Dagur - 20.02.1984, Blaðsíða 7
6 - DAGUR— 20. febrúar 1984
20. febrúar 1984 - DAGUR - 7
Óskar Gunnarsson Þórsari í viðureign við einn leikmanna Tindastóls, Þórsarar mörðu sigur í þessum leik.
Mynd KGA.
Þórsarar sigruðu
í Bautamótinu
- Unnu c-lið KA í
Þórsarar urðu sigurvegarar í
Bautamótinu í knattspyrnu
sem haldið var um helgina í
íþróttahöllinni. Þeir unnu c-Iið
KA í úrslitum með 6 mörkum
gegn einu.
18 lið hófu keppni á laugardag
og léku í fjórum riðlum, komust
síðan tvö lið úr hverjum riðli
áfram í undanúrslitin á sunnudag
Kraftlyftingar:
Tveir
héðan til
Hveragerðis
Þeir Helgi Eðvarðsson og Ás-
grímur Bragi Konráðsson
verða fulltrúar Akureyringa á
íslandsmóti í kraftlyftingum
fyrir 23 ára og yngri sem haldið
verður í Hveragerði 25. febrú-
ar nk.
Þetta eru báðir ungir og efni-
legir kraftlyftingamenn og þeir
tóku þátt í sínu fyrsta móti nú um
síðustu helgi. Þar lyfti Helgi sem
keppti í +125 kg flokki samtals
500 kg sem er mjög góður árang-
ur á fyrsta móti. Helgi lyfti 190 kg
í hnébeygju, 100 kg í bekkpressu
og 210 kg í réttstöðulyftu.
Bragi lyfti 150 kg í hnébeygju,
90 kg í bekkpressu og 220 kg í
réttstöðulyftu sem er hans lang-
samlega besta grein. Samtals eru
þetta 460 kg en Bragi keppti í 110
kg flokki.
Það er full ástæða til þess að
búast við því að þeir félagar
standi sig vel á íslandsmótinu
því þarna eru mikil efni á ferð.
Báðir hafa æft kraftlyftingar um
nokkurra mánaða skeið, Helgi í
þrjá mánuði og Bragi í tvo, þann-
igaðþeirraerframtíðin. -ESE.
úrslitum með sex mörkum gegn einu
og var skipt í tvo riðla. Þessi lið
voru a-,b- og c-lið KA ásamt
Reyni sem léku í öðrum riðlin-
um, og a- og b-lið Þórs, Vorboð-
inn og Völsungur sem léku í
hinum.
A-lið Þórs sem hafði átt slaka
leiki á laugardag og rétt náð í
undanúrslitin var ekki í vand-
ræðum með að vinna sigur í sín-
um riðli, en í riðli KA-liðanna og
Reynis gekk ýmislegt á. C-lið KA
sem skipað var „gömlum" þekkt-
um köppum eins og Gunnari
Blöndal, Eyjólfi Ágústssyni, Þor-
móði Einarssyni, Kára Árnasyni,
Sigbirni Gunnarssyni og Elmari
Geirssyni tók sig nefnilega til og
vann riðilinn. Þessir kappar
gerðu jafntefli gegn a-liði KÁ og
unnu riðilinn á hagstæðara
markahlutfalli.
Reynivík
sigraði
Reynivík náði að jafna metin
við KA er liðin léku 4. og síð-
asta leik sinn í 2. deildinni í
blaki um helgina.
Fyrir leikinn hafði KA unnið tvo
leiki en Reynivík einn, en sem fyrr
sagði sigraði Reynivík núna. Úr-
slitin urðu 3:2 og eins og venju-
lega stóð viðureign liðanna yfir í
um 2 klukkustundir. Einstaka
hrinur fóru þannig að Reynivík
vann fyrstu hrinuna 15:11, KA
þá næstu 15:8, Reynivík þá þriðju
15:12, KA næstu 15:10 en Reyni-
vík hafði betur á lokasprettinum
og vann 15:13 í æsispennandi
viðureign.
Bæði þessi lið komast í úrslit 2.
deildarinnar og verða þau háð á
Akureyri 13. og 14. apríl.
Skautafélag Akureyrar sigraði
b-lið KA 3:1 og í 1. deild kvenna
vann Völsungur lið KA 3:0,15:5,
15:8 og 15:3.
