Dagur - 05.08.1983, Qupperneq 12
-----------BAUTINN - SMIÐJAN..........
Verðum með nýja rétti - aðallega fiskirétti
um helgina, bæði á Bauta og Smiðju.
Reynið þá ásamt frábæra salatbarnum sem algjörlega
hefur slegið í gegn.
Er togaramál XJtgerdarfélagsins komið í höfn:
Sameiginlegt hagsmunamál
Stjórn Útgerðarfélags Akur-
eyringa hefur ákveðið, að
ganga nú þegar til samninga
við Slippstöðina um smíði á
nýju togara fyrir félagið, sam-
kvæmt smíðalýsingum er
fylgdu nýlegu útboöi. Jakob
Frímannsson, Sigurður Oli
Brynjólfsson, Sverrir Leósson
og Þorgerður Hauksdóttir
stóðu að samþykktinni, en
Kristján P. Guðmundsson sat
hjá. Hann studdi hins vegar til-
lögu framkvæmdastjóranna
Gísla Konráðssonar og Vil-
helms Þorsteinssonar, sem var
afmarkaðri en sú tillaga sem
samþykkt var.
„Ég er ekki sáttur við þessa
samþykkt stjórnarinnar, það er
rétt,“ sagði Gísli Konráðsson,
aðspurður í samtali við Dag eftir
stjórnarfundinn. „Tillaga okkar
Vilhelms fól einnig í sér samninga-
umleitanir við Slippstöðina, en
á öðrum forsendum en stjórnin
vildi. Við vildum setja ákveðið
þak á smíðaverðið, við þau mörk
sem félagið telur sig geta borgað
fyrir nýtt skip. Þar hefði mátt
leggja japanska tilboðið til
grundvallar, en það var lægsta til-
boðið sem barst í smíðina á sín-
um tíma. Það hefði mátt hækka
það eitthvað þar sem verulegur
ávinningur er í að smíða skipið
hér heima. í okkar tillögu fólst að
sú hækkun væri 5%.
Að öðru leyti á það að vera
Slippstöðvarinnar að brúa mis-
muninn á þeirra tilboði og því
japanska. Ef Slippstöðin hefði
ekki viljað semja á þessum
grundvelíi áttum við að bíða þar
til innflutningsbann á nýjum skip-
um rennur út,“ sagði Gísli Kon-
ráðsson.
„Ég vona að menn brúi það
sem á milli ber í vinsemd, því
þarna er um að ræða sameigin-
legt hagsmunamál Slippstöðvar-
innar og Útgerðarfélagsins, já og
raunar bæjarbúa allra. Þess
vegna taldi meirihluti stjórnar-
innar óeðlilegt að annar samn-
ingsaðilinn setti svo ströng skilyrði
í upphafi, að fyrirsjánanlegt væri
að hinn aðilinn gæti ekki uppfyllt
þau,“ sagði Sigurður Óli Brynj-
ólfsson, aðspurður um sjónarmið
meirihluta stjórnar Útgerðarfé-
lagsins.
Skemmtileg uppákoma ■ Hafnarstræti. Á sólskinsbletti sat þessi náungi og söng hástöfum við eigin undirleik. Hattur-
inn hans lá fyrir framan hann og þeir sem leið áttu framhjá létu tíkall og tíkall í hattinn. Og söngvarinn sagði takk.
________________________________________________________________________________________________________________Mynd: KGA
Las Vegas-málid:
Samnlngaleidln reynd
„Það er ekki útilokað, að
eigendur „Las Vegas“ loki
staðnum, þannig að við höfum
ekki viljað fara út í harðar að-
gerðir fyrr en samningaleiðin
er fullreynd,“ sagði Hreinn
Veður
„Það getur vel verið að þið
sjáið sólina eitthvað á Akur-
eyri um helgina, en sólríkasta
svæðið verður að líkindum
frá Egilsstöðum að Gríms-
stöðum á Fjöllum, eða þar
um bil,“ sagði Gunnar
Hvammdal, veðurfræðingur,
í samtali við Dag í morgun.
