Dagur - 07.05.1984, Blaðsíða 7

Dagur - 07.05.1984, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 7. maí 1984 7. maí 1984 - DAGUR - 7 Essen náði ekki í þýska titilinn „Nei þetta gekk ekki upp hjá okkur, við unnum ekki og urð- um ekki meistarar,“ sagði Al- freð Gíslason er við ræddum við hann í gær. Alfreð og fé- lagar hjá v-þýska liðinu Essen hefðu getað tryggt sér sigur í þýsku deildarkeppninni um helgina með útisigri gegn Svabing, en það tókst sem sagt ekki. „Þeir hafa ekki tapað heima í tvö ár svo það var varla við því að búast að við myndum sigra þá,“ sagði Alfreð. „En við gerðum okkar besta og árangur liðsins er mun betri en reiknað var með í upphafi keppnistímabilsins, það er mikil ánægja hér í Essen með frammistöðuna og hér hafa verið mikil veisluhöld eftir leikinn." Úrslit Ieiksins urðu þau að Svabing sigraði með 13:11 og á sama tíma vann Grosswallstad lið Gummersback 18:16 og tryggði sér því titilinn. Ef Grossswallstad hefði tapað sínum leik þá hefði Essen orðið meistari, svo naumt var það. „Þetta var mikill hörkuleikur gegn Svabing. Staðan var 12:11 fyrir þá þegar ég tók vítakast. Þjálfarinn minn sagði mér að Hörð keppni ungl- inga í badminton Á sjöunda tug keppenda mætti á Norðurlandsmót unglinga í badminton sem háð var á Ak- ureyri. Langflestir þeirra voru frá Akureyri en Siglfirðingar sendu harðsnúið lið til mótsins. Sigurvegarar urðu sem hér segir: Hnokkar einliðaleikur. Magnús Teitsson TBA sigraði Óttar Erlingsson TBA 11-8 og 11-8. Hnokkar tvíliðaleikur. Óttar Erlingsson og Jón Hrói Finnsson TBA sigruðu Jakob Jörundsson og Magnús Teitsson TBA 9-15, 15-11, 15-11. Tátur einliðaleikur. Anna Bjarnadóttir TBS sigraði Sigrúnu Ingadóttur TBA 11-0, 11-3. Tátur tvíliðaleikur. Sigrún Ingadóttir og Sonja Magnúsdóttir sigruðu Ásu Ei- ríksdóttur og Sunnu Jakobsdótt- ur 15-3, 15-1. Allar í TBA. Sveinar einliðaleikur. Jóhann Bjarnason TBS sigraði Magnús Erlingsson TBS 5-11, 11- 0, 11-4. Sveinar tvfliðaleikur. Jóhann Bjarnason og Magnús Erlingsson TBS sigruðu Magnús Benónýsson og Óskar Einarsson TBS 15-4, 15-4. Meyjar einliðaleikur. Guðrún Sigurðardóttir TBA sigr- aði Halldóru Konráðsdóttur TBA 11-8, 11-1. Meyjar tvfliðaleikur. Guðrún Sigurðardóttir og Kristín Valdemarsdóttir TBA sigruðu Björgu Erlingsdóttur og Hall- dóru Konráðsdóttur TBA 15-12, 13-11. Drengir einliðaleikur. Jón Sigurðsson TBS sigraði Einar Karlsson TBA 15-0, 15-4. Drengir tvfliðaleikur. Jón Sigurðsson og Ásgrímur Pálsson TBS sigruðu Einar Karls- son og Sigurð Sveinmarsson TBA 15-10, 15-4. Telpur einliðaleikur. Guðbjörg Guðlaugsdóttir sigraði Jarþrúði Pórarinsdóttur TBA 11- 0, 11-3. Telpur tvfliðaleikur. Anna Bjarnadóttir og Guðbjörg Guðlaugsdóttir TBS sigruðu Jar- þrúði Þórarinsdóttur og Jónínu Jóhannsdóttur TBA 15-7, 15-5. Piltar einliðaleikur. Fjölnir Freyr Guðmundsson TBA sigraði Arna Gíslason TBA 15-13, 15-1. Piltar tvfliðaleikur. Árni Gíslason og Fjölnir Freyr Guðmundsson TBA sigruðu Jón Sveinmarsson og Heiðar Kon- ráðsson TBA 15-5, 15-0. Stúlkur einliðaleikur. Heiðdís Sigursteinsdóttir