Dagur - 28.09.1983, Qupperneq 9
íslands-
metin eru
alls 146
„íslandsmetin mín eru orðin
alls 146 talsins og ég er alveg
ákveðinn í að slá met Guð-
mundar Gíslasonar sund-
kappa,“ sagði kraftlyftinga-
maðurinn Kári Elíson er við
ræddum við hann í fyrradag.
Kári bætti enn einu íslands-
meti í safn sitt um síðustu
helgi og hann hefur nú sett
stefnuna á að setja fleiri ís-
landsmet en Guðmundur
Gíslason sem setti 150 íslands-
met í sundi á sínum tíma og
hefur enginn íslendingur sett
svo mörg íslandsmet.
„Ég setti mitt fyrsta met í mars
1970 á íslandsmótinu í lyftingum.
Þá var ég búinn að æfa lyftingar í
einn mánuð og þetta var mitt
fyrsta mót. Flosi Jónsson hér á
Akureyri átti reyndar metið sem
ég sló en þetta var í 50 kg flokki
og ég var 49 kg sjálfur. Metið
sem ég setti var í jafnhöttun og
var 62 kg.“
- Minnisstæðustu metin?
„Af þeim metum sem ég hef
sett í kraftlyftingum þá hlýtur
það að vera metið sem ég setti á
Norðurlandamótinu um daginn.
Af metunum í Olympiulyftingum
er minnisstæðast met sem ég setti
í jafnhöttun þegar ég var 60 kg en
þá jafnhattaði ég 120. Pað var í
fyrsta skiptið sem ég náði að lyfta
tvöfaldri líkamsþyngd og reyndar
höfðu ekki nema einn eða tveir
gert það áður hér á landi. Þetta
met setti ég 1975 og það stóð al-
veg þangað til í vor.“
- Og nú er Heimsmeistara-
keppnin í kraftlyftingum fram-
undan. Ert þú byrjaður að búa
þig undir þá keppni?
„Ég er um það bil að byrja má
Eitt metanna í uppsiglingu. Á myndinni sem tekin var í maí sl. setur Kárí íslandsmet í bekkpressu sem hann
hefur margbætt síðan. Mynd: ESE.
segja og kem til með að æfa fimm
daga í viku. Þeim æfingum mun
ég skipta þannig niður að tvær
verða þungar, 2 aðeins léttari og
ein létt æfing verður. Það er um
að gera að skipta þessu til þess að
maður sé ekki alltaf þreyttur.“
- Hvaða möguleika hefur þú
til þess að komast á verðlauna-
pall í þessu móti?
„Enga held ég. Ef ég lít raun-
hæft á málið þá tel ég að ég geti
orðið í 5. - 8. sæti. Kraftlyfting-
arnar eru að þróast núna hröðum
skrefum og sem dæmi um fram-
farirnar þá hefði árangur minn á
Norðurlandamótinu á dögunum
nægt til verðlauna á öllum stór-
mótum í heiminum fyrir einu eða
tveimur árum.“
- Kári er þrítugur að aldri og
ætti því að eiga sín bestu ár fram-
undan í kraftlyftingum, eða hvað
segir hann?
„Jú mér finnst að ég sé núna
fyrst að komast á skrið og tel full-
víst að bestu árin séu eftir. Menn
hafa verið að setja heimsmet í
kraftlyftingum alveg fram á 45
ára aldurinn.“
Magnús Gauti lokar markinu í einum leikja sinna með KA.
Magnús Gauti með
300. leikinn
— þegar KA mætir Val í íþróttahöllinni á
föstudagskvöldið
„Mér er sagt það já að þetta
verði minn 300. leikur með
meistaraflokki KA, en annars
hef ég ekki fylgst með þessu
eða talið Ieikina,“ sagði Magn-
ús Gauti Gautason markvörð-
ur KA í handknattleik er við
ræddum við hann.
Þessi merkilegi leikur Magnús-
ar Gauta verður háður í íþrótta-
höllinni á Akureyri á föstudags-
kvöldið kl. 20 og verða það Vals-
menn sem verða mótherjar KA-
manna.
Við spurðum Magnús Gauta
hvernig sá teikur leggist í hann.
„Þessi leikur leggst svona
sæmilega í mig þótt ég geri mér
grein fyrir því að hann verður
erfiður eins og allir leikir okkar í
vetur. Ég veit þó satt að segja
ekki hvar ég ætti að setja Vals-
menn í styrkleikaröð liðanna í
deildinni. Ég held að það sé á
hreinu að FH og Víkingur verða
í efri hlutanum en um hin liðin er
ógerningur að segja nokkuð.“
Æfingar Skíða-
ráðs Akureyrar
Æfingar hjá Skíðaráði Akur-
eyrar eru nú hafnar, og verða
þær á eftirtöldum tímum:
13 ára og eldri:
Mánudaga kl. 19 - íþróttavöll
ur.
Fimmtudaga kl. 19 - íþrótta-
völlur.
Sunnudaga kl. 12 - íþrótta-
höll.
12 ára og yngri:
Miðvikudaga kl. 17 - íþrótta-
völlur.
Sunnudaga kl. 12 - íþrótta-
höll.
Donni með
KR eða Þrótti
„Það er alveg ákveðið að ég
fari suður, en það er ekki kom-
ið á hreint með hvaða liði ég
spila, það verður Þróttur eða
KR,“ sagði Jóhann „Donni“
Jakobsson leikmaður KA er
við ræddum við hann í gær.
Jóhann hafði ákveðið að leggja
skóna á hilluna í haust. Síðan
tóku hann og kona hans þá
ákvörðun að flytja til Reykjavík-
ur þar sem konan fer í nám. Og
þegar þetta fréttist suður höfðu
bæði KR og Þróttur samband við
Jóhann og buðu honum að spila
með.
„Þetta gerðist allt mjög snöggt
og það verður ákveðið áður en
langt um líður hvor röndótti bún-
ingurinn það verður sem ég fer í.
Það verður gaman að breyta til,
ég hef alltaf verið með KA en
hlakka nú til að koma norður
næsta sumar og leika gegn mín-
um gömlu félögum.
Gunnar
búinn að
skrifa undir
Gunnar Gíslason knattspyrnu-
maður úr KA skrifaði í gær
undir atvinnusaming við þýska
liðið Osnabruck sem leikur í 2.
deild. N
i
Samningur Gunnars og Osna-
bruck er einungis bráðabirgða-
samningur til 3. mánaða með það
fyrir augum að hægt verði að
framlengja hann ef báðum líkar
framhaldið. Leyfi KSÍ til Gunn-
ars mun liggja fyrir og tekur það
gildi þann 1. október.
Gunnar Gíslason.
28. september 1983 - DAGUR - 9