Dagur - 04.07.1984, Blaðsíða 11
4. júlí 1984 — DAGUR - 11
Filadelf íusöfnuöurinn:
Tjald-
sam-
komur
Filadelfiusöfnuðurinn á Akur-
eyri gegnst þessa viku fyrir
tjaldsamkomu, og eru þær
haldnar við nýbyggingu safn-
aðarins við Skarðshlíð.
Samkomurnar eru á hverju
kvöldi og verður sú síðasta þeirra
n.k. sunnudagskvöld. Þær hefjast
kl. 20.30 öll kvöldin.
Á samkomunni kemur fram
ungt fólk og vitnar, en einnig er
mikill söngur á samkomunum
sem eru öllum opnar.
„Gróandinn“
er
kominn
út“
Út er komið fyrsta tölublað
nýs tímarits, Gróandans, en
eins og nafnið bendir til er
Gróandinn rit um gróður og
garðyrkju, auk þess sem fjall-
að er um ýmis önnur efni tengd
útilífi og frístundum. Ritstjóri
Gróandans er Hafsteinn Haf-
liðason garðyrkjumaður, sem
fyrir löngu er þjóðkunnur fyrir
skemmtilega og fróðlega þætti
í útvarpi um gróður og garða.
Útgefandi Gróandans er út-
gáfufélagið Fjölnir hf.
Meðal efnis í Gróandanum er
ýtarleg grein eftir ritstjórann um
allt sem lýtur að rósum, sögu
þeirra, ræktun og umhirðu. Þá er
grein eftir Hallgrím Indriðason
skógfræðing á Akureyri um úti-
vist í skógum, Hafliði Jónsson
garðyrkjustjóri Reykjavíkur-
borgar ritar tvær greinar, um
skógræktarviðleitm Skúla fógeta
í Viðey og um sauðakaup Cog-
hills hér á landi á öldum fyrr.
Lára Jónsdóttir skrifar um mat-
jurtagarðinn og ræktun grænmet-
is, Haraldur Þ. Skarphéðinsson
skrúðgarðafræðingur ritar um
hellulagnir í görðum, og Stanislas
Bohic landslagsarkitekt ritar
grein með myndum um hönnun
garða framan við hús. Þá skrifar
Einar Þorsteinn Ásgeirsson arki-
tekt um hvolfgróðurhús, Axel V.
Magnússon garðyrkjuráðunautur
skrifar um akryldúk, fjallað er um
pottablóm, Þórunn Jónatansdótt-
ir hússtjórnarkennari skrifar um
matreiðslu á útigrilli, og smásaga
er í Gróandanum eftir Gunnar
Gunnarsson rithöfund.
Af öðru efni má nefna um-
fjöllun urn snjóbræðslukerfi,
grein um heita potta og útisund-
laugar, stutt grein er um antik og
önnur um gæludýr og Skarphéð-
inn Þórisson líffræðingur ritar
skemmtilega grein um starann.
Gróandinn er 96 blaðsíður að
stærð í venjulegu tímaritsbroti,
ríkulega myndskreytt með fjölda
litmynda. Upplag fyrsta tölu-
blaðs er 7.000 eintök og er ritið
aðili að upplagseftirliti Verslun-
arráðs íslands og Sambands ís-
lenskra auglýsingastofa. Ritstjóri
Gróandans er sem fyrr segir Haf-
steinn Hafliðason garðyrkjumað-
ur, en auglýsingastjóri er Jón
Alexandersson.
Góð matarkaup
Del Monte
niðursoðnir ávextir
í 1/i og 1/2 dósum.
Mjög gott verð
Kjörbúð KEA
Sunnuhlíð
Til sölu
Honda Accord EX árgerð 1981.
Sjálfskiptur með vökvastýri.
Einnig eigum við örfáar nýjar bifreiðir óseldar af
gerðunum Volkswagen Golf og Honda Civic.