Það kom því í hlut a-liðsins að
leika um 3. sætið gegn Völsungi
og var það hörkuleikur. Ekkert
mark var skorað í fyrri hálfleik
og ekki fyrr en Birni Olgeirssyni
hafði verið sýnt rauða spjaldið
fyrir kjaftbrúk og hann sendur í
bað. Þá skoraði Njáll Eiðsson
fyrir KA, Kristján Olgeirsson
jafnaði fyrir Völsung en Njáll
innsiglaði sigur KA rétt fyrir
leikslok. Úrslitin 2:1 og Völsung-
ar voru reiðir er þeir yfirgáfu
salinn.
Það voru því Þór og c-lið KA
sem léku til úrslita og Þórsarar
höfðu yfirburði. Gunnar Blöndal
skoraði að vísu fyrsta markið fyr-
ir KA en Bjarni Sveinbjörnsson
svaraði með 3 fyrir Þór. Þá kom
Halldór Áskelsson með tvö í
viðbót og Nói Björnsson átti
lokaorðið, úrslitin 6:1.
Mótið tókst mjög vel, mikið
um skemmtilegar viðureignir og
framkvæmdin mjög góð. Þetta
var í annað skiptið sem mótið er
haldið og er ekki nokkur vafi á
því að það hefur þegar treyst sig
í sessi og verður árlegur viðburð-
ur í framtíðinni.
Daníel hlaut
Hermannsbikarinn
-og Guðrún H. Kristjánsdóttir Helgubikarinn
- slök þátttaka í Hermannsmótinu
Hermannsmótið var haldið í
Hlíðarfjalli um helgina og var
keppt í svigi og stórsvigi. Um
30 keppendur mættu þar tU
Þór þokast
að 1. deild
Handboltastúlkurnar úr Þór
þokuðust enn nær sæti í 1.
deildinni næsta keppnistímabil
er þær sigruðu Hauka frá
Hafnarfirði með 19 mörkum
gegn 13 um helgina. Virðist
ekkert geta komið í veg fyrir
að Þór og ÍBV flytjist í 1.
deild.
Útlitið var þó ekki gott hjá Þór
gegn Haukunum, en Haukastúlk-
urnar komust í 6:1 og 11:7. Þór
jafnaði hins vegar 12:12 og gott
betur því á töflunni sáust tölurn-
ar 19:12 rétt fyrir leikslok.
Köflóttur leikur hjá Þór en
aldrei spurning um hvar sigurinn
myndi lenda er á leikinn leið.
Inga Huld Pálsdóttir skoraði 7
mörk fyrir Þór, Guðrún Krist-
jánsdóttir 4, Hanna Rúna Jó-
hannsdóttir og Sólveig Birgis-
dóttir 3 hvor og Þórunn Sigurðar-
dóttir 2. Ragnheiður Júlíusdóttir
skoraði 5 fyrir Hauka.
leiks sem verður að telja mjög
slaka þátttöku þegar um svo-
kaliað bikarmót er að ræða en
það eru opin stigamót. Þannig
komu aðeins 3 keppendur frá
Reykjavík, ísafirði og Húsavík
og tveir frá Siglufirði og
Dalvík.
En það var hart barist í brekk-
unum engu að síður og halda
stúlkurnar frá Akureyri upptekn-
um hætti og raða sér í öll efstu
sætin. Hjá þeim urðu úrslit sem
hér segir:
Svig:
Guðrún H. Kristjánsd. A 101,48
Anna M. Malmquist A 102,46
Ásta Ásmundsdóttir A 102,89
Stórsvig:
Signe Viðarsdóttir A 128,53
Guðrún H. Kristjánsd.A 129,03
Anna M. Malmquist A 132,30
í kvennaflokki var einnig
keppt um Helgubikarinn sem er
veittur fyrir bestan árangur
samanlagt og hann hlaut Guðrún
H. Kristjánsdóttir.
í karlaflokki var ekki síður
hart barist og þar urðu keppend-
ur frá Akureyri að láta sér nægja
3. sætið í báðum greinum. Þar
urðu úrslit þessi:
Svig:
Daniel Hilmarsson D 93,15
Árni G. Árnason H 93,70
Ólafur Harðarson A94,33
Jónas og
Bjarni
fara ekki
„Við erum hættir við þessa Nor-
egsferð og verðum áfram á Akur-
eyri“ sögðu þeir Jónas Róberts-
son og Bjarni Sveinbjörnsson
knattspyrnumenn úr Þór er Dag-
ur ræddi við þá í gær, en til hafði
staðið að þeir færu til Noregs að
Ætla að setja met
í maraþonknattspyrnu
Eins og við skýrðum frá á
dögunum er ætlunin að meist-
araflokksiið KA fari í æfinga-
ferð til Ipswich í aprfl til undir-
búnings fyrir keppnistímabilið
sem hefst í maí.
