Dagur - 06.05.1983, Blaðsíða 3

Dagur - 06.05.1983, Blaðsíða 3
minir 4 4 Fyrstu deildar Iiðs Þórs í körfuknattleik á von á góðum liðs- auka fyrir næsta keppnistímabil. Von er á hinum 18 ára Birgi Mikaelssyni til Akureyrar í sumar en Birgir hefur að undan- förnu leikið með bandaríska menntaskólaliðinu Thomas Jeff- ersson High School í Pittsburg. Birgir hefur hreinlega „blómstrað“ með þessu liði og frammistaða hans hefur verið ein aðal ástæðan fyrir velgengni „The Jaguars“ eins og liðið er nefnt í vetur. Birgir sem er tæpir tveir metrar á sokkaleist- unum hefur oftast verið kosinn besti maður liðsins eftir hvern leik og er keppnistímabilið var rúmlega hálfnað hafði hann skorað rúmlega 13 stig að meðaltali í leik eða tæpan fjórðung stiga liðsins og Birgir var jafnframt langhæstur á listanum yfir þá sem flest fráköstin höfðu tekið. Og til að kóróna allt var „Biggie“ (eða „stóri“) eins og félagar hans kalla hann valinn í hóp 10 bestu leikmanna allra menntaskólanna á svæðinu, af Eric Campangna sem var kjörinn besti leikmaður ársins. Okk- ur hafa borist nokkrar úrklippur frá ferli Birgis með „The Jag- uars“ og verður gripið niður í umsagnir bandarísku blaðanna hér á eftir. Áður en gripið er niður í úrklippusafninu er rétt að gera örlitla grein fyrir ætt og uppruna Birgis Mikaelssonar. Hann er fæddur 1965 á Akureyri, sonur hjónanna Mikaels Ragnarssonar og Auðar Hall- dórsdóttur. Ungur fluttist hann með fjöl- skyldunni til Reykjavíkur en þar hóf hann að leika körfuknattleik með yngri flokk- um KR. Hann er einn yngsti leikmaður sem leikið hefur með meistaraflokki KR en þeim áfanga náði hann aðeins 16 ára gamall. Líkast til er Birgir einnig einn sá yngsti sem leikið hefur með meistara- flokksliði hér á landi, a.m.k. í úrvals- deild. Birgir lék svo með KR allt fram til ársins 1982 en"þá hélt hann til Bandaríkj- anna. „Allir kunna vel við hann“ Lið Thomas Jeffersson High School kom svo sannarlega á óvart í upphafi keppnis- tímabilsins. „The Jaguars" höfðu þokka- legu liði á að skipa á síðasta keppnistíma- bili og unnu þá sjö leiki af fimmtán. Mikl- ar mannabreytingar urðu í liðinu fyrir þetta keppnistímabil og fáir höfðu sér- staka ástæðu til að vera bjartsýnir. Þjálf- arinn Tom Sharkey var þó annarrar skoð- unar og sérstaklega var hann ánægður með hina nýju hávöxnu leikmenn, John Waltz 196 cm., Tim Andrews 194 cm., Kurt Verbaarschott 191 cm. og Birgir Mikaelsson 196 cm. - Við leikum á annarri hæð en í fyrra og svo kemur það okkur til góða að við gátum hafið æfingar með fullum mann- skap á skikkanlegum tíma, sagði Sharkey og átti þá við það að fáir í hans liði æfðu jafnframt „fótbolta“ en þessar tvær íþróttagreinar hafa viljað rekast nokkuð á. Og bjartsýni þjálfarans var ekki ástæðulaus. „The Jaguars" voru með fullt hús eftir fjóra leiki og þá sagði Sharkey: - „Biggie“ er að falla inn í leik okkar og verður betri og betri með hverjum leiknum sem líður. Hann er góð skytta og góður í fráköstum en hann á þó ýmislegt ólært. Hann er þó fljótur að átta sig og skilur leikinn mjög vel, sagði þjálfarinn sem á þeim tíma hafði mestar áhyggjur af því að Birgir væri of grannvaxinn. Þess má geta að Birgir er einn af yngstu mönn- um liðsins og stjórnendur þess og aðrir leikmenn hafa látið sér annt um velferð íslendingsins. - Nemendum TJ (Thomas Jefferson High School) þykir orðið svo vænt um útlendinginn og svo er einnig um „fjölskyldu" hans í Pittsburg. „Biggie“ hefði ekki getað lent hjá betra fólki en Chuck McDewitt og hans fjölskyldu, segir Sharkey. Einn stigahæsti leikmaðurinn Pað er varla hægt að segja annað en að Birgir hafi byrjað vel með „The Jaguars". Hann varð stigahæstur leikmanna liðsins í fyrsta leiknum, með 17 stig og 11 stig skoraði hann í næsta leik en auk þess hirti hann fjölda frákasta. Stigin urðu einnig 11 í þriðja leiknum og í fjórða leiknum varð hann aftur stigahæstur, nú með 19 stig og 12 fráköst. En þar með var sigurgöngu „The Jaguars“ frá Pittsburg ekki lokið. Næstu fjórir leikir fóru á sama veg og liðið sem vann aðeins sjö leiki af 15 á síðasta keppnistímabili hafði nú unnið átta leiki í röð og stemmningin í Pittsburg var gífur- leg. Þrír leikmenn liðsins höfðu farið á kostum í þessum leikjum og var stigahæsti maðurinn Rick Miller (um 15 stig að með- altali) þar fremstur í flokki. Hinir tveir voru Dan Holzer sem er eini maðurinn úr byrjunarliðinu í fyrra sem komst í byrjun- arliðið