Dagur - 01.07.1983, Page 3

Dagur - 01.07.1983, Page 3
„Eg var orðinn leiður áað segja fólki bara hve veikt það væri“ - Rætt við Harry Oldfíeld um sérstæðar lækningar- og rannsóknar meðferðir hans Það hafa fáar þjóðir á jarð- kringlunni meiri áhuga á hinu yfirskilvitlega og einmitt ís- lendingar og kemur þetta e.t.v. gleggst fram í þeim fjölda sem sálarrannsóknarfé- lögin hafa innan vébanda. En áhuginn er ekkert frekar bund- inn við félög, hann er almenn- ur og flestallir hafa áhuga á því yfirskilvitlega, hvort sem það heitir spíritismi eða fljúg- andi furðuhlutir. Áhugamálin eru mörg og margvísleg en það furðulega er að allar hinar skiptu skoðanir hafa hingað til rúmast innan eins og sama félags, Sálarrannsóknarfélags- ins. Það er einmitt Sálarrannsókn- arfélag íslands sem hefur boðið breska vísindamanninum Harry Oldfield hingað til lands en Old- field er þessa dagana staddur hér á Akureyri í boði Sálarrannsókn- arfélags Akureyrar. Það sem Harry Oldfield fæst við fellur að mörgu leyti undir það yfirskilvit- lega þar sem menn skilja ekki til fullnustu enn þann dag í dag hvað gerist þegar Oldfield beitir rafritunarskoðunaraðferð sinni eða raföldudreifibyssu sinni eins og tæki það sem hann hefur þró- að hefur verið kallað. En hver er Harry Oldfield og hver er þessi tækni hans? Til þess að fá þeirri spurningu svarað grípum við niður í grein Geirs Tómassonar, „Ný aðferð til rannsókna og lækninga“ sem birtist í vetrar- hefti Morguns blaði Sálarrann- sóknarfélagsins 1982: Kirlianljósmyndun „Allar götur frá því er rafmagnið var uppgötvað hafa bæði lærðir og leikir séð í því eins konar kraftaverkatæki til ýmissa hluta, m.a. til lækninga . . „Þegar Harry Oldfield kom fyrst fram með rannsóknaraðferð sína, sem hann kallaði “Electrographic- scanning method“ (ESM) vakti hún takmarkaðan áhuga, jafnt lækna af gamla skólanum og þeirra er frjálslyndari voru. H. Oldfield sem að loknu kennara- námi í líffræði og eðlisfræði starf- aði um hríð við æðri skóla í London, fékk áhuga á sérstæðri ljósmyndatækni - svokallaðri Kirlianljósmyndun. Aðferð þessi var fundin upp af rússneskum rafmagnsverkfræðingi, Kirlian en hann fékk áhuga á þessu eftir að hann af tilviljun varð var við ein- kennilega útgeislun er hönd hans fór í gegnum hátíðniorkusvið. Hvers konar orka þetta væri gat hann ekki skýrt en honum tókst að útbúa ljósmyndavél sem sýndi að bæði ólífrænir og lífrænir hlut- ir gefa frá sér sérstæða útgeislun. Dularsálfræðingar hafa talið að hér hafi tekist að ljósmynda hina svokölluðu áru (blik) sem sjáend- ur og miðlar segja að umlyki hluti, málleysingja og menn.“ í grein Geirs Tómassonar í Morgni er ennfremur greint frá því að Oldfield hafi starfað mikið í sambandi við Kirlianljósmynda- töku og í framhaldi af því hafi hann látið útbúa ESM-tækin. Utgeislun líkamans En gefum nú Harry Oldfield sjálfum orðið og biðjum hann að útskýra hvað fyrir honum vakti þegar hann lét búa þessi tæki til: - Ég var búinn að vera vís- indakennari um sjö ára skeið áður en áhugi minn á Kirlian- ljósmyndun vaknaði. Eftir að ég hafði rannsakað þessa útgeislun í mörg ár þá komst ég að því að það var hægt að mæla hana á fleiri vegu en bara með þessari ljósmyndatækni. Það sem ég fann út var að með hjálp mjög veiks rafstraums frá venjulegu sex volta batteríi þá gat ég látið lík- amann sveiflast eins og píanó- streng, segir Oldfield en við þetta gefur líkaminn frá sér mælanlegt útstreymi sem mælt er með sér- stöku tæki. Það sem býr að baki aðferðar Oldfields er að hei'l- brigðar frumur og líkamshlutar gefa frá sér ákveðna svörun en þar sem eitthvað er að þar er út- geislunin allt önnur. Með ítrek- uðum tilraunum hefur Oldfield jafnframt getað borið saman þessa útgeislun og tengt tíðni út- geislunarinnar við ákveðna sjúk- dóma s.s. krabbamein á byrjun- arstigi löngu áður en hægt var að mæla það með öðrum aðferðum. Krystallar og raföldur Blaðamaður Dags fékk að reyna tæki Harrys Oldfields og það sem kom mest á óvart var hve fyrir- ferðarlítil þau eru. Allt var inn- byggt í eina litla tösku, lítið stærri en ljósmyndatösku. - Haltu í þetta hérna, sagði Oldfield og undirritaður greip í það sem reyndist