Dagur


Dagur - 26.11.1982, Qupperneq 11

Dagur - 26.11.1982, Qupperneq 11
Fjölskyldu- kvöldvaka Ferðafélag Akureyrar gengst dagskrá á boðstólum, söngur, annað kvöld (laugardag) fyrir leikir, grín og gaman. Miðasala fjölskyldu-kvöldvöku og hefst verður við innganginn og sæta- hún kl. 20,30 í Laugarborg. ferðir frá Skipagötu 12. Að venju verður fjölbreytt NYJA BIÓ Nýja bíó á Akureyri sýnir um þessar mundir bandarísku kvikmyndina „Silent Rage“ eða hinn ódauðlegi eins og ís- lenska heiti hennar er. Þetta er spennuþrungin mynd frá Colombia með hinn fjórfalda heimsmeistara í karate - Chuck Norris - í aðalhlut- verki. Dan Stevens (Chuck Norris) er lögreglustjóri í lítilli borg í Texas. Dag nokkurn myrðir geðsjúklingur nokkur tvær manneskjur. Dan og félagar hans neyðast til að skjöta mörg- um skotum í líkama morðingj- ans er hann reynir flótta. Sund- urskotinn líkami er fluttur að nálægri rannsóknarstofu . . . Kl. 15 á sunnudag sýnir Nýja bíó myndina „Einvígi köngu- lóarmannsins", spennandi mynd um ævintýri „köngulóarmanns- ins“ í hættuferð í Kína. Borgarbió Borgarbíó á Akureyri sýnir um helgina tvær myndir, ann- arsvegar myndina „í heljar- greipum“ og hinsvegar mynd- ina „Næturhaukarnir“. „í heljargreipum“ fjallar um misheppnaða fjallgöngu tveggja manna og tveggja kvenna á Whitehorse-tind sem er í einu hrikalegasta umhverfi N,- Ameríku. Þar rekur hvert óhappið annað og mörg manns- líf eru í sífelldri hættu alla mynd- ina út í gegn. Með aðalhlutverk fara David Janssen og Tony Musante. í myndinni „Næturhaukarnir“ eru þeir Deke da Silva og Matt lögregluþjónar í harðri baráttu við einn þekktasta hryðjuverka- mann heims, en sá hyggst gera atlögu að Sameinuðu þjóðun- um. Er óþarfi að fara nánar út í þá sálma hér en með aðalhlut- verk fara Sylvester Stallone og Billy Dee Williams. Á sunnudag kl. 15 sýnir Borg- arbíó svo mynd um „Prúðuleik- arana“ vinsælu. ÍÞRÓTTIR KA og Breiðablik leika í 2. deild Islandsmótsins í hand- knattleik í kvöld og hefst leik- ur liðanna sem gerðu jafntefli í fyrri umferð mótsins kl. 20.00 í Skemmunni. Þarna getur orðið um hörkuviður- eign að ræða. Strax að þessum leik loknum eigast svo Þór og ÍR við í 1. deild kvenna, og þar gæti baráttan einnig orðið hörð. Meistara- flokkur Þórs í 3. deild karla heldur hinsvegar suður og leikur gegn efsta liðinu Fylki og einnig gegn Ögra. íslandsmeistarar Þróttar í blaki karla koma norður og leika gegn UMSE í Skemmunni kl. 15 á morgun og strax á eftir leika KA og Þróttur í 1. deild kvenna. Afmællshátíð ■ Dynheimnm Fyrr á þessu ári átti félagsmið- stöðin Dynheimar tíu ára af- mæli. Húsið, sem áður hét Lón, minnist þessa merkisat- burðar um þessar mundir á margvíslegan hátt. í.kvöld, föstudagskvöld, verð- ur afmælisdansleikur. Hefst hann klukkan 9 og er aldurstak- markið f. 1968 og fyrr. Allri verðbólgu og dýrtíð verður gleymt þetta kvöld og miðaverð- ið er fímm krónur. Miðinn gildir sem happdrættismiði. Nokkrir af fyrrverandi plötusnúðum hússins munu koma í heimsókn og taka syrpur frá gullaldarárum sínum í Dynheimum. Snyrtileg- ur klæðnaður er áskilinn þetta kvöld og mun sérstök dómnefnd velja