Dagur - 25.01.1984, Qupperneq 11
25. janúar 1984 - DAGUR -11
Álver við
Eyjafjörð?
Eins og fram kemur í forsíðufrétt, samþykkti meirihluti bæjarstjórnar ályktun á fundi sínum í
gær, þar sem lýst er yfir stuðningi við álver við Eyjafjörð. I ályktuninni segir orðrétt: „Bæjar-
stjórn Akureyrar telur æskilegt að næsta stóriðjuveri sem byggt verður á Islandi verið valinn
staður við Eyjafjörð, enda verði talið tryggt að rekstur versins stefni lífríki fjarðarins ekki í
hættu.“ Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks stóðu að samþykktinni,
en fulltrúar Kvennaframboðs og Alþýðubandalags greiddu atkvæði á móti. Á fundinum var
einnig samþykkt ályktun frá Alþýðubandalaginu um atvinnumál, jafnframt því sem samþykkt
var að efla Framkvæmdasjóð til uppbyggingar í atvinnumálum. Á forsíðu er viðtal við Jón Sig-
urðarson, en hér á eftir fara viðtöl við bæjarfulltrúana Sigurð J. Sigurðsson, Valgerði Bjarna-
dóttur og Sigríði Stefánsdóttur.
„Skemmir
ekki meiri-
hlutann“
- segir Valgerður
Bjarnadóttir
„Ég er hálf miður mín yfir
þessari álversályktun, þótt hún
komi í sjálfu sér ekkert á
óvart,“ sagði Valgerður
Bjarnadóttir, forseti bæjar-
stjórnar og bæjarfulltrúi
Kvennaframboðsins, í samtali
við Dag.
„Ég er ósammála þessari álykt-
un, eins og kemur fram í bókun
Kvennaframboðsins, þar sem við
teljum upp nokkur rök sem mæla
gegn stóriðju við Eyjafjörð. Við
bendum á að hún sé mjög fjár-
frek og hvert starf dýrt í upp-
byggingu, hún skapi fá framtíðar-
störf og því ekki fýsileg lausn á
aðsteðjandi atvinnuvanda. Þar
að auki hefur stóriðja félagslega
röskun í för með sér og stefnir
fjölbreyttu atvinnulífi á svæðinu
í hættu. Þess vegna viljum við að
öllum álvershugmyndum verði
gleymt.
Þegar við gerðum meirihluta-
samstarfið á sínum tíma, þá var
það skýrt tekið fram, að aðilar
væru óbundnir í afstöðu sinni til
álvers og þar tókum við sérstak-
lega fram andstöðu okkar við
slíkar hugmyndir. Það er þvf
ekkert nýtt í þessu, nema hvað
Framsóknarflokkurinn tekur
ákveðnari afstöðu með álveri en
áður. Það kemur mér svolítið á
óvart, að allir bæjarfulltrúar
Framsóknarflokksins skuli
standa að þessari álverssam-
þykkt. Sjálfstæðismenn eru nátt-
úrlega sigri hrósandi yfir þessum
ágreiningi í meirihlutanum, en
þetta er það sem við áttum von á
og þessi ágreiningur kemur ekki
til með að skemma samstarfið í
meirihlutanum á einn eða neinn
hátt,“ sagði Valgerður Bjarna-
dóttir. - GS.
Valgerður Bjarnadóttir.
Sigurður J. Sigurðsson.
Veikleika-
merki
vinstri
meirihlutans
-segir Sigurður J. Sigurösson
„Ég er mjög ánægður með
þessa samþykkt, sem er
ítrekun á fyrri samþykktum
bæjarstjórnar um þessi mál,
því það hefur lengi verið
meirihluti fyrir stóriðju
innan bæjarstjórnarinnar,
þó meirihluti vinstri flokk-
anna hafi ekki verið sam-
stíga í þessu máli,“ sagði
Sigurður J. Sigurðsson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, í samtali við Dag
að afloknum bæjarstjórnar-
fundi í gær.
„Hvað varðar meirihluta
Framsóknarflokksins,
Kvennaframboðs og Alþýðu-
bandalags í bæjarstjórn þá
hygg ég að þessi samþykkt
bæjarstjórnar breyti engu.
Þessir fíokkar gengu óbundnir
til þess samstarfs í upphafi
kjörtímabilsins, hvað varðar
afstöðu til stóriðju við Eyja-
fjörð, og þar var meira að
segja bókuð andstaða
Kvennafrantboðsins. Það
kemur því ekki á óvart, að.
