Dagur - 05.10.1982, Blaðsíða 6

Dagur - 05.10.1982, Blaðsíða 6
„Kunnum mj við okkur I - í hverju er þitt starf hér aðallega fólgið? „Pað er óhætt að segja að það sé mjög fjölbreytt. Það þarf að slá lóðir á sumrin, gera við það sem aflaga fer og reyna að halda öllu í horfinu. Það er alltaf nóg að gera, enda staðurinn í upp- byggingu. Vfir vetrarmánuðina byggist starfið meira á eftirliti með húsunum.“ - Er ekki oft erilsamt þegar búið er í öllum húsunum hér á sumrin? „Það eru hérna 150-200 manns þegar mest er á sumrin, en þrátt fyrir það get ég sagt að það heyrir til undantekninga ef ég þarf að hafa einhver afskipti af fólkinu. Það er helst eftir að staðurinn komst í beint síma- samband við Akureyri að ónæði hefur verið af hringingum. Stöð- in þar er opin allan sólarhringinn og fólk hringir oft hingað á nótt- unni. Ég man ekki eftir nema einu tilfelli sem ég hef þurft að hafa afskipti af fólki hér, en þá varð að stöðva leik að nóttu til. Við gerum ekki aðrar kröfur til gesta hér en að þeir kunni mannasiði og hagi sér samkvæmt því. Ég sagði þessu fólki það, og einnig að ef það gæti ekki hagað sér þannig, yrði það að yfirgefa staðinn. Enda fór það svo að þetta fólk pakkaði saman og fór daginn eftir, og undirstrikaði þannig að það samræmdist ekki lifnaðarháttum þess að búa á stað sem þessum. En burtséð frá þessu, hingað kemur nær ein- göngu fjölskyldufólk og allt er rólegt eins og vera ber.“ - Starf eins og þetta hlýtur að útheimta langan vinnudag, hvað er hann langur þegar mest er að gera? „Vinnudagurinn getur verið: langur yfir sumartímann, ekki er. óalgengt að hann sé frá 7 á morgnana til kl. 2 eða 3 á nótt- unni. En yfir vetrarmánuðina er : Hlíf Guðmundsdóttir, Guðmundur Öm og Jón Óskarsson. Heimilisfólkið að Iliugastöðum. „Kjamahúsið“ nýja. þessi orlofshús hafa myndað með sér rekstrarfélag, og formaður þess, Hákon Hákon- arson upplýsti okkur um eitt og annað varðandi þá starf- semi sem fram fer að Illuga- stöðum. „Framkvæmdir að Iilugastöð- um hófust 1966, og í síðasta áfanga sem byrjað var á 1976 voru 12 hús sem afhent voru 1979. Bygging svökallaðs eru í orlofshúsum á staðnum og hafa ýmsar hugmyndir komið fram í því efni. Meðal annars má nefna að hafa kvöldvökur eitt kvöld í viku hverri á vegum Menningar- og fræðslusam- bands alþýðu og væri hægt að bjóða upp á ýmislegt efni s.s. upplestur, tónlist og fleira. Þá getur komið til greina að hafa eitt kvöld fyrir börn sem dveljast á staðnum, og gæti Hús eins og þetta þarf að nýta að einhverju leyti allt árið. Það þarf varla að fjölyrða um það að hér hafa verkalýðsfélögin eign- ast glæsilega aðstöðu til funda og ráðstefnuhalds sem vonandi verður vel nýtt. Þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að leigja hús- næðið út til félagasamtaka. Á Illugastöðum er kjöri^ að halda ráðstefnur af ýmsu tagi, og sennilega er óvíða hægt að finna Þegar okkur bar að garði að Illugastöðum var Jón Óskars- son umsjónarmaður staðarins við vinnu utandyra ásamt öðr- um manni, og voru þeir að vinna að jarðvegsskiptum við „kjarnahúsið“. Ekki kom það þó í veg fyrir að svifið væri á Jón og hann beðinn um að segja örlítið frá starfi sínu á staðnum. Ekkert var sjálf- sagðara, og Jón bauð blaða- manni inn í kaffisopa tU konu sinnar Hlífar Guðmundsdótt- ur. „Við komum hingað 1974 en höfðum áður búið á Akureyri. Þá voru komin hér 19 orlofshús og íbúðarhúsið sem við fluttum inn í er áfast „kjarnahúsinu“. Salurinn í því var þá fokheldur. “ « I síðustu viku bauðst blaða- manni Dags að skreppa dag- stund að Illugastöðum í Fnjóskadal. Þá jörð á AI- þýðusamband Norðurlands, en um 30 verkalýðsfélög eiga orlofshús á jörðiuni, alls 31 að tölu. Uppbygging á Illuga- stöðum hefur verið ör, og er óhætt að segja að þar sé risin einhver glæsilegast aðstaða til sumardvalar í orlofshúsum sem fyrirfinnst hér á landi. Verkalýðsfélögin sem eiga Glæsileg aðstaða á illugastöðum „kjarnahúss“ hófst árið 1969 og það var formlega tekið í notkun á sl. vori. í þeirri byggingu er glæsilegur samkomusalur sem hentar einstaklega vel til ráð- stefnuhalds, gott eldhús sem er að verða fullbúið tækjum, og áfast við þetta „kjarnahús" er íbúðarhús umsjónarmanns stað- arins. Það hefur mikið verið um það rætt hvernig nýta skuli þetta hús í framtíðinni. Að sumrinu til getur það nýst fyrir þá gesti sem dagskrá þess kvölds verið þann- ig samsett að flytja mætti dag- skrána á milli daga með stuttum fyrirvara ef veður væri slæmt. Þá hefur verið rætt um að hafa vídeó á staðnum og jafnvel að hafa diskótek. Allir þessir þættir munu verða athugaðir vel áður en ákvörðun verður tekin. Það hlýtur hinsvegar að vera spurn- ing hversu mikið á að gera í þess- um málum, hversu viðamikla dagskrá á að leggja fyrir fólkið hverju sinni. betri stað ef um ráðstefnu er að ræða þar sem áhersla er lögð á að hafa næði og vinnufrið. Það má segja að möguleikarnir sem þetta hús býður upp á séu óend- anlegir,“ sagði Hákon. Það er ekkert ofsagt þegar sagt er að „kjarnahúsið“ svo- kallaða að Illugastöðum sé glæsileg bygging sem nýta megi til ýmissa hluta. Tilkoma hússins á væntanlega eftir að verða verkalýðsfélögum og þá fyrst og fremst á Norðurlandi, hvati að auknu félagsstarfi. Óvíða er glæsilegri aðstaða til ráðstefnu- halds, þátttakendur geta þá búið í orlofshúsunum og nýtt hina glæsilegu aðstöðu „kjarnahúss- ins“ til fundarhalda. Það er greinilegt þegar ekið er heim að Illugastöðum í Fnjóska- dal að þar hefur verið unnið mikið starf. Orlofshúsin 31 að tölu eru hvert öðru glæsilegra, „kjarnahúsið" er mikil bygging, og umgjörðin utan um þetta allt saman er ekki til að skemma fyrir. Fnjóskadalur er með fal- legri stöðum á landinu, gróður- sæld og veðursæld mikil og ótelj- andi möguleikar fyrir dvalar- gesti að eyða tíma sínum. - Þess má að lokum geta að í vetur eru húsin leigð til almennings um helgar, og er verði mjög stillt í hóf. 6 - DAGUR - 5. október 1982

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.