Dagur - 05.08.1983, Side 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 120 Á MÁNUÐI - LAUSASÖLUVERÐ 15 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÓRNSSON
FRÉTTASTJÓRI: GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN: EIRlKUR ST. EIRlKSSON, GYLFI KRISTJÁNSSON,
ÓLAFUR JÓHANNSSON (SAUÐÁRKRÓKI) OG
ÞORKELL BJÓRNSSON (HÚSAVlK)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Afrek við aldaskil
Þann 28. júlí sl. voru liðin hundrað ár frá
fæðingu Oddeyringsins Jóhannesar Jósefs-
sonar (Jóhannesar á Borg). Hann var ekki
aðeins afreksmaður í íþróttum sem bar
hróður íslenskrar glímu og manndóms vítt
um lönd heldur brennandi hugsjónamaður
fyrir aðhliða framþróun lands og þjóðar. Svo
vel vill til að við eigum ævisögu hans skráða
af einum snjallasta rithöfundi síðari ára,
Stefáni Jónssyni, er réði yfir austfirskum
töfrum máls og stíls áður en hann koðnaði
niður á Alþingi. Saga Jóhannesar er ekki
einungis æsiskemmtileg lesning, þar sem
enginn dauður punktur finnst, heldur stór-
merk heimild um manndóm einstaklings er
óx upp úr smæð og varð mikilmenni. Sú hlið
sögu hans er snýr að líkamlegu atgervi er
einstök og eftirbreytniverð ungum
mönnum. Hitt er ekki síður minnis- og þakk-
arvert að Jóhannes varð ásamt Þórhalli
Bjarnarsyni og fleirum frumkvöðull að þeirri
félagsmálahreyfingu er einna dýpst spor
hefur skilið eftir sig í þjóðlífi aldar okkar:
Ungmennafélögunum.
Þó íslensk þjóð væri ekki burðug um síð-
ustu aldamót, eftir fátækt, eymd og niður-
læging, harðindi og landflótta fólks til
Vesturheims, þá leyndist enn í brjóstum
manna sú glóð er lífga mátti, væri rækilega í
hana blásið. Og það gerðu þeir sannarlega
þessir ungu menn er stofnuðu fyrsta ung-
mennafélagið hér á Akureyri 6. janúar 1906,
15 saman. Hér var engin hálfvelgja í hlutun-
um: Ræktun lýðs og lands, sjálfstæði
íslands, hrifið undan oki Dana, skógrækt,
bindindi, íþróttir, manngöfgi. Ungmennafé-
lagshugsjónin fór sem eldur um hugi manna
og alhliða þroski varð ótrúlega ör. Æskan
reis úr öskustónni.
Samhliða ungmennafélagshreyfingunni
og í kjölfarið komu bindindisfélög og síðar
verkalýðsfélög. Og þó vaxtarmátt drægi
síðar mjög úr þessum hreyfingum öllum þá
skildu þær eftir sig vegsögu í átt til stórra
dáða. Skógurinn óx hægar en þar hélt vöxt-
urinn þó sífellt áfram, allt til þessa dags. Og
meðan hóglífið slævir hugsjónir okkar og
baráttuþrek sýgur skógur landsins næringu
úr íslenskri mold og verður hærri og styrkari
eins og vonir frumherjanna stóðu til.
En þökk sé þeim, hinum ungu ofurhug-
um, er blésu að glæðum og kveiktu frelsis-
bálið mikla við upphaf aldar. Við höfum
lengi notið og vermst við yl frá því.
Akureyri má enn í dag vera stolt af þess-
um syni sínum, afreks- og hugsjónamannin-
um Jóhannesi Jósefssyni. K.
Eins og venjulega voru íslendingar allir á
þeytingi út um allt land um
verslunarmannahelgina - og allir í leit að
stuði og fjöri. Eldhressir, syngjandi og
trallandi. Atlavíkin vinsæl og fleiri staðir
sem buðu upp á endalausa skemmtun alla
helgina. Einn er sá staður á landinu (þeir
eru ef til vill fleiri svipaðir til) sem þessa
helgina bauð ekki upp á neitt nema það
sem hann býður ætíð upp á á góðum
sumardögum. Og það er óendanlegt
úrval. Ef litfilma er í myndavélinni má
smella þindarlaust af og árangurinn
verður falleg mynd, næstum hvert sem
vélinni er beint.
Herðubreiðarlindir. Tíðindamaður
Dags heimsótti þennan fallega stað
um verslunarmannahelgina.
Reyndar var dumbungur í lofti, en
við vorum varla lentir þegar birti í
lofti og sólin fékk aðalhlutverkið.
Skammt frá flugbrautinni steig
reykur til himins. Eða var það gufa
frá hverasvæði? Ónei, þar var
einungis um að ræða
„sorpeyðingarstöð“ staðarins.
Ingibjörg Kristín Steinbergsdóttir
landvörður var að brenna rusl og
bauð síðan upp á kaffi í
Þorsteinsskála. Samstarfsmaður
hennar, Hreinn Skagfjörð Pálsson
var á ferðalagi þennan daginn. Það
varð ekki hjá því komist að inna
Ingibjörgu tíðinda. Hafa ferðamenn
verið duglegir við að heimsækja
Lindirnar í sumar?
„Fjöldinn hefur verið svipaður og
í meðalsumri. Við Hreinn komum
hingað 1. júlí í ár og síðan þá eru
skráðar um þúsund gistinætur í
„Flugstöðin“ í Herðubreiðarlindum er óneitanlega með glæsilegri byggingum á landinu.
4 - QAGU.R - 5- ágúst 1983