Dagur - 17.10.1983, Blaðsíða 7
Körfuknattleikur:
Slæmt tap Þórs gegn
ÍS í fyrsta leik
Tilfínnanlegur skortur á leik-
æfíngu auk slaks varnarleiks
varð Þórsurum að falli í fyrsta
leik þeirra í 1. deildar-
keppninni í ár. Leikið var gegn
ÍS í Reykjvaík og áttu stúdent-
ar ekki í nokkrum vandræðum
með að innbyrða sigurinn. í
lokin skildu 33 stig en úrslitin
urðu 103:70, ÍS í vil.
Það var aðeins allra fyrstu mín-
úturnar sem Þórsarar héldu í
stúdentana. Þórsarar voru yfir
8:7 en þá fór allt í baklás og stúd-
entarnir skoruðu hvert stigið af
öðru. Komust í 38:14 og skoruðu
því 31 stig gegn aðeins 6 stigum
Þórs á þessum tíma í leiknum.
- Þetta braut okkur algjörlega
niður. Ömurlegur kafli, sagði
Gylfi Kristjánsson, þjáifari Þórs
eftir leikinn.
Staðan í hálfleik var 54:28 en í
seinni hálfleiknum tókst Þórsur-
um nokkurn veginn að halda í
horfinu.
- Vörnin var í molum og
menn voru ragir í fráköstum.
Sóknarleikurinn var skárri en
samt allt of tilviljanakenndur,
sagði Gylfi, en ÍS spilaði svæð-
isvörn allan leikinn. Leikaðferð
sem að öllu jöfnu ætti að henta
Þórsliðinu vel.
Besti maður í Þórsliðinu í þess-
um leik var Jón Héðinsson, bar
af og skoraði 21 stig. Björn
Sveinsson skoraði 14 stig. Það
sama gerði nýliðinn Stefán Frið-
leifsson, hinn kunni frjálsíþrótta-
maður. Ingvar Jóhannsson gerði
8 stig, Konráð Óskarsson 6,
Guðmundur Björnsson 2, Valdi-
mar Júlíusson 2, Eiríkur Sig-
urðsson 2 og Ríkharð Lúðvíks-
son 1.
Hjá ÍS voru Árni Guðmunds-
son og Þorgeir Njálsson stiga-
hæstir með 18 stig en Kristinn
Jörundsson, þjálfari ÍS gerði 17.
Oskabyrjunin
dugði Þór ekki
80:70 gegn UMFG
Eftir ósigurinn gegn ÍS voru
menn ekki mjög bjartsýnir á að
Þórsurum tækist vel upp gegn
Grindavík í leiknum í gær en í
upphafi leit þó út fyrir að allt
gæti gerst. Björn Sveinsson
skoraði fyrstu fjögur stigin
fyrir Þór úr hraðaupphlaupum
og Konráð Óskarsson bætti
fjórum við og staðan því orðin
8:0 Þór í vil.
- Þetta var óskabyrjun hjá
okkur og við leiddum leikinn
lengst af í fyrri hálfleik. Grinda-
vík náði að vísu að minnka mun-
inn í 20:18 en við komumst fljót-
lega aftur í 8 stiga forystu, 28:20.
Þá kom einn af þessum slæmu
köflum og Grindvíkingarnir
breyttu stöðunni í 38:32 sér í hag,
sagði Gylfi Kristjánsson, þjálfari
Þórs í samtali við Dag eftir leik-
inn.
Það er hægt að taka undir það
með Gylfa að þetta var slæmur
kafli, því UMFG skoraði þarna
18 stig gegn aðeins 4 stigum Þórs.
Þrátt fyrir þennan slæma kafla,
gáfust Akureyringarnir ekki upp
og á 5. mínútu síðari hálfleiks
náðu þeir að jafna metin, 44:44.
Grindvíkingar komust fljótlega
Jón Héðinsson átti mjög góðan
leik gegn ÍS.
yfir aftur 56:46 en Þórsurum
tókst enn að minnka muninn, að
þessu sinni í tvö stig. Staðan
58:56 fyrir UMFG en þá kom enn
einn af þessum slæmu köflum
sem einkenndu suðurferð Þórs-
ara að þessu sinni og Grindvík-
ingar náðu á þessum tíma að gera
út um leikinn. Lokastaðan 80:70
UMFG í vil og það er því ekki
hægt að segja að Þórsarar byrji
íslandsmótið vel.
- Það var áberandi í þessum
leikjum okkar að við erum ekki í
nægilegri leikæfingu. Liðin fyrir
sunnan njóta þess að þau eru
búin að leika fjölda æfingaleikja
og hafa haft tíma til að fínpússa
leikkerfi sín. Það kom í ljós að
vörnin var ákaflega slök hjá okk-
ur en það voru þó vissir ljósir
punktar í seinni leiknum. Við
eigum að geta unnið bæði þessi
lið og gerum það vafalaust í
vetur, sagði Gylfi Kristjánsson,
þjálfari.
Stig Þórs gegn UMFG skor-
uðu: Konráð 20, Björn 10, Jón
10, Eiríkur 10, Ingvar 8, Guð-
mundur 6, Stefán 4 og Valdimar
2.
-ESE.
Skallagrímur sigraði Tindastól
Skallagrímur frá Borgarnesi varð
sigurvegari í 3. deildarkeppni í
knattspyrnu í ár.
Lið Skallagríms sigraði 4:0 í
þessum síðari leik liðanna í „felu-
úrslitum“ KSÍ. Fyrri úrslitaleikn-
um lauk einnig með sigri Skalla-
gríms 4:2.
Tekið skal fram að leikið var
úti. -ESE.
Gunnari
Gunnar Gíslason átti þokkalegan
leik er lið hans Osnabrúck lék
gegn Soelingen í þýsku 2. deild-
arkeppninni á laugardag.
Osnabrúck tapaði leiknum 0:2
og áttu flestir leikmenn liðsins
fremur dapran dag.
Gunnar Gíslason
skorar í
ieik með KA.
Erlingur brýst í gegn um vöm Hauka.
Mynd: ESE.
Stórleikur Þorleifs tryggði KA annað stigið gegn Haukum
Þaö var ekki burðugur handbolti
sem sýndur var í íþróttahöllinni
er KA og Haukar áttust þar við í
1. deildinni. Ótrúlegt fát og
klúður einkenndu leikinn og
hann var því ekki mikil skemmt-
un fyrir hina fjölmörgu áhorf-
endur sem flestir studdu vel við
bakið á KA. Það var því eftir
atvikum sanngjarnt, fyrst á ann-
að borð var verið að útdeila stig-
um í þessum leik, að leiknum
skyldi Ijúka með jafntefli, 19:19
og fyrsta stig KA í deildinni í ár
var þar með staðreynd.
Það voru Haukarnir sem mættu
mun ákveðnari til leiks og fyrstu
mínúturnar leit helst út fyrir að það
væru KA-mennirnir sem væru ný-
komnir úr erfiðri flugferð á tveim
litlum „rellum" í leiðindaveðri. En
reyndar voru það Haukarnir sem
þreytt höfðu flugið fyrir leikinn og
svo erfiðlega hafði það flug gengið
að fresta varð leiknum um 18 mín-
útur.
Gamla brýnið úr Haukum, Sig-
urgeir Marteinsson, skoraði fyrsta
mark leiksins og virðist það ekki
há honum mikið þó hann sé orðinn
grár fyrir hærum. Þvert á móti virt-
ist Sigurgeir „grár fyrir járnum“ og
barðist vel í leiknum en það sama
má reyndar segja um alla aldurs-
forseta liðanna. Ungu mennirnir
áttu ekki eins góðan dag.
Haukar komust svo í 2:0 með
marki Sigurjóns Sigurðssonar en
KA minnkaði muninn strax á eftir.
