Dagur - 20.06.1983, Blaðsíða 12
r
í
Eitthundrað
hvítir kollar
og tuttugu
— Menntaskólinn á Akureyri
útskrifar stúdenta í 103. sinn.
Menntaskólinn á Akureyri út-
skrifaði á 17. júní 120 nýstú-
denta, þar af 10 úr öldunga-
deild. 11 úr eðlisfræðideild, 21
úr félagsfræðideild, 39 úr
máladeild, 38 úr náttúrufræði-
deild, 2 úr tónlistardeOd í sam-
vinnu við Tónlistarskólann á
Akureyri og 9 úr viðskipta-
deild í samvinnu við Gagn-
fræðiskóla Akureyrar. Hæstu
einkunn á stúdentsprófi hlaut
Ásrún Ýr Kristmundsdóttir,
8,73.
Af nemendum á þriðja ári
hætti enginn námi, 2 stóðust ekki
próf, eða aðeins tveir af hund-
raði. Hæstu einkunn hlaut Erla
Sigurðardóttir, 8,9.
í öðrum bekk stóðust 75,5%
nemenda próf og hæstu einkunn
hlaut Halldóra Soffía Gunnlaugs-
dóttir, 9,3.
Af nemendum á fyrsta ári
hættu 6 án þess að taka próf og 35
stóðust eklci próf. Það voru því
79 af hundraði sem stóðust próf
og hæst urðu þau Andri Teitsson
og Ingibjörg Baldursdóttir.
Við skólaslitin, bárust skólan-
um góðar gjafir frá eldri stúdent-
um. Fimmtíu ára stútentar gáfu
peninga er renna skyldu í tölvu-
sjóð, 25 ára stúdentar gáfu tvær
tölvur og tíu ára stúdentar gáfu
skólanum lykil að gamla Möðru-
vallaskólanum og ætla einnig að
hefja útgáfu æviskrár allra stú-
denta frá skólanum.
Tómas Ingi Olrich lætur nú af
störfum sem konrektor og tekur
til við frönskukennslu af fullum
krafti. Hann hefur gegnt embætti
konrektors í tíu ár.
í skólaslitaræðunni sagði
Tryggvi Gíslason meðal annars:
„Enn einu starfsári Mennta-
skólans á Akureyri er að ljúka.
Enn er komið vor á Norðurlandi,
sumarsólstöður eru að fjórum
dögum liðnum og þá kominn
sólmánuður.
Á þessari stundu sameinast
eftirvænting eftir hinu ókomna,
treginn vegna þess sem horfið er
og umhugsunin um hverfullleika
lífsins. Þó vona ég, að í brjóstum
ykkar, verðandi stúdentar, sé
gleðin og hamingjan sterkari en
allt annað. Þetta er mikil stund,
settu marki er náð og merkum
áfanga er lokið. Sagt er að stú-
dentsprófið nú sé eins og gagn-
fræðapróf áður. Rétt er að á
þessu vori taka um 1500 manns
stúdentspróf eða um 30 af hund-
raði fæðingarárgangs eða álíka
margt og tók gagnfræðapróf fyrir
20 árum. Árið 1963 tóku 330 stú-
dentspróf eða 10% af fæðingar-
árgangi. Fleiri taka því stú-
dentspróf en áður, álíka margir
og tóku gagnfræðapróf.
Tryggvi Gíslason, skólameistari
Myndir og texti: KGA.
„Skólinn vill ekki
verða nátttröir
- Spjallað við Tryggva Gíslason skólameistara
vitað er nokkur söknuður bund-
inn þessum degi en meðan við
enn erum á besta aldri þurfum
við ekki svo mjög að hverfa á vit
minninganna, heldur horfi ég enn
fram á veginn.“
- Er það öðruvísi að útskrifast
nú , heldur en var þegar þú tókst
hér við stöðu skólameistara?
„Nei ég held að ég geti ekki
sagt að það hafi orðið breyting
þar á. Ef til vill er svolítið annað
viðhorf ríkjandi meðal ungs fólks
nú og fyrir tíu árum, annað við-
horf til lífsins og tilverunnar eins
og alltaf vill verða. En ég held að
það sé alltaf það sama að braut-
skrást héðan frá Menntaskólan-
um á Akureyri, fólk er stolt af
því og má vera það. Skólinn hef-
ur lengi viljað sameina tvennt,
annarsvegar forna siði og hefðir -
þar á meðal fornar hefðir í
menntun - en jafnframt hefur
skólinn viljað leitast við að fylgja
breytingum tímans. Fylgjast með
því sem er að gerast og uppfylla
skilyrði sem góður menntaskóli
sem veitir almenna menntun.
Skólinn vill ekki verða nátttröll,
hann vill ekki staðna og horfa >
eingöngu til baka heldur líta i
einnig fram á við. Og það held ég
að hafi tekist, þrátt fyrir allt,
vel.“
- En hvemig gekk skólastarfið
í vetur?
„Skólastarf gekk mjög vel, það
urðu engin áföll af neinu tagi og
námsárangur nemenda varð
góður. Að vísu vekur það athygli
að um 20% nemenda á fyrsta ári
falia. En það er ekkert nýtt af
nálinni. I vetur voru það raunar
ívið fleiri sem féllu á öðru ári -
sennilega nær 24%. En eftir tvo
fyrstu veturna sigla menn yfirleitt
nokkuð tryggan sjó. Fyrir því
liggja eðlilegar ástæður, fólk er
þá farið að átta sig á því hvaða
kröfur skólinn gerir og svo eru
hinir sem minni áhuga hafa
horfnir. Svoleiðis að á þriðja og
fjórða námsári er nánast ekkert
„Þó að 17. júni sé einn anna-
samasti dagur ársins þá er
hann mikill gleðidagur því
ánægja þessa unga fólks sem
lýkur þessum merka áfanga, er
svo mildl og fölskvalaus að
annirnar falla i skuggann.
Þannig að það er ánægjulegt
að vera skólameistari 17, júni.“
Tryggvi Gíslason skólameistari
var nú að útskrifa stúdenta í
tíunda sinn.
- Sækja einhverjar sérstakar
minningar á hugann á svona
degi?
„Nú vill svo til að ég er 25 ára
stúdent í dag, við hjón tókum
stúdentspróf fyrir 25 árum og auk
þess opinberuðum við trúlofun
okkar þennan sama dag, svoleið-
is að 17. júni er merkur dagur.
Mér finnst hann kannski að sumu
leyti merkari en brúðkaupsdag-
urinn minn og það eru sannarlega
margvíslegar minningar sem
bundnar eru þessum degi. Auð-
12 - DAGUR - 20; júní 1903