Dagur - 20.06.1983, Blaðsíða 9

Dagur - 20.06.1983, Blaðsíða 9
Jafntefli í „kvennaslag“ Pórs og KA KA-menn voru ofjarlar Hafnfirðinganna „Ég var ekkl ánægður með þetta hjá okkur í fyrri hálfleik. Það má segja að þeir hafí stjórnað gangi leiksins um tíma í fyrri hálfleik en við komum vel inn í þetta í seinni hálf- leik,“ sagði Jóhann Jakobsson um leik KA og FH sem var í gær á aðalleikvanginum á Ak- ureyri en KA sigraði í þeirri baráttu 3:0. Hann var heldur rislár leikur- inn í fyrri hálfleik. Pað var eins og vantaði neistann í bæði liðin. Þetta var þæfingur fram og til baka sem ekki skilaði árangri. KA-menn léku undan norðan- golu í fyrri hálfleik en ekki kom hún að neinum notum fyrir þá. Pað var í byrjun leiksins sem Hinrik átti góðan skalla að marki FH en Hreggviður bjargaði í horn. FH-ingar fengu horn- spyrnu. Boltinn barst fyrir mark- ið til Jóns Pórs sem skaut og bolt- inn fór í stöng og þverslá þaðan til Jóns Erlings sem skaut en Porvaldur í marki KA varði vel. Á 43. mínútu átti Donni gott skot úr aukaspymu sem lenti í stöng. Þetta var það helst sem gerðist í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik lifnaði aðeins yfir leiknum og færi sköpuðust. Steingrímur Birgisson þurfti að fara af leikvelli vegna meiðsla og Guðbrandur með 2 mörk og Tindastóll er á toppnum Tindastóll hefur tekið örugga forustu í B-riðli 3. deildar en liðið sigraði Austra 2:1 á Króknum um helgina. Fyrir leikinn var Austri eina liðið í riðlinum sem ekki hafði tapað stigi en liðið átti aldrei mögu- leika gegn frískum Tindastóls- mönnum á heimavelli. Stanslausar sóknir buldu á marki þeirra Austramanna og hefði ekki verið fjarri lagi að mörk Tindastóls hefðu verið orð- in 3-4 er það fyrsta kom loksins á 15. mínútu. Guðbrandur Guð- brandsson var þar á ferðinni með gott mark. Hann skoraði síðan aftur á 78. mínútu og hélt þannig eftirminnilega upp á 19. afmælis- dag sinn sem var einmitt á laugar- dag er leikurinn fór fram. Sigur- jón Kristjánsson minnkaði mun- inn í 2:1 alveg í lokin en sigur Tindastóls var aldrei í hættu. Sindri - Magni 0:1 Magnamenn léku við hvern sinn fingur á Hornafirði en skoruðu ekki nema eitt mark. Pað gerði Jón Ingólfsson úr vítaspyrnu og þetta mark sem var það eina í leiknum var því tveggja stiga virði. Valur Þróttur 0:2 Þróttarar virðast vera að ná sér á strik og þeir unnu öruggan 2:0 sigur gegn Val á Reyðarfirði. Þeir Sigurður Friðjónsson og Bergvin Haraldsson skoruðu mörk Próttar og er ekki ólíklegt að slagurinn um efsta sætið í riðl- inum verði á milli Þróttara og Tindastóls. Huginn - HSÞ 2:0 Sveinbjörn Jóhannsson var á gömlu „skotskónum" og skoraði bæði mörk ieiksins fyrir Huginn og HSÞ-liðið er niður undir botni Ur ef liðið ætlar sér ekki fall í 4. í deildinni og verður að gera bet- deildina. Oheppnir að vinna ekki „Þessi úrslit voru ekki sanngjörn, miðað við gang leiksins,“ sagði Ormarr Ör- lygsson, er blaðið forvitnaðist um leik KA og Víðis í Garði. „Fyrri hálfleikur var opinn og færi á báða bóga. Við áttum 2 dauðafæri en einhvern veginn vildi boltinn ekki í markið. Víð- ismenn áttu líka eitt mjög gott færi er einn þeirra komst einn innfyrir en Þorvaldur bjargaði mjög vel. Sem sagt, töluvert jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik. I síðari hálfleik sóttum við mun meira