Dagur - 13.07.1984, Blaðsíða 13
13.JÚIÍ 1984- DAGUR- 13
„Liðin áþekk
en Leifturs-
menn nýttu
sín færi“
- sagði þjáifari Magna
Einar Helgason
„Það verður að skora mörk til
að vinna leik,“ sagði Einar
Helgason þjálfari Magna eftir
leik þeirra gegn Leiftri á
Grenivíkurvelli á þriðjudag-
inn.
Við komumst í 1:0 og óðum í
tækifærum sem okkur tókst ekki
að nýta og þeir jöfnuðu síðan fyr-
ir leikhlé. Leiftursmenn áttu síð-
an góðan kafla í upphafi síðari
hálfleiks og komust í 4:1, en við
náðum að laga stöðuna að-
eins í lokin, þannig að leiknum
lauk með sigri Leifturs 4:2. Þeir
vinna riðilinn úr þessu enda liðið
sterkt, en þó kom mér á óvart
hve vörn þeirra var opin,“ sagði
Einar að lokum, en þess má geta
að hann þjálfaði Leiftur áður en
hann tók við hja Magna í vor.
Mörk Leifturs skoruðu Kristinn
Björnsson, Stefán Jakobsson,
Hafliði Jakobsson og Halldór
Guðmundsson. Mörk Magna
gerðu Friðbjörn Pétursson og
Jón Ingólfsson. Leiftur hefur nú
níu stiga forskot í 3. deild B.
Njáll fyrirliði fagnar þriðja marki KA og virðist hafa náð góðu taki á eyrum Ásbjarnar.
Mynd: KGA
Völsungar
töpuðu í
Njarðvík
Leikur Völsunga gegn Njarð-
víkingum í 2. deild á miðviku-
dagskvöldið fór fram við slæm-
ar aðstæður, það hellirigndi og
völlurinn allur á floti.
Kristinn Guðlaugsson skoraði
eina mark leiksins fyrir Njarðvfk
á 26. mín. fyrri hálfleik og þar við
sat. Undir lok leiksins var einum
leikmanni Njarðvíkurliðsins vís-
að af leikvelli, en ekki tókst
norðanmönnum að nýta sér liðs-
muninn. Að sögn heimamahna
voru úrslitin sanngjörn og tæki-
færi Njarðvíkinga hættulegri.
Völsungar voru að sögn þeirra
fremur daufir og notuðu of mik-
inn tíma í að þrasa við lélegan
dómara leiksins. Prátt fyrir tapið
í leiknum eru Völsungar enn í 2.
sæti. í 2. deild.
Frestað
Leik Einherja og KS sem vera
átti í 2. deild á miðvikudaginn
var frestað þar sem austfjarðar-
þokan hafði stöðvað flugsam-
göngur. Reyna átti að nýju á
fimmtudag.
Staðan í deildunum verður á
sínum stað í blaðinu á mánudag-
inn.
Þrumuleikur gegn
Keflvíkingum
- „þetta voru langþráð mörk“ sagði Hafþór hetja KA í leiknum
íslandsmót
í 2. flokki:
Þór - UBK 0:1
KA - ÍBV 2:0
Á mánudagskvöldið fóru fram tveir
leikir í íslandsmóti 2. flokks í knatt-
spyrnu á Akureyri. Á KA-velli sigr-
aði KA-lið ÍBV 2:0 og skoruðu
Sæmundur Sigfússon og Þorvaldur
Örlygsson mörkin fyrir KA.
Á Akureyrarvelli sigraði Breiða-
blik lið Þórs með einu marki gegn
engu og eru Blikarnir nú efstir í riðl-
inum. Ekki tókst okkur að fá stöð-
una í heild, en Þór mun vera ofar-
lega í riðlinum og hefur m.a. sigrað
lið KA.
Já, það var sannkallaður
þrumuleikur hjá KA og ÍBK í
1. deild á miðvikudagskvöldið
hér á Akureyri. Rétt fyrir leik-
inn skall á ausandi vatnsveður
með þrumum og eldingum.
Völlurinn var því rennblautur
og erfiður, en síðan stytti upp
í leikhléi. KA-mönnum virtist
ganga betur að fóta sig í bleyt-
unni og náðu fijótt undirtökum
í Ieiknum.
Á 15. mín. lék Ormar laglega
upp hægri kantinn, rennir boltan-
um inn á Njál sem gaf góða send-
ingu fyrir mark Keflvíkinga, þar
sem Stefán Ólafsson kom aðvíf-
andi og skallaði knöttinn í netið
hjá Þorsteini landsliðsmarkverði.
