Dagur - 04.07.1984, Side 4
4-DAGUR-4. júlí 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI:. 24222
ÁSKRIFT KR. 150 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 22 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Af undirskriftum
Andstæðingar hugmynda um byggingu ál-
vers við Eyjafjörð hófu herferð til kynningar
málstað sínum nú á vordögum. Reyna þeir að
fá menn til fylgis við skilyrðislausa andstöðu
og safna undirskriftum til stuðnings kröfu
sinni. Það fór að vonum, að þessi harðdræga
afstaða vakti upp annan hóp, það fólk sem
ekki vill hafna þeim möguleika að næsta stór-
iðjuveri á íslandi verði valinn staður við
fjörðinn. Þessi hópur hefur einnig hafið
söfnun undirskrifta, ekki til skilyrðislauss
stuðnings við álver heldur færa þeir fram
kröfu um það að undirbúningsvinnu og rann-
sóknum verði fram haldið og endanlega af-
staða byggð á niðurstöðum þeirra. Á þeim
sem undir þessa lista skrifa hvílir ábyrgð.
Undirskriftalistana má skoða sem óformlega
könnun á afstöðu manna til þessa hitamáls.
Þeir sem með undirskrift sinni hafna öllum at-
hugunum verða að gera sér ljóst að and-
staða þeirra getur orðið til þess að næsta
stjórfjárfesting í orkuiðnaði verði á Reykja-
nesi og auki enn á aðdráttarafl þess svæðis.
Þannig yrði að óathuguðu máli, á glæ kastað
möguleika til öflugrar uppbyggingar atvinnu-
lífs við Eyjafjörð. Þeir sem með undirskrift
sinni velja að halda áfram undirbúningi,
verða að vera viðbúnir því að ekki reynist
unnt að reisa álver á íslandi, hvað þá við Eyja-
fjörð. Stóriðja ein leysir ekki atvinnumál ís-
lands í framtíðinni. Þau 15000 störf sem
skapa þarf á íslandi fram til aldamóta verða
ekki nema að nokkru leyti til í þessum at-
vinnuvegi. Til að reist verði stóriðja á íslandi
þarf að uppfylla mörg skilyrði. Þýðingarmest
þeirra eru að samningar við erlenda aðila
skerði ekki sjálfstæði okkar, að fyrirtækið skili
viðunandi arði, og að verinu sé fundinn stað-
ur þar sem það vinnur ekki skaða á umhverfi
sínu.
Þeir sem með undirskrift sirini lýsa þeirri
von að staðurinn geti orðið Eyjafjörður, verða
að gera upp endanlegan hug sinn í ljósi
þeirra upplýsinga sem enn er óaflað um um-
hverfisáhrif. Til þess gefst góður tími, samn-
ingar um staðsetningu hefjast ekki fyrr en
seint á árinu 1985.
Vonandi bera Eyfirðingar gæfu til að gaum-
gæfa álverskostinn til hlítar áður en honum er
hafnað, eða ráðist verður í byggingu versins.
Öfgafull aðstaða í þessu máli getur aðeins
orðið til skaða fyrir þetta byggðarlag.
Jón Sigurðarson.
Arnarfelli: Álver séð af
sjónarhóli bóndans
- Erindi flutt í Freyvangi 12. júní á umræðufundi um álver við Eyjafjörð
Góðir Eyfirðingar! Pað mun vera
til þess ætlast að ég fjalli hér um,
af sjónarhóli bónda, þau áform
sem uppi eru um byggingu ál-
verksmiðju á Dysnesi í Arnar-
neshreppi. Enda er það rökrétt
afleiðing þess að það er hinn eini
sjónarhóll sem ég á kost á að
klífa.
Frá því að þessi hugmynd um
álverksmiðju við Eyjafjörð skaut
fyrst upp kollinum hef ég ekki
farið dult með að ég hef verið
henni andvígur. Undir þessa af-
stöðu mína renna ýmsar stoðir af
ólíkri gerð. Mun ég nú upphefja
nöldur mitt út í þessi áform.