Einn liðurinn í fjármögnun
þessarar ferðar er maraþonknatt-
spyrna, en um næstu helgi ætla 8
leikmenn KA að reyna að setja
íslandsmet í innanhússknatt-
spyrnu í íþróttaskemmunni.
íslandsmetið mun vera um 51
klukkustund og hyggjast KA-
menn a.m.k. leika í 52-53
klukkustundir. Þeir ætla að hefja
keppni á föstudagskvöldið kl. 22
og leika því væntanlega fram
undir hádegi á sunnudaginn.
Það verða 8 leikmenn sem taka
Stórsvig:
Árni G. Árnason H 118,95
Daníel Hilmarsson D 119,13
Björn Víkingsson A 120,13
í karlaflokki var keppt um
Hermannsbikarinn sem veittur er
fyrir bestan samanlagðan árangur
og hann hlaut að þessu sinni
Daníel Hilmarsson frá Dalvík.
Næstu mót eru Akureyrarmót
í svigi og stórsvigi fyrir 13—14 ára
sem fram fer um næstu helgi. Þá
helgi verður einnig Bikarmót á
Húsavík og vonandi verður fjöl-
mennt þar. Akureyrarmót í svigi
og stórsvigi fyrir karla og konur
verður svo um aðra helgi.
Erlingur Kristjánsson fær óblíðar móttökur hjá KR-vörninni.
Mynd:KGA
KA tapaði enn
niður forskoti sínu
- og KR-ingar hrósuðu sigri þótt ekki nægði það þeim
til að komast í úrslitakeppnina
leika knattspyrnu þar.
Er ekki að efa að þessar fregnir
gleðja knattspyrnuáhugamenn og
þá sérstaklega Þórsara, enda þeir
Jónas og Bjarni tveir af máttar-
stólpum liðsins.
þátt í þessari maraþonknatt-
spyrnu og leika þeir allir allan
tímann og fá 5 mínútna hvíld á
klukkustundar fresti. Ef einn
leikmanna gefst upp einhverra
hluta vegna er keppninni lokið
þar með. Áhorfendum verður
heimilt að fylgjast með þessari
þolraun KA, því Skemman verð-
ur opin allan þann tíma sem
leikurinn stendur yfir.
„Þú mátt alveg hafa það eftir
mér að á meðan KA liðið, og
þá á ég bæði við þá sem eru inni
á vellinum og þá sem eru á
bekknum, ná ekki tökum á
skapi sínu og hætta þessu rif-
rildi og sífellda röfli, þá vinnur
liðið ekki leik,“ sagði Jóhannes
Stefánsson KR-ingur eftir leik
KA og KR á föstudagskvöld.
„Ég þekki þetta vandamál vel.
Svona var þetta hjá okkur KR-
ingum og á meðan töpuðum við.
En við settumst niður og ræddum
þessi mál og þá komust þau í lag.
Framkoma sumra KA-manna í
leiknum gegn okkur var alls ekki
til fyrirmyndar og skaðaði mikið
þá sjálfra“ bætti Jóhannes við.
- Það er nokkuð mikill sann-
leikur í þessum orðum, því
miður. KA-menn fuku út af hver
af öðrum í síðari hálfleiknum þeg-
ar mest reyndi á að standa saman.
Það er í sjálfu sér í lagi að menn
fái gult spjald fyrir baráttu, en
tveir leikmenn viku af velli vegna
röfls við dómarana, annar með
rautt spjald á bakinu og í kjölfarið
fylgdi liðsstjórinn Guðmundur
Lárusson. Það er aðall hvers liðs
að eflast við mótlæti og það er
einn af þeim hlutum sem vantar
hjá KA.
Annar hlutur sem var áberandi
í þessum leik var að liðið hafði
ekkert á takteinum þegar Jón
Kristjánsson var tekinn úr
umferð, bara hnoð, og leikmenn
glopruðu boltanum hvað eftir
annað og stöðunni úr 15:13 í
15:18. Sorglegur kafli eftir mjög
góðan kafla þar á undan og svo
virtist þá að KR-ingar væru að
brotna.
Annars var leikurinn ávallt
mj ög j afn, og ekki leiðinlegur á að
horfa, hraustlega barist og sæmi-
legar kaflar sáust þótt yfir höfuð
væri handboltinn ekki alltaf tii
fegurðar. Staðan í hálfleik 9:9 og
KA komst síðan í 13:10 og 15:13
semfyrr sagði.