Hann sagði útlit fyrir skúra-
veður á Norðvesturlandi, allt
til Skagafjarðar, en líklega
yrði þurrt á Norð-Austur-
landi og fremur hlýtt, 10-14
stiga hiti að deginum.
Pálsson, bæjarlögmaður, í
samtali við Dag.
Málefni leiktækjasalarinns
„Las Vegas“ voru til umræðu í
bæjarráði Akureyrar 21. júlí sl. í
bókun sinni „Krefst bæjarráð
þess, að Laufey Birkisdóttir, sem
rekið hefur leiktækjasalinn Las
Vegas í Skipagötu 21, hætti starf-
rækslu hans þegar í stað“ eins og
segir orðrétt í fundargerðinni.
Jafnframt fól bæjarráð lögmanni
sínum að sjá til þess að starfsem-
inni verði hætt „ og beita til þess
lögbannsaðgerðum sé þess þörf.“
,-,Ef að hægt er að leysa þetta
mál eftir öðrum leiðum en með
lögbanni, þá er það auðvitað
heppilegra. Við vitum að Laufey
hefur fengið vitneskju um
ákvörðun bæjarráðs, þó hún hafi
ekki meðtekið bréf sem henni var
sent. Við höfum upplýsingar um
vilja hennar til að loka staðnum,
en verði það ekki gert innan
skamms dugir ekki annað en fara
í hörkuna,“ sagði Hreinn.
Fari bæjarlögmaður fram á
lögbann er það bæjarfógeta að
meta hvort það nær fram að
ganga. Verði hann við lögbanns-
kröfunni þarf bæjarlögmaður að
höfða staðfestingamál strax.
Samkvæmt upplýsingum Dags
má allt eins búast við að Akur-
eyrarbær tapaði slíku máli og þar
með þeirri tryggingarfjárhæð sem
sett verður upp. Þetta mál var
borið undir Helga M. Bergs,
bæjarstjóra.
„Mér hefur verið sagt af lög-
fróðum mönnum, að þetta mál
geti staðið í járnum. En við vilj-
um reyna samningaleiðina og
teljum að harkalegar aðgerðir
nú yrðu ekki til að flýta málinu.
Verði staðnum hins vegar ekki
lokað innan fárra daga verður
látið reyna á lögbann," sagði
Helgi M. Bergs.
• /
Flatey
Bændur úr Mývatnssveit eru
byrjaðir heyskap í Fiatey á
Skjálfanda. Drangurflutti hcy-
vinnslutæki bændanna út í eyju
í gær og að líkindum mun skip-
ið sækja heyfenginn þcgar þar
að keniur, að sögn Jóns Stein-
dórssonar, framkvæmdastjóra
Drangs. Ekki hefurveriðheyj-
að f Flatey um árabil, en eins
og frarn hefur komið í Degi
komu tún Mývetninga illa lcik-
in undan vetri. Bændur þar
verða því að neyta allra ráða til
að fá í hlööur sínar.
„Ætli ástæðan sé ekki cinfuld-
lega sú að þeir treysta ckki far-
artækjum sínum í aðra þolraun
á íslenskum vegum,“ sagði Jón
Steindórsson, frainkvæmda-
stjóri Drangs, » samtali við
Það eru stjórnendur Arena
sirkusins danska, sem Jón á
við, en Drangur mun flytja allt
hans hafurtask frá Reykjavík
til Akureyrar í byrjun næstu
viku. Sirkusinn kom til lands-
ins með Norröna og fór iand-
leiðina frá Seyðisfirði til
Reykjavíkur. Sú ferð mun hafa
vcrið „einn sirkus“ frá upphaíi
til enda. Allavega treysta
stjórnendur sirkusins ekki far-
artækjum sínum til tleiri lang-
ferða á íslenskum vegurn.
Fyrsta sýning Arena á Akur-
eyri vcrður á fimmtudaginn.
WBBÍ&Sma
Ný sending af
joggingefnum: