Dagur - 28.05.1984, Síða 12
EIRRÖR -TENGI ® I
SMURKOPPAR lú!
Mývatnssveit:
Sundlaugin öll í
svörtum skellum
— „Verið að rannsaka málið,“ segir fulltrúi fyrir-
tækisins sem seldi Mývetningum laugina
„Þessar skemmdir á sund-
lauginni komu strax í Ijós þeg-
ar laugin hafði verið ■ notkun í
tæpa tvo mánuði og mér vitan-
lega veit enginn enn þann dag
í dag hvað það er sem veldur
þessu,“ sagði Ingibjörg Gísla-
dóttir sem sér um rekstur
sundlaugarinnar í Mývatns-
sveit.
Laugin var tekin í notkun í
júní 1982 og þá strax varð vart
við þessar skemmdir, en þær lýsa
sér sem svartar skellur um alla
laugina sem er úr plasti. Gert var
við þessar skemmdir af fyrirtæk-
inu sem sá um að setja laugina
niður en allt kom fyrir ekki og
nú er laugin eins aftur.
„Það þýðir ekkert að vera að
stöðva starfsemina hér á hverju
ári til þess að láta gera við þetta
ef skemmdirnar koma strax
aftur,“ sagði Ingibjörg. Við
ræddum einnig við Ólaf Guð-
mundsson hjá Skipasmíðastöð
Guðmundar Lárussonar hf. á
Skagaströnd en það fyrirtæki seldi
Mývetningum laugina og sá um
að setja hana niður.
“Það er rétt að þarna hafa
komið í ljós skemmdir á laug-
inni,“ sagði Ólafur. „Við sendum
sýnishorn af plastefninu sem er í
lauginni til Danmerkur til rann-
sóknar og bíðum nú niðurstöðu
úr þeirri rannsókn. Efnið í laug-
inni er hitaþolið og á að þola um
100 gráðu heitt vatn og var keypt
með hliðsjón af því að nota það í
Það var mikið átak hjá Mývetningu að koma sér upp þessari fallegu sund-
laug. Því voru það töluverð vonbrigði að skemmdir komu fram í lauginni og
fleiri iaugum sömu tegundar. Reynt hefur verið að mála laugina en án árang-
urs enn sem komið er. Mynd: HS.
sundlaug. Þá hafa menn einnig ið þessum skemmdum og það er
látið sér detta í hug að einhver verið að rannsaka það einnig,“
efnasambönd í vatninu hafi vald- sagði Ólafur Guðmundsson. gk-.
L.„:Æ
L.V .V . .. s*m '1|| ; -|
[biy | , ill
Krakkarnir á leiksvæðinu - Eiðsvallagata 28 í baksýn.
Mynd: ESE.
Styrjaldarástand
Styrjaldarástand ríkir nú á opna
leiksvæðinu á milli Eiðsvallagötu og
Gránufélagsgötu á Akureyri. Harð-
ar deilur hafa staðið þar á milli
húseigenda og barnanna sem leika
sér á vellinum í hartnær 20 ár með
litlum hvíldum og sl. fimmtudag
sauð svo upp úr með þeim afleiðing-
um að lögreglan var kvödd á
staðinn.
- Þetta er ófært. Ein kona meinar
börnunum að leika sér á opinberu
leiksvæði. Hún sigar þrítugum syni
sínum á börnin og hann hótar að
berja þau. Hún tekur bolta sem fara
inn í garðinn og neitar að afhenda
þá þó kurteislega sé um beðið og
hún vökvar leiksvæðið á nóttinni
þar til það breytist í forarsvað bara
til þess að börnin geti ekki leikið sér
þar, sagði Guðrún Sigurðardóttir
sem kom ásamt tveim sonum sínu
og 17 öðrum börnum á ritstjórnar-
skrifstofur Dags til þess að vekja at-
hygli á þessu máli.
Að sögn Guðrúnar og barnanna
sauð upp úr í gær er konan tók bolta
sem fór inn í garðinn yfir tveggja
metra girðingu og neitaði að af-
henda hann. Þá var lögreglan til-
kvödd og eftir hálftíma þref þá var
boltanum skilað.
- Ég er búin að standa í þessum
slag í 20 ár og þrátt fyrir loforð
bæjaryfirvalda um að þarna yrði
aldrei fótboltavöllur þá hef ég orðið
að þola stöðug skemmdarverk,
sagði Kristín Albertsdóttir, eigandi
Eiðsvallagötu 28, en hún er konan
sem stendur í baráttu við fótbolta-
krakkana.
Að sögn Kristínar hafa rósarunn-
ar og tré verið skemmd og það sama
má segja um kartöflugarðinn.
- Mitt eina ráð fram að þessu
hefur verið að taka boltana og
sprauta á völlinn, en ef þessu linnir
ekki þá verð ég að selja húsið, sagði
Kristín Albertsdóttir. - ESE
Stéttarsambandið
harðlega gagnrýnt
- á aðatfundi Sölufélags
Austur-Húnvetninga
Á aðalfundi Sölufélags Aust-
ur-Húnvetninga sem haldinn
var á Blönduósi fyrr í mánuð-
inum var harðlega fordæmd
sú ákvörðun stjórnvalda að
lækka stórlega niðurgreiðslur
búvara þegar Ijóst sé að kaup-
geta þorra neytenda sé stór-
skert sem valdi tvímælalaust
samdrætti í neyslu þessara
vara.
