Dagur - 26.04.1983, Qupperneq 8
Úrslit alþingiskosninganna
Reykjavík: 1979
A-listi: 5.470 atkv. 1 mann 8.691 2 menn
B-listi: 4.781 atkv. 1 mann 7.252 2 menn
C-listi: 4.815 atkv. 1 mann bauð ekki fram
D-listi: 21.807 atkv. 6 menn 21.428 5 menn
G-listi: 9.634 atkv. 2 menn 10.888 3 menn
V-listi: 4.248 atkv. 1 mann bauð ekki fram
Kjördæmakjömir þingmenn em: Jón Baldvinsson af A-lista, Ólafur
Jóhannesson af B-lista, Vilmundur Gylfason af C-lista, Albert
Guðmundsson, Friðrik Sófusson, Birgir ísleifur Gunnarsson, Ellert
B. Schram, Ragnhildur Helgadóttir og Pétur Sigurðsson af D-lista,
Svavar Gestsson og Guðmundur J. Guðmundsson af G-lista og Sig-
ríður Dúna Kristmundsdóttir af V-lista.
Landskjörnir: Jóhanna Sigurðardóttir af A-lista, Kristín S. Kvaran af
C-lista, Guðrún Helgadóttir af G-lista og Guðrún Agnarsdóttir af V-
lista.
Reykjaneskjördæmi: 1979
A-listi: 4.289 atkv. 1 mann 6.187 1 mann
B-listi: 3.444 atkv. 0 mann 4.430 1 mann
C-listi: 2.345 atkv. 0 mann bauð ekki fram
D-listi: 12.779 atkv. 3 menn 10.194 2 menn
G-listi: 3.984 atkv. 1 mann 4.679 1 mann
V-listi: 2.186 atkv. 0 mann bauð ekki fram
Kjördæmakjörnir þingmenn era: Kjartan Jóhannsson af A-Iista,
Matthías Á. Mathiesen, Gunnar G. Schram og Salóme Þorkelsdóttir
af D-lista, Geir Gunnarsson af G-lista.
Landskjörnir: Karl Steinar Guðnason af A-lista, Guðmundur Einars-
son af C-lista, Ólafur G. Einarsson af D-lista og Kristín Halldórsdótt-
ir af V-lista.
Yesturlandskjördæmi: 1979
A-listi: 1.059 atkv. 0 mann 1.165 1 mann
B-listi: 2.369 atkv. 2 menn 2.812 2 menn
C-listi: 497 atkv. 0 mann bauð ekki fram
D-listi: 2.725 atkv. 2 menn 2.320 1 mann
G-listi: 1.193 atkv. 1 mann 1.203 1 mann
Kjördæmakjörnir þingmenn era: Alexander Stefánsson og Davíð
Aðalsteinsson af B-lista, Friðjón Þórðarson og Valdimar Indriðason
af D-lista og Skúli Alexanderson af G-lista.
Landskjörinn: Eiður Guðnason af A-lista.
Vestfjarðakjördæmi: 1979
A-listi: 924 atkv. 1 mann 1.188 1 mann
B-listi: 1.510 atkv. 2 menn 1.645 2 menn
C-listi: 197 atkv. 0 mann bauð ekki fram
D-listi: 1.511 atkv. 2 menn 1.735 2 menn
G-listi: 723 atkv. 0 mann 808 0 mann
T-listi: 639 atkv. 0 mann bauð ekki fram
Kjördæmakjörnir þingmenn eru: Karvel Pálmason af A-lista, Stein-
grímur Hermannsson og Ólafur Þórðarson af B-lista, Matthías
Bjarnason og Þorvaldur Garðar Kristjánsson af D-lista.
Norðurlandskjördæmi vestra 1979
A-listi: 411 atkv. 0 mann 611 0 mann
B-listi: 1.641 atkv. 2 menn 2.506 3 menn
BB-listi: 659 atkv. 0 mann bauð ekki fram
C-listi: 177 atkv. 0 mann bauð ekki fram
D-listi: 1.786 atkv. 2 menn 1.606 1 mann
G-listi: 1.028 atkv. 1 mann 984 1 mann
Kjördæmakjörnir þingmenn eru: Páll Pétursson og Stefán Guð-
mundsson af B-Iista, Pálmi Jónsson og Eyjólfur Konráð Jónsson af
D-Iista og Ragnar Arnalds af G-Iista.
