Dagur - 28.05.1984, Blaðsíða 9
28. maí 1984-DAGUR-9
- Ég tel að við höfum náð
þeirri verslun sem við stefndum
að en við stefnum hærra. Húsið
er ekki fullbyggt og við höfum
talsverða möguleika til að bæta
okkur verulega, segir Magnús en
þess má geta að húsnæðið sem
Skagfirðingabúð er í er upp á um
900 fermetra að grunnfleti. Á
annarri hæð verður síðan aðal-
skrifstofa kaupfélagsins en þriðju
hæðinni er enn óráðstafað.
Standandi tilboð
allt árið
- Hvernig hafa Samvinnu sölu-
boðin gengið?
- Þetta er tiltölulega nýtt hjá
okkur þannig að fullnaðarreynsla
er ekki fengin. En þessi tilboð
hafa mælst vel fyrir enda höfum
við selt þarna vöru án álagningar
og nú seljum við t.a.m. þvotta-
duft á verði sem er undir heild-
söluverði. Annars höfum við ver-
ið með sérstök tilboð á fimm til
átta vörutegundum í senn allt frá
áramótum, bæði matvöru og
vefnaðarvöru og þetta hefur gef-
ið góða raun.
- Einhverjar nýjungar á
prjónunum?
- Við erum að undirbúa nýtt
verkefni. Hugmyndin er að taka
nokkrar grunnvörur og selja á
botnverði, hugsanlega án nokk-
urrar álagningar. Þetta yrði ýmiss
konar grunnvara í mat og svo
rekstarvörur fyrir bændur en
hugmyndin er sú að hafa þetta til-
boð í gangi allt árið. Með þessu
móti ætti salan að aukast veru-
lega og við ættum að geta samið
við framleiðendur um mun lægra
verð en áður hefur þekkst.
- Hvernig stendur Skagfirð-
ingabúð sig í verðlagslegu tilliti?
- Við erum auðvitað ekki
samkeppnisfær við stórmarkað-
ina í Reykjavík. Það segir sig
sjálft að á meðan markaðurinn er
ekki stærri en hann er í dag þá
eigum við undir högg að sækja.
Þessi tilboð sem ég minntist á
ættu þó að geta vegið að nokkru
leyti upp á móti verðmismunin-
um hjá okkur og stórmörkuðun-
um í Reykjavík. En þetta verður
erfitt því auk þess hve markaður-
inn er smár þá þurfum við að
hugsa um að hafa mikið fleiri og
fjölbreyttari vörur en verslanir
t.d. í Reykjavík. Við þjónum hér
miklu landbúnaðarsvæði og verð-
um því að vera með vörur og
þjónustu í samræmi við það og
eiginlega er Skagfirðingbúð fjöldi
sérverslana innan stórmarkaðar-
ins. Við erum hér með matvöru-
deild, byggingavörudeild, radíó-
deild, snyrtivörudeild, sportvöru-
deild, leikfangadeild, vefnaðar-
og skódeild og svo er það vara-
hlutaþjónustan.
- Hver heldur þú að þróun
verðlags verði á næstunni?
- Vöruverð hefur lækkað mik-
ið að undanförnu vegna þess að
menn hafa lagt sig fram um að
ná hagstæðum samningum og
hagstæðum innkaupum. Sú þró-
un ætti að geta haldið áfram.
- ESE
þar á milli.
I T R E K U N LlFEYRISSJÓÐUR verzlunarmanna
'vid itrekuni t i lkynnina u okkar um HÚSI VERZLUNARINNAR - 108 REYKJAVlK - SlMI 84033 Nafnnúmer 6088-9961
n jt; 1 ddoíJð s skuldabret'i nr . 13456 »
ul.ge.fnu t»ónn 26.4.1983 med vedi i Reykjavlk ^15.5.1984
109.RFYKJAVIK-9 G J < • 1 d d a 'A i var 26.4.1984 SIGRUN S BRLDURSíiOTTIR 7é89-0é33
Af bo k r . 1.750.00 GARÐSVIK 601 AKUREYRI
Uexti r k r , 1.171,54
Visitöluslaa . kr. 1.519,81
Hrattárves:ti r kr. 111,05
8 a iti t a 1 s ...... k r . 4.552,40
Þessi upphid er midud vid ad dreitt
*■> e 25.5.1984 e d a f arr . Hun hzkkar ITi
k r. 111.05 f y rir hv er n manud, s ?m
áreidsla drejíst frekar f ra sJalddaaa.