í ályktuninni segir að sá
neyslusamdráttur bitni óhjá-
kvæmilega á bændastéttinni í
formi verðvöntunar og birgða-
söfnunar. Jafnframt lýsti fundur-
inn furðu sinni á að Stéttarsam-
band bænda skuli ekki mótmæla
harðlega lækkun niðurgreiðslna
við þessar aðstæður. Ennfremur
var samþykkt ályktun þar sem
segir að aðalfundur S.A. H. víti
harðlega þann sofandahátt sem
forsvarsmenn Stéttarsambands-
ins sýni með því að svara á engan
hátt þeim gegndarlausa áróðri í
garð bændaséttarinnar, sem sí-
fellt glymji í eyrum landsmanna.
HS.
Nau$lenti með
prja farþega
Einkaflugvél frá Akureyri
nauðlenti á Jökuldal í gærdag.
Fjórir voru í vélinni og sakaði
engan þeirra og talið er að vél-
in sé lítið skemmd eða nánast
ekkert.
Vélin var í æfingaflugi á leið
frá Akureyri til Reykjavíkur og í
henni voru 3 farþegar auk
flugmanns. Vélarbilun kom í Ijós
og var vélinni nauðlent á túninu
við Mælivelli á Jökuldal og gekk
lendingin að óskum.
Flugvirki frá Egilsstöðum mun
hafa farið og litið á vélina, en
flugmaðurinn og farþegar hans
komu með annarri flugvél frá Eg-
ilsstöðum til Akureyrar í
gærkvöld.
Lægð á Grænlandshafl veldur því að
á norðvestanverðu landinu verður
suðvestanátt og sennilega bjartviðri,
eða að minnsta kosti góðviðri á
þriðjudag. Það dregur svolítið úr
þessu á miðvikudag, þó líklega með
þeim afleiðingum að veðrið verður
ennþá betra fyrir norðan á mið-
vikudag. „Svo er best að ég tyggi í
þig tölvuspána frá því í nótt. Á
flmmtudag mun hann snúa sér
meira í suðaustan en hangir líklega
þurr. Á föstudag verður hann orð-
inn austlægur með skúraleiðingum,
að minnsta kosti út við ströndina,"
sagði veðurfræðingur í morgun.
# „Lands-
byggðin
getur
komið...“
Margar tillögur voru lagðar
fyrir þing Handknattleiks-
sambands íslands sem hald-
ið var um helgina f Reykjavík.
En ætli sú furðulegasta hafi
ekki komið frá Jóhanni Óla
Guðmundssyni f.h. Hand-
knattleiksráðs Reykjavíkur?
Við grípum níður í þá tillögu:
„ .. .Ferðakostnaður yngri
flokka vegna „Turneringa“ er
of hár og ofviða aðildarfé-
lögum H.K.R.R. Surnir vilja
svæðaskipta landinu þannig
að einungis verði um eina úr-
slitaturneringu að ræða. Aðr-
ir vilja skera Stór- Reykjavík-
ursvæðið frá öðrum hlutum
landsins og halda einungis
mót fyrir það svæði. Enn aðr-
ir telja landsbyggðina geta
komið hingað ef þeir vilja
vera með ... “ Þetta eru út-
skýringar með tillögu sem
gerir ráð fyrir því að yngri
flokkar félaga í handknattleik
utan Stór-Reykjavíkur-
svæðisins geti hugsanlega
fengið að taka þátt í íslands-
móti ef þeir hafi mjög mikinn
áhuga á því. Við krjúpum hin-
um háu snillingum f Reykja-
vík.
# Opnað með
„elegans“
Bílasala „Sótfeðganna“
svokölluðu Gunnars og Har-
aldar var flutt í nýtt húsnæði
um helgina og var opnað þar
með miklum glæslbrag. Opið
hús var um daginn og
þangað steymdí fólk f stór-
um hópum. Boðið var upp á
tertu eina hrikalega stóra og
skar „yfirsótarinn“ fyrstu
sneíðina við geysileg fagnað-
arlæti viðstaddra. Þá var
kokteill á boðstólum og ekki
má gleyma 2.000 snittum
sem pantaðar voru f tilefni
dagsins. Ef þetta er ekki að
opna með „elegans“ hvað er
það þá?
• „Tollhöfn" á
Selfossi
Jæja, þá eru þeir búnfr að
opna „tollhöfn“ á Selfossi og
er það vel. Væntanlega verð-
ur þess ekki langt að bíða að
skipin fari að streyma upp
Ölfusá með varnlng og hver
veit nema næsta „tollhöfn“
verðl í Mývatnssveit. Þar eru
a.m.k. aðilar sem fást við út-
gerð eins og fram kemur á
bls. 2 f dag.