Erlingur átti þá hörkuskot í
þverslá og Sigurður Sigurðsson
fylgdi vel á eftir, sveif inn í teiginn
og vippaði yfir Gunnlaug í mark-
inu. Nú var komið að Jóni Hauka-
manni Haukssyni sem skoraði tvö
mörk úr vítum og staðan því orðin
4:1 Haukum í vil. Á þessum kafla
höfðu Erlingur og Sigurður misnot-
að víti og leikmenn í báðum liðum
klúðruðu hverju færinu á fætur
öðru. Allt var því í skralli, þangað
til gamli kappinn Þorleifur Anan-
íasson tók sig til og skoraði úr
hraðaupphlaupi. Sigurður bætti svo
öðru marki við fyrir KA og þegar
Erlingur skoraði af línu var staðan
allt í einu orðin jöfn 4:4. Aftur
svaraði Jón Hauksson með tveimur
mörkum, því fyrra úr víti en svo
komu þrjú KA mörk í röð frá Jó-
hanni Kristjánssyni og Þorleifi sem
skoraði sjötta og sjöunda mark
KA. Jón Hauksson gerði þá sitt
fimmta mark í röð og að sjálfsögðu
úr víti og bæði lið bættu svo við
tveimur mörkum fyrir hlé.
Staðan 9:9 í leikhléi en í seinni
hálfleik voru það KA-menn sem
voru mun frískari til að byrja með. Á
nokkrum mínútum var staðan orð-
in 12:9 og sérstaklega kættust
áhorfendur þegar Þorleifur sveif
inn úr bláhorninu, vatt upp á sig og
þrykkti boltanum í netið. KA náði
svo fjögurra marka forystu, komst
í 14:10 en þá tóku Haukarnir við
sér. Söxuðu smám saman á forskot-
ið og þegar þrjár mínútur voru til
leiksloka kom Sigurjón þeim yfir
19:18. Allt á suðupunkti og rétt
fyrir leikslok virtist svo sem hinn
leikreyndi leikmaður Sigurður Sig-
urðsson hefði gloprað öllu niður
fyrir KA. Misnotaði fyrst vítakast
en ruddist síðan eins og skriðdreki
inn í vörn Haukanna og góðir dóm-
arar, Stefán Arnaldsson og Ólafur
Haraldsson dæmdu réttilega auka-
kast. Ekki var Sigurður sáttur við
þetta og eftir kjaftbrúk var honum
vikið af leikvelli í tvær mínútur.
Staðan því allt annað en glæsileg en
Kristján Óskarsson náði samt að
skora jöfnunarmarkið rétt fyrir
leikslok.
Jafntefli í þessum leik voru sann-
gjörn úrslit, þó það hafi verið blóð-
ugt fyrir KA að tapa niður fjögurra
marka forystu þegar þeir höfðu
leikinn í hendi sér. Þetta geta leik-
menn KA kennt sér sjálfir um því
Haukarnir léku allt annað en vel
þegar þeir unnu þennan mun upp.
Það sem gerði gæfumuninn fyrir
þá var hins vegar að línumaðurinn
Ingimar Haraldsson fékk að at-
hafna sig að vild á línunni og hann
skoraði 13., 14. og 15. markið.
Eins og komið hefur fram var
þessi leikur allt annað en vel leikinn
og KA getur þakkað gömlu mönn-
unum Þorleifi og Sigurði fyrir að
ekki fór verr. Þorleifur átti mjög
góðan leik og skoraði sex mörk og
Sigurður fjögur. Kristján Óskars-
son gerði þrjú og þeir Erlingur, Jó-
hann bróðir hans og Jóhann Einars-
son gerðu tvö mörk hver. Jón
Hauksson var atkvæðamestur í liði
Haukanna með sjö mörk (6v) en
Þórir Gíslason gerði þrjú. Áthygli
vakti að gamla kempan Hörður
Sigmarsson, tannlæknirinn kunni,
boraði knettinum aðeins einu sinni
í netið. ESE.
Omögulegur leiktímí
Það hefur vakið mikla athygli
þeirra sem fylgjast með hand-
knattieik hér í bæ að flestir
heimaleikir KA hafa verið
settir á kl. 20 á föstudagskvöld-
um.
Þetta er vitaskuld alveg
ómöguiegur tími cins og kom
best í Ijós þegar KA og Ilaukar:
léku. I.eiknum seinkaði um 18
mínútur og seinni hálfleik seinkaði einnig nokkuð vegna handknattieikur. Látum það vera að cinn oe einn leikur sé
„mjólkurbikarsins“ í innan- Ieikinn á þessum tíma en þegar
hússknattspyrnu, seni á að það er orðin regla en ekki
vera fastur liður í ieikhléi á undantekning, þá er illt í efni.
heimaleikjum KA. Klukkan Laugardags- og sunnudags-
var því að verða 22 þegar leik eftirmiðdagar hljóta að vera
KA og Hauka lauk en svona nAl/lriiA hnlrl/ict i/rii'lti ri riAenm heppilegri tímar fyrir 1. deild- •II*IaÍL‘Í |vn hó noéé|| f|a>|i| ólllirf
hokkuu ViUia a oorum stöðum þar sem ieikinn er aritiKX oj^ j)u aam nt-iri anort*’ endur að koma á lcikina. Það
er a.m.k. erfltt að ímynda sér
að foreldrar barna gefí þeim
leyfi til að vera að paufast í
myrkrinu á föstudagskvöldum.
