sér talsverðar
breytingar á landinu í heild,
landinu verður skipt 111 svæði
og heilbrigðisnefndwn fæklutr.
Valdenuur Brynjólfcson.
Þannig verða þrjár heilbrigð-
isnefndir á Eyjafjarðarsvæðinu
í stað 17 áður,“ sagði Valdimar
Brynjólfsson heilbrigðisfulltrúi
á Akureyri er Dagur spjallaði
við hann fyrir helgina um ný lög
um hollustuhætti og heilbrigð-
iseftiriit sem taka munu gildi á
næstunni. í 1. og 2. kafla Iag-
anna segir m.a. um hlutverk
þeirra:
„Lögum þessum er ætlað að
tryggja landsmönnum svo heil-
næm lífsskilyrði sem á hverjum
tíma eru tök á að veita.
Með markvissum aðgerðum
skal vinna að þessu, m..a. með því
að tryggja sem best eftirlit með
umhverfi, húsnæði og öðrum vist-
arverum, almennri hollustu mat-
væla og annarri neyslu- og nauð-
synjavöru og vernda þau lífsskil-
yrði, sem felast í ómenguðu um-
hverfi, hreinu lofti, úti og inni, og
ómenguðu vatni. Ennfremur með
því að veita alhliða fræðslu og
upplýsingar um þessi mál fyrir al-
menning.“
Sem fyrr sagði munu 3 heil-
brigðisnefndir starfa á Eyjafjarð-
arsvæðinu. Ein nefndin er skipuð
þremur fulltrúum kosnum af
bæjarstjórn Ólafsfjarðar og þjón-
ar Ólafsfjarðarkaupstað. Önnur
nefnd skipur þremur fulltrúum
einnig hefur aðsetur á Dalvík en
starfssvæði hennar er Dalvíkur-
kaupstaður, Svarfaðardalshrepp-
ur, Arskógshreppur og Hríseyjar-
hreppur. Dalvíkurkaupstaður
skal eiga tvo fulltrúa kosna af
bæjarstjórn en hreppsnefndir á
starfssvæðinu komi sér saman um
einn. Þriðja nefndin hefur aðsetur
á Akureyri og verður hún skipuð
7 fulltrúum. Starfssvæði hennar er
Akureyrarkaupstaður, Grímseyj-
arhreppur, Arnarneshreppur,
Skriðuhreppur, Öxnadalshrepp-
ur, Glæsibæjarhreppur, Hrafna-
ilshreppur, Saurbæjarhreppur,
ngulsstaðahreppur, Svalbarðs-
strandarhreppur, Grýtubakka-
hreppur og Hálshreppur. Akur-
eyri skal eiga fimm fulltrúa kosna
af bæjarstjórn. Hreppsnefndir á
starfssvæðinu komi sér saman um
tvo fulltrúa.
Svæðisnefnd fyrir allt svæðið
verður skipuð formönnum þess-
ara þriggja nefnda ásamt héraðs-
lækni sem verður formaður
nefndarinnar. Við spurðum
Bílasala
Bílaskipti.
Stór og bjartur
sýningasalur.
Bílasalan Ós,
Akureyri sími 21430.
Valdimar Brynjólfsson heilbrigð-
isfulltrúa á Akureyri hvað myndi
vinnast með þessu nýja fyrir-
komulagi.
„Akureyri er eina sveitarfélag-
ið á svæðinu sem hefur verið með
starfandi heilbrigðisfulltrúa, en
hinar ýmsu heilbrigðisnefndir á
svæðinu hafa verið mjög misvirk-
ar. Nú á að tryggja það að allir
íbúar á Eyjafjarðarsvæðinu fái
svipað eftirlit.“
A fundi svæðisnefndarinnar í
síðustu viku var Valdimar ráðinn
framkvæmdastjóri nefndarinn-
ar. Stefnt er að því að
framkvæmd hinna nýjuv laga
geti hafist um áramót. Valdi-
mar tjáði okkur að vilji væri fyrir
því að heilbrigðiseftirlitið á svæð-
inu yrði rekið frá Akureyri sem er
69% aðili miðað við fólksfjölda
en næsta sveitarfélag að stærð er
ekki nema6,6%. Ennfremurtjáði
Valdimar okkur að áhersla yrði
lögð á fræðsluþáttinn í starfinu,
það væri hann sem fyrst og fremst
myndi gefa árangur er fram liðp
stundir.
Frá fundi Svæðisnefndar í síðustu viku.
Að líta við
^fyrir forvitnissakir
eralltaf velkomið
Við reynum alltafað bjóða
upp á eitthvað nýtt, spennandi
og forvitnilegt.
Fyrír verðandi
mæður
Minnum á glæsilegt úrval af
tækifærisfatnaði:
Mussur - buxur - kjóiar.
Kápur- Kápur
Ný sending af
kápum frá Gazella
Ný snið, haustlitir. Þeir
kúnna sitt fag hjá Gazella.
Gluggatjaldaefni
Komdu við í Vefnaðarvöru-
deild áður en þú kaupir fyrir
gluggana. Sjón er sögu ríkari.
Ertu viðbúinn kólnandi tíð
Allt fyrír
herrana
yst sem innst og auðvitað
sparifötin þar á milli.
Herradeild.
Tilboð vikunnar
Eigum nokkrarAgfa og
Olympus myndavélar á
gömlu verði. Hver verður
fyrstur.
Filmumóttaka
Tökum á móti öllum filmum
til framköllunar í Sportvöru-
deild og á neðri hæðinni í
Hrísalundi 5.
Ath.: Spaðar og kúlur fyrir
badmintonunnendur.
Sportvörudeild.
Bing & Gröndal
postulínsvörurnar
heimsfrægu.
Plattar, styttur og stell.
Járn- og glervörudeild.
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SlMI (96)21400
S.'okfóber -1982 ^DÁÖUR - 3