Dagur - 26.10.1982, Blaðsíða 12
Auka-
kjördæmis-
þing á
Húsavík
Aukakjördæmisþing fram-
sóknarmanna í Norðurlands-
kjördæmi eystra verður haldið
á Húsavík á laugardag 30.
október og hefst í félagsheimil-
inu (hótelinu) klukkan 11.
Á þinginu fara fram tvær síðari
umferðir í prófkjöri til framboðs
fyrir næstu alþingiskosningar.
Fæst þá niðurstaða um það hverjir
skipa sex efstu sætin á framboðs-
lista Framsóknarflokksins. Ef
tími vinnst til verður reynt að
ganga frá endanlegum lista
flokksins, að sögn Jóhannesar
Geirs Sigurgeirssonar, formanns
stórnar kjördæmissambandsins.
Um síðustu helgi var JC-Akureyri með útisamkomu vestan við slökkvistöðina. Slökkviliðsmenn voru þar með sýnl
kennslu og er myndin einmitt af henni. Mynd: KGA.
Þyngsti dilkur 34.9 kg!
Sauðárkróki 22. okt.
Slátrun sauðfjár hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga lauk sl. miðviku-
dag. Alls var slátrað 54.178
fjár, 47.898 dilkum og 6.280
fullorðnum ám. Er það 6.102
dilkum færra en 1981 en aftur á
móti 336 fleiri ær.
Meðalþungi dilka nú var 13,965
kg en var í fyrra 13,604 kg. Heild-
armagn innlagðs kjöts nam 820
tonnum á móti rúmíega 843 tonn-
um 1981. Þyngsta dilkinn sem vóg
hvorki meira né minna en 34,9 kg
átti að þessu sinni svo sem oft
áður Leifur bóndi Þórarinsson í
Keldudal. Hafa ekki heyrst sög-
um um þyngri dilk á þessu hausti.
Eins og fram kemur í ofan-
greindum tölum er samdráttur í
bústofni hér um slóðir og kemur
það fram í innlögðum dilkum
vegna stofnfækkunar haustið
1981, sem og í mikilli slátrun full-
orðins fjár. Geta má þó þess að
frjósemi ánna mun hafa verið
verulega mikið minni nú vegna
lélegra heyja og eindæma slæms
veðurfars síðasta haust sem leiddi
til þess að fé kom í verra ásig-
komulagi í hús en búast má við í
meðalári.
Slátrun stórgripa hefst nú þegar
að lokinni sauðfjárslátrun en enn
liggur ekki fyrir hversu umfangs-
mikil hún verður.
„Við boruðum þrjár holur í
sumar og ég verð að segja að
árangurinn hafí verið þokka-
legur því þessar holur virðast
ætla að gefa ein 15 mega-
wött sem er álíka mikið og við
framleiðum í dag,“ sagði
Gunnar Ingi Gunnarsson stað-
artæknifræðingur við Kröflu-
virkjun.
Ein af þessum holum var boruð
á ská (svokölluð stefnuborun) og
tókst framkvæmd við hana mjög
vel. Sú hola er byrjuð að blása og
er að hitna að sögn Gunnars og
ækki fráleitt að hún muni gefa um
4 megawött er hún verður tengd.
Onnur hola sem boruð var fyrst er
þegar tengd og gefur um fjögur
megawött og sú þriðja sem boruð
var á nýju svæði, sunnan við
stöðvarhúsið. Sú hola er byrjuð
að blása og er mjög álitleg, og tal-
ið að hún muni gefa um 8 mega-
wött.
Grímsey:
Eins og
þorskurinn
sé stunginn af
Enskur
tónlistar-
kennari
til Dalvíkur
Dalvík 22. október.
„Eftir að stjórn Tónlistarskóla
Dalvíkur var búin að auglýsa
lengi eftir kennara við skólann
hér á landi án árangurs var leit-
að út fyrir landsteinana,“ sagði
Rögnvaldur Friðbjörnsson,
formaður stjórnar Tónlistar-
skóla Dalvíkur. „Stjórnin hef-
ur ákveðið að ráða tónlistar-
menntaðan mann frá Englandi
og mun hann hefja störf í byrj-
un nóvember. Um miðjan
mánuðinn verður auglýst eftir
nemendum. Vonandi verður
þessi ráðning til að efla tónlist-
aráhuga á Dalvík.“
Það kom fram hjá Rögnvaldi að
Englendingurinn mun kenna á
píanó og flautu. Hann ætlar einn-
ig að kenna á gítar og önnur
hljóðfæri ef nægjanleg þátttaka
fæst. Einnig kemur kórstjórn til
greina. Hér áður fyrr starfaði
karlakór á Dalvík, en auk þess var
samkór á staðnum. Gera menn
sér vonir um að Englendingurinn
geti hafið þessa kóra til vegs og
virðingar á nýjan leik. Öll starf-
semi skólans mun fara fram á ein-
um stað, Gimli við Hafnarbraut.