og áttum tvö sláarskot. Reyndar áttum við eitt sláar- skot í fyrri hálfleik. Svo var ein- um Víðismanni, Daníel Einars- syni, vísað af leikvelli og eftir það áttum við leikinn og sóttum mjög stíft. Þeir björguðu á línu í tví- eða þrígang. Við vorum því óheppnir að vinna ekki þennan leik, en það eru mörkin sem gilda,“ sagði Ormarr að lokum. í hans stað kom Ragnar Rögn- valdsson og skapaði hann usla í vörn FH. Á 10. mínútu síðari hálfleiks átti Ragnar skot en FH- menn björguðu á línu, þaðan barst boltinn til Ormarrs Örlygs- sonar sem átti skot sem fór rétt fram hjá. Á 14. mínútu skoraði svo Hinrik mark af stuttu færi eftir skot Ragnars 'sem mark- maðurinn hélt ekki og var Hinrik ekki í vandræðum að skora. Á 32. mín. komst Helgi Ragnarsson í dauðafæri við mark KA en missti boltann of langt frá sér og Þorvaldur í marki KA bjargaði með úthlaupi. Stuttu seinna óð Hinrik með boltann upp hægri kantinn, eftir ágætan samleik KA-manna, gaf fyrir og Ragnar skallaði fyrir fæturna á Donna sem skoraði af stuttu færi. Orm- arr komst síðan einn í gegn um vörn FH og var kominn í dauða- færi og skaut, en hátt yfir. Það var svo á síðustu mínútu leiksins sem Hinrik skoraði þriðja og síðasta markið fyrir KA eftir skot frá Ragnari og urðu það úrslit leiksins. Eins og áður sagði var deyfð yfir þessum leik lengst af en KA- menn lifnuðu aðeins í síðari hálf- leik. FH-liðið virðist ekki til stór- ræðanna, svo slakt var það í þess- um leik. Þó eru góðir einstakling- ar innan um sem fá litlu áorkað fyrir heildina. Það er gaman að sjá lipra menn með boltann eins og Ólaf Danívalsson en það kem- ur oft lítið út úr því. Erlingur var sterkur í þessum leik fyrir KA, Donni var í stuði og Guðjón sterkur í vörninni. Sigur KA í þessum leik var verðskuldaður, þeir voru sterkari í síðari hálfleik og áttu flest þau færi sem gáfust. I. DEILD: ÍBV 7 3 2 2 13:6 8 UBK 7 3 2 2 6:4 8 ÍA 6 3 1 2 7:3 7 KR 6 2 3 1 8:9 7 VALUR 6 3 0 3 10:12 6 ÍBÍ 6 2 2 2 7:9 6 Þór 6 1 3 2 6:7 5 Þróttur 6 2 1 3 8:12 5 ÍBK 5 2 0 3 7:8 4 Víkingur 5 1 2 2 5:7 4 2. DEILD: Völsungur 6 4 11 7:2 9 KA 6 3 2 1 12:6 8 UMFN 6 4 0 2 8:3 8 Fram 5 3 11 6:3 7 Víðir 5 2 1 2 2:3 5 Reynir 5 1 2 3 4:10 4 KS 6 0 3 3 4:7 3 Einherji 3 111 1:2 3 Fylkir 6 114 6:8 3 FH 5 1 1 3 3:7 3 Markhæstir: Hinrik Þórhallsson KA 4 Jón Halldórsson UMFN 4 Gunnar Gíslason KA 3 Sigurður Guðnason Reyni 3 3. DEILI) B: Tindastóll 5 4 10 12:3 9 Austri 4 3 0 1 9:4 6 Þróttur 4 3 0 1 6:4 6 Huginn 4 2 1 1 6:3 5 Magni 4 2 0 2 4:3 4 Valur 3 10 2 2:4 2 HSÞ 5 1 0 4 3:9 2 Sindri 5 0 0 5 2:14 0 Kári Elíson. Met Kára dæmt ogilt „Þeir dæmdu mótið gill en metið mitt ógilt, svo ekki er nú samræm- inu fyrir að fara,“ sagði Kárí EU- son, kraftlyftingamaður, er við ræddum við hann fyrir helgina. Kári setti glæsilegt íslandsmet í bekkpressu á móti á Austfjörðum á dögunum en Lyftingasambandið heíur dæmt metið ógilt en mótið sjálft þó löglegt! Ástæðan fyrir þessu er sú að í reglum segir að keppandi á móti megi ekki dæma í sama móti. „Við höfðum samband við formann Lyftingasambandsins áður en við fór- um austur og sögðum honum að við yrðum að láta keppanda dæma þvf við fengjum ekki sérstakan dómara til að fara," sagði Kári. „Þar sem við vorum að kynna íþróttina fyrir austan tók formaðurinn erindi oitkar vel og gaf vilyröi fyrir þessu án þess þó að lofa því endanlega. Síðan kom svo þessi úrskurður eftir mótið.