Dagur - 11.07.1983, Page 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA-
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, mánudagur 11. júlí 1983
75. tölublað
Rækja
flutt fra
Króknum til
Keflavíkur
Tveir rækjubátar frá Keflavík
hafa lagt upp afla á Sauðár-
króki í tvær vikur. Rækjunni
er ekið til Keflavíkur sam-
dægurs þar sem hún er unnin.
Pað er fyrirtækið Páll Axelsson
& Co í Keflavík sem stendur fyrir
þessum flutningum og veiðum.
Að sögn Kristjáns Hansen, hjá
flutningafyrirtækinu Kristjáni og
Jóhannesi, sem annast flutning-
ana, hefur þessi tilraun komið
mjög vel út. Rækjan hefur verið
góð þegar til Keflavíkur hefur
verið komið þrátt fyrir að bílarnir
eru ekki með kæliblásara. Um 10
klukkustundir tekur að aka rækj-
unni til Keflavíkur. Mun þetta
vera í fyrsta sinn sem reynt er að
flytja ferskar sjávarafurðir svo
langa leið landleiðina til vinnslu
í svo miklum mæli hér á landi.
Frægur
— bls. 9
Peösfórn fyrir
betri stöðu í
orkumálum
- bls. 3
- bls. 8
«v»
Börkur og Jóhann á slysstaðnum. Stöngin sem Jóhann hefur stungið niður í vatnið er tveggja metra löng. Á innfelldu myndinni hjúfrar Kristinn Þórir sig
að móður sinni, Maríu Stefánsdóttur. Mynd: GS
SLYSAGILDRA!
10 og 7 ára drengir björguðu 4ra ára dreng frá drukknun í húsgrunni
„Ég hugsaði um það eitt
allan tímann, að ég yrði
að ná honum, því ann-
ars gæti hann dáið. Þess
vegna varð ég ofsalega
feginn þegar hann byrj-
aði að gráta. Þá vissi ég
að hann var lifandi.“
Petta sagði Jóhann Konráð
Birgisson í samtali við Dag, en
hann og Börkur Hólmgeirsson
björguðu fjögurra ára dreng frá
drukknun á fimmtudagskvöldið.
Hann heitir Kristinn Þór Ingi-
björnsson. Jóhann Konráð er 10
ára og Börkur 7 ára.
Börkur og Jóhann Konráð
voru að leik í húsgrunni við
Fjölnisgötu. Þar hefur myndast
smá tjörn sem laðar börn að,
sannkölluð slysagildra. Rétt hjá
þeim voru nokkur börn að leik.
Allt í einu tók Börkur eftir því að
eitt þeirra hafði dottið í tjörnina.
Þau sem á bakkanum stóðu voru
of ung til að gera sér grein fyrir
hættunni, en gerðu grín að leik-
félaga sínum fyrir að detta í
vatnið. En Jóhann Konráð gerði
sér grein fyrir hættunni. Hann
* hljóp til, kastaði sér á magann á
bakkabrúnina og rétt náði í hárið
á Kristni áður en hann sökk.
Eftir það gat hann dregið Krist-
inn upp á bakkann með aðstoð
Barkar vinar síns. Börkur hljóp
síðan heim til Kristins eftir hjálp,
en Jóhann Konráð lét Kristinn
setjast upp og barði í bakið á
honum. Þá kom Kristinn fljótt til
meðvitundar og byrjaði að
kúgast. Mikið vatn og önnur
óhreinindi komu upp um vit
hans. En hvernig datt 10 ára strák
í hug þessi lífgunaraðferð?
„Ég hafði séð þetta gert í sjón-
varpinu á þennan hátt,“ sagði
Jóhann Konráð.
„Ég vil biðja ykkur að koma á
framfæri innilegu þakklæti til
björgunarmannanna. Þetta verð-
ur aidrei ofmetið, enda ekki hægt
að meta svona lagað,“ sagði Ingi-
björn Steingrímsson, faðir Krist-
ins í samtali við Dag.
Sex ára stúlka var hætt komin
í sömu tjörn í vor, en henni var
einnig bjargað á síðustu stundu,
að sögn Maríu Stefánsdóttur,
móður Kristins. Þetta er ekki eini
húsgrunnurinn á Akureyri sem
býður hættunni heim, en er ekki
kominn tími til að byrgja
brunninn, eða þarf fyrst að verða
dauðaslys?
Orkuverð hitaveitna mismunandi á Norðurlandi:
Odýrast á Húsavík
í Reykjavík kostar 6.906 krón-
ur að hita upp 400 rúmmetra
hús á ári með hitaveitu en á
Akureyri kostar 29.894 krónur
að hita upp jafn stórt hús með
sarna hitagjafa.
Þetta kemur fram í yfirliti
Orkustofnunar um orkuverð
hitaveitna víðsvegar um landið
sem gert var 13. maí sl. Hitaveita
Reykjavíkur er þó ekki ódýrasta
hitaveita landsins. Ódýrasta veit-
an er í Brautarholti en þar er
kostnaðurinn við að hita um 400
rúmmetra hús einungis 760 krón-
ur á ári. Hins vegar eru ekki
nema 100 íbúar í Brautarholti.
Langdýrasta hitaveitan er á
Egilsstöðum og í Fellabæ, en þar
kostar 32.947 krónur að hita upp
hús af áðurnefndri stærð. Þar er
vatnið einungis 59°C við húsvegg.
í töflunni er gert ráð fyrir að
vatnið frá Hitaveitu Akureyrar
sé 80°C við húsvegg.
Með ódýrari hitaveitum er
veitan á Húsavík en þar kostar
6.739 krónur að hita upp 400
rúmmetra hús. í Ólafsfirði er
kostnaðurinn 9.433 krónur en á
Dalvík 7.312 krónur og í Hrísey
22.105 kr. og á Siglufirði 25.822
kr.
Mismunurinn á orkuverði
veitnanna stafar af því að þær eru
misjafnlega gamlar í hettunni,
þannig að stofnkostnaður og um
leið fjármagnskostnaður liggur
misjafnlega þungt á rekstri
þeirra. Hitaveita Akureyrar og
Hitaveita Akraness og Borgar-
ness eru á svipuðum aldri og
orkuverð þeirra er svipað. 29.894
krónur kostar að hita 400 rúm-
metra húsið á Akureyri en 28.190
krónur á Akranesi og í Borgar-
nesi.