Ég var ungur þegar ég vann
það fyrir hálfa flatköku vel
smurða með nýstrokkuðu smjöri,
að sitja steinþegjandi hvern
sunnudagseftirmiðdaginn eftir
annan og hlusta á gamlan mann
lesa húslestra úr Jónsbók eins og
hann nefndi hana, en margir
kannast betur við undir nafninu
Vídalínspostilla. Mig minnir að
þar væri því lýst með sterkum
orðum, í hvernig umhverfi og við
hvern aðbúnað, sálir fordæmdra
bjuggu eftir að þær komu í verri
staðinn. í seinni tíð hefur það
borið við að ég hef séð bregða
fyrir í sjónvarpinu myndum frá
stóriðjuverunum í Straumsvík og
Grundartanga. í»ar ganga menn
að vinnu sinni með grímur fyrir
vitum og glóandi skörunga í
höndum. f baksýn glittir í eld og
eimyrju. Einni samlíkingu skýtur
upp í huga mér. Pað má vel vera
að gamall bóndi, er alla ævi hefur
haft græna jörð undir fótum ger-
ist sekur um svipaðar hugrenn-
ingar líti hann augum fleiri vinn-
ustaði hérlendis en þá tvö er ég
nefndi.
Fyrir réttum 10 árum hafði ís-
lensk þjóð búið í landi sfnu í 1100
ár. Á þessum tíma hafði átt sér
stað geigvænleg gróðureyðing á
landi. Stundum vegna skamm-
sýni og þekkingarleysis íbúanna,
en oftast þó vegna þess að til þess
að draga fram lífið, þurfti þjóðin
í harðærum að ganga nær land-
inu en þol þess leyfði.
Þá þótti ráðamönnum þjóðar-
innar við hæfi að minnast 11 alda
afmælisins með því að leggja
nokkra fjármuni í það að skila
landinu aftur ofurlitlu af þeim
gróðri er það hafði misst. Þá sam-
þykkti alþingi lög um svokallaða
þjóðargjöf. Og það var samhent
og einhuga þjóð sem stóð á bak
við Alþingi í það sinn. Núna 10
árum seinna er talað um að
byggja álverksmiðju mitt í gróð-
ursælasta héraði landsins. Að all-
flestra áliti er hætta á því að frá
slíkri verksmiðju seitli út eitraðar
lofttegundir sem dreifast myndu
yfir nærliggjandi sveitir og spilla
gróðri. Um ágæti þessarar þjóð-
argjafar eru ekki allir á einu máli.
Þessvegna þykir nú sumum sem
að það sem gefið var með annarri
hendinni eigi að taka með hinni.
Ekki er óeðlilegt þótt slíkar
raddir heyrist úr hópi þeirra
mörgu eyfirsku bænda sem af
stórhug og framsýni eru um þess-
ar mundir að hefja ræktun
bændaskóga. Enginn vafi leikur
á að sú ræktun, ef vel verður að
henni búið, mun gjörbreyta útliti
sveitanna og gefa íbúunum arð.
Um þessa grein ræktunar kvað
svo, sá maður er einna heitast
trúði á gróðurmátt eyfirskrar
moldar, Ármann Dalmannsson.
Ogskógurinn vex, hann safnarísjóð,
þó sýnist þér biðin löng.
Hann auðgar þitt land að fegurð, friði
fuglakliði og söng.
En þú færð ekki á morgun hans góða gull
þó þú gróðursetjir í kvöld.
Hann leggur það fyrst í lófa þess manns
sem lifir á næstu öld.
Talsmenn verksmiðjunnar láta
það í verði vaka að endanleg
ákvörðun verði byggð á niður-
stöðum þeirra rannsókna sem nú
fara fram hér á svæðinu. Rann-
saka eigi lífríki lands og sjávar í
Eyjafirði, hitastig, loftstrauma
o.fl. Háar fjárhæðir eru nefndar
í sambandi við þessar rannsókn-
ir, jafnvel milljónatugir. Er mikið
álitamál hvort þeim peningum
hefði ekki verið betur varið í
annað. Við sem í fram-Eyjafirði
búum þurfum ekki að láta segja
okkur það eftir heitan dag og
mikið uppstreymi suður á
Sprengisandi er hafgolustrengur-
inn sterkur fram dalinn, og
Krossanes lyktin sem honum
fylgdi var megn.
Nú er Krossanesfýlan úr sög-
unni en önnur komin í staðinn, það
er rannsóknarfýlan. Finnst mér
hún gefa til kynna að sagt verði
við okkur eftir fyrirfram gerðri
áætlun: Niðurstöður rannsókn-
anna leiddu í ljós að þetta er allt
í lagi; takið þið bara fagnandi við
álinu! Vonandi reynist þetta
óþörf tortryggni. En óhögguð
stendur sú staðreynd að fjármagn
virðist vera á lausu til undirbún-
ings álvers, en önnur rannsóknar-
störf svo sem í sambandi við líf-
efnaiðnað, liggja niðri, vegna
þess að til þeirra er ekkert fjár-
magn fáanlegt. Við spurningunni
sem heitast brennur fást loðin og
óljós svör en það er hve miklu
magni af eiturefnum skilar verk-
smiðjan frá sér bæði loftkennd-
um og í föstu formi og hvernig á
að losna við þau, á að treysta á
hið fornkveðna að lengi taki sjór-
inn við, þótt vitað sé að það á sín
takmörk, sem nú þegar hefur
víða verið farið fram úr.