KA náði því ekki að vinna sigur
í deildarkeppninni þótt oft mun-
aði litlu. Nú er það úrslitakeppnin
sem bíður, og hún verður ekkert
annað en skóli fyrir liðið undir
átökin í 2. deildinni næsta keppn-
istímabil.
Dómarar í þessum leik voru
Ólafur Haraldsson og Stefán Arn-
aldsson. Það er í sjálfu sér í lagi að
taka hart á hlutunum eins og þeir
gerðu á köflum í þessum leik, en
samræmi verður að vera í aðgerð-
um dómara. Svo var ekki. KA-
menn fuku út af fyrir minniháttar
röfl, en svo dæmi sé tekið þá gilti
það ekki um alla. Þannig komst
Jóhannes Stefánsson KR-ingur
sem formælti röfli KA-manna hér
að framan upp með það að mót-
mæla dómi með orðum „það var
ekkert á þetta helvítis fíflið þitt“,
á sama tíma og vægari mótmæli
KA-manna kostuðu brott-
rekstur.
MÖRK KA: Jón Kristjánsson 6,
Erlingur Kristjánsson 4, Logi
Einarsson 3, Þorleifur Ananías-
son, Magnús Birgisson og Sigurð-
ur Sigurðsson 1 hver. Markahæstir
KR-inga voru Akureyringarnir
Jakob Jónsson með 6 og Gunnar
Gíslason með 5.
Bestu menn KA voru þeir
Magnús Gauti í markinu sem
varði mjög vel á köflum, Jón
Kristjánsson sem átti mjög góða
kafla en mætti vera ákveðnari.
Aðrir voru jafnir, vörnin mjög
góð á köflum og með meiri yfir-
vegun í sókninni og betri móral
hefði sigur hæglega getað unnist.
Tveir
heimaleikir
hjá Þór
Þórsarar eiga aö leika tvo leiki í 1. deildinni
í körfuknattleik í þessari viku, og verða þeir
báðir háðir í íþróttahöllinni á Akureyri.
Sá fyrri verður á fínuntudagskvöld og hefst
liann kl. 20. Þá verða Framarar andstæðing-
ar Þórs, en þessi liö léku einmitt syðra á
dögunum. Þá sigraði Fram með 5 stiga inun
í sögulegum leik. Þegar liöin léku fyrri
heimaleik Þórs á Akureyri í haust sigraði
Þór liins vegar nokkuð örugglega.
í leik liðanna á dögunum vantaði marga
leikmenn í lið Þórs, en reiknað er með að
einhverjir þeirra geti leikið á fímmtudag.
Hinn leikurinn er gegn UMFG og verður
hann í Höllinni kl. 14 á laugardag. UMFG er
eina liðið sem Þór hel'ur ekki unnið það sem
af er mótinu, og hyggjast Þórsarar nú gera
hragarbót þar á.
Vilja
í Birki
Það mun vera Ijóst að Valsmenn eiga í erfið-
lcikum með að ná saman í frambærilegan
hóp leikmanna fyrir komandi keppnistímabil
í knattspyrnu, en þeir Hlíðarendamenn eru
með allar klær úti á eftir leikmönnum sein
þeir reyna að lokka til sín.
Finn þessara leikmanna er markvöröurinn
Birkir Kristinsson sem ákveöiö hefur að
leika með KA í sumar, en hann lék með Fin-
herja á Vopnafíröi sl. sumar. Hafa forráöa-
menn Vals hvað eftir annað haft samband
við Birki og boöiö honum uð koiua til sín á
æfíngar meö það fyrir augum að ná honuin
til sín í sumar.
Stefán Gunnlaugsson formaður knatt-
spyrnudeildar KA hafði að sjálfsögðu spurn-
ir af þessu og hringdi hann í formanninn hjá
Val til að fá skýringar hjá honum á þessu.
Var helst á Valsmanniniim að skilja að þeir
vildu að Birkir æfði með þeim þar til hann
færi noröur og spilaði síöan ineð Val sumarið
1985. Stefán Ijáði honum að Birkir æfði eftir
„æfmgaprógrammi“ frá þjálfura sínum á Ak-
ureyri, varö Valsinaðurinn reiöur við þessar
upplýsingar og varð fátt um kveðjur.
