Dagur - 08.04.1983, Side 11
HVAÐERAÐ GERAST?
V ORTÓNLEIKAR
Tónleikar Lúðrasveitar
Akureyrar og blásara úr
Tónlistarskólanum verða
haldnir í Sjailanum
sunnudaginn 10. apríl kl.
15. Fjölbreytt efnisskrá.
Stjórnandi er Atli Guð-
laugsson. Á tónleikunum
verða kaffiveitingar
(hlaðborð) sem Kvenna-
deild Slysavarnafélags-
ins á Akureyri sér um.
Aðgangseyrir er kr. 100
fyrir fullorðna og kr. 50
fyrir börn (kaffi innifal-
ið). Tilvalin skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
Húsið opnað kl. 14.
Komið og styrkið gott
rpálefni.
Lúðrasveit Akureyrar
Kvennadeild S.V.F.I.
Akureyri.
Gönguferð fyrir
alla fjölskylduna
Þá eru gönguferðirnar á
vegum Ferðafélags Akur-
eyrar að hefjast og verður
byrjað með léttri skíða-
göngu - tveggja til þriggja
klukkustunda langri -
fyrir alla fjölskylduna
næstkomandi laugardag.
Á sunnudag verður
lengri skíðaganga fyrir þá
sem eru vanir skíðagöngu
en margar fleiri göngu-
ferðir eru fyrirhugaðar á
næstunni. Allar upplýs-
ingar fást á skrifstofunni,
Skipagötu 12 eða í sím-
svara 22720, en þar er
einnig bent á hugsanlega
ferðamöguleika.
ÍSCROSS Á
TJÖRNINNI
Um helgina gengst Bíla-
klúbbur Akureyrar fyrir
íscrosskeppni á Tjörn-
inni. Þessi keppni er liður
í keppninni um fslands-
meistaratitilinn og er hún
sú næstsíðasta sem fram
fer á þessu ári.
Bílarnir verða ræstir kl.
14 á laugardag en búist
er við allt að 12 bílum í
keppnina. Óvíst er um
þátttöku Reykvíkinga en
þó er fastlega búist við
því að íslandsmeistarinn
mæti til leiks. Húsvík-
ar mæta hins vegar til
leiks.
Aðgangseyrir er 50
krónur en keppnin hefst
eins og áður segir klukkan
14.
„Kennara-
tónleikaru
hjá Tónlistar-
félaginu
Þriðju áskriftartónleikar
Tónlistarfélags Akureyr-
ar verða haldnir í Borgar-
bíói laugardaginn 9. apríl
n.k. kl. 17.00.
Nú er boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá sem
kennarar Tónlistarskóla
Akureyrar hafa allan veg
og vanda af.
Flytjendur eru 13
talsins, þar af 11 kennarar
og tveir nemendur
skólans. Atli Guðlaugs-
son trompet, Edward
Fredriksen básúna, Hall-
dór Halldórsson trompet,
Hrefna Hjaltadóttir lág-
fiðla, Jóhann Ævarsson
horn, Jónatan Bager
flauta, Kristinn Örn
Kristinsson píanó, Lilja
Hjaltadóttir fiðla, Magna
Guðmundsdóttir fiðla,
Michael Jón Clarke bari-
ton, Roar Kvam túba,
Soffía Guðmundsdóttir
píanó og Þuríður Bald-
ursdóttir alt.
Leikið verður og sung-
ið af hjartans lyst úr verk-
um tónskálda sem spanna
vítt tímabil, frá 16. öld
fram á okkar daga en þau
eru: Samuel Barber, Ge-
orges Bizet, Árni
Björnsson, Manuel de
Falla, Ludwig Maurer,
Roger Quilter, Max
Reger, Schein, Robert
Schumann, André Spir-
ea, Giuseppi Verdi.
Á svona fjölbreyttum
matseðli fer varla hjá því
að allir finni ekki eitthvað
við sitt hæfi. En þessir
tónleikar eru líka glæsi-
legur vitnisburður um hve
fjölhæf kennslustofnun
Tónlistarskólinn er
orðinn, að eiga svona
sterka forystusveit.
Akureyringar eru
hvattir til að fjölmenna á
þessa tónleika og sýna í
verki að þeir kunna að
meta þýðingarmikið
framleg listafólksins til
auðugra mannlífs í Akur-
eyrarbæ og sveitum Eyja-
fjarðar.
Aðgöngumiðar fást í
Huld í Hafnarstræti og
við innganginn.
Efni á síðuna „Hvað er að gerast“
í Helgar-Degi þarf að hafa borist
ritstjórn Dags fyrir kl. 10
á fimmtudagsmorgnum.
Kemst KA upp?
Um helgina ræðst það
hvort KA tekst að tryggja
sér sæti í 1. deild fslands-
mótsins í handknattleik
næsta keppnistímabil en
síðasti hluti úrslitakeppni
2. deildar verður háður á
Akureyri og hefst í kvöld.
Þá leika KA og Grótta
kl. 20.15 ogsíðan Breiða-
blik og Haukar. Á morg-
un leikur KA gegn Hauk-
um kl. 15.15 og síðasti
leikur mótsins verður
viðureign KA og Breiða-
bliks á sunnudag kl.
15.15.
Haukar hafa þegar
tryggt sér sæti í 1. deild að
ári en KA og Breiðablik
berjast um annað laust
sæti. KA hefur eitt stig á
Blikana svo spennan er
fyrir hendi.
Laugardagur 9. aprfl 1983
STÓRBINGÓ
Ferðavinningur frá Atlantik, heimilistæki, auk annarra
góðra vinninga. Spilaðar verða 5 umferðir.
Bingóið hefst kl. 22.30
Sér-tilboð kvöldsins:
Spergilsúpa.
Hamborgaralæri með rauðvínssósu
(m/súpu ogdesertkr. 295)
Borðapantanir
í síma 22200.
eða
heilsteiktur nautahryggur
(m/súpu og desert kr. 375).
Nougat ís.
Ingimar Eydal skemmtir matargestum með
léttri tónlist og leikur síðan fyrir dansi
ásamt Billa, Leibba og Ingu.
UÍ3.
mi
ÍW
Aðeins
rúllugjald
kr. 30.
FUFAN
HÚTEL KEA AKUREYRI
SI'MI: 96-22200
8. apríl 1983 - DAGUR -11