Dagur - 05.10.1982, Síða 12

Dagur - 05.10.1982, Síða 12
Akureyri, þriðjudagur 5. október 1982 Aðalfundur Framsóknar- félagsins á Hótel KEA Aðalfundur Framsóknarfélags Akureyrar verður haldinn ann- að kvöld, miðvikudaginn 6. október, klukkan 20.30. Fund- arstaður er gildaskáli Hótels KEA. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verður kosning fulltrúa á kjördæmisþing. Samtals verða kosnir 17 fulltrúar frá Akureyri, en auk þess tvisvar sinnum 17 full- trúar til viðbótar á aukakjördæm- isþing, sem haldið verður eigi síðar en þremur vikum eftir það t'yrra. Fyrra kjördæmisþingið verður á Húsavík og hefst klukkan 20 föstudaginn 15. október. Þar fer fram prófkjör um skipan á lista Framsóknarflokksins við næstu Alþingiskosningar. Akureyringum fjölgar hægt og sígandi Á áratugnum 1971 til 1981 fjölg- aði Akureyringum úr 10.930 í 13.420 eða um 2.490 manns. Þetta samsvarar rúmlega 2% fjölgun á ári. I upphafi áratugsins voru Ak- ureyringar 5,28% allra lands- manna, en í lok hans 5,87%. Einar Þ. Ásgeirsson fyrir framan húsið, sem var sett saman í flugskýlinu á Akureyrarflugvelli. Mynd: áþ. hálfkúluhúsið á Akureyri Fyrsta rís Innan skamms verður fyrsta hálfkúluhúsið reist á Akureyri. Það er Einar Þ. Ásgeirsson, arkitekt, sem hefur umsjón með uppsetningu hússins, en hann hefur reist nokkur slík hér á Iandi á undanförnum árum. Húsið, sem er 5 m í þvermál, verður sett yfir radar Flugmála- stjórnar á Akureyrarflugvelli til að verja radarinn fyrir ísingu og minnka viðhaldsvinnu. Hús- ið er úr plasti. Einar sagði að þetta væri fyrsta húsið af íslenskri gerð, sem sett væri yfir radar hér á landi, en slík hús eru á Keflavíkurflugvelli og í Hornafirði. „Það er Fossplast á Selfossi sem framleiðir þetta hús og ætlunin er að búa til samskonar hús úr glæru plasti og nota sem gróðurhús,“ sagði Einar. Kröflu- virkjun hefur keypt sex hálfkúlu- hús og búið er að setja þrjú yfir borholur fyrir austan. Þau hús eru úr timbri og sömu sögu er að segja um íbúðarhús sem er verið að byggja fyrir sunnan. Hugmyndin að þessum húsum er komin frá Þýskalandi, en bandarískur arki- tekt, Buckminster Fullers, út- færði hugmyndina og fékk einka- leyfi á nýrri samsetningu. Trúnaðarmenn á námskeiði Síðastliðinn mánudag, 27. sept- ember 1982, hófst að Illuga- stöðum í Fnjóskadal námskeið fyrir trúnaðarmenn á vinnu- stöðum, en að Illugastöðum er orlofsbyggð Alþýðusambands Norðurlands. Námskeiðið er haldið af Menn- ingar- og fræðslusambandi alþýðu og Alþýðusambandi Norður- lands, en slík námskeiðahöld eru einmitt stór þáttur í starfi MFA. Námskeiðið sitja 18 trúnaðar- menn víða að af Norðurlandi. Á námskeiðinu er fjallað um ýmis mál, sem trúnaðarmenn vinnustaða þurfa að fást við í störfum sínum, og er unnið hvern dag námskeiðsins frá morgni til kvölds, auk sérstakra kvölddag- skráa, sem haldnar eru. Nám- skeiðinu lýkur næstkomandi föstudag. Þetta trúnaðarmannanámskeið er hið fyrsta sinnar tegundar sem haldið er að Illugastöðum, en þar var í apríl síðastliðnum vígt nýtt og glæsilegt kjarnahús sem gefur möguleika á allskyns félagsstarfi. Nýtt skip frá Slippstöoinni - næstu verkefni skip fyrir Þróunarstofnun íslands og 2 raðsmíðaverkefni