Dagur - 28.05.1984, Blaðsíða 1
67. árgangur
Akureyri, mánudagur 28. maí 1984
Hægt að borga Kröflu
upp á skömmum tíma
— ef framleiðslumöguleikarnir eru fullnýttir en aldrei
ef ástandið verður óbreytt og ekkert verður gert
Eina leiðin tíl að Kröfluvirkjun
geti borgað sig upp sjálf og
ekki þurfi að greiða hana niður
með skattfé landsmanna er sú,
að koma þeirri vélasamstæðu
sem nú er fyrir hendi í full
afköst, eða það sem er ennþá
betra, að taka alla virkjunina í
notkun og auka afl hennar í 60
MW.
Þetta er meginniðurstaða hag-
kvæmnisathugunar sem Verk-
fræðistofan Strengur gerði fyrir
Rarik. Skýrsla kom út um málið
á síðasta ári, en henni virðist lítið
hafa verið haldið á lofti. Nú er
hins vegar um það rætt að flytja
vélasamstæðu nr. 2 suður á land,
líklega að Svartsengi.
Samkvæmt þessari athugun
má ætla að það versta sem gert er
varðandi Kröfluvirkjun sé að láta
hana dankast á minna en hálfum
afköstum, miðað við það sem
upphaflega var áætlað. Með 20
MW aflframleiðslu getur virkjun-
in aldrei borgað sig upp, en verði
aflið aukið í 30 MW og vélarnar
sem nú eru í notkun þannig full-
nýttar, gæti hún borgað sig upp
árið 2012 eða þar um bil. Væri
hins vegar hin vélasamstæðan
tekin í notkun væri hægt að
greiða virkjunina niður enn hrað-
ar og ljúka því árið 2006 eða þar
um bil, en þá þyrfti að koma til
viðbótarfjármagn fyrst í stað.
Sjá nánar um þetta mál á bls. 3.
HS.
Halldór Laxness var gestur á fundi Félags aldraðra í Sjallanum í gær. Þar Heimsókn á þorra og einnig kafla úr endurminningabókum sínum. Hinum
fluttu leikarar úr LA hluta úr Sjálfstæðu fólki, og Halldór las smásöguna góða gesti var ákaflega vel tekið. Mynd: KGA.
Þjálfunarskólinn á
götunni í haust?
Verða 30 þroskaheftír einstakl-
ingar í Þjálfunarskóla ríkisins
á Akureyri án skólahúsnæðis í
haust? Þjálfunarskólinn missir
þá það húsnæði sem hann hef-
ur verið í á Sólborg og þar sem
Síðuskóli hefur ekki verið
byggður þá er allt útlit fyrir
það í augnablikinu að skólinn
sé á götunni frá og með 1. sept-
ember.
- Það þarfekki góðan vilja til
að leysa þetta mál. Þetta eru
landslög en svo virðist sem það
eigi að níðast á þessu fólki, sagði
Jón E. Aspar, formaður For-
eldrafélags barna með sérþarfir
er Dagur leitaði álits hans á mál-
inu.
Jón sagði að menntamálaráðu-
neytinu væri vel kunnugt um það
ófremdarástand sem væri að
skapast en það eina sem ráðu-
neytið hefði gert til þess að út-
vega grunnskóla þroskaheftra
húsnæði væri að skrifa skólunum
á Akureyri bréf þar sem óskað
væri eftir því að þeir skytu skjóls-
húsi yfir Þjálfunarskólann.
Á fundi foreldrafélagsins og
kennara við Þjálfunarskólann
fyrir skömmu var samþykkt
harðorð ályktun þar sem þess er
krafist að viðunandi húsnæði fyr-
ir skólann verði tryggt þar til
Síðuskóli kemst í gagnið. Fund-
urinn vekur einnig athygli á því
að engin fjárveiting sé til þessarar
nýbyggingar á árinu en þess í stað
fari fjármagnið til uppbyggingar
á Reykjavíkursvæðinu.
- Við glöddumst þegar við
fréttum að Magnús Magnússon,
fyrrum skólastjóri Öskjuhlíðar-
skóla hefði verið ráðinn sér-
kennslufulltrúi hjá ráðuneytinu
en nú er svo komið að við for-
eldrar hörmum þá ráðstöfun,
sagði Jón ‘E. Aspar.
- Það eina sem mér er kunn-
ugt um að ráðuneytið hafi gert er
þetta bréf sem skólanefndinni var
sent en skólarnir á Akureyri hafa
nú svarað því erindi neitandi,
sagði Þorbjörg Sigurðardóttir,
skólastjóri Þjálfunarskólans á
Akureyri. Þorbjörg sagði enn-
fremur að nú væru 11 stöður við
skólann sem ráða þyrfti í fyrir
næsta vetur en nemendurnir 30
ættu rétt á fimm til fimmtán tíma
kennslu á viku hverri allt eftir
því hvers eðlis fötlun þeirra væri.
- Ráðuneytið hefur alltaf leyst
mál sem þessi og ég vonast til
þess að þess verði skammt aö
bíða að við finnum húsnæði fyrir
skölann, sagði Magnús Magnús-
son sérkennslufulltrúi í samtali
við Dag.
Magnús sagði það ekki rétt að
uppbygging á Reykjavíkursvæð-
inu væri á kostnað Akureyrar.
Hið rétta væri að dregið hefði
verið úr framkvæmdahraða við
Síðuskóla þar sem Þjálfunarskól-
inn verður til húsa í einni álmu
og þess vegna hefði ekki verið
veitt fjármagni til skólans í ár.
Þess bæri og að geta að fé til
byggingarframkvæmda í þágu
þroskaheftra kæmi úr sérstökum
framkvæmdasjóði sem allir fatl-
aðir nytu fyrirgreiðslu úr en sjóð-
ur þessi hefði svipað fjármagn til
ráðstöfunar í ár og á árinu 1983.
- ESE.
61. tölublað
Heila línan sýnir skuldaþróunina
miðað við að virkjunin yrði fullgerð,
strikalínan hvernig skuldimar
minnkuðu ef aðeins fyrri vélasam-
stæðan yrði sett á fúll afköst og
strika- og puntktalínan hvemig
skuldir myndu sífeUt aukast miðað
við 20 MW afl.
Skag-
firð-
inga-
búð
- bls. 8
Þar sem uppstigningardagur er
næsta fimmtudag kemur blaðið
ekki út á föstudag. Miðvikudags-
blaðið verður hins vegar í mynd-
arlegra lagi. Auglýsendum og
þeim sem þurfa að koma efni í
blaðið er bent á að gera það fyrir
hádegi á morgun, þriðjudag.