Dagur - 09.04.1984, Qupperneq 1
FERMINGAR-
GJAFIR
í MIKLU ÚRVALI
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
67. árgangur
Akureyri, mánudagur 9. aprfl 1984
Tilraunavinnsla á
heparíni íhaust?
„Það er í athugun að fara af
stað með tiiraunaframleiðslu á
heparini úr sauðfjárgamaslímu
í sláturtíðinni í haust. Til er
skýrsla frá Raunvísindastofnun
Háskólans um vinnslu hepar-
ins úr sauðfjárgörnum og hún
er nú til athugunar hjá okkar
rannsóknastofufólki með tilliti
til þess hvort gera megi til-
raunir í þessa vem í haust, at-
huga m.a. hver kostnaðurinn
er við að ná slímunni úr görn-
unum o.s.frv.,“ sagði Magnús
Friðgeirsson, framkvæmda-
stjóri Búvörudeildar Sam-
bandsins í viðtali við Dag.
Lífefnaiðnaður kom til um-
ræðu á svæðisfundinum á Akur-
eyri nýlega og kom þar fram
að málið hafi borið á góma á
stjórnarfundi Sambandsins ný-
lega að frumkvæði Vals Arnþórs-
sonar, stjórnarformanns. Aður-
nefnd skýrsla um vinnslu hepar-
ins á verksmiðjustigi var tilbúin
1981 og samkvæmt upplýsingum
Gunnars Guðbjartssonar hjá
Framleiðsluráði landbúnaðarins
hefur ekkert verið gert með hana
til þessa a.m.k. þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir hans til að koma
málinu á framfæri við aðila sem
gætu annast þessa vinnslu. Gerð
var á sínum tíma frummarkaðs-
könnun, sem leiddi í ljós að einn
aðili, Lövens Kemiske Fabrik í
Danmörku, hafði áhuga á sam-
starfi. í skýrslunni sagði að útlitið
virtist á þessu stigi (1981) nokkuð
álitlegt.
Þess má geta að heparin er
lyfjaefni, sem m.a. veldur því að
blóð storknar ekki. Hefur það
verið notað gegn blóðtappa og
við skurðaðgerðir. - HS.
„Tel að
þeir hafi
grafið
■ r
sig i
snjó“
„Það er ekkert ferðaveður eins
og er og menn halda sig innan
dyra hér í skála Ferðafélags-
ins,“ sagði Sigurður Baldurs-
son er við náðum talstöðvar-
sambandi við hann í morgun,
en Sigurður er einn þeirra vél-
sleðamanna sem eru veður-
tepptir í Nýja-Jökuldal.
Sigurður sagði að þeir hefðu
nægan mat og það færi vel um þá.
Við spurðum hann hvort hann
teldi að einhver hætta væri á ferð-
um varðandi þá vélsleðamenn
sem lögðu af stað til byggða í gær
en eru nú týndir.
„Nei ég held að það sé ekki.
Þetta eru allt menn sem eru vel
útbúnir og ég tel að þeir haldi
kyrru fyrir einhvers staðar, hafi
grafið sig í snjó og bíði þess að
veðrið gangi niður.“ gk-.
- bls. 2
43. tölublað
Tuttugu
manns í
hrakningum
inniá
hálendinu
í morgun var leitað tveggja
hópa þingeyskra vélsleða-
manna, sem voru á leið frá
móti vélsleðaeigenda í Nýja-
Jökuldal. í öðrum hópnum eru
15 manns og hafði náðst tal-
stöðvarsamband við þá, en
þeir voru villtir og vissu ekki
hvar þeir voru staddir. í hinum
hópnum eru 5 manns og er lítið
vitað um ferðir þeirra síðan I
gær. Rétt fyrir 10 í morgun fór
vél frá Flugfélagi Norðurlands
til leitar og einnig voru Ieitar-
menn á snjóbflum á Ieið inn á
hálendið.
Hátt á þriðja hundrað manns
komu til móts vélsleðaeigenda í
Nýja-Jökuldal, en þar eru skálar
Ferðafélagsins. Slæmt veður var
þar alla helgina og svo var enn í
mogun, skafrenningur og innan
við 100 m skyggni. í gær komust
sunnanmenn til byggða, nema
hvað eins manns mun vera sakn-
að úr þeirra hópi. Hópur
norðanmanna lagði einnig af stað
og ætiuðu þeir sér að Mýri í Bárð-
ardal. Flestir þeirra sneru til baka
í Nýja-Jökuldal, nema þeir 20
Þingeyingar, sem saknað var í
morgun. Einn maður komst
niður í Mýri seint í gærkvöld.
Rúmlega 100 manns eru enn í
skálum Ferðaféiagsins í Nýja-
Jökuldal og halda þar kyrru iýrir
þar til veður gengur niður. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Hvera-
völlum ki. 10 í morgun voru þar
7-8 vindstig, éijagangur og skaf-
renningur. - GS.
Nýjustu fréttir
í morgun fundu leitarmenn, sem
fóru úr Bárðardal á snjóbílum,
einn vélsleðamannanna og taldi
hann sig vita um félaga sína.
Ekkert var hins vegar vitað um
hvar fimm þeirra sem upp á vant-
ar eru niðurkomnir. Rétt fyrir kl.
11 hafði leitarvélin ekki séð til
ferða þeirra, enda var skyggni
slæmt til leitar.