Dagur - 14.03.1984, Qupperneq 4
4 - DAGUR -14. mars 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
S(MI: 24222
ÁSKRIFT KR. 130 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 18 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Friðlýsing Norður-
Atlantshafs
Guðmundur Bjarnason, alþingismaður, og sex
aðrir þingmenn Framsóknarflokksins, hafa lagt
fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um al-
þjóðlega ráðstefnu um afvopnun á Norður-Atl-
antshafi. Tilgangur ráðstefnunnar verði að
kynna viðhorf íslendinga til hins geigvænlega
kjarnorkuvígbúnaðar sem nú fer fram í hafinu
kringum ísland og þá afstöðu íslendinga að þeir
telji tilveru þjóðar sinnar ógnað með þeirri
stefnu sem þessi mál hafa verið og eru að taka.
Á ráðstefnunni verði ítarlega kynnt þau sjón-
armið íslendinga að þeir geti með engu móti
unað þeirri þróun mála að kjarnorkuveldin freisti
þess að tryggja eigin hag með því að fjölga kaf-
bátum búnum kjarnorkuvopnum í hafinu við
ísland. Gert er ráð fyrir í tillögunni að til ráð-
stefnunnar verði boðaðir fulltrúar þeirra þjóða
sem ráða yfir kjarnorkuvopnum og þeirra ríkja
sem liggja að N.-Atlantshafi.
Þessi tillaga var fyrst flutt af Guðmundi G.
Þórarinssyni og öðrum þingmönnum Framsókn-
arflokksins fyrir þremur árum en hún hlaut ekki
fullnaðarafgreiðslu þá. í greinargerð með tillög-
unni segir m.a.:
„Nú stendur fyrir dyrum ný barátta, ný land-
helgisbarátta. Tilveru íslendinga er ógnað með
gífurlegum kjarnorkuvígbúnaði í hafinu við
landið. Á málþingi þjóðanna verða íslendingar
enn á ný að kveðja sér hljóðs og krefjast öryggis
fyrir þjóð sína. Enn á ný verður að beita rökum,
ræðuhöldum, fundarhöldum og samningum.
Málstaðurinn, málstaður lífsins, hlýtur að sigra.
Frumkvæði íslendinga í þessu mál mun vekja
athygli um allan heim og með því leggja þeir sitt
lóð á vogarskálina í átt að afvopnun. Hér er
þeirri framtíðarsýn varpað fram að á Norður-Atl-
antshafi fari fram alþjóðlegt eftirlit. Slíkt eftirlit
væri í höndum alþjóðastofnunar er veitti öllum,
sem eftir óskuðu, upplýsingar um ferðir kafbáta,
herskipa og annarra flutningatækja kjarnorku-
vopna. “
Flutningsmenn tillögunnar telja að markmið
ráðstefnunnar eigi að vera að opna umræðu um
friðlýsingu Norður-Atlantshafsins í áföngum.
Þegar í stað verði stöðvuð frekari aukning kjarn-
orkuvopna í Norður-Atlantshafi og síðan dregið
úr kjarnorkuvígbúnaði í ákveðnum áföngum. Þá
verði Norður-Atlantshaf lýst kjarnorkuvopna-
laust svæði og alþjóðastofnun annist eftirlit með
flutningatækjum kjarnorkuvopna. Eftirlitsstöðv-
ar gætu verið á íslandi og eftirlitið í talsverðum
mæli í höndum íslendinga, enda eiga þeir mest í
húfi.
Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu
þessa máls á Alþingi.
My Fair Lady
hefur kvatt
- og nú er æft af fullum krafti fyrir frumsýningu á
Kardimommubænum eftir Thorbjöm Egner
„Já, við erum loksins búin að
kveðja My Fair Lady,“ sagði
Signý Pálsdóttir leikhússtjóri
hjá Leikfélagi Akureyrar er
við ræddum við hana eftir
helgina. Alls urðu sýningar á
því verki 55 talsins og leikhús-
gestir 11.600. Hvort tveggja er
að sjálfsögðu nýtt met hjá
Leikfélagi Akureyrar og ekki
víst að þau verði slegin á næst-
unni.
