Dagur - 26.11.1982, Qupperneq 12
Akureyri, föstudagur 26. nóvember 1982
gömlum
Degi
árið 1949
Nylon-sokkar úr mó
12. janúar. í síðasta tölublaði kommúnistablaðsins hér
getur að líta svohljóðandi klausu, sem er raunar allfróðleg
að því leyti, að hún sýnir vel hversu fimlega blaðamönn-
um þess flokks tekst stundum að drepa tvo tittlinga með
einum steini: — í Póllandi hafa verið gerðar tilraunir með
ágætum árangri til að vinna hráefni í plastikvörur úr mó.
Meðal annars hefur tekist að búa til nylon-sokka úr mó.
Samkvæmt þessu þurfa íslenskar stúlkur ekki að ganga
berfættar ef íslenska rikisstjórnin hefur dug í sér til að
hefjast handa um að breyta íslenska mónum í nylon-
sokka.
Síld í Pollinum
19. janúar. Nokkur slæðingur af síld virðist enn vera hér
á Pollinum því mb. Garðar frá Rauðuvík fékk 135 tunnur
millisíldar og smásíldar í herpinót um helgina, fram til
mánudagskvölds. Síldin var fryst til beitu. Mb. Gylfi frá
Rauðuvík mun sennilega einnig fara á veiðar nú í vikunni
ef ís á Pollinum hamlar ekki veiðum.
Samkomubanni aflétt
9. febrúar. Mænuveikifaraldurinn virðist nú mjög í rén-
um hér í bænum samkvæmt upplýsingum héraðslæknis. í
gær hafði aðeins eitt tilfelli verið tilkynnt héraðslækni í
þessum mánuði en hinsvegar er nokkuð um veikina í nær-
liggjandi sveitum. Ný alvarleg lömunartilfelh hafa ekki
komið fyrir í janúarmánuði innan bæjar. Ef ekkert sérstakt
kemur upp á með veikina frá því sem nú horfir verður sam-
komubanninu væntanlega aflétt hér um miðjan mánuðinn
og sennilega verður þá einnig hafin kennsla í barnaskól-
anum.
Rottueitur drepur stórgripi
2. mars. Um miðjan febrúar veiktust tvær gyltur á svína-
búi í Reykjavík og drápust. Var fyrst álitið að um svínapest
væri að ræða. En litlu síðar veiktist kálfur og drapst með
sömu einkennum og var þá ljóst að ekki gat svínapest ver-
ið á ferðinni. Var máhð rannsakað að rannsóknarstofnun
ríkisins að Keldum og var dauðaorsökin tahn fosfóreitrun.
Við nánari rannsókn kom í ljós að fosfór þessi er samskon-
ar og Reykjavíkurbær hefur notað í rottueitur. - Hefir verið
notað svonefnt rottuklístur en það er límkennt efni sem
látið er í rottuholurnar. Festist það vi fætur rottunnar og
hún sleikir það af fótunum og drepst. 20 mg af þessu efni
eru talin nægileg til að drepa man. Eftir þennan stórgripa-
dauða hefur verið hætt að nota eitur þetta.
Skömmtunarseðlar
30. mars. Úthlutun skömmtunarseðla fyrir næsta
skömmtunartímabil er hafin í úthlutunarskrifstofunni hér
og á henni að vera lokið 31. mars. Nú um mánaðamótin
falla úr gildi kornvöru-, kaffi- og hreinlætisvörureitirnir af
núgildandi seðli, sömuleiðis skammtar nr. 4 og 5 út á
smjör. Ennfremur falla úr gildi skammtar 9 og reitirnir L2-
L6 úr skömmtunarbók fyrra árs (smjörlíki). Vefnaðarvöru-
reitir, skósmiðir og sokkaskammtur (skammtur 2 og 3)
halda gildi sínu þetta ár. Ráðlagt er að geyma reitina
skammtur 1, 6 og 7 ef ske kynni að þeim yrði gefið gildi
síðar.
Stal bíl - braut hús
22. júní. Á þriðja tímanum í fyrrinótt var farþegabíl Flug-
félags íslands stolið þar sem hann stóð á Torfunefsupp-
fyllingu. Á leið upp í bæinn var honum ekið á viðbygging-
una við verslunarhús Gudmans Efterfl. og laskaðist húsið
talsvert. Bílliqn skemmdist h'tið sem ekkert. Lögreglan
hafði þegar upp á manninum sem bílinn tók og reyndist
hann vera 18 ára piltur, aðkomumaður hér í bænum og var
hann allmikið drukkinn.
Hafið þið heimsótt Bautann á kvöldin
um helgar?
Höfum breytt neðri salnum, þannig að núna er hlýlegra
og huggulegra hjá okkur.
