Dagur - 29.10.1984, Side 6
6 - DAGUR - 29. október 1984
29. október 1984 - DAGUR - 7
Ovíst hvort
Óskar leikur
með Þór
Óvíst er livort miðvörOiiriiin sterki, Óskur
Giinnursson kemur til nieö aö leika með
l>órsurum næsta sumar. Óskar sem er múr-
ari er koniinn í vinnu í Keykjavík (>}• í samtali
við I)aj> sajjöi hann að |»a<S }>æti allt eins verið
að liann myndi leika með einhverju Reykja-
víkurl'éla}>aniia næsta sumar.
- Þaö liafa rætt við mig menn frá Víkingi
og Fram og mér hefur verið boöiö á æfingu
Itjá Þrótti en jvaö er alls óvíst hvaö ég geri,
sagöi Óskar.
Aö sögn Óskars hafa Framarar boðiö hon-
um íbúð og einhverjar greiöslur fyrir aö leika
mcö þeim.
- Eg hef íbúö og er ckkert hrifinn af því
aö taka peninga fyrir að leika knattspyrnu.
En þaö kitlar mig vissulega aö félögin skuli
hafa þennan áhuga og eins væri skemmtilegt
aö leika knattspyrnu utanhúss nú í vetur en
félöain hafa fengiö úthlutaö tveim tímum í
viku hverri á nýja gervigrasvellinum í Laug-
ardal. ' - ESE.
„Ég flyt
ekkí suður“
- segir Þorsteinn Ólafsson
Að undanförnu hafa verið sögusagnir á
kreiki um að Þorsteinn Ólafsson, fyrrum
þjálfari Þórs og markvörður, hyggðist flytja
suður og ganga til liðs við nýliða Víðis.
- Það er rétt aö ég var búinn að sækja um
vinnu hjá Sjóefnavinnslunni á Reykjanesi en
þar sem það stóð á undirskrift ráðherra dróst
þetta á langinn og endaði með því að ég varð
að draga umsóknina til baka, sagði Þorsteinn
er blaðamaður Dags hafði samband við hann.
Að sögn Þorsteins höfðu engar viðræður átt
sér stað á milli Víðis og haris, en Þorsteinn
sagðist hins vegar hafa heyrt þessa sögu.
Hann hefði einnig heyrt því fleygt að Kefl-
víkingar væru búnir að ráða hann sem þjálf-
ara en ekkert væri heldur hæft í því.
- Það verður ekkert af því að ég flytji
suður. Ekki í bili a.m.k., sagði Þorsteinn
Ólafsson. - ESE.
Jóhann Helgason, Leiftri:
„Við kaupum
ekki leikmenn“
Litlar líkur eru taldar á því að Kristinn
Björnsson þjálfí og leiki aftur með
„spútnikliöi" Leifturs frá Ólafsfirði í ann-
ari deildinni næsta keppnistímabil. Að
sögn Jóhanns Helgasonar formanns
knattspyrnudeildar Leiknis er það vilji
leikmannanna að sá þjálfari sem verður
ráðinn, leiki ekki með liðinu.
- Ég á annars ekki von á því aö það veröi
mikil breyting á liðinu frá því í sumar. Þaö
var nóg barátta fyrir okkur aö greiða þjálfara
40 þúsund krónur á mánuöi þó viö förum
ekki út í að „kaupa" leikmenn til okkar. Viö
munurn því byggja liðiö upp á hcima-
mönnum en eins er möguleiki á að viö fáum
Loga Einarsson til aö standa í markinu hjá
okkur. Við höfum veriö í markmannsvand-
ræðum og ég hef trú á því aö Logi sé maöur-
inn sem við þurfum, sagðj Jóhann Helgason.
-ESE
KA - Fram 28:23
FUUGANDI START
Það var óþekkjanlegt KA-Iið
sem vann öruggan sigur á
Fram, er liðin mættust í 2.
deildarkeppninni í handknatt-
leik á laugardag. Óþekkjanlegt
frá fyrra ári þegar leikmenn
virtust mæta til leiks með því
hugarfari að leikurinn væri
tapaður fyrirfram. Nú situr
baráttan í fyrirrúmi og allt útlit
fyrir gott gengi í vetur ef fram-
hald verður þar á.
