Dagur - 21.03.1984, Blaðsíða 12
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
Heildsala
Smásala
Það var vor í lofti á Akureyri
og víða á Norðurlandi í síðustu
viku. Vorstemnming ríkti í
miðbænum á Akureyri og það
var létt yfir fólki þó að hitastig-
ið væri e.t.v. ekki nema
nokkrar gráður.
Einn fyrsti vorböðinn á Akur-
eyri er íssalan en enginn sem leið
átti um miðbæinn komst hjá því
að mæta aragrúa fólks sem gæddi
sér á þessu ljúfmeti.
- Salan hefur verið eins og á
sumardegi, sagði Óskar Hjaltalín
eigandi ísbúðarinnar í Kaup-
vangsstræti í samtali við Dag, en
í umræddri búð var biðröð út úr
dyrum flesta sólardaga í vikunni.
Að sögn Óskars er íssala mjög
sveiflukennd en það bregðist þó
ekki að komi hlýindi eftir kalda
daga þá taki íssalan við sér.
- ESE.
Á sameiginlegum fundi
fræðsluráða Norðurlands
eystra og Norðurlands vestra
á laugardag var samþykkt
ályktun varðandi rekstrar-
vanda dreifbýlisskólanna, en
sem kunnugt er hafa greiðslur
vegna áfallins skólakostnaðar
frá ríkissjóði borist bæði seint
og illa. Þetta hefur svo valdið
því að ekki hefur verið hægt að
greiða sumum starfsmönnum
skólanna laun á tilskildum
tíma. Hefur jafnvel legið við
að sumir skólanna hafi þurft að
loka, en starfsfólk sem þama
um ræðir era m.a. skólabfl-
stjórar og ræstingafólk, ásamt
fólki í mötuneytum.
í ályktun fræðsluráðanna segir
meðal annars:
„Rekstrarvandi dreifbýlisskól-
anna hefur ekki enn verið leystur
til frambúðar og ekki er kunnugt
um að neinar viðræður séu í
gangi um lausn á þessum málum.
Fræðsluráðin hafa þungar
áhyggjur af þessari þróun og telja
að ríkissjóði beri að standa við
skýlausa lagaskyldu sína sam-
kvæmt grunnskólalögum og
reglugerð um rekstrarkostnað
grunnskóla um skilvísar greiðslur
áfallins skólakostnaðar.
Fræðsluráðin eru fús til að taka
þátt í nefndarskipun sem tæki
þessi mál til athugunar með fram-
Stóru-Tjarnarskóli í Ljósavatnsskarði.
tíðarlausn í huga.“
Þetta vandamál er ekki nýtt af
nálinni, heldur hefur það verið
árlegt um margra ára skeið. Þessi
kostnaður hefur ævinlega verið
áætlaður of lágur í fjárlögum, en
málunum bjargað með aukafjár-
veitingum. Nú þegar meira að-
halds er gætt í fjármálum ríkisins
og verðbólga á undanhaldi, kem-
ur þetta sér illa fyrir skólana, þar
sem eftir sem áður hefur kostn-
aðurinn verið áætlaður of lágur.
HS
Booflennur á
veisluborðinu
- Feitir og sællegir hringormar höfðu
hringað sig í lifur rauðmagans
- Ég er fæddur hér út með
fírði og ég man ekki eftir því
að hafa nokkru sinni heyrt um
eða séð hringorm í rauðmaga,
sagði maður nokkur sem leit
hér inn á ritstjórnina en í fór-
um sínum hafði hann væna dós
með nokkrum stórum og sæl-
legum hringormum.
Rauðmaginn sem keyptur var
í verslun hér í bænum átti að
lenda á veisluborði fjölskyldunn-
ar en heldur minnkaði matarlyst-
in þegar vart varð við „boðflenn-
urnar“ í matarboðinu. Alls hafði
maðurinn keypt eina sex rauð-
maga og reyndist helmingurinn
hafa hringorma, einn eða fleiri
innanborðs. Sá lengsti var líka
engin smásmíði eða um níu senti-
metrar á lengd en ormarnir höfðu
hringað • sig í lifur viðkomandi
rauðmaga.
- Mér þykir þessi stærð með
ólíkindum en vel kann að vera að
hér sé um fullorðinsstig hring-
orms að ræða en á því stigi lifir
ormurinn aðallega í meltingar-
færum sela, sagði Ásbjörn Dag-
bjartsson hjá Rannsóknarstofu
fiskiðnaðarins á Akureyri er
Dagur leitaði til hans vegna þessa
máls.