Komið og fáið
upplýsingar.
v/Tryggvabraut 5-7
Sími 96-22700.
Kanínubændur
og aðrir áhugamenn um kanínubúskap.
Fundur verður í Hlíðarbæ laugardaginn 7. júlí og
hefst kl. 13.00.
Á fundinn koma bæði Þjóðverjar og íslendingar
sem kynna kanínubúskap. Klippa og flokka ull,
sýna búr og svara fyrirspurnum.
Þá verður selt kaffi og félagar í Krás og aðrir vel-
unnarar beðnir að hafa með sér brauð. Eftir kaffi
verður stofnuð deild úr Kanínuræktarfélagi
íslands.
Notið þetta einstæða tækifæri.
Nánari upplýsingar gefur Björk í síma 96-26274.
Barnagleraugu
(öryggisgleraugu)
eru sérgrein okkar
GLERAUGNAÞJONUSTAN
- í miðbæ Akureyrar!
Skipagötu 7 Sími 24646 (áður verslunin Grána)
Vegna sumarleyfa
verður ullarmóttaka lokuð frá 9. júlí til 12. ágúst.
Ullarmat SÍS Akureyri
Ibúðir á söluskrá
Grundargerði: 4ra herb. raðhúsíbúð á einni hæð.
Hamarstígur: 3ja herb. kjallaraíbúð.
Langamýri: 4ra herb. efri hæð í tvíbýli. Laus strax.
Lítið einbýlishús á Dalvík.
Hrísalundur: 2ja herb. íbúð á 4. hæð, í skiptum fyrir 3ja
herb. íbúð.
Eiðsvallagata: 3ja herb. risíbúð. Laus strax.
Ásabyggð: Einbýlishús. Timburhús ásteyptum kjallara.
Byggðavegur: 3-4ra herb. neðri hæð í tvíbýli.
Tungusíða: 200 fm einbýlishús með bílskúr.
Mýrarvegur: Einbýlishús, skipti.
Hamarstígur: 5 herb. íbúð.
Búðasíða: Steyptir sökklar undir einbýlishús.
Smárahlíð: 2ja herb. lítil íbúð á 1. hæð.
Kjalarsíða: 2ja herb. íbúð á 2. hæð.
Hafnarstræti: 3ja herb. íbúð á 1. hæð.
Hrafnagilsstræti: 4ra herb. neðri hæð í tvíbýli með
bílskúr.
Höfum fjársterkan kaupanda að 3ja herb. góðri íbúð
í Glerárhverfi.
Simsvari tekur við skilaboðum
allan sólarhringinn.
Fasteignasalan hf Opið frá
Gránufélagsgötu 4, _ _ .
alri hoaX cími 01K7H Kl. / 6.II.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur
Guðmundur Jóhannsson, viöskiptafræðingur
Hermann R. Jónsson, sölumaður
Óskum eftir að taka
nema í rennismíði
Vélsmiðjan Atli
Strandgötu 61, Akureyri sími 23000.
Starfsmann
vantar til almennra skrifstofustarfa.
Upplýsingar á skrifstofu Þórshamars hf.
Ekki í síma.
v/Tryggvabraut,
Akureyri,
Skrifstofustarf
Fjóröungssamband Norðlendinga vill ráöa skrif-
stofumann á skrifstofu sína eigi síöar en 1. sept-
ember nk. eða eftir samkomulagi, sem fyrst og
fremst gegnir störfum ritara. Æskilegt er aö um-
sækjandi hafi aflað sér haldgóðrar menntunar,
sem komi aö gagni í starfinu.
Jafnframt er nauösynlegt aö umsækjandi hafi
leikni í vélritun og reynslu í störfum á skrifstofu.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri eftir 22. júlí
nk. í skrifstofu sambandsins. Umsóknir um starfiö
skulu vera skriflegar og hafa borist fyrir 29. júlí nk.
Fjórðungssamband Norðlendinga.