Dagur - 30.09.1983, Side 8
t
Minmngarorð um
Dr. Gunnar Thoroddsen
fyrrverandi forsætísráðherra
F. 29. desember 1910
d. 25. september 1983.
Dr. Gunnar Thoroddsen, fyrr-
verandi forsætisráðherra, er nú
allur. Hann andaðist sl. sunnu-
dag 25. sept. á sjúkrahúsi í
Reykjavík iangt kominn á 73.
aldursár, f. 29. des. 1910. Hann
verður jarðsettur í dag (30.
sept.) frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
Um Gunnar Thoroddsen
nægir ekki að segja, að hann
hafi verið „þjóðkunnur
maður,“ hann var þekktur af
hverju mannsbarni í landinu, og
hafði svo verið í 40 ár eða
lengur, og lítt varð hann dulinn
né vildi hann dyljast í starfi og
striti samtíma síns. Þar var
hann ærið fyrirferðarmikill og
áberandi. En eitt var honum
ótamt: Að bera einkamál sín á
torg, og gat það átt við um
heilsufar hans eins og margt
annað. Þess vegna vissu fáir að
Gunnar hafði átt við heilsubrest
að stríða um nokkurt skeið.
Því kom dauði hans þjóðinni á
óvart. Mun sönnu nær að al-
menningur hafi talið, að hann
ætti langt líf fyrir höndum, og
margur mun hafa vonað, að
hann ætti eftir að koma meira
við sögu samtíma síns, ekki síst
með því að skrifa ýtarlega ævi-
sögu sína og þá hvað helst að
rekja heildarsögu og aöge'öir
þeirrar ríkisstjórnar, sem hann
myndaði með óvenjulegum
hætti á erfiðum tíma og stýrði
heilt kjörtímabil að kalla. Það
tókst honum, þótt ekki gengi
stjórninni allt í haginn, enda
stjórnarsamstarfið að ýmsu leyti
brot á hefðbundnum leikreglum
hins viðurkennda stofnana-
kerfis nútímaþjóðfélags, þar
sem Alþingi og ríkisstjórn eru
ekki ein um að ráða úrslitum
né stjórnmálaflokkarnir, heldur
allt eins hagsmunasamtök af
margs konar gerð, bankavald
og peningaöfl í ýmsu formi og
undir ýmsum nöfnum. Ríkis-
stjórn Gunnars Thoroddsens
var ekki alltaf til þægðar „hin-
um innvígðu“ í þessu viður-
kennda stofnanakerfi og var
reyndar látin finna fyrir því.
Annars er ævi dr. Gunnars
Thoroddsens brugðin svo mörg-
um þáttum, að þeir verða ekki
raktir í stuttu máli. Störf hans
og viðfangsefni voru ótrúlega
margslungin og sýna yfirgrips-
mikla menntun hans og hæfi-
leika. Hann var borgarstjóri í
Reykjavík, alþingismaður leng-
ur en flestir aðrir menn, ráð-
herra í ýmsum ríkisstjórnum,
sendiherra, hæstaréttardómari,
lagaprófessor og fræðimaður,
hlaut doktorsnafnbót fyrir
merkilegt fræðirit á sviði lög-
fræðinnar. Hvert þessara starfa
um sig hefði nægt til að halda
nafni hans á lofti sem eins hins
fremsta manns í samtíð sinni.
Hann sóttist reyndar eftir miklu
í völdum og mannvirðingum,
hann var í því efni kappsfullur
og trúði á mátt sinn og megin,
en skrum af eigin ágæti var hon-
um víðs fjarri. Hann stóð undir
því, sem hann sóttist eftir, hann
var maður til að bera það, sem
metnaður hans krafðist, - sem
er meira en sagt verður um
marga þá, sem sækja í háar
stöður og hafa lítið til brunns að
bera annað en eljuna við að
sýnast og koma sjálfum sér
áfram. Gunnar Thoroddsen var
ekki maður af þeirri gerð. Hann
hafði í öllu af manni að má,
traustri skapgerð, kunnáttu,
gáfum og menntun.
