Dagur - 23.07.1984, Page 1
67. árgangur
Skipulag
Innbæjarins
á teikniborðinu
„Það hefur ekkert verið
ákveðið ennþá. Hjörleifur
Stefánsson arkitekt sendi inn
tillögur á sínum tíma og hann
er nú að vinna að þeim, eftir
að skipulagsnefnd hafði fjallað
um þær og gert breytingartil-
lögur,“ sagði Finnur Birgisson
skipulagsstjóri Akureyrarbæj-
ar er Dagur innti hann eftir
deiliskipulagi Innbæjar og
Fjöru.
í tillögu Hjörleifs fólst m.a.
bygging íbúðarhúsa innst í Inn-
bænum, í Lækjargili og í brekk-
unni neðan við sjúkrahúsið.
Skipulagsnefnd hafnaði hug-
myndinni um íbúðarbyggingar
innst í Innbænum og taldið svæðið
norðan við tjörnina, þar sem nú
er íþróttavöllur hentugra. Sagði
Finnur að verið væri að vinna að
þessum málum og ætti að vera
komið í ljós með haustinu hvern-
ig þeim yrði háttað. mþþ
Verslunarmenn
í verkfall?
„Ef ekki verður breyting á
stöðu samningamála á næstu
dögum, þá hefur stjórn og
trúnaðarmannaráð félagsins
verkfallsvopnið í hendi og það
verður notað ef ástæða þykir
til,“ sagði Ása Helgadóttir hjá
Félagi verslunar- og skrifstofu-
fólks á Akureyri í samtali við
Dag.
Félag verslunar- og skrifstofu-
fólks á Akureyri hélt fund fyrir
helgina, þar sem horfur í kjara-
málum voru ræddar. Á fundinum
var samþykkt að segja kjara-
samningum upp 1. ágúst, þannig
að þeir verði lausir 1. september.
Stjórn og trúnaðarmannaráð fé-
lagsins fékk umboð til þessara
aðgerða, nema atvinnurekendur
sjái að sér og bjóði viðunandi
kjarabætur á þeim dögum sem
eftir eru fram að mánaðamótum.
- GS
Verkstjóra-
verkfall?
Flokksstjórar Vinnuskóla Ak-
ureyrar eru nú komnir í kjara-
baráttu. Laun þeirra eru
12.900 kr. á mánuði, sem þeim
finnst of lítið miðað við þá
ábyrgð sem þeir hafa gagnvart
unglingunum. Þeim er uppá-
lagt að kenna þeim vinnubrögð
og hafa umsjón með þeim
verkefnum sem unglingarnir
fá.
Sendu flokksstjórarnir bæjar-
stjóra bréf þar sem farið var fram
á endurmat launa þeirra, að
öðrum kosti fara þeir í verkfall
frá og með mánudeginum 23.
júlí, sem er í dag. Ef til verkfalls
kemur munu um 400 unglingar á
aldrinum 13-15 ára missa vinnu
sína um tíma.
„Ég veit ekki til þess að verk-
fall sé hafið í vinnuskólanum,
enda væri málið þá komið í ill-
leysanlegan hnút. Hins vegar á ég
von á verkstjórunum hingað til
okkar til viðræðna í dag,“ sagði
Valgarður Baldvinsson, bæjarrit-
ari, í samtali við blaðið í morgun.
HJS/GS
Akureyri, mánudagur 23. júlí 1984
83. tölublað
A þessum myndum ma
glöggt sjá hvað illa Harð-
bakur fór út úr árekstrinum
og Ijóst að hann verður lengi
frá veiðum. A litlu mynd-
inni neðst til hægri má sjá
lítið dældaða trjónu skemm-
tiferðaskipsins.
Myndir: KGA.
Rússneskt skemmtiferðaskip sigldi á Harðbak
Togarínn Harðbakur EA
303 og sovéska skemmti-
ferðaskipið Estonia rákust
saman á Strandagrunni að-
fararnótt laugardagsins.
Harðbakur var að toga í
rifu í hafísnum á svo-
nefndu Strandagrunns-
horni þegar óhappið varð.
Svartaþoka var á svæðinu,
um 50 metra skyggni.
Sigurður Jóhannsson, skipstjóri,
og Jón Guðmundsson, fyrsti stýri-
maður á Harðbak, voru báðir í
brúnni þegar þeir sáu á radarnum
ókunnugt skip koma frá ísröndinni í
beina stefnu á togarann. Þetta skip
svaraði ekki í talstöð og stjórnendur
þess virðast ekki hafa orðið varir við
Harðbak, jafnvel þótt stjórnendur
hafns gerðu allt sem í þeirra valdi
stóð til að vekja á sér athygli. Jón og
Sigurður sáu skemmtiferðaskipið
koma vaðandi út úr þokunni nokkr-
um andartökum áður en áreksturinn
varð. Þá var Harðbakur stopp, en
heoar séft var f hvað stefndi setti Sip-
urður á fulla ferð aftur á bak. Skipti
engum togum, að stefni skemmti-
ferðaskipsins skall á brúarvæng
Harðbaks bakborðsmegin, þar sem
Jón stýrimaður hafði staðið nokkrum
augnablikum áður. Við áreksturinn
skall Harðbakur á hliðina og stefni
skemmtiferðaskipsins gekk á annan
metra ínn í síðu togarans og reif
hana. M.a. kom gat inn í klefa 3. vél-
stjóra, Steinþórs Ólafssonar, sem
vaknaði upp af værum blundi með
tákn Sovétríkjanna, hamar og sigð á
rauðri stjörnu, við rúmstokkinn hjá
sér.
Nánar á bls.5
Viðtal við Sigurð Jóhannsson
skipstjóra á Harðbak
er á bls. 5