Dagur - 25.04.1984, Side 12
ÞJÓNUSTA
FYRIR
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
OLÍUSLÖNGUR og BARKA vönduð VINNA
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
a
s
i
M
Þetta er læðan Stína, sem nú er landsfræg orðin fyrir að taka upp á þeirri ónáttúru að fóstra andarunga. Fyrir vikið
komst hún í sjónvarpið á nýliðnum friðarpáskum. Þótti þetta óvenjumikil friðarviðleitni af hálfu kisu, sem er veiði-
kló mikil þegar fuglar eru annars vegar. Stína býr í Holtseli í Hrafnagilshreppi og unir þar hag sínum hið besta.
Mynd: HS.
Þyrla sótti veikan
skáta til Hveravalla
Örtröð
áöl-
stofunum
- eitt þúsund lítrar
fóru fyrstu tvo
klukkutímana
Akureyringum og bæjargest-
um tókst að svolgra rúmlega
2.000 lítra af bjór um páska-
helgina; raunar heitir
mjöðurinn „bjórbolla“, því
hann samanstendur af
pilsner, styrktum með viskíi
og kláravíni.
Nákvæmlega kl. 6 á miðviku-
dagskvöld opnuðu tvær ölstofur
á Akureyri, Baukurinn í H-100
og Bikarinn í Sjallanum. Biðrað-
ir höfðu myndast við báða stað-
ina, sérstaklega var örtröðin mik-
il við H-100, enda höfðu eigend-
ur staðarins látið þau boð út
ganga, að allir fengju frítt á
„baukinn" til að byrja með. Það
sama var raunar í boði í Bikarn-
um í Sjallanum, en það vissu
færri. Fyrstu klukkustundirnar
sem ölstofurnar voru opnar
veittu þær samtals um 1.000 lítr-
um af bjórbollunni. Stór ölkrús
kostar 120 kr., sem er 10 kr.
hærra verð heldur en er á ölstof-
um í Reykjavík. Hvers vegna?
„Það er meira magn í þeim
krúsum sem við erum með; 57 cl
á móti 50 cl hjá þeim ölstofum
sem við bárum okkur saman við
í Reykjavík," svaraði Baldur Ell-
ertsson hjá Bauknum þessari
spurningu. Þar er „bjórbollan"
afgreidd í heilum pint á 120 kr.
og [k pint á 70 kr. Sama verð og
sama magn er á Bikarnum.- GS.
„Iireinn Sigurðsson hefur lagt
fram í veitustjórn einhverja
pappíra sem ég er ekki búinn
að sjá, en bæjarráð mun skoða
þessa pappíra á fundi á
fímmtudagskvöld,“ sagði
Magnús Sigurjónsson forseti
bæjarstjórnar Sauðárkróks er
Dagur ræddi við hann.
„Við vorum um 20 skátar,
flestir frá Akureyri, sem fórum
í þessa ferð,“ sagði Ingimar
Eydal (yngri) er við ræddum
við hann um skíðaferð skáta á
Hveravelli um páskana.
Skátarnir Iögðu af stað sunnu-
daginn fyrir páska, 15 þeirra fóru
upp úr Blöndudal en fimm völdu
Frestur sá sem Hreinn hafði til
þess að leggja fram samning sinn
við kanadíska aðila um kaup
þeirra á vatni næstu 10 árin frá
Sauðárkróki er liðrrin og mun
bæjarráð taka málið fyrir á
fimmtudagskvöld eins og sagði
hér að framan.
Það er vilji bæjaryfirvalda á
sér lengri leið. Þeir fóru upp úr
Eyjafirði og lögðu að baki um
120 km vegalengd áður en þeir
komu á ákvörðunarstað á Hvera-
völlum.
Einn þeirra veiktist á Hvera-
völlum, fékk botnlangakast og
varð að flytja hann með þyrlu til
byggða. Dróst nokkuð vegna ís-
ingar að þyrlan kæmist á vettvang
Sauðárkróki að hafin verði þaðan
útflutningur á vatni, hvort sem
sá aðili sem að þeim útflutningi
stæði yrði Hreinn Sigurðsson eða
einhver annar. En Hreinn hefur
lýst því yfir að hann hafi samning
til 10 ára undir höndum við
kanadísku aðilana og þann samn-
ing vilja bæjaryfirvöld á Sauðár-
og var orðið nokkuð dregið af
piltinum þegar loksins var hægt
að sækja hann.
Ingimar sagði að allir þeir skát-
ar sem fóru í þessa ferð væru
mjög vanir ferðamenn og væru
miklar kröfur gerðar til þeirra.
Ferð sem þessi hefur verið ár-
legur viðburður hjá skátunum
undanfarin ár. ek.
króki sjá.
Magnús Sigurjónsson sagði að
hann reiknaði með að ef Hreinn
legði fram þessa pappíra þá fengi
hann útflutningsleyfið með þeim
fyrirvara að útflutningurinn yrði
hafinn innan ákveðinna tíma-
marka.
gk--
Fimm
fluttir á
sjúkra-
hús
Fimm manns voru fluttir á
sjúkrahús á Akureyri eftir um-
ferðaróhapp aðfaranótt laug-
ardagsins.
