Dagur - 07.04.1983, Side 5
FESTA - SOKN- FRAMTIÐ
— nokkur helstu atriði um stefnu Framsóknarflokksins
f
Undanfarin ár hefur það verið hlutskipti
Framsóknarflokksins að eiga þátt í að leiða
þjóðina í gegnum tímabil heimskreppu og
aflabrests. Þetta hefur tekist án meiriháttar
áfalla og án atvinnuleysis. Efnahagslífið er
þó enn sjúkt vegna mikillar verðbólgu sem
óhjákvæmilegt er að stöðva.
Að ýmsu leyti er þó að rofa til og því unnt
að undirbúa nýja framf arasókn strax gg tek-
ist hefur að ná tökum á verðbólgunni. í þeirri
sókn er það meginmarkmið framsóknar-
manna að tryggja að hinir miklu framfara-
möguleikar íslands nýtist þjóðinni allri til
hagsældar og stöðugra framfara. Nýir mögu-
leikar í landbúnaði, tækniframfarir í fisk-
vinnslu, aukin sókn í almennum iðnaði og
nýting vatnsafls og jarðvarma getur allt
skapað traustan grundvöll nýrrar framfara-
sóknar verði heimatilbúnum hindrunum
rutt úr vegi.
Hagstæðari þróun efnahagsmála ná-
grannaþjóða okkar gefur íslensku þjóðinni
nú gott tækifæri, sem við verðum að nýta, til
að koma eigin málum í betra horf. Til þess
verður að vinna bug á verðbólgunni, leið-
rétta ýmsar skekkjur í þjóðfélagskerfinu og
beita öllum skynsamlegum ráðum til að örva
efnahagslegar framfarir. Við verðum að taka
okkur tak og sýna hvers megnugir við erum.
Framsóknarflokkurinn boðar ekki neyð-
aráætlun né leiftursókn heldur þjóðarátak til
eínahagslegs jafnvægis og framfara. Fram-
sóknarflokkurinn vill sterka og samhenta
stjórn sem stýrir þjóðfélaginu inn á braut
velmegunar, vaxandi frjálsræðis, félags-
hyggju og minnkandi ríkisafskipta.
Framsóknarflokkurinn er reiðubúinn til
samstarfs við þá stjórnmálaflokka sem fara
vilja þessa leið. Áhersluorð framsóknar-
manna eru festa í stjórn, sókn til betra lífs og
björt framtíð.
Samdráttur í þjóðarframleiðslu og kreppan
umhverfis okkur valda því, að fyrst í stað
verður að verja það, sem áunnist hefur
• Til þess þarf styrka
stjórn manna, sem þora
að horfast í augu við
raunveruleikann og bregð-
ast við samkvæmt þvi.
• Menn, sem segja þjóðinni
sannleikann.
• Menn, sem þora að grípa
til þeirra ráðstafana, sem
þörf er á.
• Menn, sem vilja sækja af
fullri festu og einurð til
betri framtíðar.
Jafnskjótt og tekist hefur
að ná tökum á stjórn
efnahagsmála verði hafin
ný sókn til eflingar
atvinnulífsins.
• Sjávarafli verði fullunninn
í landinu í eins ríkum
mæli og markaðir leyfa.
• Kappkostað verði að
auka gæði og nýtingu og
efla tækniframfarir í fisk-
iðnaði.
• Sérstök áhersla verði
lögð á arðbærar búgrein-
ar.
Orka landsins verði
virkjuð og iðnaður efldur
til aukinnar framleiðslu
og útflutnings.
• Markaðsöflun erlendis
verði styrkt í ríkari mæli
en nú er gert.
• Starfsemi fjárfestingalána-
sjóða verði samræmd og
þeim beitt til þes að ná
settum markmiðum.
• Aðstaða iðnaðar verði
bætt með lækkun opin-
berra gjalda.
Festa
Sókn
Næstu árin þarf að sýna mikla festu í stjórn landsmála
svo að unnt verði að hefja nýja sókn til betri framtíðar.
