Dagur - 07.12.1982, Page 9
FYRSTfl
MARKIÐ
KA sigraði Þór í
fyrsta leiknum í nýju
íþróttahöllinni.
Á sunnudaginn rann upp lang-
þráð stund fyrir íþróttaáhuga-
menn á Akureyri, þegar nýja
íþróttahöllin var tekin í
notkun. Ekki er höllin að vísu
fullfrágengin, og formleg
vígsla hennar bíður næsta árs,
en vonandi tekst þá að klára
hana.
Hægt verður að byrja
íþróttakennslu strax eftir helgi,
og þá fá íþróttafélögin einnig
aðstöðu til æfinga og keppni.
Framkvæmdir við höllina
hófust árið 1977, en Bygging-
arfélagið Híbýli hefur verið
aðalverktaki allt frá upphafi.
Byggingarnefnd var skipuð
árið 1973 en í þeirri nefnd eru
nú, Hermann Sigtryggsson,
ísak Guðmann, Tryggvi Gísla-
son, Haraldur M. Sigurðsson
og Óðinn Árnason. Nú þegar
höllin er tekin í notkun tekur
íþróttaráð Akureyrar við
stjórn og rekstri hennar.
Við opnunnarhátíðina á
sunnudaginn talaði m.a.
Hermann Sigtryggsson íþrótta
fulltrúi. Hann lýsti bygging-
arsögu hússins í stuttu máli og
sagði m.a. að nú opnaðist
Akureyringum möguleiki á því
að hér gætu farið fram alþjóð-
legar íþróttakeppnir, sýningar
og hljómleikar ýmisskonar og
sitthvað fleira.
Þá talaði einnig Reynir
Karlsson íþróttafulltrúi ríkis-
ins og flutti kveðjur frá
Menntamálaráðherra og ráðu-
neyti hans. Hann skýrði frá því
að þetta hús væri það 100. í
röðinni af íþróttahúsum á
íslandi, og einnig óskaði hann
Akureyringum til hamingju
með þetta glæsilega framtak.
Þá hófust íþrót'takeppnir og
sýningar. Fyrst kepptu meist-
araflokkar Þór og KA í hand-
bolta. Þrátt fyrir það að Þór
hefði forustu mest allan leik-
inn sigraði KA með einu
marki. Leikið var í 2x20 mín.
Þá sýndu félagar úr badmin-
ton félaginu snilli sína, og svo
gerðu einnig stúlkur frá Fim-
leikaráði Akureyrar. Næst var
blak og þar leiddu saman hesta
sína öldungalið Skautafélags-
ins og Sundfélagsins Óðins, og
einnig kvennalið frá Eik og
KA. Að lokum kepptu pollar
úr 5. flokki í innanhúsknatt-
spyrnu frá KA og Þór. KA-
strákarnir unnu með þremur
mörkum gegn tveimur. Alls
komu um 1200manns íhúsiðá
laugardaginn.
Kári vann Grétarsmótið
Guðmundur Guðmundsson skorar fyrsta markið í hinni nýju íþróttahöll.
Ljósm.: KGA.
Þór — Dalvík:
mark á mínútu
Á laugardaginn var haldið hið
árlega minningarmót um Grét-
ar Kjartansson kraftlyftingar-
mann.
Átta keppendur mættu til
leiks á mótið, og þar af tveir frá
Reykjavík. Jóhannes Hjálm-
arsson setti nýtt Akureyrar-
met í hnébeygju, en hann lyfti
280 kg. og bætti gamla metið
um tæp 50 kg.
Sverrir Hjaltason KR átti
góða tilraun við nýtt Evrópu-
met í réttstöðulyftu, en það
KA strákarnir kvöddu
Skemmuna með sigri á föstu-
dagskvöldið en þá léku þeir í
annarri deild við HK. Þetta er
síðasti leikur sem KA leikur í
Skemmunni að sinni, þar sem
næstu heimaleikir þcirra verða
væntanlega í íþróttahöllinni.
Sigur KA var nokkuð öruggur
í þessum leik en liðið gerði 28
mörk en fékk á sig 22. í hálf-
leik hafði KA tveggja marka
forustu.
Það var Friðjón sem gerði
fyrsta markið í leiknum, og
strax á eftir fylgdi annað frá
- Þorleifi úr víti.
Eftir fimm mín. var KA búið
að gera fjögur mörk en H K að-
mistókst, m.a. vegna þess að
hann gekk ekki heill til skógar
á þessu móti. Sigurvegarinn
var hins vegar Kári Elísson frá
Akureyri. Hann bætti íslands-
metið í öllum sínum lyftum og
var m.a. lang stigahæstur ein-
staklinganna. Hann lyfti í hné-
beygju 230 kg. 155 kg. í bekk-
pressu og 250,5 í réttstöðu-
lyftu.