Bifreiðinni sem fólkið var í var
ekið á ljósastaur af miklum
krafti. Meiðsli fólksins reyndust
þó ekki vera mjög mikil nema
hjá einum farþeganna sem var
höfuðkúpubrotinn.
Aðfaranótt föstudagsins var
mótorhjóli ekið á bifreið í Gler-
árgötu. Ökumaður mótorhjólsins
kastaðist yfir bifreiðina og skarst
hann talsvert í andliti og missti
meðvitund.____________gk--
Innanlandsflugið:
„Gekk skín-
andi vel“
Áætlunarflug Flugleiða um
páskahelgina gekk eins og í
sögu. Alls voru um 2.000
manns á faraldsfæti með vélum
félagsins hér innanlands og þar
af átti stærsti hlutinn eða um
1.200 manns pantað far til og
frá Akureyri.
- Þetta gekk allt skínandi vel.
Við þurftum aðeins að fresta einu
flugi til Vestmannaeyja vegna
þoku, sagði Sæmundur Guðvins-
son, fréttafulltrúi Flugleiða í
samtali við Dag.
Að sögn Sæmundar voru tvær
þotur í flugi til og frá Akureyri á
annan dag páska og fór hvor þota
tvær ferðir. Auk þess var flogið
á Fokker til og frá Akureyri og
Fokker-vélar Flugleiða héldu auk
þess uppi áætlunarflugi til ann-
arra ákvörðunarstaða innan-
lands.
í gær voru svo fyrirhugaðar
einar 20 aukaferðir á öllum flug-
leiðum innanlandsflugs Flugleiða
en næst á eftir Akureyri voru ísa-
fjörður og Egilsstaðir vinsælustu
ákvörðunarstaðirnir. - ESE
Vatnsútflutningur frá Sauðárkróki:
Bæjarráð fjallar um málið
Nú getur landsliðið í sól-
baði farið að hypja sig úr
sóllömpunum og komið
í heimsókn til Norður-
lands. Spáin er nefni-
lega: Suðlæg átt og
hlýindi eða með öðrum
orðum 14-18 stiga hiti
og sól a.m.k. fram á
föstudag.
# Þotuflugið er
þægilegt, en..
Fátt er þægilegra en að þeys-
ast í þotu á milli Akureyrar og
höfuðborgarsvæðisins. Tæp-
lega hálftíma flug eða svipað
og með strætó úr Breiðholti
og niður á Hlemm. Það er
bara verst að böggúll fylgir
skammrifi.
Á annan dag páska þurftu
Akureyringar og aðrir sem
staddir voru í Reykjavík og
ætluðu sér norður að mæta
á afgreiðslu Flugleiða í
Reykjavík kl. 16.15. Haldið
var af stað með rútu til Kefla-
víkur þar sem þotan beið,
klukkan 17 en þotan fór svo
ekki í loftið fyrr en kl. 18.35.
„Flugferðln“ tók svo enda kl.
19.05 og voru þá liðnlr tæpir
þrír tímar frá því að farþegar
mættu á völlínn í Reykjavík.
# Skemma
malbikið
Auðvitað er ekki hægt með
neinni sanngirni að kenna
Flugleiðum um þessi ósköp.
Félagið stendur í því að flytja
þúsundir manna á milli
landshluta og því er boðið
upp á þotuþjónustu á milli
stærstu staðanna. Ástæðan
fyrir því að Boeing-þoturnar
sem nota mjög stutta flug-
braut, mega ekki lenda í
Reykjavík, mun vera sú að
þær eyðileggi gamla góða
malbikið á vellinum. Malbikið
í Keflavík eyðileggst hins
vegar ekki frekar en malbikið
á Akureyri og því höldum við
að það væri þjóðráð að „þeir
á malbikinu“ í höfuðstaðn-
um, láti leggja eins og nokkur
hundruð metra af fiugbraut-
unum með almennilegu mal-
biki.
Hefur annars nokkur hugs-
að út í það að á þeim tæpum
fjórum tímum sem það tekur
að komast frá heimíli (
Reykjavík til heimilis á Akur-
eyri með þotu, þá má með
góðu móti aka langleiðina á
mílli Akureyrar og Reykjavík-
ur.
• RD óskar NT
allra heilla
Nú er fyrsta tölublaðið af NT
komið til iesenda og velunn-
urum Tímans (hvort sem er
þess gamla eða nýja) létti vlð
að sjá blaðið, því það lofar
býsna góðu. Þetta er bara
spurning um úthaldlð. En
svolftið varð þeim á í mess-
unni f þessu fyrsta tölublaði,
sem er reyndar 95. tölublað
af 69. árgangi Tímans. í blað-
haus segir nefnilega að NT
sé „málsvari frjálslyndis,
samvinnu og frjálshyggju"!
Auðvitað átti þetta ekki að
vera frjálshyggja, það vita
það allir, heldur félags-
hyggja. Fall er fararheill! RD
(Rauði Dagur) óskar NT til
hamingju með árangurinn og
allra heflla f framtfðinni.