Á laugardag var sjósettur nýr skuttogari hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri. Hlaut hann nafnið Sléttanes ÍS-808 og er í eigu Fáfnis hf. á Þingeyri. Skipið er hannað af starfs- mönnum stöðvarinnar og er rösk- lega 50 metra langt. Það er útbúið til veiða með botnvörpu og flot- vörpu og er með fullkominn bún- að til vinnslu og geymslu á fiski í ís og hægt er að halda hitastigi í lest við frostmark. Einnig er fyrirhug- að að setja í skipið búnað til salt- fiskvinnslu. íbúðir eru í skipinu fyrir 18 manna áhöfn. Næstu verkefni hjá Slippstöð- inni eru smíði á fiski- og rann- sóknaskipi fyrir Þróunarstofnun íslands sem notað verður við þróunaraðstoð á Kap-Verdeeyj- um og smíði tveggja 35 metra fjölveiðiskipa, sem tilheyra svo- kölluðu raðsmíðaverkefni. Ríkis- ábyrgð er fengin fyrir lántökum en óvíst er um kaupendur ennþá. Nýja skipið hlaut nafnið Sléttanes ÍS-808. Mynd: KGA # Kaupmáttur fólks og farseðlafag Málvillur geta oft verið býsna skemmtilegar. Þannig ertalað um það í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að viðhalda skuli kaupmætti láglauna- fólks, eða eitthvað í þeim dúr. En hvað er kaupmáttur lág- launafólks? Þýðir þetta hversu mikið kaupa megi fyrir iáglaunafólk? Er lágiaunafólk einhvers konar gjaldmiðill? Spyr sá sem ekki veit. Líklega er þó átt við kaupmátt tekna þeirra sem lægst hafa launin. Annað dæmi er nýleg auglýs- Ing ferðaskrifstofu þar sem talað er um að farseðlar séu fag. Þetta fær ekki staðist. Farseðill getur ekki verið fag, en um útgáfu hans getur verið öðru máli að gegna. # Virðing og alþýðlegheit Það setti svolítið leiðinlegan blæ á stofnfund Félags aldr- aðra á sunnudaginn að þjóð- höfðingjanum skyldf ekki sýnd meiri virðing en raun bar vitni. Allir vita að Vigdís for- seti er alþýðleg, en hefði ekki mátt taka betur á móti henni þegar hún gekk í salinn. Eng- inn stóð upp eða sýndi til- hlýðilega virðingu á annan hátt. Ef tíl vlll vantaði bara skipulag. Þá jaðrar við að það sé að ganga of langt að kalla þjóðhöfðingjann, forsetarit- ara, biskup og biskupsfrú, forseta bæjarstjórnar og fleiri upp á svið og láta þau stjórna fjöldasöng, „Fyrr var oft í koti kátt“ og allt það. Nóg hefði lík- lega verið að hvetja háborðs- gestina að láta nú ekki sitt eftir liggja í fjöldasöngnum. # Samkeppni um nöfn Flugleiðir hafa efnt til sam- keppni meðal starfsmanna og almennings um nöfn eða nafnaröð á flugvélar félags- ins. Frestur til að skila tillög- um rennur út 31. október. Til- laga valin af dómnefnd verður verðlaunuð með sérstöku heiðursskjali fyrir tvo til Pu- erto Rico f boði Fiugleiða og auk þess gullpenna Flug- leiða. Þetta er nokkuð góð hugmynd há forráðamönnum Flugleiða og ekki að efa að margir munu taka þátt í sam- keppninni. Áður en félögin voru sameinuð bar hver vél nafn. # Sýning Þorvaldar Mikil og góð stemmning ríkti við opnun myndlistarsýning- ar Þorvaldar Þorsteinssonar á laugardaginn. Fjölmenni mætti strax við opnun og alls munu um 300 manns hafa séð sýninguna frá þvf hún opnaði um nónbil á laugardag þar til lokað var á sunnudagskvöld. Greinilegt var að myndverk hans höfðuðu til fólks.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.