Dagur - 25.06.1984, Qupperneq 7
6 - DAGUR - 25. júní 1984
Kristján
fór holu
i hoggi!
Kristján Hjálmarsson, kylfingurinn góö-
kunni frá Húsavík geröi sér lítið fyrir s.l.
miðvikudag og fór holu í höggi á golfvelli
þeirra Húsvíkinga, Katlavclli.
Afrek sitt vann Kristján á 3. braut, en
á miðvikudag var keppt á Húsavík í einu
svokallaðra miðvikudagsmóta sem haldin
eru í klúbbnum.
Kristján notaði 9 járn er hann kom á 3.
teiginn. Kúla hans kom cinu sinni niður á
flötina við holuna, og hoppaði síðan einu
sinni áður en hún small í holuna. Þess má
geta að hola í höggi hefur aldrei verið
slegin áður á þessari braut sem er mjög
stutt óg skemmtileg, og einnig var þetta í
fyrsta skipti sem Kristján nær þessu
draumahöggi allra kylfinga.
Stableford:
Sigurður
með flesta
punkta
Sigurður H. Ringsted sigraði i Stableford
golfkeppni hjá Golfklúbbi Akureyrar
sem haldin var s.l. fimmtudagskvöld.
Leiknar voru 18 holur með 7/8 forgjöf,
svokölluð punktakeppni.
Sigurður hlaut alls 36 punkta og var
mikil keppni milli hans og næstu manna.
Guðmundur Finnsson var með 35 punkta
og síðan komu þrír menn með 34 punkta,
Jóhann Andersen, Björn Axelsson og
Konráð Gunnarsson. í aukakeppni þeirra
á milli reyndist Jóhann hlutskarpastur.
Verðlaun » þessa keppni voru gefin af
fyrirtækinu Securitas s.f. á Akureyri og er
>ökkum til fyrirtækisins hér með komið
á framfæri.
Næsta mót hjá GA verður á fimmtu-
dag. Er það einnar kylfu keppni sem hefst
kl. 16 en ræst verður út til kl. 18.
Nýr
völlur -
3 stig!
Geislantenn á Hólmavík tóku nýjan
leikvöll í notkun um helgina, og héldu
upp á daginn með 2:1 sigri gegn Hvöt
frá Blönduósi í 4. deildinni.
Hvatarmenn sögðust reyndar aldrei
hafa séð annan eins völl, hann væri
hvorki gras- né malarvöllur, en minnti
einna helst á itioldarflag. En hvað um
það, dómarinn samþykkti völlinn eftir
„skoðun‘‘ í upphafí leiks, og Geislinn
tók öll stigin.
í hinum leik d-riðils 4. deildar léku
Svarfdælir og Reynir Árskógsströnd.
Svarfdælir komust í 1:0, Reynir jafn-
aði, Svarfdælir komust í 2:1 en aftur
jafnaði Reynir 2:2 og þar við sat.
í e-riðli var einn leikur, Tjörnes sigr-
aði Æskuna með einu marki gegn
engu. Vaskur og Vorboðinn leika síð-
an á Akurevrarvelli kl. 20 í kvöld.
Þórsarar góðir
í Laugardalnum!
Unnu Vfking sannfærandi 2:0
Þórsarar þokuðu sér vel upp
stigatöfluna í 1. deildinni um
helgina er þeir fóru suður og
unnu 2:0 sigur á Víkingi á
Laugardalsvelli. Þeir sýndu
góðan leik og unnu sann-
gjarnan sigur á annars góðu
liði Víkings - sem var bara
ekki nógu gott til að stöðva
þá.
Þórsarar fengu óskabyrjun. Óli
Þór með stungubolta strax á 3.
mínútu og hamraði hann í netið
að sögn heimildarmanns Dags í
Reykjavík. Vfkingar gerðu allt
sem þeir gátu til þess að jafna
metin eftir þetta, sóttu mun
meira, en Þorsteinn Ólafsson í
marki Þórs var með gamla, góða
takta og hirti allt sem kom nærri
honum og hans yfirráðasvæði.
Þórsarar byrjuðu síðari hálf-
leik ekki ólíkt og þann fyrri og
komust í 2:0 á 13. mínútu hálf-
leiksins. Halldór Áskelsson með
góða sendingu fyrir markið og
Bjarni Svelnbjörnsson stakk sér
inn fyrir og skoraði af öryggi.