TBA sigraði Hjördísi Sigursteinsdóttur TBA 11-9, 11-7. Stúlkur tvfliðaleikur. Heiðdís Sigursteinsdóttir og Gunnhildur Helgadóttir TBA sigruðu Hjördísi Sigursteinsdótt- ur og Hermínu Hreiðarsdóttur TBA 15-8, 15-3. Akureyrarmót í badminton: Þórður og Fjölnir unnu Kára og Kristinn Ákureyrarmót í badminton var haldið í íþróttahöllinni um helgina og leikið í flokk- um fullorðinna. Þau úrslit sem vöktu mesta at- hygli á mótinu voru í tvíliðaleik karla. Þar mættu í úrslitaleikinn Kári Árnason og Kristinn Jóns- son sem hafa verið nær ósigrandi í þessari grein undanfarið og biðu þeir ósigur fyrir Þórði Pálmasyni og Fjölni Guðmundssyni. Kristinn Jónsson sigraði í ein- liðaleik karla, vann Kára Árna- son í úrslitum. í einliðaleik karla í b-flokki sigraði Erlingur Aðal- steinsson sem vann Einar Karls- son í úrslitum. Jakobína Reynisdóttir sigraði í einliðaleik kvenna, vann Guð- ri íu Erlendsdóttur í úrslitum. Þær Guðrún og Jakobína unnu Ragnheiði Haraldsdóttur og Margréti Eyfells í tvíliðaleik kvenna, og í tvenndarkeppni unnu þau Kristinn Jónsson og Jakob- ína Reynisdóttir þau Kára Árna- son og Ásdísi Þorvaldsdóttur í úrslitunum. Næsta mót hjá badmintonfólki á Akureyri er um næstu helgi, en það er bæjakeppni við Siglufjörð sem fram fer í Iþróttahöllinni. KA vann Einherja Einherji frá Vopnafirði lék tvo leiki hér í Eyjaflrði um helg- ina. Sá fyrri var gegn Árroðanum og sigraði Einherji í þeim leik 3:1 eftir að Árroðinn hafði skorað fyrsta mark leiksins. í gær lék Einherji síðan gegn KA. Einherji komst í 2:0 en rétt fyrir hálfleik minnkaði KA mun- inn í 2:1. í síðari hálfleik voru KA-menn mun sterkari, þeir skoruðu þá 4 mörk og unnu því sigur í leiknum 5:2. skjóta á milli fóta markmannsins úr vítinu og ég gerði það en skot- ið var varið. Þeir fóru upp og skoruðu, og jafntefli hefði ekki nægt okkur,“ sagði Alfreð, en hann skoraði 3 mörk í leiknum. Essen á að leika gegn Gumm- ersback í 8-liða úrslitum Bikar- keppninnar. „Við ætlum að vinna þann leik, síðan viljum við fá Grosswallstad næst og við ætlum okkur að vinna Bikarkeppnina.“ UlK fi hji flinga- indur s G.A. Unglingane Akureyrar fundar mei sem hafa á golf hjá kl strákum og Fundurinn golfskálanun 16 og verð dagskrá, ræc sumar, mót fleira. fnd Golfklúbbs hefur boðað til I öllum unglingum huga á því að æfa lúbbnum í sumar, stúlkum. t verður haldinn í i á miðvikudag kl. iur þar ýmislegt á Id tilhögun kennslu í :ahald og ýmislegt „Harkan í LTi — segir Nói Björnsson £C „Það var greinilegt að menn komu ekki með því hugarfari til þessa leiks að spila knatt- spymu, heldur var harkan og það að reyna að ná til and- stæðingsins í fyrirrúmi,“ sagði Nói Bjömsson fyrirliði Þórs eftir leikinn við KÁ. „Þetta breyttist þó í síðari hálf- leik, aðallega hjá okkur og við áttum að vera búnir að gera út um leikinn þegar KA skoraði, en það mark kom eins og rothögg," sagði Nói. Hann sagðist telja Þórsliðið mjög svipað því sem það var á sama tíma í fyrra, og liðið myndi enn halda áfram undir- búningi fyrir átökin f 1. deild um næstu helgi, þá