Samanlagt lyfti hann 630
kg. Kári hlaut því Grétarsstytt-
una þriðja árið í röð.
eins eitt. KA náði síðan fimm
marka mun, en seint í fyrri
hálfleik náðu HK menn að
gera þrjú í röð án þess að KA
kæmist á blað, og náðu því að
minnka muninn í tvö mörk.
Nær KA komst HK aldrei í
leiknum en í hálfleik og var
staðan 16 gegn 14.
Fyrstu þrjú mörk í síðari
hálfleik voru frá KA, tvö frá
Flemming og eitt frá Þorleifi.
Eftir að þeir höfðu náð fimm
marka forustu átti HK aldrei
möguleika og lokatölur urðu
eins og áður segir 28 gegn 22
KA í vil.
Það var Friðjón sem var
Eitt
Það var mikið íjör í íþrótta-
skemmunni á laugardaginn
þegar Þór og Dalvík mættust
þar í þriðju deildinni. Bæði
liðin ætluðu sér sigur í leikn-
um, eins og oft er, en annað
getur bara sigrað. Sá sigur féll
besti maður KA í þessum leik
en hann gerði 8 mörk. Þorleifur
gerði 6, 5 úr víti, Flemming 5,
Kristján 3, og Kjeld, Erlingur
og Guðmundur 2 hver. Dóm-
arar voru Árni Sverrisson og
Hjálmar Sigurðsson og dæmdu
þeir ágætlega. K A er nú í efsta
sæti deildarinnar ásamt Gróttu
og eru liðin töpuð 4 stig. KA
vann hins vegar auðveldan
sigur á Gróttu á útivelli, fyrr í
vetur. Þau lið sem lenda í fjór-
um efstu sætum deildarinnar
leika síðan til úrslita um tvö
efstu sætin, sem gefa fyrstu
deildar sæti.
Þór í skaut sem skoraði 33'
mörk en Dalvík aðeins 27, eða
alls voru skoruð sextíu mörk í
þessum leik, eða eitt á mínútu
að meðaltali.
Það var markakóngurinn
þeirra Dalvíkinga sem gerði
fyrsta markið, en Sigtryggur
jafnaði fyrir Þór, og kom þeim
síðan yfir. Albert jafnaðisíðan
fyrir Dalvíkinga, en Sigurður
Pálsson kemur Þór aftur yfir
með marki úr víti. Þá kom
mark frá Guðjóni og staðan
orðin 4 gegn 2. Þá ná Dalvík-
ingar að jafna með mörkum
frá Birni og Albert, en síðan
fylgdu þrjú mörk hjá Þór og
Þór kominn með 8 mörk en
Dalvík aðeins 5. Þessi munur
hélst nokkuð lengi en síðast í
hálfleiknum gerðu Þórsarar
aftur þrjú mörk án þess að
Dalvík tækist að svara fyrir
sig.
í hálfleik var staðan 17 gegn
12 fyrir Þór og örugg forusta
þeirra. Þór náði fljótlega í
síðari hálfleik sjö marka mun
eða 20 gegn 13, en sá munur
hélst út allan leikinn og loka-
tölur urðu því 33 gegn 27.
Leikur þessi var nokkuð harð-
ur og alls var fjórtán leikmönn-
um vísað af leikvelli, og þar af
tveimur fyrir fullt og allt. Það
vakti sérstaka athygli skemmti
legar leikfléttur sem voru hjá
Dalvíkingum, þegar þeir taka
aukaköst. Yfirleitt byggðust
þær á geysilegum stökkkrafti
Sigurðar Matthíassonar, en
hann var jafnframt besti mað-
ur vallarins. Þrátt fyrir það að
hann æfir lítið handbolta, þar
sem hann er nemandi í íþrótta-
kennaraskólanum hefur hann
geysilegan stökkkraft og skot-
hörku. Með meiri æfingu yrði
hann yfirburðarmaður í þess-
ari íþrótt, en annars virðist
hann vel liðtækur við hvaða
íþrótt sem er. Síðasta mark
leiksins átti Gunnar Gunnars-
son fyrir Þór, og sennilega er
það síðasta mark Þórsara í
skemmunni ágætu, en eins og
KA flytjast þeirra leikir nú í
höllina.
Sigtryggur gerði flest mörk
Þórs eða 12, Sigurður 6,
Guðjón 5, Gunnar og Jón Sig.
3, og Einar, Böddi, Hörður og
Smári eitt hver. Sigurður var
markahæstur Dalvíkinga með
8, Albert og Björn 6, Vignir 4
og Tómas, Björgvin og Olafur
1 hver.
Kvöddu Skemmuna
með sigri
7- desember 1982 - DAGUR - 9