Dagur - 26.10.1982, Side 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA-
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREVRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 26. október 1982
118. tölublað
Súrefnis-
enn óleyst
vandamál
í efri tanki
„Ef efri tankurinn verður
tengdur fyrir veturinn vandast
málið því enn er ekki búið að
finna lausn á því hvemig koma
megi í veg fyrir súrefnisblönd-
un í hitaveituvatnið í tankinum.
Hins vegar hefur íblöndun
natríumsúlfiðs frá því um mitt
sumar valdið því að súrefni í
vatninu er innan viðunandi
marka,“ sagði Helgi Bergs,
bæjarstjóri, í viðtali við Dag.
Helgi sagði að af þessum sökum
mætti segja að efri tankurinn væri
ónothæfur sem stendur. Hann
sagði að þótt efri tankurinn kæm-
ist ekki í gagnið fyrir veturinn
þyrfti það ekki að þýða
vatnsskort. Hann hefði fyrst og
fremst verið hugsaður til að bæta
rekstraröryggið gagnvart skamm-
tíma truflunum. Þó hann kæmi
ekki inn þyrfti það ekki að þýða
nein stórkostleg vandamál því þá
yrði þessum sveiflum mætt meira
með neðri tankinum og ef til vill
meiri kyndingu. Vandamálið við
efri tankinn er fyrst og fremst það
hvað hann er stór miðað við það
vatnsmagn sem í gegn um hann
fer, sem veldur því að vatnið er
tiltölulega lengi kyrrstætt í
honum.
Það kom fram í máli Helga
Bergs, að þótt tæringin hafi verið
langmest í efra Glerárhverfi, hafi
hún einnig verið ofan þeirra
marka sem heppileg teljast í öllu
bæjarkerfinu. Natríumsúlfíðið
ræður hins vegar bót á þessu eins
og áður sagði.
Góð aðsókn
á sýningu
sjömenninganna
Sýning sjö myndlistarmanna frá
Akureyri hefur nú staðið yfir á
Kjarvalsstöðum síðan á laugar-
dag í fyrri viku. Sýningin hefur
gengið mjög vel og aðsókn verið.
góð. Eftir síðustu helgi höfðu tals-
vert á annað þúsund manns séð
sýninguna og 30 verk höfðu selst.
Flugvélar í árekstri
á Akureyrarflugvelli
í gærmorgun ók Fokker flugvéi
á eina af vélum Flugfélags
Norðurlands á Akureyrarflug-
velli. Skemmdir á Fokkernum
voru óverulegar en hin flugvél-
in sem var kyrrstæð, verður
óflugfær í nokkra daga a.m.k.
Óhappið bar að með þeim
hætti að þegar Fokkernum var
ekið í áttina að flugstöðvar-
byggingunni rakst vængendi
hennar í hliðarstýri á stéli kyrr-
stæðu vélarinnar. Fremst á
vængendanum er rör sem í er
hraðamælisinntak og gekk það
í gegnum hliðarstýrið. Rörið,
sem er um 40 cm langt, bognaði
örlítið, en að öðru leyti kom
vængurinn ekki við stélið.
Að sögn sjónarvotta mun flug-
stjórinn á Fokkernum, sem ber
einkennisstafina TF FLR, hafa
mismetið fjarlægðina á milli vél-
anna. Flugstjórinn ætlaði að aka
norður fyrir vél F.N. því hann
þurfti að leggja Fokkernum ná-
lægt bensíntanki sem er þar
skammt frá. „Þetta flokkast bara
undir mannleg mistök”, sagði
einn þeirra sem var á staðnum er
ljósmyndari Dags kom á
vettvang. Fokkerinn var athug-
aður og síðan var farið í reynslu-
flug. Þar sem ekkert kom fram er
benti til að vélin væri ekki í flug-
hæfu ástandi var Fokkernum flog-
ið suður fyrir hádegi.
Sigurður Aðalsteinsson', fram-
kvæmdastjóri F.N., sagði að það
hefði verið Mitsubishi-vél félags-
ins sem skemmdist. Hann sagði
jafnframt að ef hægt væri að gera
við vélina hér væri það dagaspurs-
mál hvenær hún gæti flogið á ný-
jan leik en ef þyrfti að panta vara-
hluti að utan væri allt eins víst að
vélinni yrði ekki flogið næstu vik-
urnar. Þess má geta að vélin átti
að fara til Færeyja í dag og til
Grænlands í næstu viku.
„Því er ekki að neita að við
erum illa settir hvað varðar flug til
útlanda, en auk þessarar vélar er
önnur vél stopp vegna bilunar.
Það má því ekkert útaf bera“,
sagði Sigurður.
ShrilJG
Þannig var aðkoman á vellinum i gærmorgun. Eins og sjá má fór rörið í gegnum stélið á Mitsubishi-vélinni
Elsta skurðstofan
F.S.A. lögð niður
i
Um hádegisbiliö sl. flmmtudag
var slðasti sjúklingurinn skor-
inn upp á gömlu skurðstofunni í
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri. Það var Eiríkur Sveins-
son, læknir, sem skar upp ung-
an Akureyring, sem Ienti I um-
ferðarslysi. Þessi skurðstofa
var tekin I notkun árið 1953 og
var sú fyrsta sinnar tegundar á
sjúkrahúsinu.
Það var Kristj án Már Jósepsson
sem var skorinn upp vegna and-
litsmeiðsla. Aðgerðin heppnaðist
vel. En það leið ekki langur tími
þar til fyrsti uppskurðurinn var
framkvæmdur í einni af nýju
skurðstofunum, sem Dagur sagði
frá fyrir skömmu. Þar var að verki
Sigurgeir Jenssen, læknir. Sá upp-
skurður var framkvæmdur á
fimmtudagskvöldið.
Skurðstofan sem Eiríkur
Sveinsson notaði á fimmtudaginn
var sú eina á sjúkrahúsinu allt
fram til ársins 1971, fyrir utan
skiptistofu sem einstaka aðgerð
fór fram á. Það ár var henni breytt
í skurðstofu og sú þriðja var tekin
í notkun fyrir nokkrum árum. Þær
hafa nú báðar verið teknar undir
aðra starfsemi á vegum FSA og
fyrir dyrum stendur breyting á
elstu skurðstofunni.
„Þetta er eins og svart og
hvítt,“ sagði Eiríkur um flutning
skurðstofunnar í nýja húsnæðið.
„Nú er loks pláss fyrir fólkið sem
parf að starfa á skurðstofunum,
auk þess sem í nýju stofunum eru
öll nýjustu tækin sem þarf að nota
á skurðstofu, sem hlýtur að leiða
til þess að sjúklingarnir fá þá
bestu þjónustu sem hægt er að
veita.“
Eirikur Sveinsson og Kristján Már Jósepsson.
Mynd: áþ.