“ Ástandið innan Lyftingasambands- ins mun vera þannig að þar eru KR- ingar í meirihluta og virðast örfáir KR-ingar reka Lyftingasambandið að eigin geðþótta og hirða hvorki um eitt né annað ef það rekst á þeirra hags- muni sem KR-inga. • Ingi Bjöm með 101 Ingi Björn Albcrtsson varð fyrstur íslend- inga til þess að skora 100 mörk í 1. deild íslundsinótsins í knattspyrnu. Hann skor- aði tvö niörk er Valur sigraði KR 4:1 og voru það 100. og 101. niark hans í 1. deild. Hin mörk -Vals skoruðu Valur Valsson og Bergþór Magnússon. Ottó Guðmundsson skoraði mark KR-inga. - í hinum leiknum í I. deild um helgina sigraði Breiðahlik ÍBV 1:0 og skoraði Sig- urður Grétarsson mark Breiðabliks. Olafur fékk flesta punkta Fjórtán ára piltur, Ólafur Gylfason, sigraði í golfmóti Golfklúbbs Akur- eyrar 17 júnt, en keppt var eftir; „stableford" forgjafarfyrirkomulagi þannig að keppendur fengu 7/8 af for- gjöf sinni. Er þetta annað árið í röð sem Ólafur vinnur þessa keppni. Harðsnúinn hópur manna lét sig hafa þaö að morgni þjóðhátíðadagsins að leggja í keppnina í ausandi rign- ingu. Veður batnaði þó fljótt, og er á keppnina leið voru menn orðnir berir að ofan í hitanunt og sólinni og lýstu upp vallarsvæðið. Þegar 9 holur höfðu verið leiknar voru 5 keppendur efstir og jafnir með 17 punkta hver. Hart var því barist á síðari 9 holum og tryggði Ólafur sér sigur með því að fá 3 punkta á 18. holu. Alls hlaut hann 33 punkta, en þeir Guðmundur Finnsson og Héðinn Gunnarsson voru jafnir í 2.-3: sæti með 32. Guðmundur fékk silfurverð: laun því hann hafði betri árangur á þremur síðustu holunum. • Þórsarar gegnVals mönnum Þór og Valur eigasl við í 1. deild- inni annað kvöld og verður sá leik- ur á Akureyrarvelli og hefst kl. 20. Þetta er síðasti leikur 7. umferð- ar mótsins og er staða þessara liða þannig að Þórsarar hafa hlotið 5 stig en Valsmenn.Það er því án efa hægt að fullyrða að bæði þessi lið muni leggja allt í sölurnar til að knýja fram sigur annað kvöld, enda hvert stig dýrmft. Svo virðist sem 1. deildin ætli að verða jafn jöfn og skemmtileg og í fyrra, öll liðin viröast geta lagt hvaða liö sem er að velli, og engin úrslit eru „borpleggjandi" fýrir- fram. Heimavöllurinn hefur ekki reynst Akureyrarliðnum vel fram að þessu, en vonandi verður bót á | með góðum stuðningi áhorfenda. Þeir Nói Björnsson fyrirliði Þórs og Helgi Bentsson verða báðir i leik- banni annað kvöld. Om lék á65með forgjof öm Ólufsson varð sigurvegari í fyrsta drengjamótinu hjá Golfklúbbi Akureyrar á þessu ári en það fór fram um helgina. Þar mættu til leiks 11 galvaskir og upp- rcnnandi kylflngnr og léku 18 holur med forgjöf. Fóru lcikar svo að Öm lék á 80 höggum og því á 65 með forgjöf. í öðru sæti varð Ólafur Sæmundsson, sem spil- aði á 83 höggum, og var á 66 höggum nettó og þriðjí Björn Axelsson sem lék best allra á 79 höggum og var á 67 með forgjaf. - Góður árangur hjá strákunum sem lofar góðu um frumhaldið í sumar. Hinrik Þórhallsson skorar fyrsta mark KA, FH-ingar standa aðgerðarlitlir hjá. Hvöt lagði Skytt- urnar Skytturnar á Siglufírði bundu á sig skotskóna um helgina og óku síðan til Blönduóss þar sem þeir léku gegn Hvöt. Skytturnar í skotskónum fóru þó enga frægðarför þangað