með æfingaferð til Reykjavíkur. Þór vann KR-ingana Þórsarar héldu í æfinga- og keppnisferð til Reykjavíkur á dögunum, og léku þrjá leiki í höfuðborginni, gegn „rönd- óttu“ liðunum þar. Fyrsti leikurinn var gegn KR og sigraði Þór með tveimur mörkum gegn einu. Næst var leikið gegn Víkingi og þar urðu úrslitin jafntefli 1:1. Síðasti leikurinn var gegn Þrótti og hann unnu Þróttarar 1:0. Að sögn Guðmundar Sigur- björnssonar formanns knatt- spyrnudeildar Þórs var þetta mjög góð og gagnleg ferð fyrir liðið. Sagðist hann vera bjartsýnn á gengi Þórs í sumar, liðið virtist síst lakara en það var í fyrra en þá hafnaði Þór sem kunnugt er í 4. sæti deildarinnar. Fyrirliði KA, Njáll Eiðsson, hampar bikamum í leikslok og liðsmenn hans taka rösklega undir fögnuðinn. Mynd: KGA. Mark Steingríms ,,rothöqq“ á Þórsara Mark Steingríms Birgissonar um 10 mínútum fyrir leikslok tryggði KÁ sigur gegn Þór í Bikarmóti Knattspyrnuráðs Akureyrar sem lauk um helg- ina og eru KÁ-menn því Bikarmeistarar KRÁ. Mark Steingríms var laglegt. Upphaf þess var hjá Mark Duf- field sem gaf á Hafþór Kolbeins- Þetta þrumuskot Halldórs Þórsara Áskelssonar rataði ekki í netmöskva KA-marksins, en gott var það engu að síður. Mynd: KGA. son, hann sendi boltann strax áfram á Steingrím sem komst innfyrir vörn Þórs og eftirleikur- inn var auðveldur. KA lék undan golunni í fyrri hálfleik og sótti þá meira en í síð- ari hálfleik snérist dæmið við og Þórsarar voru þá mun meira í sókn og pressuðu reyndar stíft undir lokin. Þeir fengu tvö mjög góð marktækifæri rétt áður en KA skoraði, fyrst Bjarni Svein- björnsson og síðan Jónas Ró- bertsson en Þorvaldur Jónsson varði mjög vel frá honum. í heildina séð var þetta mjög Sverrir sigraði Sverrir Þorvaldsson sigraði í „Videómóti“ hjá Golfklúbbi Ákureyrar um helgina, en það var 18 holu keppni, sú fyrsta á þessu ári. Leikið var með fullri forgjöf og þegar upp var staðið var Sverrir á 72 höggum nettó. Annar var Sigurður Ringsted á 73 höggum og jafnir í 3.-4. sæti voru Sigur- björn Þorgeirsson og Kristján Gylfason á 74. Þeir léku „bráða- bana“ um 3. sætið og þá sigraði Sigurbjörn. Næsta mót hjá GA er um næstu helgi en það er jafnframt fyrsta mót sumarsins samkvæmt kappleikjaskrá. Leikin verður svokölluð „flaggakeppni“ með fullri forgjöf. dæmigerður KA/Þór leikur, mikil harka á milli manna og ágætur dómari Bragi Bergmann hafði nóg að gera. Hann bókaði þrjá leikmenn, Óla Þór, Erling og Steingrím Birgisson. Gústaf Baldvinsson: Gat farið á 33 báða vegu „Þetta gat faríð á báða vegu og mér er sagt að þetta hafi verið dæmigerður slagur þessara liða,“ sagði Gústaf Baldvins- son þjálfari KA eftir leikinn gegn Þór. „Ég verð að segja að mér fannst þetta fremur slakur leikur knattspyrnulega séð þótt sigurinn hafi auðvitað verið kærkominn. Mér fannst harkan fullmikil á báða bóga en dómarinn stóð sig vel,“ sagði Gústaf. Hann sagði einnig að KA myndi leika gegn Tindastóli á fimmtudag og yrði það síðasti leikur liðsins fyrir keppnina í 1. deild. „Þá erum við búnir að leika 14 æfingaleiki og það er