Norðurlandskjördæmi eystra 1979
A-listi: 1.504 atkv. 0 mann 1.788 1 mann
B-listi: 4.750 atkv. 3 menn 5.894 3 menn
C-listi: 623 atkv. 0 mann bauð ekki fram
D-listi: 3.729 atkv. 2 menn 2.762 1 mann
G-listi: 2.307 atkv. 1 mann 2.141 1 mann
V-listi: 791 atkv. 0 mann bauð ekki fram
Kjördæmakjörnir þingmenn eru: Ingvar Gíslason, Stefán Valgeirs-
son og Guðmundur Bjarnason af B-lista, Lárus Jónsson og Halldór
Blöndal af D-lista og Steingrímur Sigfússon af G-lista.
Landskjörin: Kolbrún Jónsdóttir af C-lista.
Austurlandskjördæmi: 1979
A-listi: 279 atkv. 0 mann 413 0 mann
B-listi: 2.655 atkv. 2 menn 2.973 2 menn
C-listi: 267 atkv. 0 mann bauð ekki fram
D-listi: 1.714 atkv. 1 mann 1.368 1 mann
G-listi: 2.091 atkv. 2 menn 2.153 2 menn
Kjördæmakjörnir þingmenn eru: Halldór Ásgrímsson og Tómas
Árnason af B-lista, Sverrir Hermannsson af D-lista, Helgi Seljan og
Hjörleifur Guttormsson af G-lista. Landskjörinn: Egill Jónsson af D-lista.
Suðurlandskjördæmi: 1979
A-listi: 1.278 0 mann 1.535 1 mann
B-listi: 2.944 2 menn 3.357 2 menn
C-listi: 568 0 mann bauð ekki fram
D-Iisti: 4.202 3 menn 2.428 1 mann
G-listi: 1.529 1 mann 1.544 1 mann
L-listi: 1 mann
Kjördæmakjörnir þingmenn era: Þórarinn Sigurjónsson og Jón
Helgason af B-lista, Þorsteinn Pálsson, Árni Johnsen og Eggert
Haukdal af D-lista, Garðar Sigurðsson af G-lista.
HRAKSPARNAR
STÓÐUST EKKI
gekk vel í Norðurlandi eystra
„Framkvæmd kosninganna í
Norðurlandskjördæmi eystra
gekk mjög vel, þrátt fyrir
hrakspár. Ég vil því nota
tækifærið og þakka öllum
undirkjörstjórnarmönnum
fyrir samstarflð en á þeim
veltur mest hvernig til tekst í
heimahéraði hvers og eins,“
sagði Ragnar Steinbergsson,
formaður yfírkjörstjómar
I Norðurlandskjördæmi
eystra, í samtali við Dag.
Já, framkvæmd kosninganna á
laugardaginn gekk framar öllum
vonum, hvað svo sem menn segja
um úrslitin. Þessar kosningar
virtust lfka vera veðurguðunum
þóknanlegar, því þeir stilltu loks
á blíðu eftir að hafa Iegið f ntargra
daga rudda. Það varð til þess að
einn kjördagur dugði. Vegagerð-
armönnum tókst að opna flestar
leiðir til kjörstaða, en þar sem
ekki var hægt að koma snjóruðn-
ingi við var gripið til snjóbíla. Það
var til dæmis gert í Þistilfirði og
frá Grímsstöðum á Fjöllum var
farið með atkvæðin á snjóbíl til
Reykjahlíðar.
Það gekk líka sérstaklega vel
að safna saman kjörgögnum
sem öll voru komin í Oddeyrar-
skólann á Akureyri fljótlega upp
úr miðnættinu. Þá var búið að
undirbúa talningu þannig að
fyrstu tölur úr Oddeyrarskóla
komu um eittleytið. Það var vösk-
sveit karla og kvenna sem vann
við talninguna, þannig að taln-
ingu var fyrst lokið í Norðurlands-
kjördæmi eystra um sexleytið um
morguninn. Reykjavík fylgdi svo
fast á eftir.