„Óánæsður ef það
Siflr ekki
öldina útu
- Segir Hjörtur Þórarinsson
ritstjóri blaðsins Norðurslóð
sem á fimm ára afmæli í
þessum mánuði
„Fyrsta blaðið af Norðurslóð
kom út í nóvember 1977. Það
ár komu út tvö blöð en síðan
hafa komið út tíu blöð á ári,“
sagði Hjörtur Þórarinsson, á
Tjörn í Svarfaðardal, í samtali
við Dag en blaðið Norðurslóð á
einmitt fimm ára afmæli um
þessar mundir.
Norðurslóð kemur út mánaðar-
lega með fríi á sumrin í tvo mán-
uði þannig að eintökin eru 10 á ári
sem fyrr sagði. í fyrsta blaðinu
sagði um tilgang þess:
„í mjög stuttu máli má segja að
megin tilgangurinn með útgáfu
blaðsins hér sé sá að skapa vett-
vang fyrir umræður, skoðana-
skipti, upplýsingar og fréttir um
hvað eina sem uppi er á teningn-
um í hinu svarfdælska byggðar-
lagi og nágrenni þess á líðandi
stund. Sú er von okkar að regluleg
útkoma sltks héraðsblaðs muni
stuðla að almannaheill. Byggðar-
lagið verði menningarlegri og
skemmtilegri staður fyrir þá sem
hér búa og hinir sem brott eru
fluttir en eiga rætur sínar hér eigi
auðveldara með að fylgjast með
gangi mála og halda lifandi tengsl-
um við heimabyggðina."
- Hvernig hefur það gengið að
koma þessu blaði út, ef við ræðum
fyrst um efni og öflun þess?
„Við eigum ævinlega nóg efni.
Þó sakna ég þess að það er ekki
mikið framboð á efni, ekki mjög
margir sem finna hjá sér hvöt að
fyrra bragði til að láta blaðið hafa
efni. Það þarf því að vera á hött-
unum eftir efni en það er ekki
mikill vandi að finna efni í 4-6
síðna blað einu sinni í mánuði
þannig að það hefur tekist þó
starfsmennirnir séu fáir.“
»....M7<
- En hvað með fjárhagshlið-
ina?
„Við höfum ekki safnað skuld-
um og höfum getað látið þetta
ganga með því að taka ekkert
fyrir okkar vinnu, við sem ritstýr-
um blaðinu. Þetta er allt sjálf-
boðavinna og við borgum aldrei
neinum neitt fyrir efni. Við borg-
um hinsvegar fyrir dreifingu og
Hjörtnr Þórarinsson
innheimtu og svo auðvitað fyrir
alla prentvinnu.
Þetta gengur svona, en myndi
ganga miklu betur ef við hefðum
betri auglýsingamarkað. Menn
þykjast ekki þurfa að auglýsa
mjög mikið hér, en ef menn vilja
kaupa eitthvað eða selja þá aug-
lýsa þeir í Kaupfélagsbúðinni eða
á „Shellinu“ á Dalvík. Þeim dett-
ur ekki í hug að auglýsa í blaði þar
sem greiða þarf fyrir auglýsing-
una. Líma bara auglýsinguna upp
á þessum stöðum og halda að það
geri sama gagn. Ef fleiri hefðu
skilning á því að blað verður að
lifa á peningum eins og aðrir þá
myndu sennilega fleiri auglýsa hjá
okkur.“
- Nú var það stcfnan að hafa
þetta blað ópólitískt. Hvernig
hefur það gengið?
„Það hefur gengið ágætlega,
aldrei nokkur maður núið okkur
því um nasir aðviðhöfum villst út
af þeirri línu. Við teljum það
frumskilyrði fyrir því að svona
blað geti lifað í svona litlu þröngu
umhverfi að það sé ekki tekin
pólitísk afstaða til mála.“
- Hvað er upplagið stórt?
„Það eru prentuð 1000 eintök
og ég held að það séu á níunda
hundrað fastir áskrifendur sem
greiða skilvíslega blaðgjaldið en
blaðið fer um allt land og eitthvað
til útlanda. Áskriftin kostaði 120
krónur á síðasta ári.“
- Hverjir hafa ritstýrt blaðinu?
„Við vorum þrír sem byrjuðum
á þessu, ég, Jóhann Antonsson og
Óttarr Proppé. Óttarr er fluttur
burtu en við Jóhann ritstýrum
blaðinu ennþá. Sigríður Hafstað á
Tjörn sér um innheimtu og dreif-
ingu og er eini fasti starfsmaður
blaðsins.“
- Og Norðurslóð á eftir að
verða langlíft blað, er ekki svo?
„Jú, jú. Ég er mjög óánægður
ef það íifir ekki öldina út. En að
sjálfsögðu verða nýir kraftar að
koma að blaðinu fljótlega ef það á
að geta lifað.“
...... ' '
DelSeu
parisB