Dagur - 16.05.1984, Page 9

Dagur - 16.05.1984, Page 9
16. maí 1984 - DAGUR - 9 1. deild Islandsmótsins: Slagurinn hefst á Þórsvellinum Forráðamenn knattspyrnu- deilda KA og Þórs hafa orðið ásáttir umaö leikur iiðanna í 1. umferð Islandsmótins verði háður á velli Þórs á sunnudag- inn kl. 13.30. Það verður því grasleikur þrátt fyrir allt og er ekki að efa að hart mun verða barist. KA og Þór hafa ákveðið að heimaleikir liðanna verði sameig- inlegir, þannig að hagnaður af báðum innbyrðisleikjum liðanna í 1. deild skiptist jafnt á milli þeirra. En nú er það leikurinn á sunnudag sem er aðalmálið og víst er að knattspyrnuáhugamenn bíða þessa leiks með eftirvænt- ingu. Nú má búast við fjörugri sóknarknattspyrnu en verið hefur, því sigur gefur nú þrjú stig, jafntefli 1 stig. „Hörkuleikur“ „Ég hef trú að því að þetta verði hörkuleikur,“ sagði Gústaf Bald- vinsson þjálfari KA er við rædd- um við hann um leikinn gegn Þór á sunnudag. „Báðum liðunum hefur gengið vel í æfingaleikjum að undanförnu og þessi leikur hlýtur að verða þrælskemmti- legur og spennandi. Akureyring- ar ættu því að flykkjast á völlinn.“ „Hörkubarátta“ „Leikurinn við KA leggst ágæt- lega í mig,“ sagði Þorsteinn Ólafsson þjálfari Þórs. „Þeir eru grimmir og spila fast og við ger- um ráðstafanir til þess að taka vel á móti. Þetta verður hörkubar- átta eins og ég tel að allir leikir mótsins verði, við stefnum ákveðnir að sigri og því að fá 3 stig fyrir þennan leik.“ Við þetta er litlu að bæta, allt útlit er fyrir hörkuskemmtilega viðureign og ættu knattspyrnu- áhugamenn ekki að láta sig vanta á Þórsvöllinn kl. 13.30 á sunnu- dag. Þorsteinn Ólafsson. Gústaf Baldvinsson. Hverju spá þeir? Við hringdum i nokkra menn sem vitað ér að fylgjast vel með á knattspyrnusviðinu og báðum þá að gefa okkur upp úrslitin í leik KA og Þórs fyrirfram. Það var auðsótt mál og lítum á hvað þeir sögðu: Tryggvi Gíslason: „Eg spái 2:1 sigri KA að sjálfsögðu, það verður svo að vera.“ Eyjólfur Ágústsson: „Þetta eru jöfn lið og þetta verður mikill barningur og baráttuleikur. Ég spái því að úrslitin verði 1:1“. Samúel Jóhannsson: „Þetta er lauflétt vinur minn. Ég spái því að þór vinni KA með 3:0, held að það sé óhætt að reikna með þeim úrslitum.“ Gunnar Austfjörð: „Ég veðja á mína menn. Ég held að Þór sigri með eins marks mun og ætli úrslitin verði ekki 2:1.“ Guðmundur Sigurbjörns- son: „Þetta hlýtur að fara vel, ég spái því að Þór vinni 3:1 eða 4:1, segjum bara 3:1“. Stefán Gunnlaugsson: „Ég vil engu spá uin úrslit- in. Eg tel að þetta verði fjörugur og skemmtilegur leikur og vonast til þess að liðin sýni áhorfendum góða knattspyrnu þar sem harkan verður ekki látin sitja í fyrir- rúmi.“ Þór vann IBK og Fram „Ég tel ekki ástæðu til þess að draga of miklar ályktanir af þessum æfingaleikjum, menn eru mikið með tilraunastarf- semi í þeim, en þrátt fyrir allt get ég sagt að ég sé ánægður með þessa ferð okkar suður,“ sagði Þorsteinn Ólafsson þjálf- ari Þórs er við ræddum við hann um æfingaferð Þórsara suður um helgina. Liðið lék tvo leiki og vann sigur í þeim báðum. Sá fyrri var í Keflavík gegn ÍBK og lauk hon- um með 1:0 sigri Þórs. Það var Kristján Kristjánsson sem skor- aði eina mark leiksins, fékk góða sendingu inn fyrir vörnina og skoraði af öryggi framhjá Þor- steini Bjarnasyni. Daginn eftir var leikið gegn Fram, og Viðar Þorkelsson skor- aði fyrsta mark leiksins fyrir Framara. Óli Þór Magnússon jafnaði með skalla fyrir Þór eftir sendingu Kristjáns og Kristján var síðan aftur á ferðinni og skor- aði sigurmarkið. Hann skoraði því tvö mörk í þessari æfingaferð og lagði eitt upp. Akranes - Keflavík - Reykjavík: Byrjað á möl? Á fundi 1. deildarliðanna í gær kom fram að leikið verður á grasi í 1. umferðinni á Akur- eyri og í Kópavogi. Keflvíkingar fá ekki að vita fyrr en um helgina hvort þeir geta leikið fyrsta heimaleik sinn á Það verður hátt barist í leik KA og Þórs á sunnudag. Hér takast þeir á Njáll Eiðsson og Nói Björnsson fyrirliðar KA og Þórs. Mynd: gk-. Ekki