Framarar leiddu leikinn aðeins
í upphafi. Markaskorarinn Óskar
Þorsteinsson, fyrrum Víkingur,
skoraði fyrsta mark leiksins úr
víti en Logi Einarsson sem lék á
alls oddi í þessum leik, jafnaði
skömmu síðar. Aftur náði Óskar
forystunni með marki úr víti en
síðan náðu KA-menn yfirhönd-
inni og héldu henni allt til leiks-
loka. Komust í 5:3 og síðar 9:6
en í hálfleik var staðan 14:12 KA
í vil. Óskar Þorsteinsson var KA
skeinuhættur í þessum hálfleik.
Skoraði hvorki fleiri né færri en
átta mörk í hálfleiknum, þar af
þrjú úr vítum.
Síðari hálfleikur var ekki ýkja
gamall er Logi skoraði 15. mark
KA en Fram náði að minnka
muninn í eitt mark, 16:15 en þá
hafði Óskar bætt tveim mörkum
við markareikninginn. En er hér
var komið sögu tóku KA-menn
leikinn í sínar hendur. Friðjón
Jónsson sem nú leikur aftur með
KA eftir eins árs dvöl í Dan-
mörku, skoraði 17. markið. Síð-
an skoraði Pétur Bjarnason sann-
kallað glæsimark. KA komst í
22:16, þrátt fyrir þrjú stangarskot
á þessum leikkafla og sigurinn
nánast í höfn. Lokatölur leiksins.
28:23 KA í vil. Sanngjarn og ör-
uggur sigur.
Fram-liðið lék þennan leik
ekki vel. Markvarslan mun lakari
en gegn Þór og aðeins tveir úti-
spilarar sem stóðu sig vel. Óskar
sem gerði alls 13 mörk í leiknum
(7 víti) og Jón Árni Rúnarsson
sem oft lék varnarmenn KA grátt
skoraði 4 mörk. I jöfnu liði KA
er erfitt að nefna einn öðrum
fremur. Ljóst er þó að Friðjón
Jónsson er gífurlegur styrkur
fyrir liðið sem og Erlendur Her-
mannsson. Logi Einarsson barð-
ist mjög vel sem og Þorleifur, Jón
og Erlingur Kristjánssynir.
Mörk KA: Logi 6, Friðjón 6,
Erlendur 5, Erlingur 4, Jón 3,
Þorleifur 3, Pétur 1. - ESE.
„Staðráðnir í
því að sigra“
Ég er mjög ánægöur meö
þennan sigur. Strákarnir geröu
þaö sem fyrir þá var lagt. bæ'öi í
vórn og sókn og andinn i liöinu
er frábær. Þaö voru allir staö-
ráönir í aö vera i sjgurliöi enda
nokkuö síöan KA hefur unniö
deildarleik í handknattieik.
Þetta sagöi Helgi Ragnárs-
son. þjállari KA eí'tir leik KA
og Fram. Þetta var fvrsti „;tl-
vöruleikurimv sem Helgi slýrir
liöinu i og hann var því aö von-
unt ánægöur meö árangurinn.
Þaö var auövitaö gott aö
geta séö Fram í leik gegn Þór.
daginn áöurcn þaö geröi engan
gæfumun. Viö leikum mun
hraöari handknattleik en Þórog
því erfitt aö átta sig á Framliö-
inu. Viö töldum okkur þó eiga
góöa möguleika á hraöaupp-
hlaupum gegn þeim en þaö er
líklega þaö .ma sem ekki gekk
upp hjá ol kur. sagöi Helgi
Ragnarsson.
- ESF
Þór - Fram 18:22
HERSLU-
MUNINN
VANTAÐI!