Frá heildarúrslitum kosning-
anna er sagt á forsíðu blaðsins og
úrslitin í hverju kjördæmi fyrir sig
eru tíunduð hér til hiiðar. En
hvað segja frambjóðendur flokk-
anna í Norðurlandskjördæmi
eystra um úrslitin? Það geta
lesendur séð í viðtölum við efstu
menn á hverjum lista hér í
opnunni.
Ingvar Gíslason:
„Kvíði ekki
framtíðinni“
- Hvað varðar úrslitin hér í
Norðurlandskjördæmi eystra
þá vil ég leggja áherslu á það að
við náðum þessum þrem þing-
mönnum sem við ætluðum
okkur og það kalla ég sigur,
sagði Ingvar Gíslason, efsti
maður B-listans á Norðurlandi
eystra í samtali við Dag.
Ingvar sagði að baráttan fyrir
þessar kosningar hefði verið
mjög hörð. Það hefði verið sótt
að Framsóknarflokknum úr öll-
um áttum og hann teldi að
flokkurinn hefði sjaldan eða
aldrei gengið til kosninga við
erfiðari aðstæður.
- Vígstaða okkar fyrir kosn-
ingarnar var mjög erfið. Við
höfðum tekið þátt í stjórnarsam-
starfi í 12 ár í stjórnum sem hefur
gengið misvel að ráða við efna-
hagsmálin og við guldum þess í
kosningunum. Þá höfðu nýju
framboðin einnig mjög mikil
áhrif á fylgi Framsóknarflokksins
í kjördæminu, einkum Kvenna-
listinn en ég tel að við höfum
tapað miklu fylgi til hans, sagði
Ingvar Gíslason.
Um kosningaúrslitin almennt í
landinu sagði Ingvar það ljóst að
Framsóknarflokkurinn hefði orð-
ið fyrir nokkru áfalli en hins vegar
Ingvar Gíslason.
væri staða flokksins að mörgu
leyti verulega sterk.
- Við höfðum ekki Iánið með
okkur í þessum kosningum en ég
kvíði ekki framtíðinni, sagði
Ingvar Gíslason.
Árni Gunnarsson:
„Vilji fólksins
verður að ráða“
„Það er ekkert við þessu að
segja. Stjórnmálamenn falla
og sigra og ég varð undir í
þessari baráttu. Þetta er vilji
fólksins sem maður verður að
beygja sig undir,“ sagði Ámi
Gunnarsson, fv. alþingis-
maður, í samtali við Dag.
„Þetta var mikill varnarslagur
fyrir okkur Alþýðuflokksmenn
og miðað við það held ég að við
getum vel við úrslitin unað. Nýju
framboðin tóku frá okkur fylgi og
raunar frá hinum flokkunum líka.
Það getur hafa haft áhrif á
mína útkomu að allt of margir
hafi verið vissir um að ég næði
kjöri, þannig að stuðningsmenn
mínir hafi ekki þjappað sér nógu
vel saman. En við búum í
lýðræðislandi þar sem kosið er
um menn og málefni. Vilji
fólksins ræður.“
- En nú fellur þú með 1.504
atkvæði á bak við þig en fram-
bjóðandi Bandalags jafnaðar-
Ámi Gunnarsson.
manna nær kjöri með 623 at-
kvæði. Er þetta vilji fólksins?
„Já, þetta kemur mörgum
einkennilega fyrir sjónir, en þetta
er samkvæmt úthlutunarreglum
um uppbótarþingsæti og ég vil
ekki segja að þær séu óréttlátar.
Þetta getur gerst í hvaða kjör-
dæmi sem er.“
- Hvað með stjómarmyndun?
„Það verður snúið að mynda
stjórn, svo mikið er víst. Sjálf-
stæðisflokkurinn getur myndað
meirihlutastjórn með Framsókn-
arflokki eða Alþýðubandalagi.
Verði sá síðarnefndi fyrir valinu
hef ég grun um að Alþýðuflokk-
urinn verði með. Ég hef líka
heyrt þeirri hugmynd hreyft að
kjósa um ríkisstjórnarform. En
að mínu mati er afleitt að fara út
í nýjar alþingiskosningar á sama
tíma og þjóðarbúið er að komast
út á ystu nöf. Þá held ég að
ástandið geti orðið verra en
nokkurn grunar,“ sagði Árni
Gunnarsson í lok samtalsins.
8 - DAGUR - 26. apríl 1983