trú á Þór og KA A blaðamannafundi sem öll knattspyrnuliðin í 1. deild efndu til í Reykjavík í gær bar ýmislegt á góma. I lok fundar- ins voru tilkynnt úrslit í skoð- anakönnun sem gerð hafði ver- ið hjá félögunum varðandi gengi félaganna í sumar og kom þar fram að ekki reikna menn með Akureyrarliðunum Þór og KA sterkum. Könnunin fór þannig fram að formenn knattspyrnudeildanna, fyrirliðar og þjálfarar spáðu allir um endanlega röð liðanna þegar upp verður staðið í haust, fékk efsta liðið 10 stig, það næsta 9 stig og svo koll af kolli. Þegar at- kvæðin höfðu verið talin saman kom í ljós að Skagamenn voru langefstir en KA og Víkingur eiga að falla í 2. deild samkvæmt þessu. Annars leit röðin þannig út: 1. Akranes 269 atkv. 2. Valur 206 atkv. 3. Fram 190 atkv. 4. Breiðablik 179 atkv. 5. KR 161 atkv. 6. Þróttur 145 atkv. 7. Keflavík 132 atkv. 8. Þór 118 atkv. 9. KA 113 atkv. 10. Víkingur 82 atkv. Gætið öryggis dómaranna“ 33 grasi og ekki er útlit fyrir að gras- völlurinn á Akranesi verði tilbú- inn alveg á næstunni. Þá er allt óvíst með vellina í Laugardal, hvenær hægt verður að leika á þeim og var greinilega urgur í fulltrúum Reykjavíkurlið- anna vegna vallarmálanna þar. Grétar Norðfjörð formaður Knattspyrnudómarafélags ís- lands sagði á blaðamannafund- inum í gær að víða um land væru dómaramálin í hinum mesta ólestri. Þannig væri einn landsdómari á Vestfjörðum og þrír hæfir landsdómarar á Austfjörðum og þessir menn yrðu að dæma alla íeiki á þessum stöðum. Grétar sagði að á þeim 30 starfandi landsdómurum myndu mæða um 900 störf alls í sumar og þótt menn hefðu sótt um að taka sér frí eða hætta hefði hreinlega orð- ið að neita þeim um slíkt. Þá gerði Grétar öryggismál dómaranna að umtalsefni. Hann sagði að ástandið væri gott á Akranesi og á Akureyri, en þó 2. deild: KS mætir Einherja - Völsungar til Njarðvíkur og Tindastóll í Hafnarfjörð Það er ekki bara í 1. deildinni sem boltinn fer að rúlla um helgina, heldur hefst einnig keppni í 2. og 3. deild og í ein- hverjum riðlum 4. deildar. Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum eiga Siglfirðing- arnir að taka á móti Einherjum frá Vopnafirði á sunnudag og hefst leikurinn kl. 14. Á sama tíma leika UMFN og Völsungur í Njarðvík og í Hafnarfirði verða FH-ingar andstæðingar Tinda- stólsmanna sem leika sinn fyrsta leik í 2. deild frá upphafi. í 3. deildinni eru þrír leikir í Norður- og Austurlandsriðli. Það eru leikir Vals og Magna, HSÞ og Leifturs og Hugins og Austra. Þessir leikir hefjast einnig allir kl. 14 á sunnudaginn. íslandsmótið hefst reyndar á morgun með leik Víkings og KR í 1. deild. Á föstudag leika Akra- nes og Fram og Valur og ÍBK og á sunnudag KA og Þór og Þróttur gegn Breiðabliki. Sérstök athygli er vakin á því að leikur KA og Þórs sem sam- kvæmt leikjabók er heimaleikur KA verður á Þórsvelli. Er það vegna þess að grasvöllur Þórs er í bestu ásigkomulagi leikvalla á Akureyri og hefst leikurinn kl. 13.30. þyrfti að byggja yfir innganginn að búningsklefum á aðalvellinum á Akureyri. „í Laugardal göngum við í hópi áhorfenda til búningsklefanna og verðum oft fyrir aðkasti. Þið verðið að gæta öryggis okkar dómaranna,“ sagði Grétar. Hann upplýsti einnig að íslenskir knattspyrnudómarar væru þeir einu í Evrópu sem ekki fengju greitt fyrir störf sín á knattspyrnuvellinum. Félag leikmanna Nokkuð mun hafa verið um það rætt meðal leikmanna í 1. deild að koma á fót félagsskap leikmannanna. Ögmundur Kristinsson mark- vörður Víkings sagði frá þessu á blaðamannafundi í gær og upp- lýsti að meðal atriða á stefnu- skrá slíks félags yrði að halda veglegt lokahóf að hausti og myndu leikmenn þar kjósa besta leikmanninn úr sínum röðum í slíku hófi og ýmislegt fleira yrði á stefnuskránni. Talið er líklegt að þetta félag verði að veruleika strax í sumar. Miðaverð Ákveðið hefur verið að miðaverð á leiki í deildakeppninni í knatt- spyrnu í sumar verði 100 krónur fyrir fullorðna og 40 krónur fyrir börn.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.