Dagur - 26.10.1982, Qupperneq 9
Jón Héðinsson áttí mjög góða leik! með Þór um helgina.
Öruggur sigur
Þórsara í
„Ljónagryfjunni“
Þórsarar Iéku gegn Grindvík-
ingum í 1. deildinni í körfu-
knattleik s.l. föstudagskvöld,
og fór leikurinn fram í
„Ljónagrivjunni“ í Njarðvík.
„Ljónagrivjan“ bar þó varla
nafn með sanni það kvöld því
fátt var um áhorfendur. En
leikur liðanna var þokkalegur
og nokkuð spennandi, þrátt
fyrir að svo virtist frá upphaf!
að Þórsarar hefðu öll ráð í
hendi sér.
Eftir að staðan hafði verið 8:8
tóku þórsarar forustuna í sínar
hendur og innan skamms mátti
sjá á töflunni tölur eins og 26:15
og 36:23, en í hálfleik leiddi Þór
38:28. Mjög umdeild atvik áttu
sér stað við borð ritara í fyrri
hálfleiknum, þannig fékk
Robert McField skrifaða á sig
villu sem var dæmt á andstæðing
í UMFG-liðinu og var skyndi-
lega kominn með fjórar villur á
meðan bandaríkjamaðurinn í
liði UMFG sem átti að vera
kominn með 4 villur var ekki
bókaður nema með tvær.
McField fékk síðan sína
fimmtu villu strax í upphafi
síðari hálfleiks þegar staðan var
42:32 og var það tæknivilla fyrir
að trufla leikmann með hávaða.
Var útlitið því svart hjá Þór, en
það eina sem gerðist var að
strákarnir efldust mjög og léku
mjög skynsamlega. Þeir héldu
boltanum lengi og biðu þar til
UMFG-vörnin gaf á sér högg-
stað og þá skoruðu þeir yfirleitt.
Fór þetta mjög í taugar leik-
manna UMFG sem tókst aldrei
að minnka muninn neitt að ráði
og sigur Þórs var öruggur í höfn,
lokatölur 69:63.
Jón Héðinsson átti mjög góð-
an fyrir Þór og skoraði 21 stig,
McField 20, öll í fyrri hálfleik og
Valdimar Júlíusson 11 stig. Hjá
UMFG var Mike Sailes iang-
stigahæstur með 41 stig og átti
mjög góðan leik.
Robert McField
með 61 stig!
Sem dæmi um dómgæsluna í
leik ís og Þórs í I. deildinni í
körfuknattleik sem háður var
í Hagaskólanum um helgina
má nefna sem dæmi að á lið
Þórs voru dæmdar 34 villur á
móti 13 villum sem dæmdar
voru á lið ÍS. Léku þó bæði
liðin álíkan varnarleik, tals-
vert harðan. Hafði þetta mjög
mikil áhrif á Ieik Þorsliðsins
eins og gefur að skilja, þrír
leikmenn komnir í villuvand-
ræði strax í fyrri hálfleiknum,
og áður en langt var liðið á
síðari hálfleik fóru þórsarar
að tónast af velli með 5 villur
og yfir lauk voru 6 leikmenn af
10 komnir útaf með 5 villur.
Leikurinn var yfirleitt jafn, en
ÍS þó ávallt yfir. Þeir komust
mest 13 sig yfir í fyrri hálfleikn-
um en að honum loknum var
staðan 50:43. í síðari hálfleikn-
um var munurinn oftast 3-7 stig
og var sem herslumuninn vant-
aði ávallt hjá Þór til að jafna og
komast yfir. En undir lokin
þegar vdilluvandræðin voru í al-
gleymingi sigu ÍS-menn fram úr
og sigruðu örugglega með 94
stigum gegn 78.
Það sem vakti mesta athygli í
þessum leik var stórkostleggur
leikur Robert McField í liði
Þórs. Eftir að hafa hitt fremur
slaklega í byrjun leiksins missti
hann varla skot það sem eftir var
og er yfir lauk hafði hann skorað
61 stig. ÍS-menn settu á hann tvo
menn lengi vel en allt kom fyrir
ekki, og þótt sífellt væri brotið á
honum í skotum skoraði hann
grimmt. Var reyndar furðulegt
hvað leikmenn ís komust upp
með að brjóta á honum án þess
dæmt væri á þá.