því heimamenn skoruðu eina mark leiksins og kræktu þann- ig í bæði stigin. Það var Guð- mundur Sæmundsson sem skoraði eina mark leiksins. Hin liðin í D-riðli, HSS og Glóðafeykir áttust vð um helgina og sigraði HSS 2:0. Mörk HSS skoruðu Örn Stefánsson og Guð- brandur Hansson. { E-riðli var aðeins einn leikur. Vaskur sigraði Vorboðann 3:1. Gunnar Berg skoraði 2 mörk fyrir Vask og Sigurður Gunnars- son eitt en Valdimar „Tanni“ Júlíusson skoraði fyrir Vorboð- ann. Völsungar eru í efsta sætinu Völsungar hafa hreiðrað um sig í efsta sæti 2. deildar eftir góðan 2:0 sigur á útivelli gegn Reyni í Sandgerði um helgina. Völsungar lentu þó í nokkuð erfiðri raun þar syðra því Reyn- ismenn voru sprækir framan af leiknum. Þeir fengu t.d. víta- spyrnu í fyrri háifleik en víta- skytta þeirra var „í öfugum skóm“ og brenndi af. Er á leikinn leið fóru yfirburðir Völsunga að gera vart við sig, smátt og smátt fjaraði mótstaða heimamanna út og þá þurfti ekki að spyrja að leikslokum. Jónas Hallgrímsson og Kristján Krist- jánsson skoruðu tvö mörk fyrir Völsung og tvö dýrmæt stig skutu liðinu upp í efsta sætið. - Segja má að Völsungar hafi þarna rifið sig upp eftir tapið heima fyrir Njarðvík sl. miðvikudag en þá skoraði Jón Halldórsson eina mark leiksins og tryggði UMFN sigur. Njarðvíkingarnir voru taplaus- ir í 2. deildinni fyrir helgina, en eru það ekki lengur. Þeir léku gegn Víði í Njarðvíkum og Víð- isliðið sem hefur komið á óvart í deildinni gerði sér lítið fyrir og sigraði 1:0. Þá er ógetið um mikinn bar- áttuleik KS og Fylkis sem fram fór á Siglufirði. Þar voru heima- menn mun betri aðilinn en þrátt fyrir ákafa sókn þeirra komu þeir tuðrunni ekki í netið svo Fylkis- menn sem gerðu jafntefli í nær öllum leikjum sínum í 2. deild sl. sumar fengu sitt fyrsta jafnteflis- stig á þessu ári. Einherji og Fram áttu að leika á Vopnafirði. Fresta varð þeim leik og eru Einherjarnir nú komnir með langan lista af frest- uðum leikjum og eiga eftir að fá stíft „prógram" þegar loksins verður hægt að fara að spila á Vopnafirði. „Þetta var alveg ömurlegt, og lélegt að fá á sig þessi mörk. Við áttum að skora fleiri mörk því við áttum fleiri færi,“ sagði Sigrún Sævarsdóttir sem skor- aði fyrra mark K.A. í leik þeirra við Þór í annarri deild kvenna sem leikinn var fyrir helgina. Leiknum lauk með jafntefli tvö mörk gegn tveim- ur. Það voru K.A. stelpumar sem voru fyrri til að skora og eftir tuttugu mínútur voru þær búnar að skora annað mark sitt í leikn- um og var þar að verki Elín Sig- urðardóttir. Stuttu seinna fengu þórsstelp- urnar vítaspyrnu og minnkuðu muninn í eitt mark, og var sú staða í leikhléi. í síðari hálfleik skiftust liðin á að sækja og áttu þórsstelpurnar skot í þverslá. K.A. stelpurnar áttu þunga sókn sem endaði með góðu skoti frá Sigrúnu Sævars- dóttur en inn vildi boltinn ekki. Þórsarar jöfnuðu svo um miðjan seinni hálfleikinn og sóttu meira eftir það en K.A. stelpurnar not- uðu skyndisóknir sem oft gerðu usla í vörninni hjá Þór. Þórunn Sigurðardóttir hjá Þór var á sama máli og Sigrún Sæ- varsdóttir. „Mér fannst þetta vera ömurlegt, við áttum seinni hálfleikinn og spiluðum betur annars var þetta jafn leikur,“ sagði Þórunn. t 8 - DAGUR - 20. júní 1983 20. júní 1983-DAGUR-9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.