herra og dömu kvöldsins. Dynheimar áforma nú miklar endurbætur á húsinu, fáist til þess fjármagn, en húsið er um 60 ára gamalt. Þá er von til þess að hinn gamli draumur akureyrskra unglinga um neðri hæð hússins verði að veruleika á næsta ári og að fyrsti áfangi innréttingar hæðarinnar hefjist áður en langt um líður. Aðstaða til fjölbreytts og þroskandi félagsstarfs ung- linga mun stórbatna með til- komu neðri hæðarinnar. Á morgun, laugardag, verður barnaball í Dynheimum frá kl. 3-5, en þau eru að jafnaði haldin hálfsmánaðarlega. Þá er einnig opið hús síðdegis þrjá daga vik- unnar og á miðvikudagskvöld- um með tónlist og ýmiss konar tómstundastarfi. Þá eru og f gangi ýmsir klúbbar og nám- skeið á vegum félagsmiðstöðv- arinnar. Unglingarnir sjálfir sjá um framkvæmdir þessa starfs að miklu leyti og eru því virkir þátt- takendur í allri starfsemi Dyn- heima. Málverkasýnlng G ? 'I * ''7 leðileg jol Jóla- kort ÆSK Æskulýðssamband kirkjunnar í Hólastifti hefur gefið út jólakort til stuðnings sumarbúðunum við Vestmannsvatn. Að þessu sinni er jólakortið með helgimynd eftir Grefu Björnsson, listmál- ara. Félagar í æskulýðsfélögum kirkjunnar munu á næstu dögum bjóða kort þetta til sölu. Enn- fremur er nýtt Æskulýðsblað væntanlegt en það er nú gefið út sem ársrit á vegum Æskulýðs- sambands kirkjunnar í Hóla- stifti og er eina ritið hérlendis sinnar tegundar sem út kemur á vegum kirkjunnar. Þess er vænst að unglingunum verði vel tekið og góð málefni hljóti verðugan stuðning svo sem verið hefur. Elías B. Halldórsson listmálar opnar sýningu á um 30 olíu- myndum laugardaginn 27. nóv- „Það er búið að ákveða endanlega að opna um helg- ina,“ sagði ívar Sigmundsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, er hann hafði samband við Dag í gær. Framan af vikunni ríkti nokk- ur óvissa með hvort hægt yrði að opna nú um helgina, en síðan Hin árlega „peru- og jóladaga- talasala“ Lionsklúbbsins Hugins á Akureyri verður næstkomandi laugardag 27. nóvember. Allur ágóði rennur til líknarmála eins og áður, svo sem til uppbygging- ar sumardvalaraðstöðu fyrir þroskahefta að Botni í Hrafna- ember kl. 15 að Klettagerði 6. Sýningin verður opin alla daga til 5. desember kl. 15-22. hefur snjóað vel og nú er ekkert því til fyrirstöðu að skíðafólk geti þyrpst í Hlíðarfjallið og er reyndar ekki að efa að margir muni nú taka fram skíðin sín og halda þangað. Og þá er ekkert eftir nema að segja: „Góða skemmtun": gilshreppi og til áframhaldandi uppbyggingar Sjálfsbjargar á Akureyri. Klúbbfélagar vonast til að Akureyringar taki þeim vel eins og ætíð áður. Formaður Lions- klúbbsins Hugins er Sigtryggur Stefánsson. Hlíðarfjall: Opið um helgina Lionsklúbburinn Uuginn: Perur og jóladagatöl Afsláttur til félagsmanna heldur áfram næstu viku Félagsmenn eiga kost á að fá tvö afsláttarkort til viðbótar áður afgreiddum kortum og verða þau afhent á aðalskrifstofu félagsins eða í versiunum þess utan Akureyrar. Afsláttarkortin gilda einnig fyrir nýja félagsmenn í Kaupfélagi Eyfirðinga. i i ^ONiaupfélag Eyfirðinga 26. nóyember 1982 - DAGUR -11

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.