Dagur - 15.10.1982, Blaðsíða 2
LESENDAHORNIÐ
Hvað er sektín
há fyrir að
aka yfir á rauðu?
Aðalsteinn hringdi:
Á þriðjudaginn sagði Dagur frá
því að bílar ækju oft yfir gang-
brautir á rauðu Ijósi. Petta þóttu
mér ill tíðindi. Eg saknaði þess
hins vegar að sjá ekkert um það í
fréttinni hve sektin væri há fyrir
að aka yfir á rauðu. Ég hef líka
oft verið að velta því fyrir mér
hve há sektin væri fyrir að aka of
hratt - blöðin segja bara frá því
að þessi og þessi ökumaður hafi
verið tekin á 80 eða 120 km
hraða en geta þess aldrei hvað
viðkomandi hafi fengið í sekt.
Mig langar því til þess að fara
fram á það við viðkomandi yfir-
völd að þau birti - t.d. í Degi,
AFGREIÐUM
MEÐ STUTTUM
FYRIRVARA
s\ k\
DENISON
vökvadælur
og ventla
Þrefaldar
Hljóðlátar - endlngargóðar.
Hagstætt verð - varahluta-
þjónusta.
Hönnum og byggjum upp
vökvakerfl.
Sendum myndabæklinga
VÉLAVERKSTÆÐI
SIC. SVEINBJÖRNSSON HF.
Arnarvogl, Garðabæ
SÍmar 52850 - 52661
því ég trúi ekki öðru en þeir
Dagsmenn setji slíkt á prent -
viðurlög við hinum ýmsu
brotum. Par gætu menn séð það
svart á hvítu hvað þeir verða að
punga út með ef þeir aka yfir á
rauðu, aka of hratt, leggja bíln-
um á ólöglegum stað og fleira
mætti upp telja.
Beðið um
stiindvísi ríkis
fjölmiðlanna
Sjónvarpsáhorfandi hringdi:
Mig langar til að þakka bæði
Ríkisútvarpi og sjónvarpi fyrir
ágæta dagskrá. Að vísu eru þar
þættir sem ég kæri mig ekki um,
en þá slekkk ég á tækinu og geri
eitthvað annað. Tilfellið er að
það er ekki hægt að þjóna smekk
allra - og það er víst ekki ný upp-
götvun. Nú er loks komið meira
af norðlensku efni í Ríkis-
útvarpið og ég a.m.k. reyni að
hlusta á alla norðanþættina, eins
og ég hef reyndar alltaf gert.
Frá upphafi hef ég haft eitt
prinsipp: Vera stundvís. Þetta
hef ég reynt að gera börnum
mínum ljóst að sé mikil dyggð og
fer fram á það frá öðrúm að þeir
séu stundvísir. Þess vegna fer
það óskaplega í taugarnar á mér
þegar dagskrá ríkisfjölmiðlanna
stenst ekki tímaáætlun. Oft hef
ég sest niður á þeim tíma er rituð
dagskrá segir að nú eigi þessi eða
hinn þátturinn að hefjast, sest
niður segi ég, og komist að því
að þátturinn minn hefst mörgum
mínútum síðar en ráð var fyrir
gert. Væri ekki hægt að laga
þetta? Væri ekki hægt að tíma-
mæla þætti og skammta t.d.
fréttum ákveðinn tíma svo og
auglýsingum. Ef fréttir og aug-
lýsingar næðu ekki sínum tíma
mætti fylla upp í gatið með léttri
eða þungri tónlist eftir atvikum.
Þarf aðmála
húsið að utan
AKUREYRINGAR - BÆJARGESTIR
Sértílboð í veitíngasal
laugardagskvöldið 16. október
Boróapantanir í
síma 22200.
Frönsk lauksúpa
Aliendurmeð appelsínusósu,
frönskum kartöflum oggrænmeti eða
Nautalundir með béarnaisesósu og
bökuðum kartöflum. kr. 215.-
Ferskt ávaxtasalat ílíkjör kr. 30.-
Forréttur í stað súpu: Innbakaðar rækjur Orly, með Andalouse-
sósu og ristuðu brauði. Aukagjald kr. 50,-
Ingimar Eydal leikur létta dinner-
músík og leikur síðan fyrir dansi
ásamt Billa, Leibba og bigu.
Súbiaberg:
Fjölskyldutílbod
sunnudaginn 17. október.
Kryddlegið lambalæri.
Ferskt ávaxtasalat.
Kaffi.
HÚTEL KEA AKUREYRI Aðeinskr.90,-
ojkii* qc-oo onn Hálft gjald fyrir börn 6-12 ára og
ókeypis fyrir yngri í fylgd með fullorðnum.
Kona úr sveit sagði:
Oft fer ég um Hafnarstræti og
þar er eitt hús sem þyrfti alveg
nauðsynlega að taka fyrir og
mála að utan. Þetta er gamla
Verslunin Eyjafjörður. Ég trúi
ekki öðru en núverandi eigend-
ur eigi létt með að mála og
snyrta húsið sem gæti orðið
ljómandi fallegt.
Svo
einfalt
er það
JJ skrifar:
Afgreiðslufólk er andlit verslan-
anna. Ef viðskiptavinurinn fær
ekki þær móttökur sem hann tel-
ur sig eiga skilið kemur hann
ekki aftur. Svo einfalt er það.
Sem betur fer veit meirihluti
verslunarmanna af þessari stað-
reynd og hagar sér samkvæmt
henni. Hins vegar er sá hópur of
stór sem telur að viðskiptavin-
irnir séu að ónáða sig með því að
koma inn og versla. Verslunar-
stjórar geta aldrei verið nógu
vakandi yfir því að framkoma
starfsmanna þeirra sé svo gott
,með óaðfinnanleg.
2-DÁGUR -15. október 1982