nú og svo íslendingurinn Birgir Mikaelsson. Það var sérstaklega sjöundi sigurinn, gegn „Járnmönnunum“ frá Steel Valley sem var kærkominn fyrir „The Jaguars". Leikurinn var lengi vel „í járnum“ og staðan í hálfleik var 26-20 „The Jaguars" í vil. En í síðari hálfleik og þá sérstaklega í síðustu lotunni af fjórum, þá fóru TJ- menn á kostum og burstuðu „Járnmenn- ina“ með 62 stigum gegn 46. Tríóið Miller, Holzer og Mikaelsson skoruðu 53 af þessum 62 stigum. Miller 21, Holzer 17 og Birgir 15 stig. Þessi sigur yfir Steel Valley var sem fyrr segir kærkominn og þá sérstaklega vegna þess að „Járnmenn- irnir“ höfðu áður unnið níu leiki í röð gegn Thomas Jeffersen High School. Eftir leikinn sögðu blöðin: „The Jaguars" eru það lið sem hefur komið mest á óvart í vetur og er nú eitt af fáum í keppni menntaskólanna víðs vegar um landið sem ekki hefur tapað leik. - Þetta er fimmta árið mitt sem aðal- þjálfari og ég hef aldrei haft betra né há- vaxnara lið, segir Sharkey þjálfari. Hann bendir ennfremur á að þessir sigrar gefi liðinu aukið sjálfstraust og það muni koma sér vel þegar sterkari andstæðingar berji að dyrum. í viðtali við annað blað segir þjálfarinn að nú hafi liðið lykilmenn í hverri stöðu og að á skiptibekknum sitji sterkir leikmenn. Honum verður einnig tíðrætt um hæð liðsmanna og bendir á að Steel Valley-liðið hafi á að skipa tveim leikmönnum vel yfir 190 cm. á hæð. - Það kom þeim bara að engu gagni. Strákarnir mínir „jörðuðu“ þá einfald- lega. Birgir í baráttunni undir körfu andstæöinganna. Einn af tíu bestu Þessi samantekt er byggð á úrklippum sem ná fram yfir áramót og því vitum við ekki hvernig liði Birgis vegnaði í lokabar- áttunni en samkvæmt annarri úrklippu úr „The South Hills Record“ dagsettri 14. apríl 1983 þá virðist Birgi og félögum hans tveim, Miller og Holzer hafa vegnað mjög vel og því ekki ótrúlegt að ætla að það sama eigi við um liðið. í þessari úr- klippu er sagt frá því að Eric Campagna sem valinn var „The most valuable play- er“ - besti leikmaðurinn í menntaskóla- keppninni, hafi valið óskalið sín skipuð leikmönnum menntaskólaliðanna. Camp- agna þessi sem lék fyrir Brentwood velur þrjú fimm manna lið og í fyrst liðinu (byrjunarliðinu) er m.a. Rick Miller frá „The Jaguars“. Birgir og Dan Holzer eru báðir valdir í lið númer tvö sem þýðir samkvæmt því að þeir erú í hópi tíu bestu leikmanna menntaskólaliðanna á um- ræddu svæði. Má benda á að margir af leikmönnum menntaskólaliðanna eru síð- an „keyptir" til Háskólanna og nokkrir ná alveg á toppinn og komast í atvinnu- mannadeildina. Má benda á Pétur Guð- mundsson í því sambandi en hann vann sig upp á þennan hátt þó svo að honum tækist ekki að halda sér í liðinu hjá Port- land Trailblazers á þessu keppnistímabili. Flosi Sigurðsson er einnig alinn upp hjá menntaskólaliði en hann hefur gert það gott með háskólaliði að undanförnu. „Kemur mér ekki á óvart“ Við skulum að lokum heyra hvað Kol- beinn Pálsson, landsliðsmaðurinn kunni og unglingaþjálfari hjá KR, hefur að segja um Birgi Mikaelsson: - Birgir lék með þriðja flokki KR í fyrra og var þá á yngra ári. Hann æfði jafnframt með unglingalandsliðinu með strákum sem flestir voru tveim árum eldri en hann og hann spilaði jafnframt með meistaraflokki KR. Þetta segir í raun allt það sem þarf að segja. Birgir er óvenju efnilegur leikmaður og það hefur ekki komið mér á óvart að hann skyldi standa sig vel í Bandaríkjunum. Þetta sagði Kol- beinn Pálsson en hann gat þess jafnfrant að það hefðu fleiri en hann komið auga á hæfileika Birgis. Stewart Johnson, Bandaríkjamaðurinn hjá KR sá fljótlega að þarna var mikið efni á ferð og það var fyrir tilstilli Stew Johnson að Birgir komst til Bandaríkjanna. Stew útvegaði honum skólapláss og „fjöldskyldu" til að vera hjá og Kolbeinn gat þes sérstaklega að þeir hefðu fengið fréttir af því að Birgir hefði fengið besta hugsanlega vitnisburð hjá „fósturforeldrum“ sínum. Það var greinilegt á samtalinu við Kol- bein Pálsson að KR-ingar telja sig „eiga“ töluvert í Birgi og þeir hafa að sjálfsögðu mikið til síns máls. En eins og málin standa í dag þá er Birgir Mikaelsson vænt- anlegur til Akureyrar en KR-ingarnir gef- ast örugglega ekki baráttulaust upp og það þyrfti ekki að koma á óvart þó að fleiri myndu „biðla“ til þessa snjalla leik- manns. ircir Bandaríkjunum • ;6. mai' 1983 « ÖA'GÚR - 3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.