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur þurfi að samein-
ast til að koma í gegn ályktun
sem þessari. En það sýnir
veikleika vinstri meirihlutans,
að hann skuli ekki geta verið
samstíga í atvinnuuppbygg-
ingu í bænum þegar á bjátar,“
sagði Sigurður J. Sigurðsson.
„Harma
stuðning
framsóknar-
manna“
- segir Sigríður Stefánsdóttir
„Ég vona að þessi samþykkt
bæjarstjórnar Akureyrar verði
ekki til þess að fólk fari að
einblína á álver,“ sagði Sig-
ríður Stefánsdóttir, bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, í
samtali við Dag.
„Ég tel nú satt að segja afskap-
lega litlar líkur á að hér komi ál-
ver á næstunni. Ég tel miklu
meiri líkur á, að ríkisstjórnin sé
þegar búin að gera samkomulag
um að stækka álverið í Straums-
vík og þar með er álver við Eyja-
fjörð ekki á dagskrá. Ég held að
það sé því réttara að líta sér nær
við atvinnuuppbyggingu á Eyja-
fjarðarsvæðinu.
Ég tel þessa ályktun meirihluta
bæjarstjórnar ekki veikleika-
merki með meirihluta okkar með
Framsóknarflokki og Kvenna-
framboðinu. Ágreiningur flokk-
anna í þessum málaflokki hefur
legið ljós fyrir frá upphafi og
hann er staðfestur á prenti í
málefnasamningnum. Enda er
þetta í rauninni ekki bæjarstjórn-
armál, því bæjarstjórn vinnur
ekki að þessu máli, t.d. með því
að leggja fram fjármuni. Þetta er
því ekki annað en skeyti til ríkis-
stjórnarinnar og hefur engin áhrif
á meirihlutasamstarfið. Við höf-
um nóg að gera í öðrum málum,
sem ég vona að við stöndum
saman að. En ég harma það, ef
stuðningur við álver er orðin
stefna allra framsóknarmanna.
En ég efa það, því ég hef heyrt í
framsóknarmönnum sem eru
ekkert hrifnir af þessu,“ sagði
Sigríður Stefánsdóttir í lok sam-
talsins. - GS.
Sigríður Stefánsdóttir.
Læða, dökkbröndótt og hvít að lit, tapaðist frá Brekkugötu 31 sl. mánudag.
Læðan sem heitir Hosa er með rauða hálsól. Þeir sem kynnu að hafa orðið
varir við ferðir hennar eru vinsamlegast beðnir að láta vita í síma 23952.
Harðfiskur og
hákarl til sölu
Fiskverkunarstöð
Útgerðarfélags
Akureyringa hf.
sími 25200.
Skíðaskólinn Hlíðarfjalli
Ný námskeið hefjast
á hverjum mánudegi.
Innritun og upplýsingar í Skíðastöðum símar
22280 og 22930.
Útboð - Akstur
Tilboð óskast í akstur á starfsfólki o.fl.
v/Kristnesspítala, milli spítalans og Akureyrar
frá 1. júní nk.
Tilboð skulu vera í samræmi við útboðslýsingu
sem afhent er af Bjarna B. Arthurssyni fram-
kvæmdarstjóra Kristnesspítala.
Tilboð verða opnuð kl. 11:00 föstudaginn 10.
febrúar nk.
Innkaupastofnun ríkisins
Verkalýðsfélagið Eining:
Stjórnarkjör
samræmi við lög félagsins fer kjör félagsstjórn-
ar, trúnaðarmannaráðs og endurskoðenda fram
að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.
Er hér með auglýst eftir framboðslistum, sem ber
að skila til skrifstofu félagsins í Skipagötu 12 á
Akureyri eigi síðar en kl. 12 á hádegi fimmtudag-
inn 2. febrúar nk.
Á hverjum lista skulu vera nöfn 7 stjórnarmanna
og 5 til vara, 28 fulltrúa í trúnaðarmannaráð og
jafnmargra til vara, 2ja endurskoðenda og eins til
vara.
Þá skulu fylgja hverjum lista meðmæli 100 full-
gildra félagsmanna.
Akureyri, 23. janúar 1984
Stjórn Verkalýðsfélagsins Einingar.
Áskrift, afgreiðsla,
auglýsingar.
Sími 24222