Dagur - 21.04.1983, Blaðsíða 5
/
frá frambjóðendum Framsóknarflokksins
Frambjóðendur Framsóknarflokksins
í Norðurlandskjördæmi eystra leggja áherslu
á þau atriði sem hér verða talin:
1. Undanbragðalaus niðurtalning
verðbólgustigsins
Niðurtalningin er samræmd verðlækkunarstefna
sem miðar að því að lögfesta verðhjöðnun stig af
stigi. Niðurtalningin nær til allra verðlagsþátta:
Búvöruverðs, fiskverðs, bankavaxta, þjónustu-
gjalda og álagningar. Niðurtalningin kemur jafnt
við alla landsmenn og bætir í senn hag launafólks
og atvinnufyrirtækja.
3. Byggðastefna
Byggðastefnan hefur lyft Grettistökum í atvinnu-
og félagslífi landsbyggðarinnar síðastliðin 12 ár.
Ljóst má vera að framkvæmd byggðastefnu þarf
nú endurskoðunar og nýskipunar við eftir svo
langan tíma og vilja Framsóknarmenn hafa for-
ystu um endurnýjun og eflingu byggðastefnunnar
í ljósi fenginnar reynslu og nýrra viðhorfa.
5. Jafnrétti kynja
Framsóknarflokkurinn styður jákvæða jafnrétt-
isbaráttu kvenna en telur að aðferðir kvennalist-
anna stuðli, án þess að við verði ráðið, að að-
greiningu kynja og varar því við baráttuaðferð-
um þeirra og málflutningi í þessum kosningum.
- Við minnum á að Framsóknarflokkurínn er viðurkenndur flokkur landsbyggðarinnar og
merkisberí framsækinnar landsbyggðarstefnu.
- Framsóknarflokkurinn er pólitísk kjölfesta á Norðurlandi.
- Við vörum við framboðum sem veikja þessa kjölfestu og leiða til sundurlyndis.
- Kvennalistinn sundrar en sameinar ekki.
- Vilmundarliðið er upplausnarafl án allrar stefnu. Stuðningur við það er pólitísk uppgjöf.
- Alþýðubandalagið þarfnast viðvörunar og aðhalds um að vinna raunsætt en ekki með
skrumi og slagorðum..
- Sjálfstæðisflokkurínn boðar leiftursókn og árás á atvinnuöryggið.
Sameinumst um Framsóknarflokldnn
Mei kæni kveéju
xB
2. Atvinnuöryggi
Framsóknarflokkurinn telur atvinnuöryggi aðal-
hagsmunamál verkamanna og annarra launþega
og lítur á atvinnuleysi sem svik við vinnufúst fólk.
Þess vegna varar Framsóknarflokkurinn jafnt við
leiftursóknarstefnu Sjálfstæðisflokksins og víxl-
hækkanastefnu Alþýðubandalagsins enda leiða
báðar til sömu niðurstöðu: Samdráttar, atvinnu-
kreppu og gjaldþrots.
4. Efling velferðarþjóðfélags
Framsóknarflokkurinn er félagshyggjuflokkur
og hefur félagslegt réttlæti og lífskjarajöfnun
ofarlega á stefnuskrá sinni. Þjóðfélaginu ber
skylda til að sinna af fyllstu alúð málefnum
sjúkra, aldraðra, fatlaðra, einstæðra foreldra og
annarra sem eiga við erfið kjör að búa.
6. Rækt við landið og menningararf
þjóðarinnar
Landið sjálft og menningararfur þjóðarinnar ér
óskipt sameign allra landsmanna. Islensk tunga
er sameiningartákn þjóðarinnar. Framsóknar-
flokkurinn vill að landi og sjó og öðru mannlegu
umhverfi verði haldið óspilltu og að þjóðin sé
ávallt meðvituð um gildi menningar sinnar og
tungu.
ÖÖS apnöd 983 AGUB -ö