- Nýliðar Þórs komu Frömumm
á óvart
Ekki er hægt að segja að Þórsarar hafi verið öfundsverðir af hlutskipti
sínu fyrir leik þeirra gegn Fram í 2. deildinni í handknattleik. Framarar
almennt taldir sigurstranglegastir í deildinni fyrir þetta mót, búnir að
leika einn leik (sigur gegn Gróttu) og í mun betri æfingu. En Þórsarar
komu á óvart og með smáheppni hefði sigurinn getað orðið þeirra.
Framarar byrjuðu þennan leik af
fítonskrafti. Boltinn gekkk hratt
og örugglega fyrir utan Þórs-
vörnina og eftir smátíma var
staðan orðin 3:0 Fram í vil.
Gunnar M. Gunnarsson kom Þór
á blað en Framarar svöruðu með
hvorki fleiri né færri en fjórum
mörkum. Staðan 7:1 og allt útlit
fyrir að spádómarnir væru að
rætast. Framarar myndu rúlla
Þórsurum upp, eins og það heitir
á íþróttamáli og innbyrða auð-
veldan sigur.
En það býr meira í Þórs-liðinu
en menn óraði fyrir. Það hefði
þótt saga til næsta bæjar ef Þór
hefði því nær unnið upp slíkt
forskot í þriðju deildinni í fyrra
en það gerðu þeir nú. Staðan
undir lok fyrri hálfleiks, 9:8 Fram
í hag í hálfleik munaði aðeins
tveim mörkum, 11:9.
Á upphafsmínútum síðari hálf-
leiks, misnotuðu Þórsarar tvö
vítaköst í röð en Framarar gengu
á lagið og breyttu stöðunni í 14:9.
Heilar 14 mínútur liðnar af síðari
hálfleik án þess að Þórsurum
tækist að skora en eftir stangar-
skot frá Guðjóni Magnússyni,
náði Hörður boltanum og skor-
aði tíunda mark Þórs.
Sigurður „stórskytta" Pálsson
hafði haft sig lítið í frammi fram
að þessu en af næstu sex mörkum
Þórs, gerði hann fimm, flest með
uppstökkum. Staðan 19:16 en
undir lokin náðu Framarar að
tryggja sér sigur 22:18.
Ef Þórsarar hefðu verið
grimmari í vörninni í þessum
leik, nýtt vítaköstin og stöðvað
Jón Árna í sókninni hjá Fram,
hefðu úrslitin í þessum leik orðið
á annan veg. Við má bæta að ef
Sigurður Pálsson hefði stillt
„kanónuna" fyrr þá hefði það
getað gert út um leikinn. Það
þýðir hins vegar ekkert fyrir
Þórsara að naga sig í handarbök-
in. Þeir verða bara að gera betur
næst.
Sigurður Þórarinsson, mark-
vörður Fram var svo sannarlega
maður þessa leiks. Varði alls 20
skot, þar af tvö vítaköst. Óskar
var markahæstur Framara með 7
mörk en Jón Arni skoraði 6.
Mörk Þórs: Sigurður Pálsson
6. Gunnar M. 3, Hörður 3,
Guðjón 2, Rúnar 2 og Gunnar E.
2.
Nói Björnsson sem kom inn á
um miðjan fyrri hálfleik stóð sig
með sóma í markinu og varði ein
tíu skot. - ESE.
Gunnar M. Gunnarsson skorar fyrir Þór gegn Fram.
„BARÁTTAN
LOFAR GÓÐU“
Þaö er óþarfi aö gráta þaö
þó þessi leiktir hafi tapast. Það
er mikiö eftir af mótinu og viö
eigum eftir aö standa okkur
betur, sagöi Guöjón Magnúson,
þjálfari Þórs eftir leikinn gegn
Fram.
Aö sögn Guöjóns er greini-
legt ;i leikjum helgarinnar aö
leikmenn eiga talsvert eftir til
aö teljat komnir í fullkomna æf-
ingu. Úthaldiö sé gott en
skotæfing lítil sem cngin.
- Þaö sem var ánægjulegast
\ iö þennan leik var það aö leik-
ntenn Þórs gáfust ekki upp þó á
móti blési um tíma. Þeir börö-
tist á fuilu allan leikinn og þaö
lofur góöu um framhaldiö. sagöi
Guöjón Magnússon. - ESE.