Eftir þetta voru Þórsarar orðn-
ir hinn sterki aðili leiksins. Þeir
gerðu harða hríð að marki Vík-
ings og fengu gullin tækifæri til að
bæta við mörkum, en annað
hvort var Ögmundur Kristinsson
Leiftur sótti
stig á
Neskaupstað
Leiftur frá Ólafsfirði styrkti
stöðu sína í b-riðli 3. deildar
verulega um helgina er liðið
hélt til fundar við Þróttara á
Neskaupstað - aðalkeppi-
nauta sina í riðlinum eins
og er - og hélt burt með eitt
stig eftir 1:1 jafntefli.
Leikur liðanna var mikill bar-
áttuleikur og var greinilegt að
mikið var í húfi. Ekkert mark var
skorað í fyrri hálfleik en í þeim
síðari komst Þróttur yfir með
marki úr vítaspyrnu. Kristni
Björnssyni þjálfara og leikmanni
Leifturs - gömlum landsliðs-
manni úr Val og í A - líkaði þetta
ekki alls kostar og jafnaði metin,
og þar við sat.
I Mývatnssveit áttust við HSÞ-
b og Magni frá Grenivík, og
unnu heimamenn með einu
marki gegn engu, marki skoruðu
af Jóni Kr. Gíslasyni.
En á Seyðisfirði gekk öllu
meira á. Þar áttust við Huginn og
Valur frá Reyðarfirði og lauk
þeirri viðureign 4:4. „Það er eins
og menn haldi að það þurfi ekk-
ert að hafa fyrir hlutunum," sagði
Ólafur Már Sigurðsson formaður
knattspyrnudeildar Hugins er við
ræddum við hann.
Staðan í hálfleik var 3:2 fyrir
Hugin og liðið komst í 4:2. Þá
settu leikmenn Hugins í „hlut-
lausan gír“ og Valsara'r voru
fljótir að ganga á lagið og jafna
metin.
á réttum stað í marki Víkings eða
tækifærin fóru forgörðum af
öðrum orsökum.
Þórsarar hafa vakið mikla at-
hygli í tveimur síðustu leikjum
Bjarni Svcinbjörnsson átti stórleik
gegn Víkingi.
sínum í Reykjavík, og virðist
ganga betur þar en á heimavelli -
einhverra hluta vegna. En lið
sem gerir góða hluti á útivelli á
að geta slíkt hið sama heima, og
áhangendur liðsins bíða nú föstu-
dagsins er Valsmerin koma í
heimsókn.
Bjarni Sveinbjörnsson átti
stórleik hjá Þór, sífellt ógnandi
og hættulegur, Þorsteinn Ólafs-
son í markinu öryggið uppmálað
og hleypti engu í gegn, og Óskar
Gunnarsson, Jónas Róbertsson
og Halldór Áskelsson allir með
mjög góðan leik.
Þórsliðið hefur nú virkilega
sýnt hvað í því býr, „tekið“ bæði
KR og Víking á útivelli „án telj-
andi erfiðleika". Nú er það
heimavöllurinn sem gildir, og
hann á að vera liðinu stórt for-
skot ef allt er eins og það á að
vera - leikmenn á heimaslóðum,
og með góða stuðningsmenn með
sér.
Eg er
bjartsýnn
- sagði Guðmundur Svansson
eftir 1:0 sigur Þórs gegn KA
„Mér sýnist á öllu að það verði
KA og Þór sem komi til með
að berjast um sigurinn í þess-
um riðli 1. deildar, og því hlýt
ég að vera bjartsýnn eftir 1:0
sigur okkar á KA um helgina,“
sagði Guðmundur Svansson
þjálfari kvennaliðs Þórs eftir
sigurinn gegn KA um helgina.
„Mér sýnist á öllu að við þurf-
um aðeins jafntefli gegn KA í
síðari leiknum til þess að sigra í
riðlinum og ég er bjartsýnn á að
við munum spila úrslitaleikinn
gegn sigurvegurunum úr hinum
riðlinum,“ sagði Guðmundur.
Það var Anna Einarsdóttir sem
skoraði eina markið í leik Þórs og
KA. Hún fiskaði sjálf vítaspyrnu
snemma í fyrri hálfleik - og skor-
aði sigurmark Þórs örugglega úr
spyrnunni sjálf.
í Norður-Austurlandsriðli 1.
deildar kvenna keppa fjögur lið,
KA, Þór, Höttur frá Egilsstöðum
og Súlan frá Stöðvarfirði. Tveim-
ur umferðum er lokið í riðlinum,
og eru Þórsstúlkurnar efstar,
hafa unnið báða sína leiki. Eftir
leiki helgarinnar er staðan í riðl-
inum þessi:
Þór-KA
Höttur-Súlan
tiart Darist um boltann í leik KA og Þórs.