Á 20. mín bjargaði Þorsteinn
hins vegar vel frá Hafþóri sem
kominn var frír í gegn og rétt á
eftir skaut Hafþór framhjá úr
góðu færi. KA, sem hafði nokkra
yfirburði { fyrri hálfleik, jók for-
skot sitt á 25. mín með fallegu
marki frá Ásbirni, sem skaut við-
stöðulausu skoti í mark Keflvík-
inga, eftir að Friðfinnur hafði
leikið upp vinstri vænginn og gef-
ið vel fyrir markið. Keflvíkingar
voru þó hættulegir í skyndisókn-
um sínum og Ormarr bjargaði á
línu eftir góða sókn þeirra, en við
Keflavíkurmarkið komst Stein-
grímur í dauðafæri eftir undir-
búning Hafsþórs, en skot hans
fór framhjá.
Keflvíkingar náðu að minnka
muninn á 37. mín. eftir varnar-
mistök KA og Magnús Garðars-
son skoraði úr þröngu færi. Þann-
ig var staðan í leikhléi 2-1 KA í
vil og var það ekki of mikið mið-
að við gang leiksins.
Síðari hálfleikurinn var daufari
en sá fyrri og fyrstu 20. mín. hans
liðu án þess að sköpuðust nein
marktækifæri. Á 20. mín. færðist
aftur fjör í leikinn. Keflvíkingar
fá þá hornspyrnu, Einar Ólafsson
lyfti boltanum vel fyrir mark KA
og Gísli Eyjólfsson jafnar fyrir
Keflvíkinga með skalla. En KA -
menn voru ekki á því að láta slá
sig út af laginu, þeir hefja leik á
miðjunni, boltinn er sendur inn í
vítateig Keflvíkinga þar sem Haf-
þór tekur hann á brjóstið, snéri
sér inn og skoraði með föstu skoti
í bláhornið. Mjög vel gert og KA
því aftur tekið forystu í leiknum.
Aðeins 5. mín síðar gera KA -
menn svo út um leikinn. Hafþór
vinnur boltann á miðjunni, leikur
fram og af 25 metra færi þrumar
hann knettinum yfir Þorstein í
markið.
„Hann var of framarlega í
markinu og ég lét bara vaða“,
sagði Hafþór eftir leikinn. Það
sem eftir lifði leiksins hélt KA
fengnum hlut og Keflvíkingar
náðu ekki að ógna þeim að ráði.
Leiknum lauk því með sann-
gjörnum sigri KA 4:2 og þrjú
dýrmæt stig í höfn.
Mikil gleði var í herbúðum KA
eftir leikinn og ekki mikla þreytu
að sjá á mönnum þrátt fyrir að
þetta væri þeirra 3. leikur á 7
dögum. Liðið er greinilega í
góðri æfingu. „Markið frá Haf-
þóri strax eftir að þeir jöfnuðu,
gerði útaf við þá“, sagði Erlingur
Kristjánsson, „öruggur sigur og
fullt af tækifærum í leiknum“,
sagði hann. „Bleytan skapaði oft
hættu, en vörnin hjá okkur var
mjög góð“.
Já, vörnin var sterk í leiknum
og Erlingur lék þar mjög vel,
hann hélt hinum hættulega Ragn-
ari Margeirssyni algerlega niðri
og þegar Ragnar flúði af svæði
Erlings þegar líða tók sá Frið-
finnur um að halda homirn í
skefjun. Baráttujaxlarnir
Ormarr, Njáll og Mark léku vel
og gáfu ekkert eftir, ungu
mennirnir Stefán og Bjarni stóðu
vel fyrir sínu og í framlínunni lék
Hafþór nú sinn besta leik fyrir
KA, en annars var ekki að finna
veikan hlekk í liðinu í þessum
leik.
Mjög góður dómari leiksins
var Sævar Sigurðsson, en aðeins
700 áhorfendur mættu til leiks og
hefur veðrið átt sinn þátt í því.
Fimm af sex mörkum
skoruð með skalla
„Þetta var líflegasti leikurinn
hér í sumar,“ sagöi Árni Stef-
ánsson þjálfari Tindastóls eftir
leik þeirra gegn FH á miðviku-
dagskvöldið.
„FH-ingarnir eru mjög sterkir
og gerðu útaf við okkur á fyrstu
20 mín.leiksins er þeir ná tveggja
marka forskoti. Pálmi Jónsson og
Jón E. Ragnarsson skoruðu þá
sitt markið hvor með skalla, en
eftir hálftíma leik lagaði Sigur-
finnur Sigurjónsson stöðuna fyrir
okkur, eftir góðan undirbúning
Elvars, með þrumuskoti af löngu
færi. Staðan í leikhléi var því 2:1
FH í vil. Strax á 5. mín. síðari
hálfleiks bætti Pálmi Jónsson við
þriðja marki FH með skalla eftir
hornspyrnu, en Elvar lagar
stöðuna í 3:2 með skalla og allt
gat gerst, en upp úr skyndisókn
nær síðan Jón E. Ragnarsson að
tryggja þeim sigur með fjórða
marki FH og enn einu skalla-
markinu í leiknum.“
Staða Tindastóls er að verða
erfið í deildinni, en eins og Árni
sagði þá eru þeir ekki á því að
gefast upp, enda engin ástæða til,
en leiki verða þeir að fara að
vinna ef ekki á illa að fara.
Árni Stefánsson.