Dagur - 07.04.1983, Page 10

Dagur - 07.04.1983, Page 10
Samtök forræðislausra ferðra stofnuð á Akureyri: „Allt of margir feður hafa háð árangurslaust einkastríð“ Fyrir nokkru var haldinn stofn- fundur Samtaka forræðislausra feðra á Akureyri. Vegna tíma- leysis var ekki boðað til fundar- ins sem skyldi og hefur verið ákveðið að halda framhalds- stofnfund sem mun verða aug- lýstur nánar síðar. A fund- inum sl. laugardag flutti Bjarni Ólafsson ávarp og er það birt hér í heild: í dag laugardaginn 26. mars 1983 eru Samtök forræðislausra feðra stofnuð. Samtök forræðislausra feðra er félag sem mun beita sér fyrir því að nýju barnalögin séu virt á jafn- réttisgrundvelli. En þar segir að bæði foreldri skulu hafa jafnan rétt til barna sinna eftir skilnað og að það foreldrið sem ekki fær for- ræðið skuli hafa rétt til að um- gangast börn sín. Samtökin eru opin öllu fólki, konum og körlum, sem áhuga hefur á eða telur sig hlunnfarið í þessum efnum. Hingað til hafa alltof margir feður háð sitt árangurslausa einkastríð og setið eftir með sárt ennið, varnarlausir gegn þeim fordómum og hefð að móðirin fái börnin, eingöngu af því að hún er kona. Jafnvel eftir að nýju barna- lögin tóku gildi. Þetta á bæði við um gift fólk og fólk í óvígðri sambúð. Samtökin munu jafnvel beita sér fyrir að lögum verði beitt til að tryggja velferð barna á meðan á forræðisdeilum stendur. Þar er átt við tímabilið frá hjúskaparslitum og þangað til forræði og um- gengnisréttur hefur verið skip- aður. En því foreldrinu (oftast nær konan) sem fyrra er til að hrifsa með sér börnin er í sjálfsvald sett hvort hitt foreldrið fái nokkuð að umgangast börnin sín. Oft er þannig reynt að slíta börnin úr tilfinningalegum tengsl- um við föður sinn börnunum til andlegra skemmda. Þar ná engin lög um. Það eru ófá dæmi um að feður hafa verið beittir sálrænum pyntingum á þessu tímabili og neyddir til að samþykkja afar- kosti í umgengni við börnin. „Ef þú samþykkir ekki þetta þá færðu börnin ekki neitt.“ Þannig hafa börnin verið notuð að vopni til þessa. Tilfinningar barna og feðra eru fótum troðnar. Þessu viljum við mótmæla. Við viljum líka mótmæla að persónulegt skítkast skuli hafa áhrif á dómsvöld sem ákveða forræði og umgengnisrétt. Að ættingjar og óviðkomandi fólk fái með hlutdrægni áhrif á forræð- isákvarðanir og sverja jafnvel lyg- ar gegn þeim sem það vill ekki að fái forráðaréttinn. Það kom fyrir einn félaga okkar um daginn eftir að hafa hringt margoft til „tengdamúttu" og beðið um samband við börnin sín Bílstjórar - Vörubílaeigendur Höfum tekið að okkur sölu- og þjónustuumboð fyrir sendi- og vöruflutningabifreiðar Rekum þjónustu- og söluumboð fyrir VW, viðgerðarþjónustu fyrir Volvo-GM, einnig rafmagnsverkstæði og bílamálun. Við minnum einnig á okkar alhliða þjónustu við bifreiðaeigendur. v/Tryggvabraut, Akureyri, sími 22700. og símanum var skellt jafnoft á hann að hann skrapp í kaffitíma úr vinnu til að hitta þau. Án þess að hugsa um tilfinningar barn- anna hringdi „tengdamútta“ á lögregluna, börnin voru slitin úr fangi hans. Maðurinn hafði ekki hemil á