8agt er að leikið sé á föstu*
dagskvöldum að ósk forráða-
manna KA og þá hlýtur skýr-
ingin að vera sú að Höllin sé
ekki iaus á öðnim tímum. Eða
hvað? -ESE.
Góður Þórssigur
gegn Skagamönnum
- Þetta var hörkuleikur. Mikil
barátta og góð stemmning á
áhorfendapöllum en við létum
það ekkert hafa áhrif á okkur
og ungu strákarnir í liðinu
stóðu vel fyrir sínu, sagði Guð-
jón Magnússon, þjálfari og
leikmaður Þórs í handknatt-
leik í samtali við Dag eftir Ieik
Þórsara og Skagamanna í
þriðju deildinni.
Þór vann leikinn 19:18 en stað-
an í hálfleik var 8:9 ÍA í vil.
- Við lékum mjög góðan varn-
arleik og Davíð varði eins og
berserkur í markinu, sagði Guð-
IA - ÞOR 18:19
jón en Þórsliðið náði forystu
snemma í síðari hálfleik. Komust
Þórsarar tvisvar þrem mörkum
yfir og áttu góða möguleika á að
auka þann mun en Skagamenn
voru sterkir á lokasprettinum.
Tókst að minnka muninn í eitt
mark þegar skammt var til leiks-
loka og undir lok leiksins komst
einn Skagamaðurinn frír inn úr
horninu en sem betur fer fyrir
Þórsara, skaut hann framhjá og
leiktíminn rann út án þess að
Skagamönnum tækist að jafna.
- Ég er mjög ánægður með
þennan leik. Þeta er ungt lið,
nokkurs konar blanda af „göml-
um skörfum og hvítvoðungum“
en strákarnir stóðu fyllilega fyrir
sínu og börðust ákveðnir til
sigurs. Vörnin var mjög góð og
bæði Davíð og Júlíus vörðu mjög
vel. Þetta tel ég að hafi gert út-
slagið í leiknum, sagði Guðjón
Magnússon.
Mörk Þórsara í leiknum skoruðu:
Sigurður Pálsson 6, Guðjón
Magnússon 5, Gunnar Gunnars-
son 3, Aðalbjörn Svanlaugsson 2,
Gunnar M. Gunnarsson 1, Bald-
vin Hreiðarsson 1.
Pétur Ingólfsson skoraði 5
mörk fyrir ÍA.
Borgnesingarnir
voru burstaðir
SKALLAGRÍMUR - ÞÓR 17:38
Það var aldrei spurning hvort
liðið var sterkara, Þór eða
Skallagrímur, er liðin mættust
í þriðjudeildarkeppninni í
handknattleik í Borgarnesi á
laugardag. Þórsarar voru áber-
andi betri og unnu öruggan og
sanngjarnan sigur, 38:17.
Það var aðeins rétt í byrjun að
Skallagrímar héldu í við Þórsara,
en staðan í leikhléi var 16:10 Þór
í vil. í síðari hálfleik var nánast
eitt lið á vellinum og Þórsarar
notfærðu sér það og skoruðu 22
mörk gegn aðeins 7 mörkum
heimamanna. Lokatölur því
38:17.
- Við vorum staðráðnir í því
fyrir þennan leik að leika vel og
halda haus, þrátt fyrir að and-
stæðingarnir væru lélegir. Og það
tókst bærilega. Við slökuðum
aldrei á og leikurinn leystist
aldrei upp í kæruleysi, sagði
Guðjón Magnússon, þjálfari eftir
leikinn.
Guðjón sagði að honum litist
bara nokkuð vel á framhaldið í
vetur eftir þessa tvo fyrstu leiki.