Ég á margar persónulegar
minningar um Gunnar Thor-
oddsen og kynntist honum á
ýmsum vettvangi og við margs
konar tækifæri. Við vorum
aldrei samherjar í stjórnmálum
í venjulegum skilningi þess
orðs, en í síðustu ríkisstjórn
lágu leiðir okkar mjög saman,
og þykir mér sæmd að því að
hafa setið þar undir forsæti
hans. Hitt er mér þó ekki síður
minnisstætt, hversu skilnings-
mikill og áhugasamur hann var
um þá málaflokka, sem undir
mig heyrðu í ríkisstjórninni,
fræðslu- og menningarmál. Síst
var hann einn af þeim, sem við
stjórnmál fást og virðast halda
að fræðslukerfið sé að sliga
þjóðfélagið og að skólamennt-
un (a.m.k. svo nokkru nemi!)
sé heldur til bölvunar, ef eitt-
hvað er, eða að framlög til
stuðnings almennri menningar-
starfsemi og til smíði eða rekstr-
ar menningastofnana sé
bruðl með almannafé og heyri
frekar til gustukaverkum á veg-
um líknarfélaga en alvarlegri
þjóðmálastarfsemi. Afturhald
af þessu tæi var Gunnari Thor-
oddsen víðs fjarri. Mig munaði
því mikið um liðveislu hans í
þeim málum, sem ég vildi koma
fram í stjórnarsamstarfinu og
áttu stundum misjöfnum áhuga
að fagna sumra, sem annars
studdu ríkisstjórnina heils
hugar. Gunnar Thoroddsen var
stjórnmálamaður af þeirri gerð,
sem ég óttast að geti orðið ráða-
minni í ríkisstjórnum framvegis
en oft var áður, húmanisti með
fjölþætt áhugamál og yfirsýn
yfir hin ýmsu svið þjóðfélagsins,
ekki síst menningar- og félags-
málin í víðri merkingu þess
orðs.
Að lokum leyfi ég mér að
senda ástvinum Gunnars sam-
úðarkveðju okkar hjóna og þá
sérstaklega frú Völu Ásgeirs-
dóttur, sem á svo mikið í vel-
gengni manns síns, vinsældum
hans og rausn, sem einkenndi
hann og þau bæði hvar sem þau
fóru.
Ingvar Gíslason.
Það er rétt að taka það fram að það hefur verið stefna ritstjórnar að
birta ekki minningargreinar í Helgar-Degi. Að þessu sinni er gerð
undantekning á þessari reglu vegna jarðarfarar dr. Gunnars Thor-
oddsen, fyrrverandi forsætisráðherra sem gerð verður frá Dómkirkj-
unni í dag.
AKUREYRARBÆR
Frá Strætisvögnum
Akureyrar:
Fyrsta október hækka fargjöld SVA.
Einstök fargjöld fullorðinna í kr. 15.
Einstök fargjöld barna í kr. 5.
Kort fullorðinna, 25 miðar, í kr. 330.
Kort barna, 20 miðar, í kr. 65.
Kort ellilífeyrisþega og öryrkja, 25 miðar, í kr.
165.
Forstöðumaður.
HEFUR ÞÚ
FENGIÐ MIÐA?
Hússtjórnarskólinn
á Akureyri auglýsir:
Stutt matreiöslunámskeið í gerbakstri og
smáréttum og pottréttum.
Einnig alhliða matreiðslunámskeið fyrir karlmenn,
hússtjórnunarnámskeið og matsveinanámskeið.
Uppl. í síma 24199.
Skólastjóri.
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns og fööur okkar
SVERRIS SVEINBJÖRNSSONAR
Bárugötu 9, Dalvík.
Fimm slátur í kassa á aðeins kr. 498.-
Lifur, hjörtu og nýru á kr. 82.50.- kg.
Rúgmjöl á kr. 11.20.- kg.
Eigum allt í sláturgerðina.
op»,a3 9-12’
fraK,‘
HAGKAUP
Reykjavík
Akureyri
Njarövik
Friðgerður Laufey Oddmundsdóttir
og börn
Frænka okkar
MATTHILDUR OLGEIRSDÓTTIR
Strandgötu 6
andaðist i Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 28. sept.
Fyrir hönd skyldfólks.
Sigríður Valdimarsdóttir,
Helga Valdimarsdóttir,
Gréta Halldórs.
Móöir okkar og tengdamóðir
SÓLEY TRYGGVADÓTTIR
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
sem andaðist 25. september verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
laugardaginn 1. október kl. 13.30.
Börn og tengdabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
sonar míns og bróður okkar
HREINS BJÖRNSSONAR
Stafholti 16, Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Ólafsdóttir
og systkini.
8 - DAGUR30. .septémibei; .1333,;