Strax að loknum kosningum þarf að taka mikilvægar
ákvarðanir í efnahagsmálum.
Samhliða verði lögð áhersla á
sókn til betra mannlífs
• Lögbundið verði til
tveggja ára þak á hækkun
verðlags, opinberrar
þjónustu, vaxta, launa,
búvöruverðs og fiskverðs
og þannig tryggð undan-
bragðalaus niðurtalning
verðbólgunnar.
• Erlend lán verði eingöngu
tekin til arðbærra fjár-
festinga.
• Opinberar fjárfestingar
minnki til að skapa aukið
svigrúm fyrir atvinnuvegi.
• Dregið verði úr opinberum
álögum á atvinnurekstur.
• Viðmiðunarkerfi launa
verði breytt þannig að
verulega dragi úr víxl-
verkun verðlags og
launa*
• Stjórnkerfi hins opinbera
verði tekið til róttækrar
endurskoðunar til að
draga úr kostnaði og
auka hagkvæmni.
• Fjárfestingarfé verði fyrst
og fremst beint til
atvinnuveganna og það
nýtt til aukinnar fram-
leiðslu og framleiðni.
• Tekjuskattur verði ekki
lagður á miðlungs og
lægri tekjur.
• Staðgreiðslukerfi skatta
verði komið á.
• Dregið verði úr viðskipta-
halla.
• Fullt jafnrétti kynja til
starfa, launa og lífsham-
ingju verði tryggt.
• Allar konur njóti sama
fæðingarorlofs.
• Húsnæðislán nemi 80%
af byggingarkostnaði og
verði til 42 ára.
• Lögð verði rík áhersla á
umhverfisvernd, aðstöðu
til útivistar og íþrótta.
• Islendingar leggi ákveðnir
lóð sitt á vogarskál friðar
í heiminum með skeleggri
baráttu fyrir afvopnun og
takmörkun kjarnorku-
vopna.
Lífskjör okkar í dag
• Við búum við fullkomið frelsi og lýðræði.
• Við búum í stóru óspilltu og fögru landi.
• Þjóðartekjur eru meðal þeirra hæstu í heiminum.
• Atvinnuleysi má heita óþekkt.
• Meðalaldur íslendinga er hinn hæsti í heimi.
• Heilsugæsla er til fyrirrnyndar.
• íbúðarhúsnæði er i fremstu röð, hvort heldur miðað
er við stærð eða gæði.
• Almenn menntun er með því sem best gerist í
heiminum.
Framtíð
Þegar efnahagslíf og atvinnuvegir hafa verið treystir,
blasir björt framtíð við okkur íslendingum. í framtíðar—
þjóðfélagi þurfum við meðal annars að leggja áherslu á: •
• Að standa vörð um óskorað stjórnarfarslegt, efnahagslegt •
og menningarlegt sjálfstæði okkar á grundvelli lýðræðis og
þingræðis. •
• Að tryggja að allir þegnar þjóðfélagsins fái jöfn tækifæri til •
að þroska og nýta hæfileika sína og að öryggi þeirra allra
sé tryggt, þótt á kunni að bjáta.
• Að manngildið sé jafnan metið meira en auðgildið.
Frelsi einstaklingsins og sem beinust samskipti hans við
stjórnvöld.
Að atvinnulífið byggist á framtaki efnalega sjálfstæðra
manna, sem leysa sameiginleg verkefni á grundvelli
samvinnu og félagshyggju, en aðeins í undantekningartil-
vikum með opinberum rekstri.
Auðlindir landsins verði nýttar til hagsbóta öllum landsins
þegnum í fullri sátt við náttúru þess.
Að blómlegt athafna- og menningarlíf sé í öllum landsins
byuuðum.
Valdi verði dreift og horfið frá miðstýringarstefnu.
Islendingar leiti eftir góðum samskiptum við allar þjóðir og
styðji eftir megni baráttu fyrir friði í heiminum, jafnrétti og
sjálfstæði allra þjóða og rétti allra manna til frelsis og
mannsæmandi lífs.