Dagur - 07.11.1983, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, mánudagur 7. nóvember 1983
125. tölublað
Leita verkefna
frá Grænlandi
allt til Sahara
Segja má að að Slippstöðin á
Akureyri leiti nú verkefna allt
frá Grænlandi og suður fyrir Sa-
hara í Afríku, en ástæðan fyrir
því að stöðin leitar nú verkefna
erlendis er sú að verkefna-
skortur blasir við, ekki hvað
Verður Cabo-Verde skipið aðeins
eitt af mörgum sem Slippstöðin
smíðar fyrir suðrænar þjóðir?
síst eftir að fréttir bárust af enn
frekara hruni þorskstofnsins.
Slippstöðin leitaði eftir við-
gerðarverkefnum hjá grænlensk-
um útgerðaraðilum og sendi í
því skyni upplýsingar um stöðina
til þeirra allra. Nú eru útboðslýs-
ingar farnar að berast frá græn-
lenskum útgerðarmönnum. Þá er
Slippstöðin nú að gera tilboð í
smíði fjögurra fiskiskipa fyrir
Kongó-menn. Um er að ræða
230-240 lesta skip og fara full-
trúar Slippstöðvarinnar líklega
utan í næstu viku til viðræðna um
málið. Þá hefur Slippstöðin einn-
ig leitað fyrir sér með verkefni í
Marokkó, en án árangurs enn
sem komið er.
Gunnar Ragnars sagði að svo
virtist sem íslendingar væru vel
samkeppnisfærir á þessu sviði á
erlendum mörkuðum. Til tals
hefur komið að leita samstarfs
við Útflutningsmiðstöð iðnaðar-
ins í því skyni að afla verkefna í
skipasmíðum erlendis.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins:
Þorsteinn Pálsson
kosinn formaður
Þorsteinn Pálsson var kosinn
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins með yfirburðum á lands-
fundi flokksins í gær. Hlaut
hann stuðning 56.7% þeirra
sem kusu, alls 608 atkvæði,
sem var 327 atkvæðum fleira
en Friðrik Sophusson fékk.
Hann fékk stuðning 26.8%
landsfundarfulltrúa, samtals
281 atkvæði, en Birgir ísleif-
ur Gunnarsson fékk 180 at-
kvæði, sem er 16.8% þeirra
1.072 sem kusu.
Friðrik Sophusson var endur-
kjörinn varaformaður flokksins
með 916 atkvæðum af 1002
mögulegum, sem er 91.5%. Sig-
rún Þorsteinsdóttir hlaut 26 at-
kvæði, Davíð Oddsson 25 at-
kvæði og Birgir ísleifur fékk 11
atkvæði, en hann gaf ekki kost á
sér í varaformannsembættið og
lýsti yfir stuðningi við Friðrik.
Geir Hallgrímsson hlaut flest
atkvæði í miðstjórn flokksins,
eða 902, en aðrir sem hlutu kosn-
ingu voru Björn Þórhallsson,
Davíð Oddsson, Einar Guðfinns-
son, Davíð Scheving Thorsteins-
son, Jónas Haralz, Óðinn Sig-
þórsson, Katrín Fjeldsted, Jón-
ína Mikaelsdóttir, Jón Magnús-
son og Björg Einarsdóttir. Áður
hafði þingflokkurinn tilnefnt
Matthías Mathiesen, Matthías
Bjamason, Albert Guðmunds-
son, Salome Þorkelsdóttur og
Pétur Sigurðsson í miðstjórnina.
Það vekur athygli, að enginn full-
trúi frá Norðurlandskjördæmi
eystra hefur náð kosningu í mið-
stjórnina.
Kristján er án efa með þeim afkastameiri á rjúpnavertíðinni að þessu sinni.
Hér er hann með 80 rjúpur ■ pokanum. Mynd. KGA.
Opnar
Iðntækni-
stofnunin
útibú á
Akureyri
„Þetta hefur verið rætt, en það
hefur erigin ákvörðun verið
tekin enn, en allt bendir þó til
þess að útibúið verði að veru-
leika fyrr en seinna,“ sagði
Ingjaldur Hannibalsson, for-
stjóri Iðntæknistofnunarinnar,
aðspurður um fyrirhugað úti-
bú frá stofnuninni á Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum
Ingjajds hefur þetta mál verið
rætt innan stofnunarinnar að
undanförnu, en hins vegar væri
stofnun útibúsins og rekstur þess
ekki inni á fjárhagsáætlun fyrir
næsta ár. Það væri þó ekki útilok-
að að fjárveiting fengist, en alla
vega ætti að vera hægt að gera
ráð fyrir útibúinu á fjárhagsáætl-
un fyrir árið 1985. Ingjaldur
sagði, að gert væri ráð fyrir 2-3
starfsmönnum við útibúið, sem
kæmu til með að veita almenna
þjónustu, auk þess sem þeir gætu
leitað til sérfræðinga stofnunar-
innar með öll sérverkefni.
Skaut 236 rjúpur
í fjórum ferðum
- Það hefur gengið mjög vel.
Ég hef farið fjórum sinnum og
haft 236 rjúpur samtals í þess-
um ferðum. Ég hef því ekki
yfir neinu að kvarta, sagði
Kristján Jóhannesson, bifvéla-
virki á Akureyri í samtali við
Dag er hann var spurður
hvernig gengið hefði í barátt-
unni við hvíta fuglinn í vetur.
Hið forna máltæki „Sjaldan
fellur eplið langt frá eikinni"
virðist eiga vel við um Kristján
því hann er sonur hins lands-
kunna veiðimanns Jóhannesar
Kristjánssonar.
Mest hefur Kristján fengið 80
rjúpur á einum degi í vetur en
það var fyrir skömmu í Ljósa-
vatnsskarði. Þá hélt hann af stað
með þrjá pakka af skotum eða 75
skot og þessi skotfæri dugðu til
að granda 68 rjúpum.
- Þetta var ákaflega erfitt. Það
er erfitt að skjóta í skóglendi og
mest var skotið á flugi, sagði
Kristján sem síðan þurfti að
sækja fleiri skot og afraksturinn
varð sem sagt 80 stykki sem mun
vera það mesta sem einn maður
hefur skotið hérlendis á þessum
vetri.
í hinum veiðiferðunum þrem
hafði Kristján 29, 56 og 71 stykki,
þannig að heildartalan er komin
upp í 236 og veturinn rétt nýbyrj-
aður.
- Ég hef ekki heyrt að mikið
hafi verið skotið af rjúpu annars
staðar í vetur. Veður hefur verið
það slæmt að menn hafa lítið far-
ið en þó hefur maður heyrt að
einstaka menn hafi gert það gott,
sagði Kristján Jóhannesson.
Rættvið