Þórsarar hefðu farið þarna í erf-
iða keppnisferð og samheldni
liðsins hefði verið mikil. Það
hefði aldrei verið gefist upp.
- Þetta er a.m.k. lið sem á
framtíðina fyrir sér og ég er ekk-
ert hræddur við leikina í vetur,
sagði Guðjón, sem taldi að bar-
áttan kæmi fyrst og fremst til með
að standa á milli Aftureldingar,
Ármanns, Týs úr Eyjum og svo
náttúrulega Þórsara. Erfiðara
væri að spá um gengi Skaga-
manna þar sem að þeir hefðu tap-
að fimm stigum nú þegar.
Mörk Þórs gegn Skallagrími
skoruðu:
Sigurður 11, Guðjón 9, Ingólfur
Samúelsson 5, Gunnar Gunnars-
son 4, Aðalbjörn 3, Gunnar M.
Gunnarsson 1, Baldvin 1, Friðrik
Sigurðsson 1, Davíð Þorsteinsson
1.
ESE.
Enn einn
stórleikur
— hjá Alfreð Gíslasyni
Alfreð Gíslason átti mjög góð-
an leik í þýsku deildinni í gær-
kvöld er lið Essen sigraði Hútt-
enberg 21:14. Skoraði Alfreð
sex mörk í leiknum úr aðeins
sjö skottilraunum.
- Þetta Húttenberglið er
dæmigert heimalið og við áttum
ekki í nokkrum vandræðum meff
þá hér í Essen, sagði Alfreð er
Dagur náði tali af honum eftir
leikinn, seint í gærkvöld.
Alfreð var mjög ánægður með
hlut sinn í þessum leik og ekki
var ánægjan minni með að Essen
er nú komið í fimmta sæti deildar-
innar. Er Essen með átta stig en
fyrr í vikunni lék liðið gegn Berg-
kamen á útivelli. Það er hinn
kunni þjálfari og kjaftaskur,
Vlado Stenzel fyrrum. landsliðs-
þjálfari V-Þýskalands sem þjálfar
Bergkamen og sagði Alfreð að
Essen hefði átt góða möguleika
á sigri í leiknum. Það tókst þó
ekki og lauk leiknum með jafn-
tefli 17:17. Alfreð skoraði fimm
mörk.
Að sögn Alfreðs verður nú
gert hlé á leikjum í þýsku deild-
inni og kemur Alfreð heim f
landsleikinn gegn Tékkum ásamt
Sigurði Sveinssyni nk. fimmtu-
dag.
- Forráðamenn Essen vildu
fyrst ekki hleypa mér í leikinn
þannig að ég varð eiginlega að
fara í hart við þá. Þeir samþykktu
þó að lokum en ég varð að lofa að
koma heim á föstudaginn og
standa mig vel í leiknum gegn
Dankersen á laugardag, sagði Al-
freð og það er því greinilegt að
það er ekkert gamanmál að ætla
að komast heim til að leika með
landsliðinu.
-ESE.
vann KEA
Slippstöðin vann KEA 3:1 í
hinum svoltallaða „Mjólk-
urhikar ', er liðin áttust við
í leikhlé KA og Hauka sl.
föstudagskvöld.
Staðan var jöfn í hálfleik,
1:1 en góður leikur Arnars
Guðlaugssonar t seinni hálf-
leik tryggði SlippstÖðinni sigur.
Bestur í liði KEA var Gunn-
ar Austfjörð sem sýndi og
sannaði að hann hefur litlu
sem engu gleymt í knattspyrn-
unni. ESE.
Hér á eftir fara úrslitin á get-
raunaseðlinum. Rétt er að
taka það fram að leik Leicest-
er og Southuinpton var aflýst
eftir aðeins um 20 mínútna
leik. Þá var staöan 0-0 og
vcrða þau úrslit látin gilda á
ísl. seðlinum.
Arscnal - Coventry
A.-Villa - Birmingham
Everton -1 n«on
lpsvvich - QPR
I.eicester - Southampton
Man. Utd. - WBA
Sunderlund - Stoke
Watford - Norwich
West Ham - Liverpool
Wolves - Tottenham
Charlton - Man, City
Portsmouth - Shelf. Wed.
6 - DAGUR - 17. október 1983
17. október 1983 - DAGUR - 7