Að lokum sagðist Rögnvaldur
skora á sem flesta Dalvíkinga og
nágranna að notfæra sér tækifærið
og sækja um inngöngu í skólann
þegar innritun verður auglýst um
miðjan nóvember. AG.
„Það er næg atvinna hér í eyj-
unni þótt aflabrögð hafí verið
dauf. Það berst þó alltaf ein-
hver fískur á land og að undan-
förnu hefur jafnframt verið
unnið við pökkun og þess
háttar,“ sagði Steinunn Sigur-
björnsdóttir, í Grímsey, er við
spjölluðum við hana fyrir helg-
ina.
Steinunn sagði að þrír bátar
væru á netum og hefði afli þeirra
verið lítill, hinsvegar væri einn á
snurvoð og þar gengi eitthvað
betur. „Annars er eins og þorsk-
urinn sé stunginn af og aflabrögð
eru ekkert lík því sem verið hefur
undanfarin ár.
„Það var mikill straumur ferða-
manna hingað í sumar en nú hefur
hægst um eins og alltaf á haustin
og rólegra yfir öllu þegar skóla-
fólkið er farið upp á land. Barna-
skólinn er þó tekinn til starfa hér
og þar eru 17 krakkar, en 8-10
héðan eru við nám í landi, fimm á
Hrafnagilsskóla í Eyjafirði og ein-
hverjir í Iðnskóla og að Bifröst í
Borgarfirði.“
Um fyrri helgi var haldinn
mikill dansleikur í Grímsey á veg-
um kvenfélagsins og Kiwanis-
klúbbsins. Fengin var hljómsveit
frá Húsavík „og mikið fjör langt
fram eftir nóttu eins og vera ber,“
sagði Steinunn.
Af vindmyllunni sem nota á til
að hita vatn til húshitunar í eyj-
unni er það að frétta að um þessar
mundir er að ljúka vinnu við nýtt
„stél“ á myliuna og verður það
sett upp fljótlega. Áðuren myllan
braut af sér stélið sem á henni var
hafði þó komið í ljós að hún skil-
aði því sem til var ætlast og eru
miklar vonir bundnar við hana í
framtíðinni.
# Langtáeftir
áætlun
Það væri hægt að skrifa langt
mál um þann drátt sem orðið
hefur á bygingum Fjórðungs-
sjúkrahúsins á Akureyri.
Samkvæmt áætlun sem gerð
var 1972 átti spítalinn að vera
tilbúinn árið 1978, en sú við-
bygging sem Dagur hefur
greint frá er raunar
fyrsti áfanginn. Með sama
hraða verður komin ný kyn-
slóð á Akureyri þegar síðasti
áfanginn sér dagsins Ijós.
Brýnast fyrir spítalann er að
byggðar verði legudeildir, þar
sem gífurleg þrengsli eru á
núverandi deildum. Sam-
kvæmt áætlunum á að byggja
tvær legudeildarálmur fyrir
austan sjúkrahúsið. í þeim
eiga líka að vera rannsóknar-
stofur sem eru í dag í alltof
þröngu húsnæði. f sama húsi
á að vera eldhús og borðstofa
svo eitthvað sé nefnt. - En
næsta skref ( byggingarsögu
FSA er að Ijúka við hæðina
fyrir neðan skurðstofurnar
sem sagt er frá á forsíðu blað-
sins ( dag. Á henni eiga að
vera röngtendeild og siysa-
varðsstofa. Þeir bjartsýnustu
gera ráð fyrír að hæðin verði
tilbúin árið1984.
# Ofmörgjárn
í eldinum?
Það er eflaust margt sem hef-
ur orsakað þennan drátt - sem
er nánast óafsakanlegur. Ein
I----------------------
sú helsta er sú staðreynd að
yfirvöld hafa verið með of
mörg járn í eldínum.
Undanfarin ár hafa risið upp
heilsugæslustöðvar viða um
land, geðdeild var reist á
Landsspítalalóðinnl í Reykja-
vík og byggð var álma við
Borgarspítalann. Ef yfirvöld
hefðu staðið við áætlun sem •
gerð var um FSA í upphafi
væri búið að byggja spítalann
upp í endanlegri mynd. Ef-
laust hefðu ýmisir talið sig
svikna ef áhersla hefði verið
lögð á FSA en það er engu að
síður staðreynd að FSA getur
ekki þjónað sem skildl fyrr en
sfðasti naglinn hefur verið
rekinn.
# Kemur
Manchester
United aftur?
Það er ekki nema von að
menn spyrji. Á húsi nokkru í
miðbæ Akureyrar gefur á að
l(ta stóran hvítan borða þar
sem á stendur m.a.: Man-
chester United 5. ágúst. Ein-
lægir aðdáendur liðsins, sem
eru margir á Akureyri, eru
farnir að velta því fyrir sér
hvort liðið komi næsta sumar,
en eins og kunnugt er mættu
kapparnfr til bæjarins s.l.
sumar. Hitt er svo aftur annað
mál að umræddur borði var
hengdur upp nokkru fyrir
komu þeirra og hefurekki ver-
ið tekinn niður aftur. Þetta er
ekkert einsdæmi á Akureyri.