Er ekki í líf-
eyrissjóðnum
- Ég veit ekki hvað maður á
að halda um stofnanir sem
þessa þar sem tölvurnar virðast
hafa yfirtekiö staðinn.
Þetta sagði maður nokkur sem
leit hér inn á ritstjórn Dags en
stofnunin sem hann átti við er
Lífeyrissjóður verslunarmanna.
Ástæðan fyrir þessum ummælum
er sú að lífeyrissjóðurinn eða
a.m.k. tölvur stofnunarinnar
hafa reynt að rukka inn greiðslu
fyrir skuldabréf sem sjóðurinn
staðhæfir að eiginkona mannsins
eigi að greiða. Er upphæð þessar-
ar afborgunar samtals um 4.500
krónur með vöxtum, vísitöluálagi
og dráttarvöxtum en auðvitað
falla dráttarvextir á greiðslur
þegar fólk borgar ekki þegjandi
og hljóðalaust.
Nú væri þetta gott og blessað
ef umrædd kona, Sigrún S. Bald-
ursdóttir á Akureyri hefði tekið
umrætt lífeyrissjóðslán. og hefði
eitthvað með þá fasteign að gera
sem veð fyrir láninu er í. Svo er
hins vegar ekki og Sigrún er að
sögn eiginmannsins alls ekki í líf-
eyrissjóði verslunarmanna, hvað
þá að það hafi hvarflað að henni
að ganga í þann sjóð.
- Við sendum bréf til sjóðsins
þegar fyrsta rukkunin kom og
skýrðum málið en því var aldrei
svarað. Þess í stað kom ítrekun -
hótunarbréf þar sem okkur var
tjáð hvað gerðist ef greiðsla
drægist. Ég veit ekki hvað maður
á að halda um stofnanir þar sem
starfsfólkið getur ekki lesið bréf
Gistiheimili
í Skipagötu
Nokkur gistiherbergi ættu að
bætast við gistirými á Akureyri
innan tíðar ef bæjarstjórn sam-
þykkir staðsetningu nýs gisti-
heimilis að Skipagötu 4.
Það er Stefán A. Jónasson sem
hefur sótt um að reka gistiheimili
á annarri hæð í húseigninni
Skipagötu 4 og hefur bygginga-
nefnd samþykkt þessa beiðni
Stefáns með fyrirvara um sam-
þykki heilbrigðisnefndar. - ESE
sem því eru send en ég vona að
frásögnin í Degi verði til að ýta
við þeim, sagði maðurinn að
lokum. - ESE
ítrekunarbréflð sem Sigrún fékk sent.
Victoria
ítalskar úrvalsharmonikur
Tveggja kóra 50 bassa unglingastærð
Þriggja kóra 120 bassa
Þriggja kóra 120 bassa með pic-up
Fjögurra kóra 120 bassa
Fjögurra kóra 120 bassa með pic-up
kr 12 540 nn
kr. 22.100,00 og kr! 24Í300Í00
kr. 25.745,00
kr. 32.930,00
kr. 35.375,00
kr. 49.145,00
Fjögurra kóra 120 bassa Cassotto m/pic-up
Vönduð taska innifalin í verði.
Tökum notaðar .____jl _. _
harmonikur ÍísíU/ÍDl'UíllU
upp í nýjar. - szssz zuUtJllw s 22111
30 ára þjónusta
SENDffilLASTOÐIN SF.
AKUREYRI • SÍMI 22133.
Góðir bílar — Góð þjónusta.
Höfum bíla 5 m3—26 m3 að stærð og með burðargetu allt að
6 tonn.
Heppilegir bílar til búslóðaflutninga.
Störtum í gang + Drögum í gang
Smáauglýsingaþjonusta Dags
Það skal tekið fram vegna hinna
fjölmörgu sem notfæra sér
smáauglýsingar Dags að ef
endurtaka á auglýsinguna strax
í næsta blaði eða næstu viku
bætast aðeins 40 kr. við verð fyr-
ir eina birtingu. Verð smáauglýs-
ingar er nú 220 kr., miðað við
staðgreiðslu eða ef greiðslan
er send í pósti, en 280 kr. ef ekki
er staðgreitt. Ef þessi nýja þjón-
usta er notuð þá kostar auglýs-
ingin nú 260 kr. birt tvisvar.
Tilboð þetta miðast eingöngu við staðgreiðslu