Dagur - 12.12.1983, Qupperneq 3
12. desember 1983 - DAGUR - 3
Tryggvi Marinósson, Smári Sigurðsson og Hallgrímur Indriðason eru jólatrjáasveinar Skógræktarfélagsins.
„Rauðgrenid er
alltaf vinsælast“
— Jólatrjáasala Skógræktarfélagsins hafin
„Trén líta vel út í ár, þannig
að ég hef trú á að barrheldni
þeirra verði góð,“ sagði
Hallgrímur Indriðason,
framkvæmdastjóri Skóg-
ræktarfélags Eyfírðinga, í
samtali við Dag, en jóla-
trjáasala félagsins hófst fyrir
helgina.
„Þetta verður fyrst og fremst
torgsala hjá okkur,“ sagði Hall-
grímur, „því við verðum með
trén úti við í göngugötunni í
Hafnarstræti, en auk þess höfum
við innhlaup í gamla „Nýja sölu-
turinn“, sem er Hafnarstræti 102.
t>ar verðum við með ýmiss konar
skreytingaefni; platta, búta og
köngla, auk greni- og furu-
greina.“
- Hvaða trjátegundir verðið
þið með?
„Rauðgrenið er alltaf vinsæl-
ast, en við verðum einnig með
stafafuru og fjallaþin. Tvær
síðastnefndu tegundirnar eru
barrheldnari heldur en rauð-
grenið, en ég hef samt trú á að
rauðgrenið standi sig núna. Við
erum búnir að hafa tré inni hjá
okkur í gróðrarstöðinni í hálfan
mánuð og barrið situr sem fastast
á sínum stað enn. En það er
nauðsynlegt að geyma trén á
köldum og skjólgóðum stað þar
til þau verða tekin inn og einnig
er gott að saga aðeins neðan af
endanum áður en fóturinn er
settur á. Síðan verður að passa
upp á að þau hafi alltaf nóg vatn
að drekka og best er að hafa tréð
á kaldasta staðnum í stofunni.“
- Hvað seljið þið mörg tré og
hvað kosta þau?
„Við reiknum með að selja um
1.000 tré og auk þess um tvö tonn
af greinum. Trén eru öll úr
skógarreitum í Eyjafirði og Þing-
eyjarsýslum, en hluti af greinun-
um er fluttur inn í samvinnu við
Landgræðslu ríkisins. Meðalstórt
tré af rauðgreni kostar 400-500
krónur, en furan og þinurinn eru
eitthvað dýrari. Allur ágóði af
sölunni rennur til skógræktunar
á Akureyri og í Eyjafir."
- Er búið að höggva öll trén?
„Já, það var gert í síðasta mán-
uði, þannig að fólk fær ekki nýrri
tré þó það bíði fram undir jól
með að kaupa jólatré, enda
skiptir það ekki máli hvað barr-
heldnina varðar, þótt tréð sé ný-
höggvið. En það er ástæða til að
hvetja fólk til að bíða ekki með
kaupin, því í upphafi sölunnar er
úrvalið mest og best.“
- Stóru trén sem prýða bæinn,
þau eru náttúrlega frá útlöndum?
„Nei, nei, það er liðin tíð.
Stærsta grenitréð sem kemur frá
okkur núna er 7-8 metra hátt og
það verður sett upp við kirkjuna.
Þetta tré er líklega um 35 ára
garnalt og mun hafa verið gróður-
sett hér á fyrstu dögum skógrækt-
arinnar í Kjarna. Þetta tré er sett
upp á kostnað KEA og nú sjáum
við þeim fyrir tré á þennan stað
annað árið í röð. Það má því
segja, að KEA-merkið sé komið
á kirkjuna og ekki skömm að
því.“
- Er mikið að gera hjá skóg-
ræktinni í desember?
„Já, það er nóg að gera í af-
urðasölunni, því þetta er í raun-
inni okkar sláturtfð. Við verðum
hér 4-6 við þetta fram að áramót-
um, en í janúar fara skógrækt-
armenn í sumarfrí. Þann tíma
notum við til að safna kröftum og
sinna fjölskyldum okkar, því það
er ekki mikill tími til þess yfir
sumarmánuðina,“ sagði Hall-
grímur Indriðason í lok samtals-
ins.
Þau síga I þessi fullorðnu jólatré, enda komin vel á fertugsaldurinn.
Myndir: GS.
KSS
. jM' m mm ■■•
ífíSý ; í‘ZÁi
m ■ wiFvitf •?<'
i/k fínníkfír P
' IdL-mí* I íM-t MM
r e*#~ íT" \ i ,
- r^VJlTO:* > ...: •>•
'.'-.'í.t 1 /ji*.
-
í«>ÍS&r4i
!iéskm
-
mpmisi®
*
vr<.
SíMÍlIS
w Akt
PlteglfegíSÉ
•'TV-i'ivv .•:
Úlwckspilx
Vandaður vestur-þýskur
skíðafatnaður
á börnin.
Sporthú^id,
HAFNARSTRÆTI 94
SIMI 24350