Dagur - 10.02.1984, Blaðsíða 12

Dagur - 10.02.1984, Blaðsíða 12
wrnrn Akureyri, föstudagur 10. febrúar 1984 Pantið borð í SMIÐJU tímanlega fyrir helgarnar, því nú þegar eru fullbókaðir nokkrir laugardagar. Þorvaldur Hallgrímsson, spii.tr dinnermúsík um helgar. ,,B jartsýnn á aukinn kvóta“ — segir Sverrir Leósson um loðnuveiðamar - Það veit enginn um það hvort leyft verður að veiða meira en kvótinn segir til um. Við verðum bara að vona það besta, sagði Garðar Guðmundsson, útgerð- armaður á Ólafsfirði eigandi loðnuveiðiskipsins Guðmundar Ólafs, er blaðamaður Dags ræddi við hann um loðnuveiðarnar. Að sögn Garðars þá hefur Guð- mundur Olafur landað tvisvar sinn- um að undanförnu samtals um 1150 tonnum. Áhöfnin á Guðmundi Ólafi hefur nú veitt samtals um 2100 tonn af 6800 tonna kvóta og sagðist Garð- ar búast við því að ef þessi aflahrota héldi áfram næstu vikur þá yrði ekki vandkvæðum bundið að fylla kvót- ann fljótlega. Tvö loðnuveiðiskip frá Akureyri hafa einnig verið að loðnuveiðum og sagði Hreiðar Valtýsson sem gerir Þórð Jónasson út að loðnuveiðarnar hefðu gengið mjög vel frá þeirra bæjardyrum séð. - Þeir hafa landað tvisvar sinnum, samtals um 1000 tonnum og við erum þá búnir að veiða um 3800 tonn af 6500 tonna kvóia, sagði Hreiðar. Líkt og Garðar vonaði hann að leyft yrði að veiða sem mest nú en ekki treysti Hreiðar sér til að spá um hvort leyft yrði að fara fram úr kvót- anum. - Þetta hefur gengið mjög vel. Súlan er nú í fjórðu og síðustu veiði- ferðinni í þessari hrotu. Þeir hafa fengið rúm 2200 tonn og eiga eftir um 700 tonn af 7500 tonna kvóta, sagði Sverrir Leósson, útgerðarmað- ur. Til marks um það hve veiðin hefur gengið vel sagði Sverrir að nú væri vika liðin frá því að Súlan hélt frá Akureyri en þrátt fyrir langa siglingu ,væri árangurinn þessi. - Ég er mjög bjartsýnn á að það verði leyft að veiða meira. Allir skipstjórar sem ég hef rætt við eru sammála um að það hafi aldrei verið eins mikið af loðnu og því finnst mér ekki óeðlilegt að leyfa a.m.k. 150 þúsund tonna viðbótarkvóta, sagði Sverrir Leósson. -ESE Utflutnlngs- fyrirtæki tirOalvíkur Aðilar á Dalvík hafa keypt fyrirtækið Sæplast hf. í Garða- bæ. Taka þeir við rekstri fyrir- tækisins í byrjun mars en fram- leiðsla á Dalvík ætti að geta hafist fljótlega eftir að fyrir- tækið verður flutt til Dalvíkur eða í byrjun mars. Þetta nýja fyrirtæki mun fram- leiða 500, 650, og 1000 lítra fisk- kör, línubala og bretti undir fisk- kassa og er stefnt að því að fram- leiðsla verði í gangi allan sólar- hringinn. 12 ný ársstörf skapast á Dalvík vegna tilkomu fyrir- tækisins en nokkru fleiri ættu þó að fá þar vinnu. Þessa dagana er verið að vinna að því að finna húsnæði og munu tvö hús einkum koma til greina. Blaðið fslendingur skýrir frá því í síðustu viku að Plastein- angrun verði aðili að fyrirtækinu en það er rangt. Plasteinangrun mun sjá um hráefnisöflun og markaðsmál fyrir Sæplast hf. en að öðru leyti á Plasteinangrun engan hlut að máli. Miklar vonir eru bundnar við þetta nýja fyrirtæki á Dalvík en Sæplast mun framleiða bæði fyrir innan- og utanlandsmarkað. - ESE S jálfvirkur símí - Þar með er sveitasíminn aflagður í firamfirmnum Öxnadal og Skriðuhreppi. Þar með verða byggðir Eyjafjarðar komnar í sjálfvirkt símasamband og Fnjóskadalur bætist við 1985,“ í næstu vlku verða aflagðir síð- ustu sveitasímarnir í Eyjafirði innan Akureyrar, en þá verða innstu bæirnir í Saurbæjar- hreppi tengdir sjálfvirku stöð- inni á Hrafnagili. „Þetta er verulegur áfangi fyrir okkur, en á næsta ári verður lagður sjálfvirkur sími á þá bæi sem eftir eru í Glæsibæjarhreppi, sagði Gísli Eyland umdæmis- stjóri Pósts og síma á Akureyri, í samtali við Dag. Það kom jafn- framt fram í samtalinu við Gísia, að árið 1986 er áætlað að allir landsmenn verði komnir í sjálf- virkt símasamband. -GS Þá er það hlákan og nóg er af snjónum sem rennur burt. Þá veitir svo sann- arlega ekki af að ræsin séu greiðfær. í morgun voru bæjarstarfsmenn að hreinsa ræsin svo að vatnið færi rétta leið. Mynd: KGA. Yfir- tekur Þór h.f. rekstur Haga? Viðræður hafa verið í gangi að undanförnu um að Trésmíða- verkstæðið Þór h.f. á Akureyri yfirtaki rekstur Haga h.f. sam- kvæmt heimildum Dags sem telja má áreiðanlegar. Sem kunnugt er hafa forráða- menn Haga h.f. lýst því yfir að þeir séu að hætta starfrækslu fyrirtækisins, og í viðtali við Dag sl. miðvikudag sagði Haukur Árnason forstjóri Haga að nú væri að hefjast hjá þeim rýmingar- sala á vörum fyrirtækisins og síð- an myndu þeir selja vélar, búnað og húsnæði fyrirtækisins. Halldór Rafnsson hjá Tré- smíðaverkstæðinu Þór h.f. vildi hvorki játa eða neita því að fyrir- tæki hans myndi taka yfir rekstur Haga h.f. er við ræddum við hann. Halldór sagði það rétt að málin hefðu verið rædd en ekkert hefði enn komið út úr þeim við- ræðum sem gæfi ástæðu til þess að tjá sig um það í fjölmiðlum. Talað hefur verið um að Þór h.f. muni hefja samvinnu við ÍKEA ef af þessu verður, og yrði Þór h.f. framleiðsluaðili fyrir þetta þekkta húsgagnafyrirtæki. gk-- Veður „Þið megið eiga von á hlýindaveðri einhverja næstu dagana. Það er búist við suðvestanátt um helgina og að vind lægi eitthvað, jafnvel strax í kvöld. Hins vegar má reikna með að hvessi aftur aðfaranótt sunnu- dags og úrkoma gæti orð- ið meiri á sunnudag en verið hefur, þ.e. rigning. Snjó tekur fljótt upp við þessar aðstæður,“ sagði veðurfræðingur í morgun. Svörtu pottamir og pönnumar frá Kúnígúnd slá í gegn Ný sending var að koma. Þegar þessi gæðavara er komin á eldavélina verður allt miklu auðveldara

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.