tilfinningúm sínum, hann brotnaði saman, var handtekinn og fluttur út. Þannig eru feður oft viljandi gerðir að árásaraðilum í augum barna sinna. Þó lögreglan hefði samúð með manninum þá var þetta skylda þeirra. Það er ekki við þá aö sakast. Friðhelgi heimilisins er svo sterk að húsráð- andi þarf ekki að hleypa neinum inn í hús sín. Jafnvel þó sá sé faðir barnabarna hans. Við munum láta í okkur heyra. Við munum láta til okkar sjást. Við munum leitast við að ná því fram að skipting barnanna okkar sé í anda barnalaganna, réttlát. Bjarni Ólafsson. Spennandi úrslit Um næstu helgi fer fram hér í Iþróttahöllinni síöasta umferð í úrslitakeppni annarrar deild- ar í handbolta. Þar berjast fjögur lið um tvö laus sæti í fyrstu deild næsta keppnis- tímabil. Að nokkru eru úrslitin ráðin, þ.e.a.s. Gróttaáekkimöguleika á að komast í fyrstu deild og Haukar hafa svo gott sem tryggt sér annað lausa sætið. Það eru því fyrst og fremst KA og Breiðablik sem berjast um að komast upp. Fyrir þessa umferð hefur KA eitt stig til góða á Blikana, en þeir hafa bar- ist eins og Ijón í þessum úrslitum og hafa nú þegar unnið upp fjög- urra stiga forustu sem KA hafði þegar úrslitakeppnin byrjaði. Vonandi verður heimavöllurinn KA notadrjúgur og með góðum stuðningi áhorfenda ætti þetta að geta tekist hjá KA. Allir leikirnir í þessari umferð verða úrslitaleikir og t.d. getur ekkert liðanna bókað sigur fyrir- fram á Gróttu, en þeir munu ein- ir liða leika þessa leiki án álags og munu eflaust leika léttan og skemmtilegan handbolta. Það er mikill hugur í KA- strákunum fyrir þessa umferð og einn sem íþróttasíðan ræddi við sagði að þeir ætluðu sér ekkert minna en sigur í öllum þremur leikjum sínum og sýna það og sanna að þeir eigi heima í fyrstu deild. Áhorfendur eru því hvattir til að fjölmenna í Höllina á föstu- dagskvöldið, laugardaginn og sunnudaginn því þar verður ör- ugglega hart barist. Kissing kominn til landsins Hinn þýski þjálfari KA í knattspyrnu Frits Kissing er nú kominn og hefur hafið æf- ingar með leikmönnum sínum. KA var í Reykjavík um pásk- ana og léku strákarnir þar nokkra æfingarleiki undir stjórn hins nýja þjálfara síns. Fyrst léku þeir við Víkinga og sigraði KA í þeim leik með fimm mörk- um gegn engu. Síðan léku þeir við Fylki og þar sigraði KA einn- ig, með tveimur mörkum gegn engu. Síðast var svo leikið við Fram og þar sigraði KA einnig með einu marki gegn engu. í marki KA í þessum leikjum stóð nýr markmaður sem heitir Sigurður Sigurgeirsson eða Siggi Shilton eins og hann hefur stundum verið uppnefndur. Hann lék í fyrra með HSÞ og hefur nú tilkynnt félagaskipti yfirí KA. Leiðrétting: Þórsarar sigruðu í síðasta blaði brenglaðist fyrir- sigrað. sögn o.fl. vegna leiks Þórs og Hið rétta var að Þór sigraði í Dalvíkinga í handbolta. í fyrir- þessum leik og eru því Þórsarar sögninni stóð að Dalvík hefði beðnir velvirðingar á þessum sigrað, en í greininni undir var mistökum sem urðu í frásögn og sagt að bæði Dalvík og Þór hefði fyrirsögn um leikinn. 1P - DAGUR - 7. aprfl 1983

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.