Dagur - 30.09.1983, Side 12
mam
Akureyri, föstudagur 30. september 1983
Opið á Bauta a\\a daga til 22.00.
Smiðjan opin aiia daga bæði í
hádeginu og á kvöldin.
tiftaniál á
Siglufirði
Mikið hitamái er nú í gangi á
Siglufírði. Hefur Sverrir
Sveinsson yfírmaður hitaveit-
unnar og rafveitunnar þar ver-
ið sakaður um misferli í starfí,
en málið snýst um yfírvinnu-
greiðslur til hans.
Sverrir hefur fengið greidda
tvo yfirvinnureikninga upp á
25.000 krónur vegna yfirstjórnar
hitaveitunnar og 92.870 krónur
vegna fækkunar í starfi útivistar-
manna hjá rafveitunni.
Málið hefur mikið verið til um-
ræðu í Veitunefnd á Siglufirði og
einnig hefur bæjarráð og bæjar-
stjórn fjallað um málið sem enn
er óafgreitt.
Hannes Baldvinsson formaður
Veitunefndar sem skrifaði upp á
umrædda reikninga á sínum tíma
hefur viðurkennt að um mistök
hafi verið að ræða af sinni hálfu
að undirrita stærri reikninginn.
Hefur Hannes lagt til að 25.000
króna reikningurinn verði
óbreyttur en 92.870 króna reikn-
ingurinn verði skorinn niður um
helming og 46.435 kr. dregnar af
veitustjóranum með mánaðarleg-
um afborgunum til áramóta.
í bæjarráði hafa margar tillög-
ur verið lagðar fram um af-
greiðslu málsins. Einnig var þar
bókað eftir Axel Axelssyni: „Ég
undirritaður var tilbúinn að leysa
þetta mál á þann sanngjarnasta
hátt sem mögulegt var, veitu-
stjóra í hag, eins og tillaga mín
bar með sér, þrátt fyrir þá skoð-
un mína að hér sé um hreint mis-
ferli í starfi að ræða....“
Bæjarstjórn Siglufjarðar tók
þetta mál fyrir á fundi nýlega og
var afgreiðslu þess frestað.
Samvinnuferðir með
stórsamning í Hollandi
Frá Gísla Sigurgeirssyni í Am-
sterdam;
Eysteinn Helgason, forstjóri
Samvinnuferða hefur undirritað
hér í Amsterdam nýjan samning
við Sporthuis centrum eigendur
sumarhúsanna í Eemhof og Kem-
pervennen sem eru íslendingum
að góðu kunn.
Samningur Samvirinuferða og
Sporthuis centrum hljóðar upp á
15 milljónir króna og tryggir
Samvinnuferðum 80 sumarhús í
Hollandi á næsta ári en það er
rúmlega helmings aukning frá í
ár. Alls geta því 400 íslendingar
dvalist samtímis í sumarhúsunum
og 3600 í heild á árinu sem er
veruleg aukning frá árinu í ár.
Sala á farmiðum í' þessar
sumarhúsaferðir hefst í októ-
ber og verða ferðirnar á sama
verði og gilti frá 1. júlí í sumar.
Um 400 bleikjur
veiddust á
Leirugardmum
Akureyringar eru fyrir löngu
hættir aö veita því athygli þó
einhverjir séu aö veiða á stöng
„Það verða í sjálfu sér ekki
miklar breytingar á veðrinu
fyrir norðan,“ sagði Knútur
Knudsen veðurfræðingur í
morgun.
„Þið fáið hæga austanátt og
það verður þurrt í innsveitum.
Hins vegar verður dálítill
strekkingur og smá él á miðum
og annesjum.“
inni á hinum svokallaða Leiru-
garði en þetta athæfí hefur
hins vegar vakið verðskuldaða
athygli ferðamanna og annarra
sem leið sína hafa lagt til
bæjarins. En hvernig skyldu
aflabrögðin vera?
Samkvæmt upplýsingum Jó-
hannesar Kristjánssonar, for-
stjóra hins kunna stangveiði-
manns þá er áætlað að 300-400
bleikjur hafi veiðst við Leiru-
garðinn og á Pollinum f sumar.
Slagar þessi veiði hátt upp í það
sem veiðst hefur í mörgum
bleikjuám hér norðanlands í
sumar og sagðist Jóhannes vita til
þess að margir hefðu veitt mjög
vel á Leirugarðinum.
- Ég hef sjálfur séð þarna
menn með mjög væna fiska allt
upp í fimm til sex punda bleikjur,
sagði Jóhannes og þessi orð hans
vekja menn til umhugsunar um
hvort ekki sé hægt að gera eitt-
hvað til þess að bæta aðstöðuna
á Leirugarðinum og víðar við
Pollinn og lífga þannig upp á
bæjarbraginn.
Á þriðjudag fór fram kennsla í því að slökkva olíueld á Akureyrarflugvelli
og er myndin hér að ofan tekin við það tækifæri. Mynd: gk-.
Slökkvi-
lids-
menn
a
æfingu
Undanfarna daga hefur staðið
yfir á Akureyri námskeið á
vegum Brunamálastofnunar
ríkisins, og er námskeiðið
haldið fyrir starfandi slökkvi-
liðsmenn víðs vegar af landinu.
Námskeiðinu er skipt niður í
marga þætti og er meðal annars
farið yfir uppbyggingu slökkvi-
liða, skipulagningu æfinga,
reykköfun, vinnu með hand-
slökkvitæki, elda í skipum og
húsum, notkun froðu við slökkvi-
störf, eldvarnareftirlit, viðhald
og rekstur tækja og olíuelda.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
eru 7 talsins auk þess sem
Slökkvilið Akureyrar sér um ýmsa
þætti þess. Námskeiðinu lýkur á
morgun og gangast slökkviliðs-
mennirnir 18 sem þátt tóku í því
undir próf.
Töboði Kvists tekið
Leyfi hefur verið veitt til að
hefja byggingu á 8 verka-
mannaíbúðum á Dalvík, og
verða þær í fjölbýlishúsi við
Karlsrauðatorg.
Á fundi Framkvæmdanefndar
verkamannabústaða á Dalvík
nýlega voru opnuð tilboð sem
bárust í fyrSta áfanga verksins, og
voru þau frá Tréverki h.f. og
Kvisti h.f. Um er að ræða jarð-
vinnu, burðarvirki og lagnir.
Kostnaðaráætlun fyrir þennan
hluta verksins var 839 þúsund 881
króna, og tilboðin tvö sem bárust
voru mjög nærri þeirri upphæð.
Tilboð Tréverks var upp á kr.
843.187 en tilboð Kvists kr.
841.539 og var ákveðið að taka
því tilboði.
Stjórn verkamannabústaða
hefur lagt til að bótnplötu verði
lokið fyrir næstu áramót og verði
tveim þriggja herbergja íbúðum
skilað fullfrágengnum í desember
á næsta ári, þremur íbúðum í
júní 1985 og seinustu þremur
íbúðunum í nóvember á því ári.
Hönnuður hússins er Haukur
Haraldsson á Akureyri og verður
hann jafnframt eftirlitsmaður
með byggingunni.