vera tilrauna- glas fyllt með ýmiss konar kryst- öllum en tilraunaglasið var tengt raftæki Oldfields. Eftir að raf- straumnum hafði verið hleypt á var á greinilegan hátt hægt að finna titring líkamans á eyrna- sneplunum. Með sérstöku mæli- tæki mældi Oldfield nú útstreym- ið og allt reyndist í lagi nema nokkrir þreytublettir hér og þar. Þá reyndust handleggirnir dálítið lúnir og Harry Oldfield gerði nú merkilega tilraun. Fyrst spurði hann í hvorum handleggnum ég væri sterkari og þar sem ég er rétthentur sagði ég að það væri sá hægri. - Já en sá hægri er með verri útgeislun en sá vinstri, sagði Old- field og gat þess jafnframt að þetta kynni að stafa af því að meira hefði verið á hægri hand- legginn lagt. - Réttu nú vinsti; handlegginn út, sagði Oldfield og haltu hon- um stífum út frá líkamanum hvað sem á dynur en ég ætla að reyna að sveigja hann niður með vísi- fingrinum. Og það var sama hvað Oldfield rembdist, handleggur- inn haggaðist ekki. En nú var röðin komin að þeim hægri og sterkari. Sama tilraun endurtekin en nú átti Oldfield auðvelt með að beygja handlegginn. - Við verðum fljótir að laga þetta, sagði Oldfield og rétti mér tilraunaglasið og sneri síðan tökkum á tækinu og undirritaður fékk fimm mínútna meðferð úr raföldudreifibyssunni. Harry Oldfield sýnir hvernig raföldudreifibyssan virkar. Brynjólfur Snorra- son er „tilraunadýrið" að þessu sinni. Mynd: ESE Á þessari mynd sést dæmi um Kirlianljósmyndun. Myndin sýnir útgeislun annars vegar „hvíts“ brauðs og hins vegar grófs heilsubrauðs sem hefur mikið sterkari útgeislun eða áru. Samsvarandi myndir af höndunum sýna út- geislun hjá þeim sem snæða hvíta brauðið og svo heilsubrauðið og af mynd- unum má ráða hve heilsubrauðið er miklu heilsusamlegra. Mynd: ESE Eftir þetta var tilraunin endur- tekin og nú gat Oldfield ekki sveigt handlegginn um senti- metra, hvað þá meira. Sannar- lega furðuleg upplifun og erfitt að útskýra hvað gerðist. Raföldurnar munu hins vegar starfa á þann átt að þær hrista upp í frumum líkamans og gera þær starfhæfari. Fundir á Akureyri Það er varla fyrir leikmenn að skilja þau rök og vísindi sem liggja að baki rannsókna Harry Oldfield en þess má geta að hann hefur ekki látið sér nægja að rannsaka bara það sem snýr að nútímanum heldur hefur hann aflað sér heimilda um lækningar í frumstæðum þjóðfélögum og lækningum fyrr á öldum en það var einmitt á þann hátt sem Old- field komst að lækningamætti krystallanna. - Það er vel þekkt fyrirbrigði að fólk í frumstæðum menning- arsamfélögum hefur notað kryst- alla og steina í lækningaskyni og oft hafa þessir steinar og krystall- ar aðeins verið lagðir að líkaman- um og viðkomandi hlotið lækn- ingu. Ég safnaði því að mér margs konar krystöllum og þegar rafkrafturinn bætist við þá gefa þeir frá sér margfaldan kraft. Það eru auðvitað margir í heimalandi mínu og víðar sem eru vantrúaðir á það sem ég er að gera en þeir eru þó enn fleiri sem hafa áhuga á þessu og hafa veitt mér marg- víslegan stuðning. Ég hef unnið mikið með ýmsum læknum og vísindamönnum og þetta er þriðja árið sem tækin eru í notkun. Ástæðan fyrir því að ég lét gera þetta tæki sem ég vil meina að hjálpi fólki er sú að áður, meðan ég var bara með greiningartækið, þá var ég alltaf að segja fólki hvað það var veikt og ég gat aldrei gert neitt til þess að hjálpa því, segir Harry Old- field, en þess má geta að þann tíma sem hann hefur verið hér á íslandi hefur hann tekið fjölda fólks í meðferð, allt upp í fimm- tán manns á dag og m.a. hefur verið mikill áhugi hér á Akureyri fyrir því að komast að hjá honum. Harry Oldfield hélt fund í Borgarbíói sl. laugardag en að- sókn var þá það mikil að ákveðið hefur verið að efna til nýs fundar í Borgarbíói á morgun kl. 14. Þar mætir Oldfield og útskýrir tækni sína og Kirlianljósmyndatökunn- ar og sýnir fjölda mynda máli sínu til staðfestingar. - Það sem mér hefur þótt merkilegast hér á íslandi er áhug- inn á þessum málum, segir Old- field að lokum í samtali við blaðamann Dags. - Hér þarf ekk- ert að auglýsa. Þetta spyrst svo hratt út að það er alveg ótrúlegt. 1. júlí 1983 - DAGUR - 3

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.