Hið aumasta yfirklór
Meðfylgjandi bréf er samhljóða
bréfí sendu íþróttafélögunum á
Akureyri og íþróttaráði.
Vegna skrifa í Degi um þennan
atburð er það ósk okkar í stjórn
HSÍ að fá bréf okkar birt í blaðinu.
Virðingarfyllst,
Handknattleikssamband íslands
Jón Erlendsson.
Ágætu félagar,
Laugardaginn 28. jan. sl. var fyrir-
hugað að Islendingar og Norðmenn
lékju landsleik í handknattleik á
Akureyri. Allur undirbúningur að
leiknum var í höndum norðanmanna
og vel á málum haldið eins og
vænta mátti. Frá upphafi var öllum,
sem málinu tengdust, gert ljóst að
ekki kæmi til greina að leika nyrðra
á sunnudag. Stjórn HSÍ treysti sér
ekki til að taka þá áhættu að liðin
yrðu veðurteppt á Akureyri. Það
hefði valdið því að Norðmenn
hefðu misst af beinu flugi til Oslóar
á mánudagsmorgun en orðið af fara
um Kaupmannahöfn á þriðjudag.
Kostnaður af slíkri seinkun hefði
orðið meiri en við erum menn fyrir
í svipinn.
Þegar ljóst var að ekki yrði kom-
ist norður á laugardag, en vitað um
hinn mikla áhuga fyrir leiknum á
Akureyri og einnig að forráðamenn
beggja íþróttafélaganna höfðu lagt
mikla vinnu í undirbúning, ákvað
formaður HSÍ að kanna á ný innan
stjórnar hvort taka ætti áhættuna af
sunnudagsleik, þar sem veðurútlit
var mjög gott. Tími var naumur og
erfitt að ná til allra stjórnarmanna,
en endanleg niðurstaða varð sú að
fyrri ákvörðun stóð óbreytt. Veður-
guðirnir og erfiðar fjárreiður hand-
knattleikssambandsins komu í veg
fyrir að landsleikur færi fram á Ak-
ureyri að þessu sinni.
Stjórn HSÍ metur mikils þann
áhuga sem sýndi sig vera fyrir
leiknum á Akureyri og þakkar
öllum sem lögðu hönd á plóginn og
biðst afsökunar á því hvernig til
tókst.
Stjórn HSÍ mun leggja alla
áherslu á að koma á landsleik
nyrðra sem fyrst. Allar líkur eru á
að sjálfir heimsmeistararnir í hand-
knattleik, Rússar, heimsæki okkur
í mars og hver veit nema að þá tak-
ist að bæta norðanmönnum Norð-
mannaleikinn.
Með íþróttakveðju,
f.h. stjómar HSI
Friðrik Guðmundsson.
Athugasemd
Þetta bréf HSÍ er enn ein skraut-
fjöður í hatt þeirra sem þar fara
með völd, og furðulegt að það skuli
hafa tekið langan tíma að fá Friðrik
„leiðtoga" til þess að skrifa undir
það eins og heyrst hefur.
En. í bréfinu er sagt hreint út að
aldrei hafi staðið til að spila á sunn-
udaginn og hafi norðanmönnum
verið það ljóst. Síðan er sagt að for-
maður HSÍ hafi kannað innan
stjórnar HSÍ „hvort taka ætti áhætt-
una af sunnudagsleik.." Það mun
hafa verið eftir að hann tilkynnti
ákveðið norður á Akureyri að
ieikurinn yrði á sunnudaginn.
En síðan kemur enn ein þver-
sögnin: „Stjórn HSÍ metur mikils
þann áhuga sem sýndi sig vera fyrir
leiknum á Akureyri og þakkar
öllum sem lögðu hönd á plóginn og
biðst afsökunar á því hvemig til
tókst.
Á hverju er verið að biðjast afs-
ökunar? Jú, þessir menn vita upp á
sig skömmina þótt þeir þori ekki að
viðurkenna það berum orðum. Það
hefði verið gaman að sjá undirskrift
Gunnars Gunnarssonar undir þessu
bréfi, en hann er formaður Lands-
iiðsnefndar og situr einnig í stjórn
HSÍ. Hann viðhafði nefnilega þau
orð í símtali við undirritaðan að
Friðrik formaður hefði sagt stjórn-
armönnum HSÍ ósatt um fram-
vindu mála á laugardaginn áður en
hann kannaði það innan stjórnar-
innar hvort menn vildu fara norður
með leikinn. Þetta bréf er hið aum-
asta yfirklór.
Gylfi Kristjánsson.