Dagur - 05.08.1983, Qupperneq 5
t# * HERÐUBREIÐARLINDIR
Vinkonurnar Hcrðubreið og Ingibjörg Kristín landvörður. Og eru góðar
saman, ekki satt?
tjöldum og í skálanum. Og ætli hafi - Og er þetta gaman?
ekki verið um 400 manns á svæðinu í „Mjög svo, annars væri maður
nótt.“ ekki að þessu.“
- Að meirihluta til útlendingar?
„Já, útlendingar eru í miklum
meirihluta. íslendingar hafa þó verið
fleiri í sumar en voru í fyrra. Flest af
þessu fólki kemur í hópum,
Guðmundur Jónasson og Úlfar
Jacobsen eru með skipulagðar
hópferðir hingað og héðan er svo
yfirleitt farið upp í Öskju.“
- Hefur ekki verið gott veður á
ykkur?
„Jú, það hefur verið ákaflega gott
hingað til, varla komið dropi úr lofti
og hitinn yfirleitt um tuttugu gráður.
Þannig að út af því þarf ekki að
kvarta.
- Og hafa landverðirnir alltaf nóg
að gera?
„Það er alltaf eitthvað sem gera
þarf. Við þurfum að sjá til þess að
fylgt sé settum reglum á svæðinu og
það hafa ekki verið nein vandræði
með það í sumar. Síðan þarf að
brenna rusl, þrífa salernin, dæla
vatni og ýmislegt annað.“
- Án þess ég ætli út í neina
heimspeki, hefur það einhver áhrif á
mann að vinna í óbyggðum?
„Já, ég er ekki frá því. Tíminn
líður alveg óskaplega fljótt
hérna. Þetta er róandi, það getur
varla heitið að ég hafi skipt skapi í
allt fyrrasumar.“
Herðubreiðarlindir eru staður sem
þarf að skoða í ró og næði og margt
er að sjá. En skýjabakkinn norðan
Herðubreiðar var orðinn ískyggilega
svartur og því rétt að koma sér í
loftið áður en við yrðum kaffærðir í
rigningu.
Svo að við þökkuðum kærlega
fyrir kaffið og kleinurnar, veifuðum
í kveðjuskyni og Pían bar okkur
heim á leið.
Þeir sem heimsækja Lindirnar eru á öllum aldri og margt er að skoða og skilgreina.
5. ágúst 1983 - DAGUR - 5