Dagur - 09.01.1984, Síða 1
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
67.árgangur Akureyri, mánudagur 9. janúar 1984 4. tölublað
1 Atvinnuleysi á Akureyri:
70,7% aukning milli
áranna 1982 og 1983!
Um áramótin voru 250 manns
á atvinnuleysisskrá á Akur-
eyri, 178 karlar og 72 konur. í
desember voru alls 3814 heilir
atvinnuleysisdagar í bænum en
sú tala svarar til þess að 173
hafi verið án atvinnu allan
þann mánuð.
Þessar upplýsingar eru frá
Hauki Torfasyni á Vinnumiðlun-
arskrifstofu Akureyrar. Haukur
sagði einnig að aukning atvinnu-
leysisdaga frá því í nóvember
næmi 690 heilum dögum.
Aukning atvinnuleysisdaga á
milli áranna 1982 og 1983 er hins
vegar hvorki meiri eða minni en
70,7%, þeir voru 16837 á árinu
1982 en 28737 á sl. ári.
„Það má segja að desember og
janúar séu ávallt með hæstu mán-
uðum hvað atvinnuleysi varðar,“
sagði Haukur. „Reynslan undan-
farin ár sýnir að upp úr því fer að
draga úr atvinnuleysi en síðan
eykst það aftur þegar skólafólkið
kemur á vinnumarkaðinn."
Jón Helgason, formaður Ein-
ingar, sagði að ástandið væri orð-
ið mjög slæmt hvað varðaði fé-
lagsmenn í Einingu og verra en
það hefði nokkru sinni verið á
síðustu árum. Mjög mikið væri
um að ungt fólk, frá 16 ára og um
og yfir tvítugt, lenti á atvinnu-
leysisskrá. Aukning hefði orðið
hjá fiskvinnslufólki, sem að hluta
stafaði af siglingum togara frá Ól-
afsfirði og Dalvík, og væri það
slæmt mál, auk þess sem búast
mætti við samdrætti í sjósókn og
þar með fiskvinnslunni vegna
þess að lítið væri hægt að veiða
og kvótakerfið gæti orðið til þess
að menn neyddust til að leggja
skipum. gk-hs
Þrettándagleði Þórs var haldin á Þórsvellinum að venju. Þessi árlega barnahátíð gerir alltaf lukku meðal barnanna,
og það eru ekki síst hin stórfenglegu tröll sem sjá um skemmtilegheitin. mynd: kg
Innheimta opinberra gjalda:
Tæpar 219 milljónir
króna komnar í kassann
— hjá bæjarsjóði Akureyrar fyrir áramót
Um áramót hafði tekist að inn-
heimta 92.2% af þeirri upp-
hæð sem Bæjarsjóður Akur-
eyrar hafði til innheimtu á síð-
asta ári.
Að sögn Valgarðs Baldvins-
sonar, bæjarritara námu álögð
gjöld ársins auk eldri gjalda og
dráttarvaxta samtals 237.410.000
krónum en af þessari upphæð
náðist að innheimta samtals
218.929.000 krónur.
Best gekk innheimta fasteigna-
gjalda en af þeim náðist inn
97,6% heildarálagningar. Af
álögðum útsvörum og aðstöðu-
gjöldum var greit 93,3% og inn-
heimtuhlutfall af edri gjöldum
nam 74,1%. Af dráttarvöxtum
var hlutfallið lægst eða 59,1%.
- Þetta er ósköp svipað og
undanfarin ár, kannski þó ívið
betra, sagði Valgarður Baldvins-
son í samtali við Dag. esc
Bifreið valt
við Fnjóská
Stór langferðabifreið í eigu
Bjöms Sigurðssonar á Húsavík
valt í gærkvöld við brúna á
Fnjóská og skemmdist talsvert.
Bifreiðin var að koma frá Akur-
eyri og voru með henni 6 farþegar.
Þegar hún kom í brekkuna við
brúna skipti engum togum að rok-
ið sem var mjög mikið tók bifreið-
ina og svipti henni út af veginum.
Valt hún eina veltu niður af háum
kanti sem er þama við veginn og
hafnaði síðan á hliðinni.
Sem fyrr sagði voru 6 farþegar
með bifreiðinni og var ein kona
flutt á sjúkrahús á Akureyri slösuð
á fæti. Um önnur meiðsli var ekki
að ræða og var það vel sloppið.
Bifreiðin sem er eins árs gömul er
talsvert skemmd eftir óhappið en
þó ekki mjög mikið miðað við að-
stæður allar. Önnur hlið hennar er
talsvert beygluð og rúður brotnar.
gk
Akureyri:
Vindhraðinn
komst mest
í 11 vindstig
Mikið suðvestan hvassviðri gekk
yfir landið í gærkvöld og í nótt.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Akureyri voru lengi vel
9.5-10 vindstig, en laust eftir
miðnættið komst vindhraðinn
upp í 11 vindstig. Ekki var vitað
um skemmdir á mannvirkjum,
nema hvað þakplötur fuku af
Grímsstöðum í Glerárhverfi.
Tveir bílar fuku út af veginum
hjá Möðruvöllum í Hörgárdal og
fleiri áttu í erfiðleikum.
Á meðan veðrið var sem verst
stöðvaði Akureyrarlögreglan alla
bíla á leið norður úr bænum og
sneri þeim til bæjarins aftur. gs