Það gefur auga leið að leik-
maður sem skorar 61 stig verður
að skjóta mikið og það gerði
McField. Aðrir leikmenn urðu
því ekki mjög áberandi í sókn-
arleiknum en í vörninni var vel
tekið á og menn börðust vel. Jón
Héðinsson átti þar stórleik og
hélt bandaríkjamanninum Pat
Bock vel niðri en sá er vel yfir 2
metra á hæð.
ís-liðið státar af meiri breidd
en Þórsliðið eða einum 6 leik-
mönnum sem eru mjög jafnir.
Þrír þeirra eru uppaldir hjá KR
og léku þar áður en þeir gengu til
liðs við ÍS og áttu þeir allir mjög
góðan leik. Sögðu viðstaddir
sem hafa séð lið IS í vetur að lið-
ið í heild hafi leikið sinn lang
besta leik.
Þórsarar hafa nú leikið gegn
bæði Haukum og ÍS sem álitin
eru bestu liðin í deildinni ásamt
Þór. Þórsarar eiga þó eftir að
mæta báðum þessum liðum þrí-
vegis og eiga að geta ráðið við
bæði þessi lið á góðum degi. Þór
hefur 6 stig í deildinni og alla
möguleika á að blanda sér í bar-
áttuna ef rétt verður á málum
haldið.
Þór krækti
í eitt stig
Robert McField skoraði 61 stig gegn ÍS.
Tvö töp hjá stúlkunum
Þórsarar gerðu góða ferð til
Vestmanneyja um helgina en
þeir léku þar við Tý í þríðju
deild karla í handbolta. Týrar-
ar voru fyrirfram taldir sterk-
ari, og sérstaklega er heima-
vöÚurinn Vestmanneyjarlið-
unum mikilvægur.
Leiðrétting
Íþróttasíðunni urðu á þau mistök í
síðasta blaði að það gleymdist að
geta tveggja heiðursmanna í stjórn
knattspyrnudeildar Þórs. Það er
varaformaðurinn Arnar Guðlaugs-
son og meðstjómandi Ragnar
Þorvaldsson. Eru þeir Arnar og
Ragnar beðnir velvirðingar á
þessu.
Týrarar byrjuðu vel óg leiddu
leikinn lengi vel, og höfðu m.a.
tveggja marka forustu í hálfleik.
Um miðjan síðari hálfleik
náðu Þórsarar að jafna og kom-
ust síðan yfir. Rétt fyrir ieiks-
lok höfðu þeir náð tveggja
marka forustu, en þá var tveim-
ur leikmönnum þeirra vísað útaf
og það nægði Týr til að jafna
leikinn. Lokatölur urðu því 23
mörk gegn 23, og liðin deildu
bróðurlega með sér stigunum.
Það var Jón Sigurðarson sem
var markhæstur Þórs með 7
mörk, 3 úr víti. Sigryggur sem
nú aftur er byrjaður að leika
með Þórsurum skoraði 5, Guð-
jón og Sverrir 3 hver, Gunnar 2
og Hörður 1.
Þórsstúlkurnar í fyrstu deild í
handbolta léku tvo leiki um
helgina. Fyrri leikurinn var
við Víking, en þar var barátt-
an mjög jöfn og spennandi.
Víkingsstúlkur höfðu eitt
mark yfir í hálfleik, sex gegn
fimm. Sami munur hélst út
leikinn og þegar flautað var tO
leiksloka hafði Víkingur eins
marks forustu, þrettán gegn
tólf.
Leikurinn var nokkuð harður
og var nokkrum stúlkum vísað
af leikvelli. Guðrún Kristjáns-
dóttir var best Þórsstúlkna en
hún skoraði sjö mörk. Hanna
Rúna Jóhannsdóttir og Valdís
Hallgrímsdóttir skoruðu tvö
hvor og Inga Huld Pálsdóttir eitt
mark.
Síðari leikurinn var svo gegn
Val, en þar tapaði Þór með mikl-
um mun, tuttugu og eitt gegn
tíu. Þórsstúlkurnar hafa tapað
öllum sínum leikjum í deildinni
hingað til, en leikur þeirra er
mjög að koma til, en þær æfa
undir strangri þjálfun Birgis
Björnssonar. Vonandi fara þær
nú að vinna næstu leiki þannig
að þær forði sér frá falli í aðra
deild.
26. október 1982 - DAGUR —9