Mynd: KGA.
Þór 2 2 0 0 4 :0 6
KA 2 10 12: :1 3
Súlan 2 10 11 :2 3
Höttur 2 0 0 2 0: :4 0
25. júní 1984 - DAGUR - 7
Njáll Eiðsson í hörkubaráttu við vörn Blikanna, og hefur bctur. Mynd: KGA.
Slakir Blikar heim
með öll 3 stigin
- Unnu KA 1:0 í afspyrnulélegum leík
Það voru ekki ánægðir vallar-
gestir sem yfirgáfu Akureyrar-
völl sl. föstudagskvöld, enda
engin ástæða til þess fyrir þá.
Afar slakt lið KA hafði þá tap-
að fyrir jafnslöku eða slakara
liði Breiðabliks 0:1, en leikur
liðanna var þannig að hvorugt
liðið hefði átt skilið að fá 3 stig
úr viðureigninni.
En Breiðabliksmenn skoruðu
gott mark í fyrri hálfleiknum, og
á því marki „héngu“ þeir út leik-
inn og fögnuðu mjög í lokin.
„Þriggja stiga reglan í fram-
kvæmd,“ sagði kátur þjálfari
þeirra í leikslok.
„Okkar besti leikur
|j| þessa^ Tindastoll-ÍBV 0:0
- Þetta var okkar besti leikur
í 2. deild til þessa og ég er að
verða bjartsýnn á framhaldið
ef svo fer fram sem horfir,“
sagði Árni Stefánsson þjálfari
2. deildar liðs Tindastóls eftir
0:0 jafntefli Tindastóls og ÍBV
á Króknum um helgina.
„Ef mínir inenn gera sér grein
fyrir því að hver einasti leikur er
barátta upp á líf og dauða, þá
kvíði ég engu, og mér sýnist að
þeir séu að öðlast þann hugsunar-
hátt,“ sagði Árni. „Vestmanna-
eyingarnir voru meira með bolt-
ann en sköpuðu sér ekki mjög
hættuleg tækifæri utan þess að
þeir áttu stangarskot. Okkar færi
voru að vfsu ekki mjög merkileg
heldur, en strákarnir léku vel úti
á vellinum og ég er mjög ánægð-
ur með þennan leik.“
Völsungar upp
að hlið FH-inga
Völsungar eru komnir á gott
skrið í 2. deildinni og um helg-
ina skutust þeir upp að hlið
FH-inga á toppi deildarinnar.
Þeir unnu þá KS 3:1, en á
sama tíma tapaði FH heima
fyrir Víði 1:2.
Hinn stórefnilegi leikmaður
Völsunga Svavar Geirfinnsson
kom Völsungum á bragðið strax
á 3. mínútu með glæsilegu marki,
þrumuskot frá vítateigslínu
fjærhorn.
Siglfirðingar jöfnuðu metin á
40. mínútu, Björn Ingimundar
skyndilega á auðum sjó eftir
varnarmistök og hann gerði eng-
in mistök.
Völsungar voru frískari í síðari
hálfleik og bættu þá tveimur
mörkum við. Sigmundur Hreið-
arsson skoraði það fyrra eftir
hornspyrnu, og Kristján „thund-
erbird“ Olgeirsson sendi inn
þrumufleyg af löngu færi.
í þessum leik léku þeir með KS
Englendingarnir Colin Thacker
og Darren Scothern. Þeir styrkja
lið KS verulega og er KS-liðið til
alls líklegt með þá innanborðs
þótt ekki gengi dæmið upp á
Húsavík gegn „sputnikliði"
Völsunga.
Blikarnir voru hressari fyrsta
hálftíma leiksins eða fram að
marki sínu sem Þorsteinn Geirs-
son skoraði með vinstri fótar
skoti frá vítateigslínu. En eftir
það réðu KA-menn spilinu að
mestu, enda Blikarnir fljótir að
pakka í vörnina.
KA fékk tækifæri til þess að
jafna metin fyrir leikhlé. Þeir
komust fjórir á móti tveimur inn
í vítateig á 38. mínútu en sú sókn
rann út í sandinn, varnarmenn
björguðu skoti frá Njáli Eiðssyni
metra frá marklínu á 44. mínútu
og á sömu mínútu fengu KA-
menn sitt besta tækifæri f
leiknum. Steingrímur Birgisson
með boltann nærri vítapunkti en
skot hans var afar slakt og fór
langt framhjá markinu.