Friðjón Jónsson átti mjög góðan ieik fyrir KA. Hér brýst hann í gegnum vörn Fram og skorar. Mynd: KGA
ENSKA KNATTSPYRNAN:
EVERTON MALAÐI
MANCHESTER UNITED
- Arsenal og Sheffield Wed töpuðu
Öll þrjú toppliðin í Englandi
fyrir umferðina um helgina
töpuðu leikjum sínum. Ever-
ton malaði Man. Utd. 5:0,
West Ham vann léttan sigur á
toppliði Arsenal 3:1 og Coven-
try vann „spútnikliö" Sheffield
Wed. 1:0.
Stórleikur umferðarinnar var
á Göodison Park í Liverpool þar
sem Everton fékk Man. Utd. í
heimsókn. Everton hóf strax
mikla sókn og er um 30 mínútur
voru liðnar af leiknum var Kevin
Moran ntiðvörður Man. Utd.
tekinn út af. Hann hafði þá lagt
upp tvö mörk fyrir Everton sem
þeir Kevin Sheedy og Adrian
Heath skoruðu. í stað Moran
kom Frank Stapleton inn á - hans
fyrsti leikur í vetur - en Moses
var færður aftur. Hann hafði ekki
verið lengi í miðvarðarstöðunni
er hann lagði upp mark fyrir
Kevin Sheedy. Staðan 3:0 í hálf-
leik.
í seinni hálfleik hélt sókn
Everton áfram og áður en yfir
lauk höfðu þeir bætt tveim
mörkum við. Fyrst varnarmaður-
inn Stevens en lokaorðið átti
Graeme Sharp. Að mati þeirra
sem lýstu leiknum áttu leikmenn
Everton möguleika á að bæta við
mörkum en það eina sem hægt er
að segja leikmönnum Man. Utd.
til hróss er að þeir gáfust aldrei
upp á að leika sóknarknatt-
spyrnu, þó það væri freistandi að
leggjast í vörn.
í Lundúnum var „styrjaldar-
ástand" þegar West Ham og
Arsenal mættust í sannkölluðum
Derby-leik. Fyrir leikinn höll-
uðust flestir að því að toppliðið
myndi vinna öruggan sigur en
leikmenn West Ham mættu
ákveðnir til leiks. Komust í 2:0
með mörkum Tony Cottie og
Paul Goddard en Ian Allison
minnkaði muninn rétt fyrir
leikhlé. í síðari hálfleik bætti
Geoff Pike svo marki við fyrir
WH og úrslitin því 3:1. Sann-
gjarn sigur að mati fréttaskýrenda.
Um aðra leiki er það helst að
segja að stórbreytingar voru
gerðar á liði fallkandídata Leic-
ester. Liðið var síðan drifið á æf-
ingu klukkan sjö á laugardags-
morgni og fyrir hádegi var leikið
gegn Aston Villa. Er skemmst
frá því að segja að „morgunhan-
arnir" rótburstuðu lið Aston
Villa 5:0.
Úrslit umferðarinnar urðu
annars þessi:
Chelsea - Ipswich 2:0 1
Coventry - Sheff. Wed. 1:0 1
Everton - Man. Utd. 5:0 1
Leicester - Aston V. 5:0 1
Norwich - QPR 2:0 1
Sunderland - Luton 3:0 1
Watford - Newcastle 3:3 X
WBA - Southampton 0:0 X
West Ham - Arsenal 3:1 1
Barnsley - Charlton 1:0 1
Cardiff - Grimsby 2:4 2
C. Palace - Fulham 2:2 X
Þrír síðasttöldu leikirnir eru
í 2. deild en úrslitin í þeim
Ieikjum fyrstu deildar sem ekki
eru á getraunaseðlinum eru
þessi:
Tottenham - Stoke 4:0
Nottingham - Liverpool 0:2
Staðan í 1. deild:
Arsenal 12 25
Everton 12 23
Tottenham 12 22
Sheffield 12 21
West Ham 12 21
Man. Utd. 12 20
Nott. Forest 12 18
Newcastle 12 17
Southampton 12 17
Sunderland 12 17
Chelsea 12 16
Ipswich 12 15
Áston Villa 12 14
QPR 11 14
Norwich 12 14
Liverpool 12 14
WBA 12 13
Luton 12 12
Leicester 12 12
Coventry 12 12
Watford 12 8
Stoke 11 7
„Við ætlum
okkur upp“
- Við erum ennþá að þreifa
fyrir okkur en það er ekkert
leyndarmál að við ætlum okk-
ur ekkert annað en fyrstu
deildarsæti. Við ætlum upp
næsta ár. Þetta sagði Guð-
laugur Bessason hjá Völs-
ungum er blaðamaður Dags
innti hann eftir stöðu mála.