Að sögn Ásbjarnar þarf þó
ekki að koma á óvart að finna
hringorm í rauðmaga. Allar fisk-
tegundir geta tekið við þessum
ófögnuði en sumum eins og t.d.
þorskinum er hættara við hring-
ormi en öðrum tegundum vegna
þess ætis sem hann lifir á. Til að
hringormur geti hreiðrað um sig
í fiski þarf fiskurinn að éta hring-
ormslirfu en hún myndast t.d. í
smá krabbadýrum sem étið hafa
hringormsegg, sem í upphafi
gengu niður af sel. - ESE.
Hringormarnir voru hinir sprækustu
Bjórkrár
í upp-
siglingu
Ýmsar vangaveltur eru nú uppi
um það á Akureyri að setja á
fót bjórstofur í líkingu við þá
sem rekin hefur verið í
Reykjavík undanfarið við
miklar vinsældir, að því er
sögur herma.
Þannig eru uppi hugmyndir um
að reka eina slíka í tengslum við
Nýja Bíó, ef af því verður að
rekstur þess hefjist á nýjan leik.
Þá hafa lengi verið uppi hug-
myndir um að í kjallara Sjallans
verði einhvers konar bjórstofa og
heyrst hefur um þriðja aðila sem
áhuga hefur á þessu máli.
Ekki er ósennilegt að þessi
þróun eigi eftir að verða hér, því
svo mikilla vinsælda hefur
„Gaukur á Stöng“ notið í
Reykjavík, að þar er hver bjór-
kráin á fætur annarri að skjóta
upp kollinum. - HS.
Það er reiknað með hægri
austan átt á Norðurlandi í
dag og á morgun og jafnvel
út vikuna, samkvæmt upp-
lýsingum veðurstofunnar í
morgun. Reiknað er með
svölu bjartviðri og lítilli sem
engri úrkomu. Vestan
Holtavörðuheiðar og á
Suðurlandi er hins vegar
éljagangur.
# Þriðja og
fjórða leiðin
Húsnæðissamvinnufélög
virðast ætla að vekja tals-
verðar vinsældir, ef miða
má við móttökur fólks. Erind-
reki eða öllu heldur starfs-
maður Búseta í Reykjavík
ferðast nú um iandið og
undirbýr stofnun fleiri félaga.
Þegar hefur verið haldinn
undirbúningsfundur hér á
Akureyri og stofnfundur
verður næstkomandi þriðju-
dag á Hótel KEA kl. 20.30. Á
mánudag verður undirbún-
ingsfundur á Húsavík í fé-
lagsheimilinu og sams konar
fundur verður í Seli á Sauðár-
króki á fimmtudagskvöldið í
næstu viku. Báðir þessir
fundir eru kl. 20.30. Hús-
næðissamvinnufélög hafa
gjarnan verið nefnd þriðja
leiðin í húsnæðismálum
okkar, til viðbótar leigu og
kaupum. Nú vefst það svolít-
ið fyrir þeim sem þetta ritar
hvort kaupleiguíbúðir séu
fjórða formið, þ.e. þegar
mönnum er gert kleift að
borga tiltölulega háa leígu,
en geta á endanum eignast
íbúðina. Þetta hlýtur að skýr-
ast á umræddum fundum.
# Ábrauðfótum
Eins og fram kemur á öðrum
stað í blaðinu, þá er Hafnar-
búðin gjaldþrota og hlutafé-
lagið sem að henni stendur
hefur verið tekið til gjald-
þrotaskipta. Ýmsir aðilar,
sem áttu verulegar upphæðir
inni hjá versluninni, hrukku
illilega við þegar búðinni var
lokað. En einn þessara aðila
ætlaði sér sko ekki að tapa
sínu fé. Hann brá því undir
sig betri fætinum og arkaði á
eina af bílasölum bæjarins.
Þar bað hann um að fá að
prófa bíl, sem Yngvi í Hafnar-
búðinni átti á sölunni. Það
var sjálfsagt, en þessi
ónefndi aðili gerði sér lítið
fyrir, fór með bílinn heim í
bílskúr og þóttist nú hafa inn-
heimt hluta af skuldeign sinni
hjá Yngva. En að sjálfsögðu
reyndust brauðfætur undir
þessari innheimtuaðferð, því
þessi vinur okkar var kærður
fyrir bílþjófnað og bíllinn
sóttur til hans með lögreglu-
valdi!