Dagur - 16.03.1984, Blaðsíða 3
16. mars 1984 - DAGUR - 3
E YÐ U B tOÐ^FxYRI R\T0LV
BJÖRNSjÓNSSONAR
PRENTSMIDJA
háfnars't'rætáé
kU \\\\\\\W\
\SIMI>96 ?265^13
Treflar
Góðir gestir, hér er hljómsveitin
Treflar, ein af þeim fjölmörgu
unglingahljómsveitum á Akur-
eyri sem gerðu garðinn frægan á
árum áður. Þá var líf í tuskunum
í „hljómsveitabransanum“ á Ak-
ureyri og sveitirnar kepptu inn-
byrðis um titilinn „Besta hljóm-
sveitin". Gekk þar mikið á en
ekki munum við úrslitin.
Á myndinni hér af Treflum eru
f.v. Kári Gestsson, Haraldur
Tómasson, Aðalsteinn Bergdal,
Sigurður Ringsted og Ólafur
Aðalsteinsson. - Vinsamlega
veitið athygli treflunum sem þrír
þeirra eru með um hálsinn en
treflar þessi voru einkennisbún-
ingur Treflanna.
Ermiklu
meira É?
Fiskifræðingar okkar fundu allt í
einu og „óvart“ mikið magn af
loðnu í janúar sem varð til þess
að hægt var að veiða mörg hundr-
uð þúsund tonnum meira en
fyrirfram hafði verið áætlað.
Kom í ljós að fiskifræðingarnir
höfðu áætlað loðnustofninn alltof
lítir.n og kenndu þeir m.a. um
lélegum tækjakosti, mannfæð og
fleiru er þeir voru beðnir um
skýringar.
Nú er stífur kvóti á þorskveið-
um eins og allir vita og verða
margir búnir með kvótann sinn
eftir stuttan tíma. Margir skip-
stjórnarmenn eru mjög óhressir
með hinn þrönga kvóta og segja
að miklu meiri þorskur sé í sjón-
um en fiskifræðingar telja.
Skyldu þeir hafa gert mistök eins
og með loðnuna fiskifræðingarnir
okkar?
Fækkar
leigubílwn?
Það mun víst vera til umræðu að
fækka leigubifreiðum á Akureyri
þannig að einn bíll verði fyrir
hverja 600 íbúa í stað 1 fyrir 500
eins og nú er. Mun örugglega sitt
sýnast hverjum um þá ákvörðun
ef af verður. Að vísu mun það
vera staðreynd að lítið er að gera
hjá bifreiðastjórum í miðri viku,
en um helgar anna þeir alls ekki
eftirspurn. Er það í sjálfu sér
skiljanlegt því sumir bílstjóranna
eru orðnir fullorðnir menn og
kjósa frekar að hvíla sig um helg-
ar á næturakstrinum en að þeyt-
ast um allan bæ með misjafnlega
drukkið fólk. En hvað sem því
líður, þá er hér um nokkuð snúið
mál að ræða sem finna þarf hent-
uga lausn á fyrir alla aðila.
Gdshr
Þessi hljómsveit á myndinni þótti
nokkuð frambærileg á sínum
tíma þótt ekki væri víst að pilt-
arnir sem hana skipuðu myndu
slá í gegn í dag. Þetta er hljóm-
sveitin Geislar sem var unglinga-
hljómsveit á Akureyri fyrir um
15 árum. Það geislaði krafturinn
og leikgleðin af þessum ungu pilt-
um en þeir eru Erlingur Óskars-
son lengst t.v., Sigurður Þor-
geirsson aftast, Friðrik Bjarna-
son lengst t.h. og eitthvað er and-
lit trommuleikarans sem fremstur
situr kunnuglegt.
Jú reyndar, þetta er enginn
annar en hann Hermann Svein-
björnsson núverandi ritstjóri
Dags.
Þcssi vika
Þessi vika
H-100
Relax ....... Frankie Goes to Hollywood
Breakdancing .............. Irene Cara
Where Is My Man ........... Eartha Kitt
I Want You ................. Gary Low
Rush Rush .............. Debbie Harry
Making Flippy Floppy ... Talking Heads
Don’t Touch Me ...... Hazel O’Connor
Killing Moon ... Echo & The Bunnymen
Break My Stride ....... Matthew Wilder
Stop That Train
........ Clint Eastwood & General Saint
Vinsældalisti valinn
í Dynheimum 9. mars 1984.
Radio Ga Ga .................... Queen
Run Runaway .................... Slade
Where Is My Man ........... Eartha Kitt
ReggaeNight ............. JimmyCliiT
That’s All .................. Genesis
Love Cats ....................... Cure
Relax ....... Frankie Goes to Hollywood
Here Comes the Rain Again .. Eurythmics
Nobody Told Me .......... John Lennon
Rat Rappin’ .............. Roland Rat
(6)
Síðasta vika
býður yður velkomin í heitan
mat, hádegi og kvöld
Borðapantanir
teknar í
síma 22200.
HÓTEL KEA ^gT AKUREYRI
Kaffi og smurt brauð allan daginn.
Minnum serstaklega á heitt
súkkulaði og nýbakaðar vöfflur.
Dansleikur
laugardagskvöld 17. mars.
Hljómsveitin Casablanca leikur fyrir dansi.
Matur framreiddur frá kl. 19.00.
®Krókeyrarstöðin
auglýsir
★ Alls konar grillréttir með besta hrásalati bæjarins
★Rjómaís - Milkshake - ísréttir
Tilboð mánaðarins:
Pylsur - stórar með heitu
brauði og sósum
á aðeins kr. 25.00.
Næturgríllið opið um helgar.
Heimsendingarþjónusta sími21440.
TONLEIKUM
Michaels J. Clarke og Þuríðar Baldursdóttur
er frestað um óákveðinn tíma vegna veikinda.
Tónlistarfélag Akureyrar.