Guðlaugur sagði að Völsungar
stefndu að því að fá þjálfara sem
jafnframt gæti leikið með liðinu
og eins þrjá nýja leikmenn að
auki.
- Þetta ætti allt saman að skýr-
ast eftir vikutíma eða svo og fyrr
getum við ekki skýrt frá því
hverjir eru inni í myndinni, sagði
Guðlaugur Bessason. - ESE
HNIFJAFNT
- hjá Þór og ÍBV í 1. deild kvenna
Þórsstúlkurnar í handknattleik
voru óheppnar að hirða ekki
bæði stigin þegar þær mættu
stúlkunum úr IBV í íþrótta-
höllinni á laugardaginn. Stað-
an 14:14 og um 40 sekúndur til
leiksloka og Þór með boltann.
En upplagt tækifæri fór for-
görðum og þegar upp var stað-
ið máttu bæði liðin þakka fyrir
sitt hvort stigið.
Eins og venjulega, var allt í
járnum hjá þessum liðum.
Leikirnir í fyrra allir hnífjafnir og
engin breyting á að þessu sinni.
Staðan 6:6 í hálfleik. I síðari hálf-
leik fóru þær svo í gang, Inga
Huld Pálsdóttir hjá Þór og Ragna
Birgisdóttir hjá ÍBV en þar hafði
sú síðarnefnda vinninginn. Skor-
aði sex ntörk í hálfleiknum, sjö í
allt en Inga Huld skoraði fjögur í
þessum hálfleik, fimm í leiknum.
ÍBV-stúlkurnar voru yfirleitt
fyrri til að skora í leiknum en
Þórs-stúlkurnar jöfnuðu alltaf
metin.
Markahæstar í liði Þórs: Inga
Huld 5, Valdís Hallgrímsdóttir 4,
Þórunn Sigurðardóttir 2, Stein-
gerður Gísladóttir 1, Sigurlaug
Jónsdóttir 1 og Hanna Rúna Jó-
hannsdóttir, fyrirliði 1. - ESE.
SIGUR
HJÁKA
- á Akureyrarmótinu í blaki
A-lið KA í karla- og kvenna-
fiokki voru sigursæl á Akur-
eyrarmótinu í blaki sem fram
fór í Höllinni á laugardag.
í karlaflokki kepptu KA-
menn til úrslita við A-lið frá blak-
deild Skautafélagsins og unnu
nokkuð öruggan sigur. A-lið Óð-
ins varð í þriðja sæti en B-lið
Skauta í því fjórða.
í kvennaflokki unnu KA-stúlk-
ur A-lið Eikarinnar í úrslitum. B-
lið Eikar varð í þriðja sæti og B-
lið KA í því fjórða.
Á milli 90 og 100 keppendur
voru á þessu mikla móti sem
byrjaði kl. 8 að morgni og lauk
ekki fyrr en um kl. 16. Gestir á
þessu móti voru blaklið Þróttar
frá Neskaupstað í karla- og
kvennaflokki. Nánar verður
skýrt frá úrslitum í einstökum
leikjum mótsins síðar. - ESE.
KA vann karla- og kvennaflokk á Akureyrarmóti í blaki.
Mynd: KGA