al- veg ágætt,“ sagði Gústaf. SA og EIK unnu aftur Akureyrarliðin Eik og Skauta- félag Akureyrar héldu íslands- meistaratitlum sínum er keppt var í blaki „öldunga“ á Siglu- firði á dögunum. Þar mættu alls 18 lið til keppni og var hart baríst og spilað fram á nætur af miklum móð. í karlaflokknum sigraði Skautafélag Akureyrar, og Óð- inn frá Akureyri varð í 2. sæti eft- ir hörkukeppni við HK. í kvennaflokki sigraði Eikin ör- ugglega en dömurnar úr HK urðu í öðru sæti. Ákveðið mun vera að næsta mót fari fram á Akureyri að ári. Hildur var stigahæst Héraðsmót í sundi var haidið í nýju sundlaug- inni í Mývatnssveit, nýlega. Keppendur voru milli 80 og 90 og kepptu þeir í 5 aldursflokk- um. Keppnisgreinar voru 26. Viðraði vel og fjölmenntu áhorfendur úr Mývatnssveit. Það cr greinilegt á þátttöku og árangri í þessu móti að mikill áhugi er á sund- íþróttinni og þurfa íþróttafélögin að hlúa að unga sundfólkinu. Að móti loknu fengu keppendur, starfs- menn og vandamenn keppenda sér hressingu í Hótel Reynihlíð, þar sein verðlaun voru veitt. Sigurvegarar urðu þessir: 10 ára og yngri. 50 m bringusund. Telpur: Ingibjörg Gunnarsdótiir Völsungi Strákar: Iilugi Fanndal Eilífi 11-12 ára. 50 m bringusund. Telpur: Sigrún Sigmarsdóttir Geisla Strákar: Evcrt Víglundsson Völsungi 13-14 ára. 100 m bringusund. Meyjar: Harpa Leifsdóttir Völsungi Sveinar: Ari Sigurðsson Eilífi 15-16 ára. 100 m bringusund. Stúlkur: Hildur Runólfsdóttir Eflingu Drengir: Ófeigur Fanndal Eilífi 53,65 52,01 53,42 50,39 1,47,45 1,34,62 1,42,28 17 ára og eldri. 100 m bringusund. Konur; Sólveig Jónsdóttir Eilífi Karlar: Guðmundur Stefánsson Eilífi 11-12 ára. 50 m skriðsund. Tclpur: Þórhalla Gunnarsdóttir Völsungi Strákar: Jóhann Einarsson Völsungi 13-14 ára. 50 m skriðsund. Meyjar: Harpa Leifsdóttir Völsungi 1,26,97 1,40,03 1,29,70 39,93 42,69 41,50 | Sveinur: Hörður Eiríksson Völsungi 32,27 15-16 ára. 50 m skriðsund. Stúikur: Hildur Runólfsdóttir Eflingu 38,28 J Drengir: | Sigurgeir Höskuldsson Völsungi 33,36 1 17 ára og eldri. 100 m skriðsund. Konur: í Elín Sigurðardóttir Völsungi 1,21,26 Karlar: Ragnar Emilsson Völsungi 1,11.46 13-14 ára. 50 m baksund. Meyjar: Harpa Leifsdóttir Völsungi 48,92 Sveinar: ! Björgvin Guðmundsson Eflingu 49,57 p 15-16 ára. 50 m baksund. Stúlkur: Hildur Runólfsdóttir Eflingu 45,78 Drengir: Ófeigur Fanndal Eiltfi 44,97 17 ára og eldri. 50 m baksund. Konur: Friðrika Illugadóttir Eflingu 41,59 Karlar: Sveinbjörn Grétarsson Völsungi 39,02 4 x 25 m fjórsund. Konur: Sveit Eflingar 1,20,27 Karlar: A sveit Eilífs 1,10,20 Stigakeppni félaganna: 1. Völsungur 130 stig • 2. Eilífur 73 stig 3. Efling 68 stig 4. Geisli 5 sttg ’ Jafnar og stigahæstar kvenna á mótinu urðu þær Harpa Leifsdóttir úr Völsyngi og Hildur Runólfsdóttir úr Eflingu með 15 stig hvor. Hildur vann bikar sem stigahæsta kona i mótsins þar sem hún var f sigursveit Eflingar í fjórsundi. Stigahæsti karlmaður mótsins var Oleigur Fanndal úr Eilífi með 11 stig og vann hann karlabikarinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.