Um síðari hálfleikinn þarf ekki
að hafa mörg orð. Blikarnir
pökkuðu liði sínu í vörn, gáfu
miðjuna eftir að mestu en KA
tókst ekki að nýta sér það. Allt of
mikið var um „þvælingar" ein-
stakra leikmanna, lítið reynt að
teygja á hinni fjölmennu vörn
Blikanna og skapa sér þannig
færi með því að láta boltann
vinna verkið.
Það var líka þannig að ekki var
ástæða til þess að lyfta minnis-
bókinni í síðari hálfleiknum, og
hann er best gleymdur, en þó
ekki fyrr en menn hafa dregið
sinn lærdóm af honum. KA-liðið
hefur sýnt að það getur mun
meira og hefði átt með sæmi-
legum leik að hirða öll stigin úr
þessari viðureign. Menn tala um
baráttuleysi og þess háttar, en
meira er að. Hin stórkarlalega
knattspyrna með kýlingum og
einleik þess á milli verður að
hverfa. Gerist það, vita menn
hvað KA-liðið getur gert.
1 1
STAÐAN
i i.i deild: 1
Staðan í 1. deild íslandsmótsins í | knattspyrnu eftir leiki helgarinnar er |
þessi: | KA-Breiðablik 0:1
Víkingur-Þór 0:2 S
/ ÍA-Þróttur 2:0 ;
KR-ÍBK 2:1
Akranes 8 6 11 14:4 19
ÍBK 8431 8:5 15
í Þróttur 8 2 4 2 9:8 10 I
* Víkingur 8 2 4 2 11:12 10 !
i Þór 8 3 1 4 9:11 10
KA 8 2 3 3 11:12 9
í UBK 8 2 3 3 6:7 9
KR 8 2 3 3 9:14 9
Fram 7 2 1 4 8:10 7
j Valur 7 1 3 3 4:6 6
Síðasti leikur 8. inn í kvöld og ! Fram. umferöar veröur leik- mætast þá Valur og
2. i deild:
Staðan í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar er
nú þessi: VöIsungur-KS 3:1
ÍBÍ-Einherji 0:0
FH-Víðir 1:2 1
UMFN-UMFS 1:0
1 Tindastóll-ÍBV 0:0
| FH 7 5 11 15:5 16
; Völsungur 7 5 11 14:7 16
UMFN 7 4 1 2 7:4 13
KS 6 2 2 2 9:8 8 ;
UMFS 7 2 2 3 9:8 8
ÍBÍ 7 2 2 3 11:12 8
: Víðir 7 2 2 3 8:13 8 í
\ ÍBV 6 14 1 7:7 7
Tindastóll 7 2 1 4 8:16 7
Einherji 7 0 2 5 5:13 2
3. deild b:
Staðan í b-riðli 3. deildar íslandsmóts- ins í knattspyrnu eftir leiki helgarinn- ar: Þróttur N.-Leiftur 1:1
HSÞ-b-Magni 1:0
Huginn-Valur 4:4
Leiftur 5 3 2 0 8:3 11
Þróttur 5 2 3 0 11:7 9
HSÞ-b 5 2 2 1 6:5 8
Magni 6 2 2 2 8:7 8
Austri 5 13 1 6:6 6 i
Huginn 5 0 3 2 9:12 3 ?
Valur 5 0 1 4 6:14 1
Staða Leifturs er orðin allgóð, en allt getur greinilega gerst í þessum riðli.
4. deild d:
Staðan í d-riðli 4. deildar íslandsmóts- ins í knattspyrnu er nú þessi:
Geislinn-Hvöt 2:1 |
Svarfdælir-Reynir 2:2
Reynir 4 3 10 16:3 10
Geislinn 2 10 1 3:3 3
Skytturnar 3 1 0 2 8:9 3
Hvöt 3 1 0 2 3:11 3
Svarfdæiir 2 0 11 5:9 1
Það bendir fátt til annars en að Reynir -
muni hér sigla „lygnan sjó“, en við
sjáutn hvað setur.
4. deild e:
Staðan í e-riðli 4. deildar íslands- mótsins í knattspyrnu er þessi: Æskan-Tjörnes 0:1
Vaskur 2 2 0 0 7:3 6
Tjörnes 3 2 0 1 5:2 6
Vorboöinn 3 1 1 1 6:4 4
Árroðinn 3 1 1 1 4:5 4
Æskan 3 0 0 3 2:10 0