Ég ætla ekki að ræða mikið
þjóðhagslega hlið þessa máls, þó
get ég ekki Iátið hjá líða að minn-
ast á þann óskiljanlega búhnykk
sem er í því fólginn að láta þjóð-
ina byggja rándýrar stórvirkjanir
fyrir lánsfé, og selja síðan rafork-
una erlendum auðhringum langt
undir kostnaðarverði. Eigi að
heldur myndi ég telja það
skynsamlegt fyrir eignalausan
mann að stofna til reksturs félags-
bús með fjársterkum aðila, taka
sitt stofnfé allt að láni, en fela
þeim ríka forsjá fjármála og
markaðsmála, og treysta á að það
sé óhætt vegna þess að hann kall-
ar sitt stofnfé því ísmeygilega
nafni „áhættufjármagn".
Þótt eflaust megi finna aðrar
og ofurlítið bjartari hliðar á
þessu máli en þær er ég hefi lýst,
tel ég að sú áhætta sem tekin væri
með byggingu álvers í Eyjafirði
sé það mikil að nægileg sé til þess
að hafna nú þegar slíkum fram-
kvæmdum.
Við lifum nú þá tíma að allt
mannkyn stendur í skugga óttans
af gereyðingarmætti þeim sem
falinn er í kjarnorkuvopnabúrum
stórveldanna og hinnar seigdrep-
andi mengunar og eituráhrifa
stóriðjuvera iðnríkjanna. Má
einu gilda hvor skugginn er
dekkri.
Við íslendingar eigum ennþá
því láni að fagna að eiga tiltölu-
lega hreint land og tært loft. Við
skulum leitast við að varðveita
þá dýru eign svo lengi sem kostur
er.
Mín lokaorð eru þessi: Ef við
teljum að af rekstri álverksmiðju
í Éyjafirði geti hlotist slys, þá er
það okkar skylda að reyna að
byggja brunninn áður en barnið
er dottið ofan í hann ....
Bernharð Steingrímsson:
Bestu þakkir fyrir
blómin, Tryggvi
Takk fyrir blómin elskulegur þó
þau kæinu mér ekki beint á óvart.
Snöggsoðin andsvör þín voru
með þeim afgreiðslumáta sem
einkennir þá sem ná ekki upp í
nefið á sér.
Frekar vil ég götustrákur heita
heldur en vera haldinn slfkri
sjálfsánægju með eigin skynsemi
og um leið fyrirlitningu á dóm-
greind annarra eins og sumir.
Hvernig í ósköpunum getur þú
vinur minn tekið svo harða af-
stöðu gegn hugmynd sem þú hef-
ur enga möguleika á að kunna
nokkur skil á enn sem komið er.
Því má ekki skoða hlutlaust mat
menntaðra manna áður en farið
er í þennan ofsa.
Á blómakortinu minntist þú á
fjölþætta atvinnu og blómlegt
mannlíf. Þú hlýtur að vera að
koma úr ferðalagi eða í hvaða
endemis fílabeinsturni heldur þú
til. Þú getur túlkað það eins og
þú vilt, hins vegar bjargar það
engu að vera með upptalningu á
atvinnumöguleikum þegar upp-
lýsingar um fjármögnun tilheyra
hulduheimum. Ég veit að það eru
tugir manna sem brenna í skinn-
inu eftir að hrinda ágætis hug-
myndum í atvinnumálum í fram-
kvæmd en koma alls staðar að
vegg í peningakerfinu. Hvernig
væri að þú upplýstir þá hvar þessi
litlu 10% af álversverði liggja á
lausu. Það myndu margir launa
þér vel fyrir. Enn ber ég það
mikla virðingu fyrir þér að slíkir
smámunir eins og að redda 10%
af álversverði vefjast ekki mikið
fyrir þér. Menntaður maður eins
og þú ættir að vera fær um að
reikna út einfalt dæmi eins og
það að það þarf peninga til að
framkvæma hlutina því maðurinn
lifir ekki á hugmyndum einum
saman. Bernharð Steingrímsson.