„Fjárhagslega kemur My Fair
Lady betur út en aðrar sýningar,"
sagði Signý. „Það þýðir þó ekki
að við séum með einhverja sjóði
eftir þetta, bæði er að stofnkostn-
aður var mjög mikill og rekstur
hverrar sýningar tók um 75% af
aðgangseyri á viðkomandi sýn-
ingu. En því er ekki að neita að
við stöndum betur eftir þessa
sýningu en flestar aðrar sem hér
hafa verið leiknar.“
- Og svo Súkkulaði handa
Silju í Sjallanum, hvernig gengur
það?
„Alveg þokkalega. Það eru
búnar núna 8 sýningar og aðsókn
hefur verið alveg viðunandi. Við
vonumst líka til að það taki betur
við sér nú þegar My Fair Lady er
hætt.“
- Og það er æft af fullum
krafti fyrir næstu frumsýningu?
„Já, það er verið að æfa Kardi-
mommubæinn sem er fjölmenn
sýning, 28 manns á sviðinu og 10
manna hljómsveit. Við ætlum að
frumsýna Kardimommubæinn 7.
apríl.“
- Er eitthvað farið að huga að
verkefnavali næsta vetur?
„Við erum að því allan vetur-
inn en það hefur ekkert verið
ákveðið nema að Galdra-Loftur
verður fyrsta verkefnið. Við ger-
um okkur miklar vonir um að við
höldum þeim leikurum sem áttu
að leika í því verki hjá okkur í
vetur en það er spurning hvort
þau Ragnheiður Steindórsdóttir
og Hjalti Rögnvaldsson geta ver-
ið með, ég vona það þó.“
- Gefur aðsóknin á My Fair
Lady ekki tilefni til þess að það
verði ráðist í annan söngleik?
„Við höfum fullan hug á því að
halda áfram því samstarfi sem við
höfum átt við Tónlistarskólann
og kórinn, en ég held að við ráð-
umst ekki í það að setja upp stór-
an Hoilywood-söngleik strax. En
því er ekki að neita að við erum
skotin í þeirri hugmynd að setja
upp söngleik.“ gk-.
Miklar framfarir
í nautgriparæktinni
Á síðastliðnum árum hafa orð-
ið stórstígar framfarir í naut-
griparæktinni. Þær má þakka
fækkun mjólkurkúa, sem hef-
ur leitt til þess að lélegustu
kúnum hefur verið fargað og
svo markvissu starfí kynbóta-
nefndar Búnaðarfélags íslands
við val á kynbótanautum.
Aldrei síðan starfsemi naut-
griparæktarfélaganna hófst hér
á landi hafa kýrnar mjólkað
jafn mikið og síðastliðin ár.
Meðalnyt rúmlega 18 þúsund
skýrslufærðra kúa var á síðasta
ári 3.872 kg, en það var 36 kg
meiri nyt en árið 1982.
Mestar voru afurðir kúnna í S.-
Þingeyjarsýslu, þar voru skýrslu-
færðar kýr 1.716 og að meðaltali
mjólkuðu þær 4.299 kg.
Hæstar voru afurðir á einstöku
búi, í félagsbúinu Baldursheimi í
Mývatnssveit, þar skiluðu 15 kýr
til jafnaðar 6.019 kg af mjólk, á
síðasta ári.
íslandsmetið átti kýrin Fía á
Hríshóli í Saurbæjarhreppi.
Mjólkaði hún hvorki meira né
minna en 9.551 kg.
Þegar afurðir kúnna eru metn-
ar í magni mjólkurfitu, þá var
efst á blaði Njóla í félagsbúinu í
Baldursheimi. Njóla mjólkaði á
síðasta ári 8.447 kg með 5.27%
fitu, en það gerði 445 kg af
mjólkurfitu og var svo sannarlega
einnig íslandsmet.
Alls náðu 335 kýr að mjólka
6000 kg eða meira á árinu.
Þessar tölur sýna hvað býr í ís-
lenska nautgripastofninum og að
með markvissu starfi á að vera
hægt að auka meðalnyt íslenskra
kúa á tiltölulega fáum árum í
5000 kg á ári.